Morgunblaðið - 29.07.1999, Qupperneq 74
74 FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
!' ísÍlenska óperan
FÓLK í FRÉTTUM
GEORGE Cukor fékk snemma viðumefnið „kvennaleikstjórinn", sök- HIJN VAR frægasta kvikmyndagyðja allra tíma, Cukor var eftirlætis-
um þeirra hæfileika hans að iaða fram það besta hjá kvenleikurum sín- leikstjórinn hennar. Greta Garbo í Two faced Wonmn (‘41) siðustu
um. Hér er hann að stýra Katharine Hepburn í Little Women (‘34) - myndinni á glæstum en endasleppum ferli.
með stórkostlegum árangri.
Símapantanir í síma 551 1475 frá kl. 12
Miðasala opin frá kl. 13—19 alla daga
nema sunnudaga
Ósóttar pantanir
seldar daglega
Gamanleikrit I leikstjórn
Sigurðar Sigurjðnssonar
Næstu sýningar
auglýstar
sunnudaginn 8. ágúst
ágá LEIKFÉLAG ligá
©^REYKJAVÍKIÍRJ®
BORGARLEIKHUSIÐ
A SIÐUSTU STUNDU:
Síðustu klukkustund fyrir sýningu
eru miðar seldir á hálfvirði.
Stóra svið kl. 20.00:
LitU kyiflluttjfbúÖM
eftir Howard Ashman,
tónlist eftir Alan Menken.
Fös. 06/8 laus sæti
lau. 07/8 laus sæti
fös. 13/8 laus sæti
lau. 14/8 fáein sæti laus
fös. 20/8 laus sæti
lau. 21/8 fáein sæti laus
Ath. Miðasala LR verður lokuð
31/7-2/8
Ósóttar pantanir seldar daglega.
Erun byrjuð að taka niður
pantanir fyrir ágústmánuð. ___
Miðasalan er opin virka daga frá
kl. 12—18, frá kl. 13 laugardaga
og sunnudaga og fram að sýn-
ingu sýningardaga.
Símapantanir virka daga frá kl. 10.
Greiðslukortaþjónusta.
Sími 568 8000, fax 568 0383.
5 30 30 30
Mðasata qfn Irá 12-18 og Iran að sýtingu
8ýiÉgmaga.(Wllra11lyifli
)rl4g^fí»
HÁDEGISLÐKHÚS - kl. 1Z00
Rm 5/8 laus sæti, örfá sæti laus.
Fös. 6/8 laus sæti, örfá sæti laus.
Mið. 11/8 laus sæti.
Rm. 12/8. Fös. 13/8.
SNYR AFTUR
Fös 13/8 kl. 23.00, nokkur sæti laus.
Fös 20/8 kl. 23.00.
Ath! Aðeins þessar sýningar
TILBOÐ TIL LEIKHUSGESTA!
20% afsiáttur af mat fyrir leikhúsgesti í Iðnó.
Borðapantanir í stma 562 9700.
1Maínm
S.O.S. Kabarett
í leikstjórn Sigga Sigurjónss.
Frumsýning lau. 7/8 kl. 20.30.
2. sýn. fös. 13/8 kl. 20.30.
3. sýn. lau. 14/8 kl. 20.30.
4. sýn. lau. 21/8 miönætursýning
á menningamótt Reykjavíkur.
Miðasala i s. 552 3000. Opið virka daga
kl. 10—18 og fram að sýningu sýningardaga.
Miðapantanir allan sólarhringinn.
lMaOnm
Hirðfífl hennar hátignar - uppselt
Næstu sýningar
sun. 8. og 15. ágúst
Midasala í síma 552 3000.
Opið virka daga kl. 10 — 16 og
fram að sýningu sýningardaga
Miðapantanir allan sólarhringinn.
GEORGE CUKOR
I SUMAR, á aldarafmæli sínu,
verður leikstjórinn George Cu-
kor (1899 - 1983), gerður að
heiðursfélaga Bandarisku kvik-
myndastofnunarinnar, (Americ-
an Film Institute), sem er ein
mesta sæmd sem fallið getur í
hlut þarlendra kvikmyndagerð-
armanna. Bætist í hóp útvalinna
stórmenna einsog John Huston,
Charles Chaplin, D.W. Griffith
og Orson Welles. Cukor er vel
að því kominn. í hálfa öld var
hann einn virtasti og eftirsótt-
asti leikstjóri Hollywood, orð-
lagður fagmaður sem gat gert
nánast allar tegundir mynda.
Cukor var orðlagður kvennna-
leikstjóri, þótti ná einstökum ár-
angri í að laða fram það besta
lyá kvenstjörnunum sínum, enda
börðust þær um hlutverkin í
myndum hans. Cukor var þó
fjarri því að vera mikill kvenna-
maður. Sá orðrómur var jafnan
á kreiki að þessi snillingur væri
samkynhneigður, var pukrað
með það í áratugi, uns ævisaga
hans kom út fyrir skömmu.
