Morgunblaðið - 29.07.1999, Qupperneq 32
32 FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 1999
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Reuters
Ráðstefna um stöðugleika
á Balkanskaga
ERLENDIR blaðamenn unnu í
gær að lokaundirbúningi fyrir
ráðstefnu um stöðugleikasátt-
mála ríkjanna á Balkanskaga
sem haldinn verður í Sarajevo,
höfuðborg Bosníu og Her-
segóvínu í dag og á morgun.
Ríkisstjórn Þýskalands átti
frumkvæðið að sáttmálanum,
sem undirritaður var í Köln
hinn 10. júm' sl. og miðast að því
að efla lýðræði, öryggi og efna-
hagslegan stöðugleika ríkjanna
á svæðinu. Fulltrúar Evrópu-
sambandsríkjanna (ESB), níu
ríkja á Balkanskaga auk Banda-
ríkjanna, Kanada og Japans,
munu silja aðalfundinn sem
hefst á morgun en í dag verða
beiðnir ríkjanna á Balkanskaga
um aðstoð við uppbyggingu og
aðild að ESB teknar fyrir.
Almyrkvi á sólu 11. águst næstkomandi
Bresk stjórnvöld
vara fólk við að
rýna 1
London, París. Reuters.
BRESK heilbrigðisyfirvöld hafa
ráðlagt landsmönnum að horfa
fremur á almyrkva á sólu, sem
mun eiga sér stað 11. ágúst næst-
komandi, í sjónvarpi en með ber-
um augum. Segja þau að jafnvel
þótt fólk horfi ekki nema örskots-
stund á sólmyrkvann eigi það
samt sem áður á hættu að skaða
sjónina, og jafnvel missa hana al-
veg.
Sólmyrkvinn mun vara í tvær
og hálfa klukkustund þótt að vísu
muni tunglið einungis hylja sólina
að fullu í eitt andartak. Að sögn
Bresku blindrasamtakanna hefur
fólk skaðað sjón sína jafnvel þótt
það hafi ekki horft á sólina í nema
um fimm sekúndur og því hefur
verið gefin út sérstök viðvörun
vegna þess að almyrkvi á sólu er í
aðsigi, enda talið líklegt að við-
solma
burðurinn muni vekja mikla at-
hygli, og að fólk muni vilja fylgj-
ast með. Er enda talið um ein-
staka upplifun að ræða, stjörnur
sjást á himni og fuglar hætta að
syngja.
Jafnframt er varað sérstaklega
við því að notkun sjónauka eða
stjörnukíkja auki enn hættuna á
sjónskaða og fólki er ráðið frá því
að taka ljósmyndir af sólmyrkvan-
um.
í Frakklandi og Belgíu hafa
stjórnvöld bannað umferð stórra
vörubíla um þjóðvegina um
þriggja klukkustunda skeið á
meðan almyrkva á sólu varir í því
skyni að tryggja öryggi þar. I
gær efndu franskir og belgískir
vöruflutningabílstjórar hins vegar
til mótmæla og sögðu ákvörðun-
ina út í hött. Bentu þeir m.a. á
Tekist á um framkvæmd Wye-friðarsamkomulagsins
Palestínumenn hafna
beiðni Baraks um frest
Kaíró, Jerúsalem. Reuters.
HELSTI samningamaður Palest-
ínumanna, Saeb Erekat, sagði í gær
að þeir höfnuðu algjörlega beiðni
Ehuds Baraks, forsætisráðherra
Israels, um að fá að fresta því að
koma hluta Wye-samkomulagsins í
framkvæmd þar til samkomulag
næðist um endanlega stöðu palest-
ínsku sjálfstjómarsvæðanna.
Erekat sagði að Yasser Arafat,
leiðtogi Palestínumanna, myndi
ræða málið strax við Bill Clinton
Bandaríkjaforseta.
Erekat var í Kaíró til að greina
egypskum ráðamönnum frá viðræð-
um Arafats og Baraks í fyrradag.
Samkvæmt Wye-samkomulaginu,
sem var undirritað í október, eiga
ísraelar að afhenda Palestínumönn-
um 13% Vesturbakkans, en að sögn
Palestínumanna óskaði Barak eftir
því að fá að fresta afhendingu 7,1%
landsvæðisins þar til samkomulag
næst í lokaviðræðum Israela og Pa-
lestínumanna um stöðu sjálfstjórn-
arsvæðanna og fleiri óleyst ágrein-
ingsefni.
