Morgunblaðið - 30.06.1999, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ_________
HESTAR
Enn harðnar keppnin um landsliðssætin tvö
Jóhann Skúlason
og Fengur komn-
ir inn í myndina
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
JÓHANN R. Skúlason sýndi Feng frá íbishóli í flokki stóðhesta á síð-
asta heimsmeistaramóti í Seljord í Noregi og stóð hann efstur í sínum
flokki. Nú virðast tvennar dyr vera að opnast fyrir þá félaga til að
komast á heimsmeistaramótið í Þýskalandi.
BARATTAN um lausu landsliðssætin
tvö stendur sem hæst um þessar
mundir. Sigurður Sæmundsson
landsliðseinvaldur lét þau boð út
ganga að þeir sem hygðust stefna á
sætin yrðu að mæta í keppni til að
sýna sig og sanna ætluðu þeir sér að
eiga von. En það eru ekki bara knap-
ar hér á landi sem knýja dyra því
nokkrir íslenskir knapar sem búsettir
eru erlendis eru taldir eiga góða von.
Þar stendur best að vígi Rúna Ein-
arsdóttii' á Snerpu frá Dalsmynni
sem sigraði í tölti á úrtökumóti í
Þýskalandi á dögunum eins og fram
hefur komið.
Nú hafa borist fréttir af Feng frá
íbishóli og Jóhanni R. Skúlasyni en
þeir unnu góðan sigur á Norður-
landameisturunum í tölti, Hreggviði
Eyvindssyni og Kjama frá Kálfhóli
nýlega á suður-sænska meistaramót-
inu og eru þeir taldir í mjög góðu
formi þessa dagana. Jóhann og Feng-
ur hafa verið að fá þetta á bilinu 7,5
uppundir 8,0 í tölti á mótmn undan-
farið. Sigurði er mikill vandi á hönd-
um því Jóhann á möguleika á sæti í
tveimur landsliðum. Hann er íslensk-
ur ríkisborgari sem tryggir honum
aðgang að íslenska liðinu og hann hef-
ur búið lengur en tvö ár í Danmörku
sem tryggir honum aðgang að danska
liðinu. Danska meistaramótið þar
sem danska landsliðið verður valið
verður haldið helgina 9.-11. júlí og
verður Sigurður helst að vera búinn
að ákveða sig hvort hann þiggur lið-
sinni Jóhanns og Fengs fyrir mótið.
Jóhann sagðist í samtali við Morg-
frá Svignaskarði, 5,97
2. Kristján Magnússon Herði, á Draupni frá
Sauðárkróki, 5,57
3. Sigurður S. Pálsson Herði, á Snerru frá
Syðra-Skörðugili, 4,26
4. Perla D. Þórðardóttir Sörla, á Blæ frá
Stafholtsveggjum, 4,05
5. Sigþór Sigurðsson Fáki, á Blesu, 4,02
ísl. tvík.: Unnur G. Vilhjálmsdóttir Fáki
Skeiðtvík.: Berglind R. Guðmundsdóttir
Gusti
Stigah. kn.: Sigurður S. Pálsson Herði
Tölt - börn
1. Linda R. Pétursdóttir Herði, á Fasa frá
Nýjabæ, 6,30
2. Gunnhildur Gunnarsdóttir Mána, á Prins
frá Ketilsstöðum, 5,93
3. Unnur G. Ásgeirsdóttir Fáki, á Vin frá
Reykjavík, 5,80
4. íris F. Eggertsdóttir Herði, á Létti frá
Öxl, 5,56
5. Halldóra S. Guðlaugsdóttir Herði, á Gló-
björtu frá Lækjarbakka, 3,16
Fjórgangur - börn
1. Auður S. Ólafsdóttir Mána, á Sóllilju frá
Feti, 6,16
2. Elín H. Sigurðardóttir Geysi, á Ósk frá
Ey, 6,06
3. Linda R. Pétursdóttir Herði, á Darra frá
Þykkvabæ, 6,04
4. Sandra L. Þórðardóttir Sörla, á Feng frá
Skammbeinsstöðum, 5,77
5. Halldóra S. Guðlaugsdóttir Herði, á Gló-
björtu frá Lækjarbakka, 5,73
ísl. tvík.: Halldóra S. Guðlaugsdóttir Herði
Stigah. kn.: Linda R. Pétursdóttir Herði.
unblaðið frekar kjósa íslenska liðið,
hefði hann einhverja valkosti en aðal-
málið fyrir sig væri þó að komast á
heimsmeistaramótið og keppa þar.
