Morgunblaðið - 12.10.1999, Side 8

Morgunblaðið - 12.10.1999, Side 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR \- Gæðingurábið ** Vandræöagangur Halldórs Ásgrímssonar utanríkisráö- herra vegna ráöningar forstjóra Leifsstöðvar ætlar engan enda aö taka. Ómar Kristjánsson situr á forstjórastólnum til bráöabirgða Nei, nei, vertu kjurr, ég var bara að djóka, þú verður að vera eitt ár enn undir pilsinu, Omar minn. I ökkla eða eyra í Breiðdalnum VEIÐI í Breiðdalsá er lokið eins og víðast annars staðar og urðu lokatölur þar milli 130-140 laxar, en Þröstur Elliðason leigutaki sagðist eiga eftir að rukka nokkra haustveiðimenn um veiðiaskýrsl- ur. „Einhver í hópnum var með átta laxa þannig að það safnast. Sjálfur veiddi ég lokadaginn 30.september og náði þremur löx- um í klak á flugu áður en vatnið hljóp í kakó í rigningunni. Sept- emberveiðin fór fyrir ofan garð og neðan að mestu leyti vegna vatns- veðra þannig að sumarið var í Kampakátur veiðimaður með vænan lax úr Laxá á Refasveit. ökkla eða eyra, þurrkar og vatns- leysi allt sumarið og svo flóð flesta daga um haustið. Samkvæmt því er þetta bara nokkuð góð útkoma og menn sáu talsvert af laxi í haust,“ sagði Þröstur. Á átjánda hundrað laxar Veiði er lokið í Eystri Rangá ogb veiddust þar á átjánda hundrað laxar, þeir stærstu 20 og 21 pund. Undir lokið var veiðin orðin hálf- gert kropp og lítið að ganga af nýj- um laxi. Lokatalan dugar Eystri rangá í þriðja sætið á landsvísu, of- ar eru Þverá/Kjarrá og Grímsá. Veiði er líka lokið í Ytri Rangá og þar veiddust á áttunda hundrað laxar. Þröstur Elliðason leigutaki árinnar átti eftir að vinna lokatölur úr skýrslunni, en sagði mest sjó- birting hafa verið að veiðast undir- lokin. „Þetta var einhver veiði, síð- ustu helgina frétti ég af tveinmur veiðimönnum með átta fiska, en það voru engir sérstakir toppar í þessu. Stærsti fiskurinn sem ég frétti af veiddist í ágúst og var 14 pund. Annar tæp 19 pund veiddist í Hólsá að austan,“ bætti Þröstur við. Tré- rimlaglugga 25mm og 50mm meö og án borða Margir litir Frábært verð Z-brautir & gluggatjöld Faxafeni 14, símar 533 5333 Fundur í Skólabæ við Suðurgötu Tilfínningar í ís- lendingasögum Aldís Guðmundsdóttir FÉLAG íslenskra fræða heldur fund í Skólabæ, Suður- götu 26, annað kvöld. Þar mun Aldís Guðmunds- dóttir halda erindi um til- finningar í Islendinga- sögum. Skyldu þær vera fyrirferðarmiklar í sög- unum? „Já, þær eru það svo sannarlega að mínum dómi, það má segja að Is- lendingasögumar kraumi af tilfinningum. Erindi mitt sem ég flyt annað kvöld byggir á MA-ritgerð minni, sem ég vann síðastliðinn vet- ur.“ - Hver var kveikjan að því að þú valdir þetta við- fangsefni? „Kveikjan að verkefni þessu var í raun sú að á síðasta ári var endurútgefin bók breska náttúrufræðingsins Charles Darwin um tilfinningar. Þessi bók nefnist á frummálinu The Expression of the Emotions in Man and Animals, en hún kom fyrst út árið 1872. Þegar ég las þessa bók varð mér ljóst að mik- ill fengur gæti verið í henni þeg- ar skoða á tilfinningalíf fom- manna, eins og það birtist í ís- lendingasögunum. Sú skoðun hefur verið útbreidd meðal fræðimanna að heimur sagnanna sé tilfinningasnauður en í erind- inu mun ég hins vegar leitast við að sýna fram á að tilfinningum séu gerð góð skil enda þótt það sé ekki gert með því að skyggn- ast beint inn í hugarheim persón- anna eins og gert er í nútíma- skáldsögum. - Getur þú nefnt mér dæmi um þetta? „Dæmin era fjölmörg en í sér- stöku uppáhaldi hjá mér er dæmi úr Njálssögu þar sem lýst er við- brögðum Flosa við frýju Hildig- unnar eftir víg Höskuldar Hvíta- nesgoða. Hún eggjar hann til þess að hefna vígsins með því meðal annars að leggja yfir hann blóðuga skikkju Höskuldar en sagan segir að Flosa hafi brugðið svo við þennan atgang hennar; „að hann var í andliti stundum rauður sem blóð en stundum föl- ur sem gras en stundum blár sem hel.