Morgunblaðið - 17.09.1999, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 17 SEPTEMBER 1999 55
BREF TIL BLAÐSINS
Bensínhækkanir
og hjólamenning
Frá Öldu Jónsdóttur:
JA, NU hækkar og hækkar bensín-
ið og finnst fólki orðið nóg um og er
meira að segja farið að reikna út
hvað ríkið græðir á þessu öllu sam-
an og var síðasta tala sem ég heyrði
nefnda 800 milljónir ef bensínverð
héldist óbreytt út árið.
Einhverjir vilja nú spyrja hvað
þetta eigi sameiginlegt, bensín-
hækkanir og hjólamenning, og er
það harla fátt ef frá er talið að hugs-
anlega fer fólk að spara bílinn og
leita annarra samgönguleiða. Þá
gætu margir komið auga á að reið-
hjólið er orðið raunhæfur kostur
víða á höfuðborgarsvæðinu. Eg lít
þannig á að við þurfum að gera hjól-
reiðar aðgengilegri kost í samgöng-
um og væri þá alveg tilvalið að nota
eitthvað af þessum peningum, sem
koma í formi bensíngjalds, til að
leggja hjólavegi en það er einmitt
vandamál að hjólavegir eru ekki til í
skipulaginu og hvorki ríkið né sveit-
arfélögin eiga að byggja þá upp, þar
sem þeir eru ekki inni í vegalögum
(ólíkt reiðvegum hestamanna).
Mikið hefur verið gert í lagningu
útivistarstíga á höfuðborgarsvæð-
inu og gengur vel að setja fláa á
kanta gangstétta hér í Reykjavíkur-
borg. Er þetta mjög mikil endurbót
á fáum árum og eiga borgai’yfirvöld
miklar þakkir skildar. En þar kem-
ur að vanda okkar hjólreiðafólks því
að þar sem stígamir eru komnir svo
víða og orðnir að samgönguneti þá
er fólk farið að nota þá í mjög mikl-
um mæli bæði til að skokka, ganga,
viðra hundana, fara á línuskauta og
leyfa börnunum að æfa sig að hjóla.
Það er því farið að þrengjast um á
stígunum svo þeir henta ekki alltaf
til samgangna fyrir fólk sem er að
hraða sér á áfangastað. Við hjól-
reiðafólk höfum verið að fara þess á
leit að fá hjólavegi meðfram helstu
leiðum svo sem Miklubraut, Kr-
inglumýrarbraut, Sundabraut (þeg-
ar hún kemur) og ekki síst tenging-
ar við nágrannasveitarfélögin. Það
væri t.d. hægt að nýta sárið sem
kemur þegar skipt er um vatnslagn-
ir t.d. á leiðinni Reykjavík-Mosfells-
bær og setja þar hjólaveg með mal-
biki því að undirstaðan væri komin.
Það vantar bara smá skipulag og að
klára verkið.
Eg skora því á alþingismenn að
koma hjólavegum í vegalög og nýta
eitthvað af peningunum, sem bens-
ínhækkanirnar skilja eftir sig, í
þágu þeirra sem vilja nota hjólið
sem samgöngutæki sér til heilsu-
bótar, peningaspamaðar og í þágu
minni mengunar. Það er fullt af
fólki sem vildi hjóla í og úr vinnu en
telur sig ekki geta það vegna að-
stöðuleysis. Það væri auðvitað hægt
að byrja á að gera könnun á því
hvað fólki finnst vanta upp á til að
það geti notað hjólið og strætis-
vagnana (sem margir taka hjól)
meira og einkabílinn minna. Það er
ég viss um að svörin kæmu á óvart.
Yfirvöld verða að hafa forystu um
breytingar til batnaðar og ekki ein-
blína á einkabílinn. Grænu svæðin í
borginni, leiksvæði bamanna, mega
ekki hverfa undir breikkaðar götur,
mislæg gatnamót og bílastæði. Það
þarf að leita annarra leiða. Leiða
sem era í takt við þá þróun sem er í
umhverfismálum í umheiminum, í
takt við alþjóðlegar skuldbindingar
okkar og í takt við sjálfbæra þróun.
Við þurfum að gera þeim holla og
umhverfisvæna kosti í samgöngu-
málum, sem reiðhjólið er, hátt undir
höfði. Það fé myndi skila sér marg-
falt til baka, bæði til reiðhjólafólks-
ins í bættri heilsu í og spamaði við
stærsta útgjaldalið heimilisins sem
rekstur einkabílsins er og líka til
ríkisins í formi bættrar heilsu al-
mennings og fækkunar umferðar-
slysa.
ALDA JÓNSDÓTTIR,
formaður Islenska fjallahjólaklúbbs-
ins.
Um Nike
Svar til Ingimars Ragnarssonar
Frá Birni L. Pórissyni:
VIÐ þökkum þann áhuga, sem
Ingimar lætur í ljós með því að
beina spurningu til Nike á Islandi í
Morgunblaðinu þann 11. septem-
ber sl.
Austurbakki hf. er dreifingarað-
ili Nike á íslandi og því viljum við
svara spurningunni eftir bestu
getu á eftirfarandi hátt.
Bæklingurinn, sem kallast Nike
Alpha Project, var gefinn út á öll-
um Norðurlöndum og var upplagið
um milljón eintök. Hann var hann-
aður af Nike Scandinavia og hinni
heimsþekktu Ogilvy auglýsinga-
stofu, útibúinu í Svíþjóð.