Hann vildi heldur ekki láta líta svo út
að hann notaði danska landsliðið eins
og einhverja varaskeifu til að komast
á mótið en hann væri íslendingur og
auðvitað væri það draumur allra
íþróttamanna að keppa fyrir land sitt
og þjóð.
Sigurður einvaldur hefur látið þau
orð falla að styrkja þurfi fimmgangs-
vænginn og töltið í íslenska landslið-
inu og nú horfir svo við að í boði eru
tveir sterkir keppendur í tölti, Jó-
hann/Fengur og Rúna/Snerpa. Ólík-
legt má teija að þau verði bæði valin
en Jóhann hefur betri stöðu að því
leyti að hann á möguleika á sætum í
tveimur landsliðum. Það gæti verið
aulaleg staða ef Sigurður hafnaði
honum og Jóhann síðan hugsanlega
hirt sigurinn í tölti á heimsmeistara-
mótinu íyrir framan nefið á Islend-
ingum. En eins og Sigurður segir
þarf að styrkja fimmganginn og þar
virðast vera efstir á blaði þessa
stundina Páll Bragi Hólmarsson með
ísak frá Eyjólfsstöðum, Sigurður V.
Matthíasson með Demant frá Bólstað
og þá virðist Vignir Jónasson með
Klakk frá Búlandi heldur búinn að
laga stöðu sína eftir sigurinn í fimm-
gangi á Silkiprentsmótinu. Staða
Sveins Ragnarssonar með Reyk frá
Hoftúni er hinsvegar ekki alveg eins
góð eins og búast hefði mátt við og
hið sama má segja um Sigurð Sigurð-
arson á Prins frá Hörgshóli. Það er á
brattan að sækja hjá þessum tveimur
þótt ekki sé öll von úti enn.
Það sem kann að hafa áhrif á val á
fimmgangshesti er frammistaða í
slaktaumatölti og eins möguleikar á
sigri í samanlögðu. Eins og staðan er
í dag virðast möguleikar Sigurbjörns
Bárðarsonar á að komast í landsliðið
liggja í því að hann fái Gordon frá
Stóru-Ásgeirsá lánaðan og komi inn
sem heimsmeistari. Þá hefur ekkert
gerst í máli Loga Laxdal og óljóst á
þessari stundu hvort hann fer utan
með Freymóð frá Efstadal eða keppi
á Sprengi-Hvelli frá Efstadal á sömu
forsendum og Sigurbjörn með Gor-
don.
Logi mætti með Freymóð á tvenn-
ar kappreiðar um helgina. A föstudag
hljóp hann upp báða sprettina á
Varmárbökkum en skilaði 22,66 sek.
á Murneyri og sigri í 250 metrunum.
Minna má á að verði Loga hrókerað
yfir á Sprengi-Hvell losnar eitt sæti í
liðinu sem Sigurður velur í.
Þýska meistaramótið verður haldið
um næstu helgi og munu sjálfsagt
margir bíða spenntir eftir að sjá
hvemig Rúnu og Snerpu muni ganga
í slagnum við Þjóðverjana. Ef hún
sigrar ætti hún að hafa öll tromp á
hendi en bíðum við og sjáum hvað
setur...
MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 1999 49
-----------------------—
Röðun í heimsmeistara-
keppnina í skák tilkynnt
SKAK
Las Vegas
HEIMSMEISTARAKEPPNIN
í SKÁK
30. júlí - 29. ágúst
HANNES Hlífar Stefánsson
teflir við Úkraínumanninn Alex-
ander Zubarev í fjrrstu umferð
heimsmeistarakeppninnar í skák
sem hefst í Las Vegas eftir rúman
mánuð. Hann er nokkru stigalægri
en Hannes og er með 2.478 stig.
Zubarev er ungur titillaus skák-
maður sem verður tvítugur í des-
ember. Ætla má að möguleikarnir
á því að komast áfram liggi Hann-
esar megin.
Fari svo að Hannes sigri Zubarev
þá mætir hann rússneska stór-
meistaranum Sergey Shipov, sem
er með 2.661 stig, í annarri umferð.
Björgvin Jónsson verður aðstoð-
armaður Hannesar í heimsmeist-
arakeppninni.
Einungis tveir aðrir skákmenn
frá Norðurlöndum unnu sér rétt til
þátttöku í heimsmeistarakeppninni.
Peter Heine Nielsen mætir banda-
ríska stórmeistaranum Joel Benja-
min og Ralf Ákesson teflir við enska
stórmeistarann Anthony Miles.
Það vekur athygli að Gata Kam-
sky er skráður til keppninnar, en
hann hefur ekki tekið þátt í skák-
mótum frá því hann tapaði einvíginu
fyrir Karpov fyrir þremur árum.
