Morgunblaðið - 24.09.1999, Page 10

Morgunblaðið - 24.09.1999, Page 10
10 FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Ferðakaupstefnan Vestnorden er haldin í Þórshöfn í Færeyjum Nýr samningur gerður á sviði ferðamála Sturla Böðvarsson samgönguráðherra og Finnbogi Arge, ráðherra ferðamála, undirrituðu samninginn í Þórshöfn. Sjúkrahús Reykjavík- ur dæmt til greiðslu skaðabóta SJÚKRAHÚS Reykjavíkur hefur verið dæmt til að greiða sjúklingi sem gekkst undir aðgerð á St. Jós- efsspítala í Landakoti 1991 2,5 milljónir króna í skaðabætur vegna gáleysis starfsmanna sjúkrahússins. Aður hafði Héraðs- dómur Reykjavíkur sýknað sjúkrahúsið af kröfum mannsins sem skaut málinu til Hæstaréttar í febrúar sl. Að auki er Sjúkrahús Reykjavíkur dæmt til að greiða manninum málskostnað í héraði og fyrir Hæstarétti, alls 700 þúsund krónur. I aðgerðinni var fjarlægt ill- kynja æxli í ristli mannsins. Hann útskrifaðist á þriðja degi eftir að- gerð og leitaði heimilislæknis síns um átta vikum síðar vegna mikilla og þrálátra verkja. Bótakrafan var reist á því að að- gerðarlæknirinn hafi ekki trygt að veitt yrði viðeigandi eftirmeðferð til þess að koma í veg fyrir eða takmarka hættuna á samgróning- um eða öðrum hugsanlegum fylgi- kvillum. Örorka mannsins vegna aðgerðarinnar er áætluð 30%. Maðurinn krafðist 12.515.200 króna af stefnda. í dómi Hæstaréttar kemur fram að ellefu af 18 læknum, sem hafa lagt mat á hvort talið verði að ör- orka mannsins í kjölfar aðgerðar- innar verði að minnsta kosti að hluta til rakin til skorts á viðeig- andi eftirmeðferð, telja að þetta hafi örugglega skipt máli eða hafi getað skipt máli. Málið dæmdu hæstaréttardóm- ararnir Pétur Kr. Hafstein, Guð- rún Erlendsdóttir, Haraldur Henrysson, Hjörtur Torfason og Hrafn Bragason. SAMSTARFSSAMNINGUR á milli Islands og Færeyja á sviði ferðamála var undirritaður í gær í Þórshöfn. Samningurinn, sem geng- ur undir nafninu FITUR, var undir- ritaður af ráðherrum landanna, þeim Sturlu Böðvarssyni, sam- gönguráðherra, og Finnboga Arge, atvinnumálaráðherra og ráðherra ferðamála í Færeyjum. FITUR- samningurinn nær til þriggja ára og tekur gildi frá og með 1. janúar á næsta ári. Samkvæmt honum mun hvort land um sig leggja fram fimm hundruð þúsund danskar krónur ár- lega, jafnvirði um fimm milljóna ís- lenskra króna, til að standa straum af samstarfinu. Hliðstæður samn- ingur hefur verið í gildi milli land- anna allt frá árinu 1995 en hann rennur út í lok þessa árs. Undirritun samningsins fer fram á sama tíma og haldin er í Færeyj- um ferðakaupstefnan Vestnorden Travel Mart ‘99. Á ráðstefnunni kynna á annað hundrað fyrirtækja frá Islandi, Grænlandi og Færeyj- um vörur og þjónustu fyrir kaup- endum víðsvegar að úr heiminum. Þetta er í fjórtánda sinn sem kaup- stefnan er haldin en að henni standa ferðamálaráð landanna. Árangursríkt samstarf Samningurinn sem undirritaður var í gær felur m.a. í sér að sam- starf milli þeirra menntastofnana í löndunum tveimur er veita menntun í ferðamálafræðum verði eflt, til dæmis með því að nemendum frá hvoru