Morgunblaðið - 17.09.1999, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 17.09.1999, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17 SEPTEMBER 1999 15 HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Vandræðaástand rrkir á mörgum leikskólum í Reykjavík Ófremdarástand ríkir á leikskólum borgarinnar og hafa margir leikskólar þurft að senda böm fyrr heim vegna manneklu. Óskar Einarsson á tvær dætur í leikskólanum Ægisborg, Láru Kristínu, sem situr inni í bíl og Önnu Margréti. Önnur var send fyrr heim í gær, en hin verður send fyrr heim í dag. Börn víða send fyrr heim Morgunblaðið/Kristinn Kolbrún Gunnarsdóttir þurfti að fara fyrr heim úr skól- anum í gær til að sækja son sinn Bergvin Mána Maríans- son, vegna þess að hann var sendur fyrr heim af leikskól anum Ægisborg. Reykjavík VANDRÆÐAÁSTAND ríkir á mörgum leikskólum borg- arinnar vegna manneklu og hafa margir skólanna þurft að grípa til aðgerða til þess spoma gegn skorti á starfs- fólki. Aðgerðimar, sem skól- amir hafa gripið til bitna yf- irleitt á þeim sem síst skyldi, nefniiega bömunum sjálfum og fjölskyldum þeirra. „Pað sem við leikskóla- stjórar eram hræddastir við og kvíðum mest fyrir er að þetta ástand sem nú hefur skapast sé framtíðarástand, sagði Guðrún Samúelsdóttir, leikskólastjóri í Brekkuborg í Grafarvogi. „Við verðum að átta okkur á því að um er að ræða framtíð bamanna okk- ar, uppeldi þeirra og mennt- un.“ Guðrún sagði að í Brekku- borg vantaði starfsfólk í þrjár og hálfa stöðu, en um síðustu mánaðamót hefði vantað í sex stöður. Störf auglýst en súninn hringir varla „Við í þessum leikskóla þekkjum þetta ástand ekki,“ sagði Guðrún. „Þetta er iyrsta haustið sem við lend- um í þessu hér, það hefur kannski verið skipt um þrjár stöður á sumri en það sem gerist núna er að það er meiri óróleiki, óvenjulega mikill óróleiki. Við auglýsum um hverja helgi og jafnvel oft í viku og það hringir varla síminn, og þeir sem hringja segjast ekki hafa efni á þessu eftir að þeir fá að vita hver launin era.“ Að sögn Guðrúnar er útlit- ið ekki gott. „Við urðum að senda böm til baka sem áttu að byrja hér 1. september og höfum ekki vistað í öll pláss sem á að vera búið að vista í. Eg er með eina uppsögn um áramót og sjálfsagt eiga fleiri eftir að bætast við og því hef ég und- irbúið foreldrana undir það að kannski þurfi að draga ennfrekar úr vistun." Ófremdarástand alls staðar Aðspurð hvort hún hefði fengið einhver viðbrögð frá foreldram sagði Guðrún: „Ég held að almenningur og þar á meðal foreldrar hafi ekki átt- að sig á því hversu launin era í raun lág í leikskólum. Að fyrir svona mikilvæg störf sé verið að borga nýliðum 70 til 80 þúsund á mánuði fyrir átta tíma vinnu. Þegar ég hef sagt foreldram frá þessu á for- eldrafundum þá verða þeir gapandi hissa og koma ekki upp orði. Það eru margir margir leikskólar sem eru miklu verr settir en Brekkuborg, því þetta ófremdarástand virðist vera alls staðar í bænum, í öllum hverfum." Á leikskólanum Ægisborg í vesturbænum, þurfti að grípa til þess ráðs í gær að senda böm af Báradeild, sem áttu að vera allan daginn í leikskólanum, heim klukkan eitt. Sigrún Kristín Guðmunds- dóttir, leikskólastjóri á Ægis- borg, sagði að senda hefði þurft bömin heim þar sem starfsfólk vantaði í þrjár stöður. „Þetta leit ágætlega út fyr- ir mánuði en síðan hættu þrír starfsmenn og þá fór að síga á ógæfuhliðina, sagði Sigrún. „Einn af þessum þremur hætti þar sem hann fékk bet- ur borgaði við að þurrka af borðum." „Við höfum auglýst störfin laus til umsóknar, en fengið mjög dræmar undirtektir, við fengum reyndar tvær fyrir- spumir, en báðir aðilarnir reyndust óhæfir til starfs- ins.“ Að sögn Sigrúnar Kristín- ar verður önnur deild lokuð fyrr á dag, en það er gert til þess lokanimar bitni ekki á sama fólkinu dag eftir dag. Keppt við vinnustaði eins og Bónus „Það verður að fara að borga hærri laun, við eram alveg á botninum og eram að keppa við vinnustaði eins Bónus. Það að borga ófag- lærðum um 70 þúsund krón- ur á mánuði fyrir jafn erfiða og krefjandi vinnu nær ekki nokkurri átt.“ Guðrún gagnrýndi einnig hraða uppbyggingu leikskól- anna á þeim forsendum að gleymst hefði að líta á heild- armyndina. „Það er ekki nóg að byggja bara og byggja þegar ekki er hægt að manna skólana." Kolbrún Gunnarsdóttir var mætt úr skólanum til að sækja son sinn Bergvin Mána Maríansson. Hún sagði það óneitanlega hafa áhrif á heimilislífið að bamið skyldi vera sent heim fyrr. „Þegar enginn vill vinna við þetta þá er náttúrlega eðlilegt að eitthvað láti und- an,“ sagði Kolbrán. „Ég er í skóla og er venjulega að læra á þessum tíma, en nú verður lærdómurinn að bíða.“ Oskar Einarsson, var kom- inn til að sækja dætur sínar Láru Kristínu og Önnu Mar- gréti, en þær eru hvor á sinni deildinni, og var önnur send heim í gær en hin verður send heirn í dag. „Þetta ástand er mjög slæmt fyrir þá foreldra sem eru útivinnandi og þurfa að fá frí í vinnu til að sækja og hugsa um bömin,“ sagði Ósk- ar. „Ég skil svo sem vel að það fáist ekki fólk til að vinna við þetta, þar sem þetta er svo Hla launað.“ Af 11 leikskólum sem Morgunblaðið hringdi í hafa auk Ægisborgar leikskólarn- ir Álftaborg í Safamýri; Vest- urborg á Hagamel og Árborg í Hlaðbæ, þurft að senda böm fyrr heim vegna mann- eklu. Þá er útlit fyrir það að leikskólinn Bakkaborg í Breiðholti þurfi að senda böm fyrr heim á næstu dög- um. I þágu íþrótte. ungmenne og öryrkja
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.