Morgunblaðið - 29.07.1999, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 1999 9
FRÉTTIR
Hjólar um landið á handaflinu einu saman
Hætti við hálendið
ENGLENDINGURINN og fyrr-
verandi hermaðurinn Darren Swift,
sem hugðist hjóla á handaaflinu
einu yfír hálendi Islands, þurfti að
breyta áætlun sinni á laugardaginn
þegar hann var kominn að Geysi í
Haukadal. I stað þess að hjóla norð-
ur Kjöl og til Raufarhafnar hefur
hann ákveðið að hjóla frá Höfn í
Hornafirði um Suðurland og í átt til
Reykjavíkur.
Swift, sem missti báða fætur í
sprengingu á Norður-írlandi, sagði
að veðrið hefði verið hræðilegt á
leiðinni að Geysi og leiðin mjög erf-
ið, þá hefði hann einnig næstum lent
í umferðarslysi og hjólið bilað.
Hann sagði að sér hefði því þótt
skynsamlegast að breyta áætluninni
og tók hann rútu frá Geysi til Akur-
eyrar þar sem hann gisti aðfaranótt
sunnudags. A Akureyri ráðfærði
hann sig við fólk og eftir góðar ráð-
leggingar ákvað hann að fara með
rútu til Hafnar í Homafirði á
sunnudaginn og hjóla þaðan í átt til
Reykjavíkur.
Þegar blaðamaður Morgunblaðs-
ins ræddi við Swift í gærkvöld var
hann kominn á Kirkjubæjarklaust-
ur og sagði hann veðrið hafa verið
alveg frábært á leiðinni frá Höfn en
aðafaranótt þriðjudagsins gisti
hann í Skaftafelli.
Orðinn nokkuð brúnn
„Eg er meira að segja orðinn
nokkuð brúnn og fólk heima á aldrei
eftir að trúa því að ég hafi verið á
Islandi," sagði Swift, sem lagði af
stað í ferðina á fimmtudaginn. Hann
sagðist hafa fengið mikinn stuðning
frá fólki á ferð sinni um landið og að
nánast hver einasti maður hefði
vinkað til hans eða rétt upp þumal-
inn í hvatningarskyni.
Swift sagðist að sjálfsögðu vera
svolítið svekktur yfir að hafa ekki
Morgunblaðið/Ágúst Þorsteinsson
ARNALDUR Gylfason og Bryndís Ernstsdóttir unnu sigur í sinum
flokkum í Laugavegshlaupinu, sem fór fram um helgina.
Ný met í Lauga-
vegshlaupinu
MET voru sett í karla- og kvenna-
flokki í Laugavegshlaupinu, sem
fór fram um síðustu helgi, en þá
hlupu 86 manns frá Landmanna-
laugum yfir í Þórsmörk, um 55
km langa leið.
Amaldur Gylfason stórbætti
met Rögnvalds D. Ingþórssonar
og hljóp á 4.49,28 kist., sem er
bæting upp á rúmar 30 mínútur,
en fyrra metið var 5.19,54 klst.
Bryndís Emstsdóttir bætti sitt
eigið met um rúmar 13 mínútur,
en hún hljóp nú á 5.31,15 klst., en
fyrra metið var 5.44,26 klst. Þau
Bryndís og Arnaldur hlutu bæði
utanlandsferð á vegum Flugleiða í
verðlaun fyrir árangurinn.
Alls hófu 95 manns keppni, en 9
heltust úr Iestinni við Emstmr þar
sem þeir vom undir tímamörkum
sem sett höfðu verið fyrir keppn-
ina og því vom þeir keyrðir yfir í
Þórsmörk. Laugavegshlaupið nýt-
ur sívaxandi vinsælda og aldrei
fyrr hafa þátttakendur verið fleiri
en nú, en þetta var í þriðja skiptið
sem hlaupið fór fram.
farið samkvæmt fyrstu áætlun en
ferð hans hér er liður í því að safna
peningum handa breskri góðgerðar-
stofnun sem þjálfar hunda fyrir
heyrnarlausa. Hann sagðist hafa
safnað áheitum og fengi borgað fyr-
ir hvern kílómetra og því ætlaði
hann að reyna að komast eins langt
áleiðis til Reykjavíkur og mögulegt
væri fyrir föstudag.
Swift ætlar að hjóla til Hvolsvall-
ar eða Hellu í dag. Hann sagði að ef
hann myndi ekki komast alla leið tO
Reykjavíkur á föstudaginn myndi
hann jafnvel taka rútuna frá Sel-
fossi. Hann sagðist samt vOja fara
út úr henni rétt áður en hann kæmi
að borgarmörkunum og hjóla síð-
asta spölin, svona tO að ljúka ferð-
inni á sama stað og hann hóf hana.
Swift sagðist síðan ætla að eyða
helginni með eiginkonu sinni í
Reykjavík og að þau myndu halda
af landi brott á mánudaginn.
BRYGGIUSVÆÐI
Á bryggjum verður oft launhált
vegna vatns eða íslngar.
Ökum hægt á bryggjum!
Hjól og línur
Sýndu a
Toppurinn í sandölum
KATA
Höggdeyfandi sóli með grófum botni.
Níðsterkir og ótrúlega þægilegir skór.
Stretchbuxur á útsölu!
Eddufelli 2 - sími 557 1730.
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18, lau. 10—15.
íkonar \ Borðstofuborð
Ljósakrónur / //T \ Bókahillur
flZZntíh \
• mumr •
*
Urval góðra gripa
Antíkmunir, Klapparstíg 40, sími 552 7977.
Skólavörðustfgur — 3ja herb.
Falleg 3ja herb. íbúð, 81 fm á 1. hæð með tveimur rúmgóðum
svefnherb., stofu með suðursvölum, eldhúsi með ágætum borð-
krók og baðherb. með glugga. íbúðin er örstutt frá Skólavörðuholti.
Verð 8,7 millj.
Séreign, sími 552 9077,
Skólavörðustíg 41.
Viðar F. Welding, lögg. fasteignasali.
Flottar vörur
á útsölu
Meiri verðlækkun
ftíá, QýGMtiMí
^ Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá ki. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
lískuverslun
Rauðarárstíg 1, sími 561 5077
byrir verslunarmannahelgina
Strets gallahuxur
Opk) 10-18 * Ijnujardaga 10-14
Tilboð á sportskóm fyrir helgina
Mikið úrval af sportskóm í stærðum frá 22
Grandagarði 2, Rvík, sími 552-8855 og 800-6288.
0PIÐ í DAG 0G Á M0RGUN 8-19. L0KAÐ LAUGARDAGINN 31/7