landi verði gert mögulegt að öðlast reynslu af ferðamálastarf- semi í hinu landinu. Einnig inni- heldur samningurinn ákvæði um að leitast verði við að örva samvinnu milli ferðmálafyrirtækja í löndunum tveimur, með það fyrir augum að fjölga ferðamöguleikum þar sem bæði löndin koma við sögu. Enn- fremur er í samningnum að finna ákvæði um að unnið verði að því að örva straum ferðamanna milli land- anna. Á síðustu árum hefur fé verið varið til að styrkja skipulega hópa sem hafa ferðast milli þeirra. Alls voru styrkirnir 45 í hvoru landi á síðasta ári og eru taldir munu verða 50 á þessu ári. Þá felur samningur- inn í sér að Ferðamálaráð Færeyja fái aðild að skrifstofum Ferðamála- ráðs íslands í New York og Frank- furt. „Markmið þessa samnings er að auka samstarf milli Islands og Færeyja," sagði Sturla Böðvarsson í samtali við Morgunblaðið í gær. „Okkur sýnist að samningurinn frá 1995 hafi borið tilætlaðan árangur og samstarf milli landanna hefur aukist, bæði í ferðaþjónustu og hvers konar flutningastarfsemi. Einnig hafa annars konar samskipti þjóðanna aukist eftii' að sá samn- ingur var gerður. I gegnum sjóð sem myndaður er með framlögum frá báðum löndunum höfum við get- að veitt styrki til íþróttahópa, skóla- nemenda og til samstarfs milli vina- bæja í löndunum tveimur. Með þessu móti höfum við stuðlað að fjölgun ferðamanna og bættum kynnum þjóðanna." Sturla gat þess að með samningnum nú væri lögð aukin áhersla á bættar flutninga- leiðir milli landanna og að auk fram- laga til skipulegra hópa yrði nokkru fé varið til kynningarstarfsemi. Mikil fjölgun á flugferðum milli vestnorrænu landanna Samkvæmt upplýsingum sem fram komu á fréttamannafundi í Þórshöfn í gær, hefur farþegum í flugi milli íslands og Færeyja fjölg- að um 30% á síðustu þremur árum. Flugfarþegar voru rúmlega 6.000 á árinu 1996 en á þessu ári er áætlað að þeir verði um 9.000 og rúmlega 11.000 árið 2000. Á fundinum greindu forráðamenn Flugfélags íslands, Atlantic Airwa- ys í Færeyjum og Greenlandair frá því að frá og með sumri árið 2000 yi’ði ferðum milli landanna fjölgað. Stefnt er að því að írá og með miðj- um júní til loka ágúst á næsta ári verði flognar fimm ferðir í viku milli íslands og Færeyja. Einnig er ætl- unin að lengja það tímabil á sumrin þegar ferðir eru tíðastar um tvær vikur og fjölga ferðum á öðrum árs- tímum. Jón Karl Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Flugfélags Islands, segir að fjölgunin bjóði ferðamönn- um aukna möguleika á að tengja saman ferðalög til Islands og Færeyja. „Við það að flugferðum milli Islands og Færeyja fjölgar opnast fjölmargar nýjar leiðir í sambandi við ferðaþjónustu. Flug- félag íslands hefur í sumar boðið dagsferðir til Grænlands sem hafa verið gríðarlega vinsælar og er ætlunin að bjóða svipaðar ferðir frá Islandi til Færeyja frá og með næsta sumri, með eða án gisting- ar,“ segir Jón Karl. Önnur nýjung sem kynnt var á fundinum eru flugferðir á vegum Greenlandair milli Kulusuk og Ilulissat, sem er bær á vesturströnd Grænlands, norður við Diskóflóa. Ferðimar verða