Morgunblaðið - 17.09.1999, Blaðsíða 48
48 FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Heímílísfang:.
. Símí:
JAPIS3
Panasonic
Lotsiðd Lí u
Utaflu myndina af linu og féiögum og sendu með nafni og
heimilísfangi til Morgunbiaðsins.
Þú gætir unnið
• Panasonic stafræna myndbandsupptökuvél
að verðmæti 120.000 kr.
• Panasonic myndbandstæki
• 50 myndbandsspólur með Línu Langsokk
• 50 stubbavinninga frá SS
• 200 bíómiða á Línu Langsokk 2 - Ævintýri í Suðurhöfum
Una Langsokkur 2 verður frumsýnd föstudaginn 24. september.
Sendu myndina ínn fyrfr 23. Mpitmbtr merkta:
UtaMkw Unw, MorgunbtaJHð, Krfngkmni 1,103 Reykjavfk.
MMn vfnningthafa verða bfrt í Morgunbfaðinu 30. itptemfMr.
LAUCAfíÁS m jy fTI J ■N M11 LU. I n |/Tff
I • IWifkj&lafTTSi
Matur og matgerð
Farið með börnin
í berjamó
Ekki hefur viðrað vel til berjatínslu hér
sunnanlands í haust segir Kristín Gestsdóttir
en íyrsta þurrviðrisdaginn fóru hún og bóndi
hennar í berjamó og tíndu mikið af
krækiberjum.
OFT hafa berin verið stærri og er
greinilegt að sólina hefur vantað,
en það bjargar málum að ekki
hefur verið næturfrost. Líklega
hafa íbúai’ Norður- og Austur-
lands lokið við að tína sín sólbök-
uðu ber - ekki bara krækiber og
blóber heldur líka aðalbláber sem
oftast er nóg af á þeim slóðum.
Þótt skólar séu byrjaðir er ekki
öll nótt úti enn og ættu sem flestir
að nýta hin fersku, hollu ber og
fara með bömin í berjamó. Eg
minnist með mikilli ánægju berja-
ferða með fjölskyldunni, þegar ég
var lítil. Eg er löngu hætt að setja
dísæta saft á flöskur. Eg geymi
saftina hæfilega sæta eða alveg
ósæta, sýð upp á henni og set í
mjólkufemur og sting í frysti,
hálffylli femumar, sker ofan í
þær og bretti yfir og lími fyrir
með málningarteipi. Á teipið
skrifa ég innihald og dagsetningu.
Femumar staflast vel og taka
ekki mikið pláss. Saftina þarf að
sjóða svo vítamínið varðveitist, en
efnakljúfar eyða því flótlega - líka
í frysti. Með suðunni gemm við
þá óvirka. I þessum þætti eru
tvær uppskriftir af hlaupi, önnur
er sultuhlaup sem öllum þykir
gott, en hin er ábætishlaup sem
bamabömin mín segjast „elska“.
Pegar ég gaf þeim að smakka
sögðu þau: Amma, megum við
koma með þér í berjamó á morg-
un?
Uppáhaldshlaup
barnanna
V2 líiri krækiberjasafi
1 bréf Toro-sítrónuhlaup
1. Hakkið berin í berjapressu,
blandara eða hakkavél, hellið á
fínt sigti og síið.
2. Setjið saftina í pott og látið
sjóða, takið af hellunni, hellið
hlaupduftinu út í og leysið vel
upp.
3. Hellið í hringform eða litla
plastbikara, nota má form undan
ísblómi. Setjið í kæliskáp og látið
stífna í minnst 3 klst. Dýfið þá
augnablik í sjóðandi vatn og
hvolfið á fat.
MJmmMSmKMmBmBBmmBBmmmBBBmmmSSmBBOBKBaKaBKCSSm
Meðlæti:
_____________1 peli rjómi____________
2 meðalstórir bananar
Peytið rjómann, merjið bananana
með gaffli og hrærið lauslega út í.
Ef hrært er mikið verður þetta
seigt.
Krækiberjahlaup
(sulta)
1 lítri krækiberjasafi
_________1 kg sykur_______
safi úr einni sítrónu eða 1 dl hreinn
rabarbarasafi hleypiefni ætlað í 1
lítra af safa
1. Setjið krækiberjasafann og
sítrónusafann (rabarbarasafann) í
pott og látið sjóða, stáið hleypi-
efninu út í og látið sjóða í eina
mínútu.
2. Takið af hellunni og hrærið
sykurinn út í. Látið ekki sjóða eft-
ir að sykurinn er kominn saman
við.
3. Hellið hlaupinu á sjóðheitar
hreinar krakkur, látið þær vera
fleytifullar. Skrúfið lokið strax á.
Það þarf að vera hreint og gjarn-
an heitt eins og krukkurnar.
Þannig verður lofttæming í
krukkunum og sultan geymist
nær endalaust.
Skýringar Kristínar
Á hverju hausti fæ ég margar
upphringingar vegna hlaups sem
hleypur ekki. Safinn þarf að vera
svolítið súr og sykurinn á undan-
tekningarlaust að setja eftir á,
jafnvel þótt annað standi á um-
búðum. Svo einfalt er það.