Reyndar er Karpov sjálfur einnig á
þátttakendalistanum þrátt fyrir yf-
irlýsingar hans um að taka ekki þátt
í keppninni.
Jón Viktor sigrar
á Boðsmótínu
Boðsmót T.R. var haldið 9.-23.
júní. Mótið var hluti af Bikarkeppn-
inni í skák 1999. Jón Viktor Gunn-
arsson sigraði á mótinu, fékk sex
vinninga í sjö umferðum. í 2.-3.
sæti urðu Amar E. Gunnarsson og
Sigurður Daði Sigfússon með 514
vinning. Röð efstu manna varð ann-
ars þessi:
1. Jón Viktor Gunnarsson 6 v.
2. Arnar E. Gunnarsson 514 v.
3. Sigurður Daði Sigfússon 5‘/2 v.
4. -6. Torfi Leósson, Guðjón Valgarðsson
og Dagur Arngrímsson 4*/2 v.
7.-11. Þorvarður F. Ólafsson, Sigurður
Páll Steindórsson, Ólafur ísberg Hann-
esson, Guðmundur Kjartansson og Ólaf-
ur Kjartansson 4 v.
12.-16. Jóhann H. Ragnarsson, Arngrím-
ur Gunnhallsson, Vigfús Ó. Vigfússon,
Bjami Magnússon og Hjörtur Þór Daða-
son 3V4 v.
o.s.frv.
Að þessu sinni tóku 29 keppendur
þátt í mótinu, sem haldið var hjá
T.R. Skákstjóri var Ólafur H. Ólafs-
son.
T.R. - Hellir: 38-34
Undanúrslitum í Hraðskákkeppni
taflfélaga á Suðvesturlandi er nú
lokið. Það voru Taflfélag Garðabæj-
ar, Taflfélag Reykjavíkur, Hellir og
Skákfélag Hafnarfjarðar sem tefldu
í undanúrslitum. Úrslitin urðu
þessi:
Tf. Garðabæjar - Sf. Hafnarfj. 251/2-
46V2
Hellir - T.R. 34-38
Garðabær og Hafnarfjörður
tefldu á þriðjudagskvöld eins og
greint var frá í síðasta skákþætti,
en Hellir og T.R. mættust hins veg-
ar á fimmtudagskvöld
Keppni T.R. og Hellis var hníf-
jöfn til að byrja með, en T.R-ingar
sigu yfir og höfðu yfir í hálfleik 20-
16. Hellir náði að jafna eftir 8 um-
ferðir, en T.R. náði aftur yfirhönd-
inni og hafði 6 vinninga forystu fyr-
ir síðustu umferð. T.R. þurfti því
aðeins 14 vinning í síðustu umferð.
T.R. fékk tvo vinninga og sigraði
því 38-34.
Líkt og í fyrra stóð Margeir Pét-
ursson sig best í T.R. liðinu, fékk
SVivinning. Helgi Ólafsson stóð sig
best Hellismanna, fékk 10 vinninga.
Þetta var fimmta sinn á fimm ár-
um sem Hellir og T.R. mætast í
JÓN Viktor og Sigurður Daði tefla úrslitaskákina á Boðsmótinu.
HANNES Hlífar verður fúll-
trúi Islands í heimsmeistara-
keppninni.
þessari keppni og hafa félögin sigr-
að tii skiptis. Það verða því Skákfé-
lag Hafnarfjarðar og Taflfélag
Reykjavíkur sem tefla til úrslita.
Viðureignin fer fram á heimavelli
S.H. Dagsetning hefur ekki verið
ákveðin.
Kasparov gegn
heiminum
Fyrstu leikjunum í skák Ka-
sparovs gegn heiminum hefur nú
verið leikið. Kasparov hefur hvítt og
upp kom Sikileyjarvöm. Kasparov
kaus að víkja af alfaraleið þegar
hann lék 3. Bb5+:
l.e4 c5 2.RÍ3 d6 3.Bb5+ Bd7
Allar nánari upplýsingar er að
finna á vefsíðunni zone.msn.com/.
Einnig er tenging yfir á síðuna af
heimasíðu Taflfélagsins Hellis:
www.simnet.is/hellir. Enn er hægt
að skrá sig í keppnina þótt skákin
sé hafin.
Portisch og Ivkov sigra á
Petrosian-mótinu
Minningarmótinu um Tigran
Petrosian er nú lokið í Moskvu. Þeir
Borislav Ivkov og Lajos Portisch
sigruðu á mótinu, eftir að hafa haft
forystuna nánast frá upphafi. Loka-
úrslitin urðu þessi:
1.-2. Borislav Ivkov og Lajos Portísch 5 v.