tengdar fluginu milli Reykjavíkur og Kulusuk og er þar með í fyrsta sinn komin á bein flugtenging milli Islands og Mið- vestur-Grænlands. Jón Karl segir að Diskóflói sé einstök náttúruperla og að þar megi finna dæmi um allt það fegursta sem Grænland hefur upp á að bjóða. TJrskurðarnefnd almannatrygginga synjar ungri stúlku um greiðslu kostnaðar vegna bakaðgerðar Málinu verður vís- að til dómstóla Urskurðarnefnd almannatrygginga hefur staðfest synjun siglinganefndar á endur- greiðslu kostnaðar ungrar stúlku sem gekkst undir aðgerð á baki í London í júní í fyrra. Málinu verður vísað til dómstóla. ÚRSKURÐARNEFND almanna- trygginga ákvað 16. september síð- astliðinn að staðfesta synjun sigl- inganefndar Tryggingastofnunar ríkisins um endurgreiðslu kostnað- ar vegna aðgerðar sem ung stúlka gekkst undir í London í fyrra. Stúlkan hafði þjáðst af bakverkjum um árabil og leitað til ýmissa lækna hérlendis, án þess að fá úrslausn sinna mála, fyrr en henni var vísað til Crock læknis við Cromwell-spít- alann í London sem gerði á henni bakaðgerð. Faðir stúlkunnar, Ingi- mar Einarsson, kveðst telja niður- stöðu úrskurðamefndar mikil von- brigði en að fenginni þessari niður- stöðu sé Ijóst að málinu verði skotið til dómstóla. Stúlkan hafði glímt við erfiðleika vegna alvarlegs sjúkleika í baki um tíu ára skeið og gat m.a. ekki setið í venjulegum stól frá 1995 og varð þegar hún lauk stúdentsprófi rúmu ári síðar að stunda nám sitt liggj- andi í kennslustundum. Til þess að draga úr þjáningum varð hún að neyta vaxandi magns verkjalyfja, bólgueyðandi og vöðvaslakandi lyfja, auk þess sem hún gekk í bak- belti og varð að vera með stífan hálskraga. Læknir þeir og sérfræð- ingar sem hún leitaði til á þessum tíma gátu ekki liðsinnt henni með þeim hætti að hún fengi bót meina sinna. Bati talinn nær algjör í ársbyrjun 1998 var ástandið orðið svo slæmt að þjáningar voru stöðugar þrátt fyrir verkjalyfja- notkun. Hún leitaði þá til Jóseps Blöndal, skurðlæknis og baksér- fræðings í Stykkishólmi, sem að undangenginni meðferð vísaði henni til Henry Vernon Crock, yfirlæknis þeirrar deildar Cromwell-sjúkra- hússins í London sem sérhæfir sig í flóknum aðgerðum tengdum baki og mænu. Hann bauð henni aðgerð í júní 1998 sem hún þáði og hefur síð- an fengið nær algjöran bata. í byrjun júní 1998 var sótt um til siglinganefndar að Tryggingastofn- un ríkisins greiddi kostnað vegna bakaðgerðarinnar sem stóð þá fyrir dyrum og dvöl á endurhæfingar- sjúkrahúsi eftir aðgerð. Siglinga- nefnd taldi þörf fyrir meðferð brýna en synjaði umsókn forráðamanna stúlkunnar um greiðslu í október í fyn-a, að fengnu áliti tveggja ís- lenskra lækna sem töldu unnt að framkvæma aðgerðina hérlendis. Hinn þriðji sem leitað var til kvaðst hins vegar telja að stúlkan hefði „án efa eitt alvarlegasta bakvandamál sem ég hef séð hjá ungum einstak- lingi og þar eð lítill árangur náðist með hefðbundinni meðferð, vil ég leyfa mér að hvetja siglinganefnd til að líta með velvilja á umsókn henn- ar, án fordæmisgefandi gildis.