Morgunblaðið - 28.05.1999, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 28. MAÍ 1999 29
___________________ERLENT____________________
Óvissa í Moskvu um hver sé í raun fjármálaráðherra
Stjórn Stepashíns
sögð loga í illdeilum
Moskvu. Reuters, AFP.
SERGEJ Stepashín, forsætisráð-
herra Rússlands, reyndi í gær að
gera lýðum ljóst að ekki þyrfti að
velkjast í vafa um hver færi með
völdin í ríkisstjóm hans en fjölmiðl-
ar í Rússlandi höfðu áður greint frá
því að allt logaði í illdeilum innan
stjórnarinnar og að mikil óvissa ríkti
um verkaskiptingu ráðherra. „Ég vil
enn á ný ítreka að þessari ríkis-
stjórn er stjórnað af forsætisráð-
herranum og hann er í forsvari íyrir
öllum hennar aðgerðum," sagði
Stepashín við upphaf ríkisstjórnar-
fundar í gær. „Ég vil biðja alla að
hafa þetta í huga.“
Dimitri Jakushkín, talsmaður
Borís Jeltsíns Rússlandsforseta,
neitaði fregnum um að hver höndin
stæði upp á móti annarri í Kreml
vegna deilu um það hver færi raun-
verulega með stjórn efnahagsmála í
stjórn Stepashíns. Fréttaskýrendur
fullyrtu engu að síður að hörð valda-
barátta væri nú háð í Kreml þar sem
þeir Borís Jeltsín Rússlandsforseti,
Stepashín, og aðstoðarforsætisráð-
herrarnir tveir, Míkhaíl Zadornov
og Nikolaí Aksjonenko, léku aðal-
hlutverk, auk áhrifamikilla fjármála-
jöfra.
Zadomov allt annað
en ánægður
Var því jafnvel haldið fram að
Stepashín væri reiðubúinn til að
segja af sér, eftir aðeins viku í starfi,
vegna þess að augljóst væri að
Jeltsín væri ekki reiðubúinn til að
Fregnir um
harða valdabar-
áttu í Kreml
gefa honum frjálsar hendur við skip-
an ríkisstjórnarinnar.
Jeltsín hafði á þriðjudag skipað
Zadornov aðstoðarforsætisráðherra,
ábyrgan fyrir efnahagsmálum. Jafn-
framt var þess þá getið að Zadomov
yrði áfram fjármálaráðherra. Að
kvöldi þriðjudags var hins vegar
greint frá því að Míkhaíl Kasjanov,
helsti samningamaður Rússa í við-
ræðum við lánardrottna, myndi taka
við fjármálaráðuneytinu og á mið-
vikudag tilkynnti síðan Aksjonenko
að hann myndi stýra helstu aðgerð-
um í efnahagsmálum en ekki Za-
domov.
Ef marka má fréttaflutning rússn-
eskra fjölmiðla hótaði Zadomov þá
að segja af sér fengi hann ekki að
gegna fjármálaráðherraembættinu
áfram, auk þess að sinna embætti
aðstoðarforsætisráðherra. Töldu
rússneskir fjölmiðlar ekki ólíklegt í
gær að Zadornov yrði fjármálaráð-
herra eftir allt saman þótt hvorki
hann né Stepashín vildu úttala sig
um málið í gær.
Zadornov sagði þó eftir ríkis-
stjómarfundinn í Moskvu að allt
yrði þetta ákveðið á fúndi í dag,
föstudag. „Ég tel líklegt að þá mun-
um við ákveða hvaða verk ég tek að
mér. En fyrir liggur að ég mun hafa
með efnahagsmál að gera,“ sagði
Zadomov.
Uppnám síðustu daga er sagt
skýrast af togstreitu milli Zadomovs
og Aksjonenkos en ekki síður erfið-
leikum í samskiptum Stepashíns og
Jeltsíns en Jeltsín hafði skipað Ak-
sjonenko aðstoðarforsætisráðherra
við lítinn fögnuð Stepashíns. Ak-
sjonenko, sem var áður ráðherra
jámbrautarmála, er sagður hallur
undir fjármálajöfurinn Borís Ber-
ezovský sem nú vill seilast til áhrifa í
rússneskum stjómmálum á nýjan
leik þegar Jevgení Prímakov er horf-
inn úr forsætisráðherrastólnum.
Óvænt útspil Jeltsíns
valda uppnámi
Til að vega upp á móti áhrifum
Aksjonenkos fékk Stepashín Jeltsín
til að samþykkja að annar aðstoðar-
forsætisráðherra yrði skipaður en
Jeltsín tók sig þá til og skipaði Za-
dornov í embættið, en ekki þann
mann sem Stepashín sjálfur hafði
viljað.
Til að bæta á óreiðuna stóðu bæði
Stepashín og Zadornov í þeirri trú
að Zadomov yrði einnig áfram fjár-
málaráðherra og kom það því öllum
á óvart þegar Jeltsín skipaði skyndi-
lega Kasjanov í starfið. Sú embætt-
isveiting ku ekki aðeins hafa komið
Stepashín og Zadomov á óvart held-
ur kom hún Kasjanov sjálfum full-
komlega í opna skjöldu þar sem
hann var staddur í London í viðræð-
um við lánardrottna.
Stretchbuxur kr. 2.900
Konubuxur frá kr. 1.690
Dragtir, kjólar,
blússur og pils.
Ódýr náttfatnaður.
Nýbýlavegi 12, sími 5544433
sjáðu framtíðina í focus
brimborg
AUK k959d37-107 sia.is