3.-8. Yuri Balashov, Vlastimil Hort,
Vassily Smyslov, Boris Spassky, Mark
Taimanov og Vitaly Tseshkovsky 414 v.
9.-10. Svetozar Gligorich og Bent Larsen
4 v.
Þessir kappar hafa vafalítið haft
gaman af því að hittast á nýjan leik,
þótt baráttugleðin sé ekki lengur sú
sama og þegar þeir börðust um
æðstu metorð í skákheiminum. Það
er kannski ekki að undra hjá mönn-
um eins og Smyslov sem fæddist ár-
ið 1921 og er því orðinn 78 ára gam-
all. Það er reyndar aðdáunmwert
hversu lengi hann hefur haldið
skákstyrkleika sínum.
Helgi Áss í Andorra
Helgi Áss Grétarsson tekur um
þessar mundir þátt í sterku alþjóð-
legu skákmóti í Andorra, en meðal
þátttakenda eru u.þ.b. 20 stórmeist-
arar auk fjölda annarra titOhafa.
Mótið hófst 26. júní og það stendur
tO 4. júlí. Tefldar verða níu umferðir
eftir svissnesku kerfi.
Helgi Áss hefur búið í Tékklandi
undanfama mánuði. Hann tefldi
mikið fyrstu mánuði ársins og náði
mjög góðum árangri. Hann varð of-
arlega á ROton skákmótinu í Sví-
þjóð, varð í öðru sæti á lokuðu móti
í Bermúda og náði frábærum ár-
angri á sterku skákmóti í Capelle la
Grande. Þá varð hann Atskákmeist-
ari íslands í febrúar. Auk þess tók
Helgi Áss bæði þátt í íslensku og
sænsku deOdakeppninni og Stór-
meistaramóti Grand-Rokks.
Eftir stífa taflmennsku fyrstu
mánuði ársins hefur hann farið sér
hægar að undanförnu þótt hann hafi
engan veginn setið auðum höndum.
I byrjun maí tefldi hann í ensku
deOdakeppninni fyrir taflfélag sem v
tókst að vinna aðra deOd og komast
þar með upp í fyrstu deild að ári.
Helgi Áss fékk tvo vinninga í þeim
þremur skákum sem hann tefldi.
Þann 22.-23. maí tók Helgi síðan
þátt í atskákmóti í Bamberg í
Þýskalandi þar sem hann lenti í
3.-5. sæti á eftir stórmeisturunum
Bezold og Teske. Helgi Áss fékk
átta vinninga af eUefu mögulegum.
Þann 29. maí tók hann þátt í 15 mín-
útna móti í Prag sem var nokkuð
sterkt. Auk Helga Áss tók einn
stórmeistari, Meduna, þátt í mótinu
auk nokkurra alþjóðlegra meistara.
Keppendur voru 14 og tefldu allir
við alla. Helgi Áss vann mótið með
12 vinningum af 13 mögulegum. ^
Undanfarnar vikur hefur megin-
tími Helga Áss farið í að undirbúa
sig fyrir skákmótið í Andorra. Það
hefur mátt merkja miklar framfarir
hjá Helga Áss á þessu ári og spenn-
andi verður að fylgjast með hvemig
honum vegnar nú eftir að hafa feng-
ið tækifæri tO að setjast aftur yfu'
fræðin.
Frankfurt-skákmótíð
í gær hófst í Frankfurt í Þýska-
landi afar sterkt atskákmót sem á
eftir að vekja mikla athygli. Keppt
er í tveimur flokkum: Siemens risa-
flokki og meistaraflokki. Skákris-
amir em eftirtaldir:
Gary Kasparov (2812)
Viswanathan Anand (2781)
Vladimir Krámnik (2751)
Anatoly Karpov (2710)
í meistaraflokki tefla:
Alexander Morosevich (2723)
Michael Adams (2716)
Peter Svidler (2713)
Veselin Topalov (2700)
Peter Leko (2694)
Judit Polgar (2677)
Christopher Lutz (2610)
Fritz 6 (skákforrit)
Skákmót á næstunni
TOkynningar um skákmót og
aðra viðburði sendist tO umsjónar-*
manna skákþáttar Morgunblaðsins.
Tölvupóstfangið er dadi@vks.is.
Einnig má senda annað efni og at-
hugasemdir við skákþættina á sama
póstfang.
2.7. Skákþing Garðabæjar kl. 19:30.
5.7. Hellir. Atk'öid ki. 20.
Daði Örn Jónsson
Hannes Hlífar Stefánsson1-