“ Þama er notuð þreföld eftirlíking til að sýna tilfinninga- leg viðbrögð Flosa. Þetta eru dæmigerð látbrigði af því tagi sem Darwin fjallar um í kenn- ingu sinni. Einmitt þessi atburð- ur leiddi á endanum til Njáls- brennu.“ - Hvernig eru þessar kenning- ar Darwins? „Darwin gerði ráð fyrir því að tilfinn- ingaleg viðbrögð manna og dýra séu al- gild og ásköpuð og því í megindráttum þau sömu meðal mismunandi þjóð- flokka og þá fólks á mismunandi tímum. I þessari kenningu sinni lagði hann mikla áherslu á það að skyggnast ekki beint inn í hugar- heim þeirra sem hann rannsak- aði, heldur grandskoðaði hann svipbrigði þeirra og atferli án þess að reyna að hafa áhrif þar á. I kenningu sinni notaði Darwin tvennt öðra fremur, en það era hreyfingar augabrúna og litaraft. Hann tengir ákveðnar hreyfing- ar augabrúna við ákveðnar til- finningar. I undran þá er það al- gilt að menn lyfta augabrúnum. I reiði hnykla menn augabrúnir, í sorg mynda þær einskona skáa - miðjan fer upp. Nefna má mjög ►Aldís Guðmundsdóttir fæddist í Reykjavík 1950. Hún tók stúd- entspróf frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 1970 og BA-próf í íslensku og sálfræði frá Há- skóla íslands 1976. Framhalds- nám í tilraunasálfræði stundaði Aldís við háskólann í Sussex í Englandi 1979-’80. Hún lauk MA-prófi í ísienskum fræðum frá Háskóla Islands sl. vor. Al- dís starfaði sem menntaskóla- kennari í tíu ár en við þýðingar í þrettán ár og er nú yfirmaður þýðingarmiðstöðvar utanríkis- ráðuneytis. Aldís er gift Jörgen Pind og eiga þau þrjú böm, Lóu, Onnu Guðrúnu og Finn Kára. frægt dæmi úr Egilssögu þegar Egill hafði misst Þórólf bróður sinn í orrastunni á Vínheiði. Sagnaskáldið lætur augabrúnir Egils tala sínu máli um líðan hans á þessari stundu þar sem hann lýsir honum svo: „Þá hleypti hann annarri brúninni of- an á kinnina en annarri upp hár- rætur... ekki vildi hann drekka þó að honum væri borið en ýms- um hleypti hann brúnunum ofan eða upp.“ -Myndir þú segja að Islend- ingasögurnar væru ástríðufullar bókmenntir? „Já, ég myndi hiklaust segja það. Staðreyndin er þó sú að þær era í rauninni jafn ólíkar og þær era margar. Þar af leiðandi era þær líka misjafnlega tilfinninga- þrungnar. Ég byggði rannsókn mína á þremur sögum, ella hefði umfangið orðið of mikið, þessar sögur eru Fóstbræðrasaga, Egilssaga Skallagrímssonar og Brennu-Njálssaga. Allar þijár fjalla þær um harm- þrungin og mikil ör- lög manna. Ef til vill má segja að Laxdæla, sem ég tók ekki með í minni rannsókn, sé sú Islendingasaga sem fólk tengir þó einkum við ástir og örlög - hún er fyrst og fremst ástarsaga. Ég nota ekki ein- göngu bók Darwins í rannsókn minni heldur líka rannsóknir nú- tíma fræðimanna. Látbrigði til- finninga, sem eru lykilatriði í kenningu Darwins, gegna miklu hlutverki í mínu verkefni. í ís- lendingasögunum má finna ara- grúa dæma í þessa vera; mönn- um sprettur sveiti á enni, fá rauða flekki í kinnar, bíta saman varir, fölna, verða grænir í fram- an, glotta, fýla eða bregða grön- um, spýja og þannig mætti áfram telja. En allt era þetta dæmigerð látbrigði svokallaðra grunntil- finninga." Hann var f andliti stund- um rauður sem blóð

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.