Hann var því einn af þeim fáu
stórmennum í kvikmyndageiran-
um sem mátti hírast í skápnum
alla sína ævidaga. Enda kvik-
myndaiðnaðurinn löngum
íhaldssamur þegar kemur að
viðkvæmum málum.
Cukor kom til Hollywood eftir
millilendingu á Broadway.
Myndir hans oftast fáguð blanda
gamans og alvöru, gjarnan
byggðar á skáldsögum eða leik-
sviðsverkum og endurspegla á
besta veg, bakgrunn hans í leik-
húsinu. Hann er fyrst og fremst
hinn skynsami útskýrandi frekar
en byltingarmaður, trúr og holl-
ur Ieikurum sínum án þess að
gleyma sjónrænu útliti mynd-
anna. Óaðfinnanlegur smekk-
maður sem kaus sér jafnan sam-
starf færustu tæknimanna iðnað-
arins svo verk hans yrðu að öllu
leyti sem best úr garði gerð.
Sögufrægt samstarf hans með
drottningum hvíta tjaldsins hófst
á fjórða áratugnum, er hann
stjórnaði goðsögnum einsog
Gretu Garbo, Joanne Crawford,
Katharine Hepburn, Norma She-
arer, Jean Harlow. Hann fluttist
á milli kvikmyndavera, stóð
lengi við hjá MGM, sem státaði
af mörgum nafntoguðustu gyðj-
um kvikmyndanna. Síðar á ferl-
inum vann hann m.a. með Mari-
lyn Monroe, Audrey Hepburn og
Elizabeth Taylor, Jacqueline Bis-
set og Candice Bergen voru í að-
alhlutverkunum í Rich and
Famous, (‘81), síðustu mynd
meistarans.
Síðla á þeim fimmta og á
sjötta áratugnum, þegar flestir
jafnaldrar hans í leikstjórastétt
fóru að draga saman seglin, tók
Cukor nýjum áskorunum og
sýndi aukinn þroska og reynslu
á þessum ögurtímum í sögu iðn-
aðarins. Sneri sér að nýjum
handritshöfundum einsog Gar-
son Kanin og Ruth Gordon, og
ferskum leikurum á borð við
Jack Lemmon og Judy Hollyday
og endurreisti aðrar, einsog Ju-
dy Garland. Var frumkvöðull
nýrrar tegundar; söngleikja-
myndarinnar (,,musical“), hélt
ótrauður á vit nýrrar tækni lita
og Cinema Scope, lét aldrei deig-
an síga með valinn mann í
hverju rúmi.
New Yorkbúiinn Cukor varð
kornungur aðdáandi Broadway,
og var orðinn leikstjóri í um-
svifamiklu leikhúslífi borgarinn-
ar strax á þriðja áratugnum.
Þegar hljóðið kom til kvik-
myndasögunnar, rétt fyrir 1930,
var hann umsvifalaust ráðinn
sem „samtala-Ieikstjóri" á vest-
urströndinni, ein fyrsta mynd
hans sem slíkur, var Tíðinda-
Iaust á vesturvígstöðvunum,
(‘30). Þaðan lá leiðin í stól að-
stoðarleiksljóra og 1931 stýrði
hann frumrauninni, Tarnished
Lady. Fram til þessa hafði Cu-
kor starfað hjá Paramount, nú
hélt hann til RKO, og fyrsta
myndin á nýja vinnustaðnum,
What Price Hollywood? (‘31), er
enn talin ein besta mynd sem
gerð hefur verið um innviði
borgarinnar. Næsta árið lauk
hann við tvö stórvirki, Dinner at
Eight, (‘33) og Little Women,
(‘33). Báðar sígildar, sú síðar-
nefnda mesta aðsóknarmyndin í
sögu kvikmyndaversins og
færði leikstjóranum fyrstu
Óskarstilnefningarnar (af
fimm).
Cukor var kvaddur til MGM
risaveldisins 1935, sama ár kom
enn ein klassikin, David Copp-
erfield, fram á sjónarsviðið.
Leikstjórinn sveiflaðist með
MGM hringekjunni næstu árin í
félagsskap forstjórans og fram-
lciðandans Irvings Thalberg og
konu hans, Normu Shearer, Gar-
bo, og fleira sögufrægu fólki.
Kvikmyndaverið var um þessar
mundir á hátindi frægðarinnar,
mönnum einsog Cukor að þakka.
Ilonum var þó vikið úr leik-
sljórastarfi við sjálfa Á hverf-
anda hveli, var það verk Clarks
Gable, sem var smeykur um að
„kvennaleikstjórinn“ léti Vivian
Leigh og Oliviu De Havilland
skyggja á sig. Cukor sneri sér að
nýju hæfileikafólki; Katharine
Hepburn, James Stewart, Cary
Grant. Afraksturinn m.a.
klassíkin The Philadclphia
Story, (‘40).