“ Aðgerð talin gerleg hérlendis Lögmaður stúlkunnar, Jón Stein- ar Gunnlaugsson hrl., óskaði eftir endurupptöku málsins þegar úr- skurður hennar lá fyrir og að farið yrði fram á að aflað yrði hlutlauss sérfræðiálits. Sérfræðingurinn, sem samdi álitsgerð fyrir siglinganefnd vegna málsins, taldi að hægt hefði verið að framkvæma aðgerðina hér- lendis og taldi ólíklegt annað en hægt væri að fá endurhæfingu hér- lendis, sambærilega við þá endur- hæfingu sem stúlkan fékk eftir að- gerðina ytra. Fyrri afgreiðsla siglinganendai- var því staðfest 1. mars sl. og sú staðfesting kærð til tryggingaráðs um miðjan aprfl. Ráðið óskaði greinargerðar sigl- inganefndar og alþjóðadeildar Tryggingastofnunar og gafst lög- manni stúlkunnar kostur á að koma á framfæri athugasemdum og við- bótargögnum, sem hann og faðir stúlkunnar sendu ráðinu í maí og júní. 1. júlí tók úrskurðarnefnd al- mannatrygginga við kærumálum vegna bóta almannatrygginga af tryggingaráði og þar á meðal þessu umrædda máli. Formaður siglinga- nefndar óskaði frests til að afla við- bótargagna og var hann veittur til 4. ágúst sl., en þá skilaði nefndin álitsgerð læknis um málið. I álitsgerðinni kveðst læknirinn m.a. telja að „ólíkar túlkanh' á rann- sóknamiðurstöðum, sögu og skoðun sjúklings hérlendis og erlendis, hafi ráðið því að aðgerð var ekki gerð hér á landi en var gerð í London.“ Lögmaður stúlkunnar, Jón Stein- ar, gerði athugasemdir við álits- gerðina í kjölfarið og kvaðst telja að ekkert benti til að unnt hefði verið að framkvæma sambærilega aðgerð á Islandi „þar sem hvorki var um að ræða sambærilegt mat á sjúkdóms- ástandi né aðrar forsendur fyrh’ því að boðið yrði upp á slíka aðgerð". Fallist á mat íslenskra lækna Úrskurðarnefnd almannatrygg- inga segir í áliti sínu að almennan mælikvarða verði að leggja á hvort hægt hefði verið að framkvæma að- erðina hérlendis. Eðli málsins sam- kvæmt sé munur á verklagi frá ein- um lækni til annars, en af fyrirliggj- andi gögnum verði ekki ráðið að að- gerðin sem framkvæmd var ytra hafi verið svo sérstök að ekki hefði mátt gera hana hérlendis. „Úrskurðamefnd fellst á það mat læknanna, að hægt hefði verið að gera sambærilega aðgerð hér heima og þegar af þeirri ástæðu, er skilyrði 35. gi'einar almannatryggingalaga til kostnaðarþátttöku ekíd fyrir hendi. Veikindi kæranda voru sannan- lega alvarleg og höfðu staðið yfir í langan tíma. Þau voru hins vegar ekki þess eðlis að um bráðavanda væri að ræða í þeim skilningi að ekki hefði verið hægt að bíða eftir niðurstöðu siglinganefndar eins og lög gera ráð fyrir. Kærandi kaus að fara strax utan og láta ekki reyna á hvort hægt væri að framkvæma sambærilega aðgerð hér á landi. Það reyndi því aldrei á biðtíma eftir aðgerð hér á landi, en nefndin telur biðtíma eftir bakaðgerð hérlendis almennt ekki það langan að kær- andi hafi ekki mátt þola hann eins og aðrir sjúklingar sem njóta þjón- ustu hér á landi,“ segh- m.a. í álit- inu. Málið úrskurðuðu þau Friðjón Örn Friðjónsson hrl., Garðar Guð- mundsson læknir, og Þórunn Guð- mundsdóttir hrl.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.