Setningin sem Ingimar vill fá
svar við er þessi: „Marga menn
svimar þegar þeir skynja helming
þess sársauka, sem kona verður að
þola við fæðingar."
Spurningin frá Ingimari hljóðar
svo: „Mig langar að spyrja þann
aðila, sem ábyrgur er fyrir bæk-
lingnum á Islandi en kýs að fara
huldu höfði: Hver er tilgangur
þessarar síðu? Markmið auglýsing-
TROÐFULL BÚÐ
AF NÝJUM SKÓM
Teg: 2141
Litur: Svartur
Stærðir: 41-46
Verð
Teg:44607
Litur: Svartur
Stærðir: 41-46
Verð
Mokkasinur
Teg: MD 04
Litur: Svartur
Stærðir: 40-46
Verð
PÓSTSENDUM SAMDÆGURS - 5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR
r Já toppskórinn L VELTUSUNÐI V/INGÓLFSTORG SÍMI 552 1212
Nýjustu skólatöskurnar
Stærsta töskuverslun landsins, Skólavörðustíg 7, sími 551-5814
ar er að koma einhverjum skila-
boðum til neytanda sem fá þá til að
kjósa ákveðna vöru fram yfir aðra.
Auglýsingar eru dýrar og því
eru skilaboð yfirleitt hnitmiðuð til
að hámarka gildi þeirra. Hvaða
skilaboð felast í þessari síðu, sem
eru auglýsanda svona mikilvæg
vöranum til framdráttar?"
Stefan Olander, auglýsingastjóri
Nike á Norðurlöndum segir:
„Þetta er áhugaverð spurning,
en ég er ekki sammála að þetta sé
eins einfalt og Ingimar skrifar.
Ef Nike notaði alla sína krafta
eingöngu til að ná fram skamm-
tíma hagnaði og/eða sjónarmiðum,
þá væri fyrirtækið ekki statt þar
sem það er í dag. Ef við gerðum
eins og Ingimar virðist vera að
segja, þá væri sennilega ekkert
annað í bæklingnum annað en
mynd af skóm og upplýsingar um
verð.
Að byggja upp gott vörumerki
er erfitt og það er langtímaverk-
efni. Bæklingurinn okkar á að gera
margt, eitt er að sýna bestu vör-
urnar frá Nike, en einnig að bjóða
lesandanum efni, sem vonandi get-
ur orðið honum til innblásturs og
upplýsingar um íþróttaiðkun sína
og þannig skapað merkinu jákvæða
ímynd í huga lesandans."
Um leið og við þökkum við-
skiptavinum Nike og Austurbakka
góð viðbrögð við Nike Alpha
Project bæklingnum og haustlín-
unni vill undirritaður bæta við, að
tilgangur auglýsinga er jafnframt
að ná athygli lesandans. Okkur
finnst við hafa náð því marki.
F.h. Nike og Austurbakka hf.
BJÖRN L. ÞÓRISSON,
sölu- og markaðsstjóri.
Skólavörðu-.
101 Reykjavflf4
Sími/fax552 1220
Netfang:
blanco@itn.is
Veffang:
www.blanco.ehf.is
FLORÍDA - ORLANDÓ
Sól - Sól - Sól
Hús og íbúðir til leigu. Golf, tennis, sund o.fl. á staðnum.
Upplýsingar í síma 557 2231 eftir kl. 20.00 og 407 628 3606,
fax 407 628 1428. Sjáið síðu 617 í textvarpinu.
Stjórntækniskóli Islamls
Höföabakka 9
Sími 567 1466
MARKAÐSFRÆÐI
Stjórntækniskóli Islands
gefur þér kost á beinskeyttu 250 stunda námi í
markaðsfræðum. Náminu er ætlað að koma til móts við
sívaxandi kröfur atvinnulífsins um hæfari starfskrafta.
Námið er ætlað fólki, sem vill bæta við sig þekkingu og fá
innsýn í heim markaðsfræðanna.
Markmið
námsins er meðal annars að þátttakendur tileinki sér
markaðshugsun í íslensku viðskipta- og athafnalífi og nái
þannig betri árangri.
Námið
er í formi fyrirlestra og verkefnavinnu og tekin eru próf í
einstökum greinum.
Kennarar
eru allir háskólamenntaðir og eiga að baki góða reynslu
við kennslu og í viðskiptalífinu.
Námsgreinar:
Markaðsfræði. Stjórnun og sjálfstyrking.
Sölustjórnun og sölutækni. Auglýsingar.
Vöruþróun. Tölvunotkun í áætlanagerð.
Vörustjórnun. Viðskiptasiðferði.
I „Ég mæli
með náminu
fyrir alla þá,
er starfa við
markaðs- og
| sölustörf. Ég
hef verið í sölumennsku í
6 ár og námskeiðið hefur
nýst mér vel í starfi.
Fjölbreytt og áhugavert
námskeið."
Elísabet Ólafsdóttir
Eggert Kristjánsson hf.
„Ég mæli
tvímælalaust
með þessu
námi fyrir
alla þá sem
eitthvað eru
tengdir markaðs-, sölu-,
upplýsinga-, skipulags-
og/eða framleiðslumálum
sinna fyrirtækja."
Hendricus Bjarnason
Skýrr
Starfsmenntun. Fjárfesting til framtiðar.
Sími 567 1466. Opið til kl. 22.00.