Umhugsunarfresturinn
sagður tímasóun
„Palestínumenn hafna þessu al-
gjörlega," sagði Erekat. „Afstaða
Palestínumanna er að koma þurfi
öllu Wye-samkomulaginu í fram-
kvæmd án tafar.“
Barak bað Arafat að hugleiða
beiðnina í tvær vikur en palest-
ínskir embættismenn sögðu í gær
að umhugsunarfresturinn væri að-
eins tímasóun. Barak hefur lofað
að standa að fullu við Wye-sam-
komulagið ef Ai-afat hafnar beiðni
hans.
Nokkiir ísraelskir embættismenn
hafa sagt að verði 13% Vesturbakk-
ans afhent án tafar geti það valdið
spennu milli ísraela og Palestínu-
manna á svæðinu og tafið viðræð-
urnar um endanlega stöðu sjálf-
stjómarsvæðanna. Ennfremur er
talið að Barak hafi áhyggjur af því
að tafarlaus afhending alls land-
svæðisins geti veikt samningsstöðu
hans í viðræðunum.
AP
Stórviðburður
ársins 1999
Ógleymanlegar veislur verða sennilega haldnar
I árslok 1999 en sannarlega hlýtur almyrkvi á
sólu 11. ágúst næstkomandi að teljast einn af
stórviðburðum þessa árs.
Leið almyrkvans
Miðvikudagur 11. ágúst 1999
Klukkan livað er
almyrkvinn*
Hversu lengi hann varir
* Miðaö viö islenskan tíma
London.
10:20
2 mín. 9 sek.
Hvernig almyrkvi á sólu lítur út:
■ Sólin verður almyrkvuð
handan tungisins
■ Á meðan fullur almyrkvi varir
er hægt að horfa beint í sólina
■ Silfurgrár litabaugur, líkt og
fjöður í laginu, birtist með
svartan skugga tunglsins i
miðju
• Köln ■ Stjörnur birtast á himni
10:50
2 mín. 22 sek.
Almyrkvi á sólu sést einnig í Tyrklandi, írak,
íran, Pakistan og Indlandi. Á Isiandi sést
hann hins vegar ekki að fullu, einungis 65%
af sólarskífunni verður hulin sjónum.
Heimild: Peterson’s Stars and Planets,
Worid AJmanac, NASA, Stjömuathugnarst. á Mauna Loa. BBC
11:00 pm
2 mín. 23 sek.
11:10 pm
2 mín. 22 sek.
Knight-RidderTribune/REGINATOURISH
enginn nágrannaríkjanna hygðist
grípa til sambærilegra ráðstaf-
ana.
Einungis 65% af sólarskífunni
hulin á íslandi
I samtali við Morgunblaðið
sagði Einar H. Guðmundsson,
prófessor í stjarneðlisfræði við
Háskóla íslands, að sólmyrkvinn
myndi sjást vel hér á landi þótt
ekki yrði um almyrkva á sólu að
ræða, einungis 65% af sólarskíf-
unni yrðu hulin af tunglinu. Hann
sagði engu að síður fyllstu ástæðu
til að vara íslendinga, rétt eins og
Breta, við því að rýna í sólina,
dæmi væru um að sjón fólks yrði
fyrir miklum skaða af völdum sól-
argeislanna.
Ostur er
veislukostur
DÓMARAR á Alþjóðlegu ostasýn-
ingunni f Nantwich á Englandi
hófu á þriðjudag störf en sýningin
er sú stærsta sinnar tegundar sem
haldin er í heiminum. Næstum tvö
þúsund ostar eru til sýnis í risa-
stórri og vel loftræstri sýningar-
höll í Nantwich en þetta er í hund-
raðasta og annað skipti sem þessi
sýning er haldin þar. Áhugasamir
geta barið augum osta frá nitján
löndum en jafnframt er á sýningu
þessari keppt um titillinn stór-
meistari í ostagerð.
------•-♦“•---
Engar
breytingar
hjá Blair
London. Reuters.
TONY Blair, forsætisráðherra
Bretlands, tilkynnti í gær uppstokk-
un á ríkisstjórn sinni en þegar til
kom var aðeins um eina breytingu
að ræða; Alun Michael, ráðherra
málefna Wales, yfirgefur stjórnina
til að taka við sem forsætisráðherra
nýju heimastjórnarinnar í Wales.
Miklar vangaveltur hafa verið í
breskum fjölmiðlum um yfírvofandi
uppstokkun. Voru m.a. uppi getgát-
ur að Mo Mowlam, N-írlandsmála-
ráðherra, og Frank Dobson, heil-
brigðisráðherra, yrðu færð til í
starfi. Á daginn kemur hins vegar
að Blair hyggst ekki gera neinar
breytingai- á ráðherraliði sínu, þótt
reyndar sé búist við mannabreyting-
um meðal aðstoðarráðherra í dag.