Fyrir og fyrst á eftir hlé, sem
varð á ferli Cukors vegna heims-
styrjadarinnar síðari, má
merkja Iægð á langri sigur-
göngpu leikstjóráns. Kollegar
ÞEKKTASTA mynd Cukors á
síðari árum er My Fair Lady
(‘64). Myndin færði honum
Óskarsverðlaunin, sem hann
hefði betur fengið oftar og fyrir
flest önnur verk.
hans og jafnaldar voru að slíðra
sverðin, gerast framleiðendur
eða setjast í helgan stein. Nýjir
menn einsog Huston og Welles
að sigra heiminn. Það var þó
enginn uppgjafartónn í Cukor
sem brást við með því að sækja á
ný mið fersks hæfileikafólks
einsog hjónanna Garson Kanin
og Ruth Gordon, sem buðu hon-
um handritið A Double Life.
(‘47). Kvikmyndagerðin færði
Cukor þriðju Óskarstilnefning-
una, en stjörnunni, Ronald
Colman, verðlaunin fyrir magn-
aða túlkun á leikara sem missir
tökin á raunveruleikanum. Sam-
vinna leikstjórans og handrits-
höfundanna náði hámarki með
tveimur, sígildum gamanmynd-
um; Adam’s Rib, (‘49), með
Spencer Tracy og Katharine
Hepburn uppá þeirra besta, og
Fædd í gær - Born Yesterday,
(‘50), með hinni skammlifu,
óborganlegu Judy Hollyday. Ar-
ið 1953 var Cukor ráðinn til að
Ieikstýra vandræðagripnum Ju-
dy Garland í A Star is Born. Nú
reyndi á hæfileika „kvennaleik-
sljórans" sem aldrei fyrr. Hin
óstýriláta Garland varð að sýna
allt það besta í leik og söng og
úr varð enn ein klassík kvik-
myndasögunnar. Cukor átti eftir
að gera enn eina risasöngleikja-
mynd, My Fair Lady, (‘64). Hún
færði leikstjóranum langþráð
Óskarsverðlaunin, en er fjarri
því að vera ein af hans bestu
myndum og Audrey Hepburn er
slök í hlutverkinu sem Julie
Andrews fór svo eftirminnilega
vel í leikhúsunum beggja vegna
Atlanshafsins. Svo kaldhæðnis-
lega vildi til að Cukor lést örfá-
um dögum fyrir frumsýningu
endurgerðar A Star is Born,
(83), slapp við nauðgunina með
Streisand og Kristofferson.
Aðrar en Sögu frá Philadelp-
hiu, valdi ég af handahófí, einar
10 myndir hefðu cngu síður sómt
sér vel sem einhveijar af þremur
bestu myndum þessa ljölhæfa
snillings. Eflaust fleiri, sem ég
hef ekki séð.
Sígild myndbönd
THE PHILADELPHIA
STORY (‘40)
Sögufræg, sígild Óskarsverðlauna-
mynd um fráskilinn broddborgara
(Katherine Hepburn), sem leitar að
nýjum bónda á meðal almúgans.
Stjörnurnar skína, einkum James
Stewart, sem vonbiðill með „venju-
legan“ bakgrunn, og Cary Grant,
sem fyrri eiginmaður Hepburn,
sem einnig stendur sig frábærlega.
Bráðhnyttið, málglatt handritið
vann til Óskarsverðlauna ásamt
James Stewart. Ein besta mynd
leikstjórans og leikaranna, alltaf
jafn hrífandi skemmtileg.
LITTLE WOMEN, (‘34)
en þær Joan Parker, Frances Dee
og Joan Bennett, standa sig einnig
vel. Cukor er í essinu sínu í öllum
kvennablómanum og kvenréttinda-
baráttunni og gerh- hinni sígildu
sögu Alcott, sem var langt á undan
samtímanum, óaðfmnanleg skil.
FÆDD í GÆR - BORN
YESTERDAY, (‘50)
Ein af fjórum, og besta kvikmynda-
gerð frægrar skáldsögu Louisu
May Alcott um fjórar systur og
móður þeiiTa, sem fást við aðsteðj-
andi vandamál meðan heimilisfaðir-
inn berst fyrir málsstað Norðan-
manna í Þrælastríðinu. Katharine
er ógleymanleg sem Jo, systirin
sem gefur karlasamfélaginu langt
nef og hyggur á feril sem rithöf-
undur. Jo er hjarta myndarinnar,
Judy Hollyday er ógleymanleg sem
illa upplýst vinkona brotajárnssal-
ans Brodericks Crawford. Jafnvel
svo að hann skammast sín fyrir
ódannaða framkomu hennar og
ræður kennarann William Holden
til að hefla af henni agnúana, með
undraverðum árangri. Hollyday,
sem lést langt fyrir aldur fram, er
Heimska Ijóskan, aðrar komast
ekki nálægt henni í að holdi klæða
þessa vinsælu persónu. Cukor kvik-
myndar leiksviðsverk Garsons
Kanins nokkurnveginn einsog það
kemur fyrir, með bráðskemmtileg-
um árangri og Crawford og Holden
eru báðir stórkostlegir. Mynd sem
ég lofa að kemur öllum í gott skap.i
Jafnvel örgustu fýlupokum!
Sæbjörn Valdimarsson;