Morgunblaðið - 17.09.1999, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 17.09.1999, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17 SEPTEMBER 1999 23 ERLENT Fellibylur í Hong' Kong AÐ minnsta kosti einn maður beið bana og 466 slösuðust, þar af ell- efu alvarlega, þegar fellibylurinn York gekk yfír Hong Kong í gær. Eins manns til viðbótar var sakn- að. Vindhraðinn var 87 km á klukkustund og þetta var öflug- asti fellibylur á svæðinu í sextán ár. Björgunarsveitir náðu fímm sjómönnum úr flutningaskipi sem sökk við ströndina og drógu fólk út úr húsum, sem urðu fyrir flóð- um, og úr lyftum sem festust milli hæða vegna rafmagnsleysis. Þrjú skip strönduðu einnig í óveðrinu. •Hong Kong-búi gengur hér framhjá tré sem brotnaði í óveðr- inu. r A. '7Vj Reuters Sjö ára fangelsi fyrir mót- mæli Yangon. Reuters. TUTTUGU og átta ára gömul bresk kona var í gær dæmd til sjö ára fangelsisvistar í Myan- mar fyrir mótmæli gegn stjórn- völdum. Rachel Goldwyn, sem er Lundúnabúi, hlekkjaði sig við ljósastaur í miðborg Yangon og hrópaði slagorð stjórnarand- stöðunnar að vegfarendum. Lögmaður konunnar sagði við réttarhöldin að Goldwyn myndi áfrýja málinu. Enn eitt sprengjutilræði í Rússlandi Að minnsta kosti sautján fórust Moskvu. Reuters. AÐ minnsta kosti 17 manns fórust er öflug bílsprengja sprakk fyrir utan níu hæða fjölbýlishús í bænum Vol- godonsk í suðurhluta Rússlands í gærmorgun. Yfir 180 manns særðust í fimmta sprengjutilræðinu í Rúss- landi síðan 31. ágúst. Talsmaður rússneska innanríkis- ráðuneytisins sagði að maður hefði lagt bíl við fjölbýlishúsið um kl. 6 í gærmorgun og bíllinn hefði sprungið í loft upp um stundarfjórðungi síðar. Við sprenginguna rifnaði framhliðin af húsinu og nálæg hús skemmdust einnig mikið, þai' á meðal lögreglu- stöð. Um fjögurra metra djúpur gígur myndaðist fyrir utan fjölbýlishúsið. Um 440 manns bjuggu í húsinu og voru flestir íbúanna í fastasvefni er sprengingin varð, eins og í fyrri til- ræðunum. Sagði talsmaður innanrík- isráðuneytisins að komið hefði verið í veg fyrir enn meiri harmleik þar sem kjallara og háalofti hússins hafði ver- ið læst eftir öryggisskoðun á miðviku- dag. Um sjötíu fórnarlömb spreng- ingarinnar voru lögð inn á sjúkrahús. Lögreglan í Moskvu fann í gær 3,5 tonn af sprengiefni í vörugeymslu, innan um sekki af sykri, sem fluttur hafði verið frá bænum Cherkess í suðurhluta Rússlands. Borís Jeltsín Rússlandsforseti og Vladimír Pútín forsætisráðherra áttu í gær fund til að ræða nýjasta ódæðið. Haft var eftir Jeltsín að Rússar hefðu bæði vilja og getu til að útrýma hryðjuverkum. Pútín hef- ur lýst því yfir að hann vilji láta loka landamærum Rússlands og Tsjetsjn- íu vegna sprengjutilræðanna, sem talið er að tsjetsjneskir skæruliðar beri ábyrgð á. Samtals hafa um 300 manns farist í sprengjutilræðunum fimm. Talið að Jeltsín lýsi yfir neyðarástandi Undanfarið hafa sífellt hærri raddir lýst yfii' efasemdum um hæfni Jeltsíns til að takast á við ógnina sem af hryðjuverkamönnunum stafar, en hann hefur þráfaldlega neitað því að lýst verði yfir neyðará- standi og segist staðráðinn í að sitja í embætti út kjörtímabilið. í Moskvu er þó útbreiddur sá orðrómur að breytingar verði senn gerðar á stjórn landsins. Margir telja að Jeltsín muni lýsa yfir neyðarástandi, sem gerði honum kleift að stjórna með tilskipunum, eða að hann muni reka Pútín, sem tók við embætti í síðasta mánuði. Kanebo Ný heildarlausn fyrir augnsvæðið! KYNNING í Laugavegs Apóteki í dag. Fagleg róðgjöf og Kanebo-tölvan. KYNNIÐ YKKUR nýju haustlitina og CELLULAR augnkremin. ENSAI Kaneho s HÁÞRÓUÐ TÆKNI FRÁ JAPAN CELLULAR PERFORMANCE Reuters Framhlið fjölbýlishúss í rússn- eska bænum Volgodonsk rifn- aði af í heilu lagi við spreng- ingu í gær. Hér eru björgunar- menn að leita að fólki en um 400 manns bjuggu í húsinu. Elizabeth Arden Nýjungar í anda haustsins Arden kynning í dag í Klassík Hafnargötu 22 í Keflavík Kynntur verður nýr andlits- farði, SMART WEAR. Þessi nýi andlitsfarði er tnjög léttur, gefur húðinni nattúrulegt útlit, er auðveldur í notkun og sinitar ekki út frá sér. Þú færð nánari upplýsingar í snyrti- vöruversluninni Klassík f sftna: 421 7220. ATH. GLÆSILEGUR KAUPAUKI! Smáratorgi 1 Skotfunni 13 Noröurtanga3 200 Kópavogl 108Rcykjavtk 600 Akureyrl 610 7000 568 7499 462 6662 tgavfcuvegi 72 Hoitagöröum Hafnarfjöröur v/Holtavog 565 6560 104 Reykjavtk 688 7499 „Cherub lúxus satín program" Þessi flottu rumfatasett slá öllu við! Sérstaklega vönduð og á gódu verði, sem enginn fær stadist. Sængurverasett 140x200 sm + 50x70 sm verð: 3.990,- Sængurverasett 200x220 sm + 2 stk 50x70 sm verð: 5.990,- Stök koddaver 50x70 sm verð: 690,- stk. Skrautpúðaver 40x40 sm verð: 590,- Pífulak 90x200 sm verd: 2.390, 120x200 sm verd: 2.590, 140x200 sm verd: 2.790, 153x203 sm verö: 2.890, 160x200 sm verð: 2.990, 180x200 sm verð: 3.190, 193x203 sm verð: 3.290, Pífulök og teygjulök í sömu litum og gæðaefnum! Pífulök S0*v bomull / 50' . polyester, str.vufritt, pifa 37 sm. Litir. HvitL kromað, vinr.iutt, dökkbl.ítt, Ijósgrænt og dökkgr.vnt. Teygjulök 1001' .- bömvill með 35 sm þykku boxi. 90x200 sm 990 120x200 sm 1.290 140x200 sm 1.490 153x203 sm 1.690 160x200sm 1.790 180x200 sm 1.890 193x203 sm 1.990 90x200 sm 890 120x200 sm 1.090, 140x200 sm 1.290, 153x203 sm 1.390 160x200 sm 1.490 180x200 sm 1.590 193x203 sm 1.690
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.