Morgunblaðið - 12.10.1999, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 12.10.1999, Qupperneq 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ . LANDID Omsjá notuð á hrútasýningu í Þistilfírði Afmælishátíð í Reykjanesbæ Iþrótta- og ungmenna- félagið fagnaði 70 ára afmæli Keflavík - Vegleg afmælishátíð var haldinn í íþróttahúsinu í Reykjanesbæ um síðustu helgi þegar Keflavík - íþrótta og ungmennafélag fagnaði 70 ára afmæli. Af því tilefni voru tveir fyrrverandi forystumenn íþróttahreyfíngarinnar, Haf- steinn Guðmundsson og Sig- urður Steindórsson, heiðraðir sérstaklega. Ennfremur var haldin sögusýning í máli og myndum í íþróttahúsinu, sýnd- ir voru verðlaunagripir og ým- islegt annað úr safni félagsins. Síðast en ekki síst voru veiting- ar fyrir alla. Það var árið 1994 að sex íþróttafélög í Keflavík voru sameinuð í eitt undir merki Keflavík - íþrótta og ung- mennafélag. Einnig var ákveð- ið að stofndagur elsta félags- ins, sem var Ungmennafélag Keflavíkur „UNGÓ“ sem stofn- að var 29. september 1929, skyldi vera stofndagur hins nýja félags. Við þetta tækifæri var afmælisbarninu færðar ýmsar gjafir. Margir gamlir kappar og fyrrverandi forystu- menn mættu einnig til veisl- unnar sem fór vel fram í alla staði. Þórshöfn - Hrútasýning er alltaf merkilegur viðburður í sveitinni en ein slík var haldin á Gunnarsstöð- um í Þistilflrði fyrir skömmu. Sýndir voru 32 veturgamlir hrátar frá bæjum í Þistilfírði og var sýn- ingin hin glæsilegasta. Löng hefð er fyrir fjárrækt í Þistilfirði og er fjárræktarfélagið Þistill elsta ræktunarfélag landsins, stofnað ár- ið 1940. Tveir ráðunautar voru á sýning- unni; þau Jón Viðar Jónmundsson frá Bændasamtökunum og María Svanþrúður Jónsdóttir frá Ráðu- nautaþjónustu Þingeyinga og dæmdu þau hrútana með^ ómsjá, mælingum og stigagjöf. Ómsjáin virkar líkt og „sónarinn“ sem kon- ur fara í á meðgöngu og var við- stöddum konum góðfúslega bent á að þær gætu notað tækifærið og skroppið í ómsjána, væru þær í vafa um hvort þær væru konur einsamlar eður ei. Engin þáði gott boð en það var mál kvenna að ekki mætti á milli sjá hvort áhugi bændanna væri meiri núna við hrútaómsjána heldur en þegar þeir fóru með frúm sínum í með- göngusónar. Með ómsjánni er mæld þykkt bakvöðva og fítu á miðjum spjald- hrygg hrútanna en út frá því má meta eiginleika skepnunnar til vöðva- og fítusöfnunar, sem er mjög mikilvægt þar sem ræktunin miðar að því að rækta vöðvamikið fé með hæfílega fitu. Hrúturinn Búri Bútsson sigraði Hrúturinn Búri Bútsson frá Sveinungsvík kom best út úr mæl- ingunum og fékk 84,5 stig sem er mjög gott. Að sögn Maríu S. Jóns- dóttur ráðunauts mældist Búri með þykkasta bakvöðva sem sést hefur í veturgömlum hrút, 41 millí- metra. Einnig er gefin einkunn frá einum upp í fimm íyrir lögun bak- vöðvans en þar fékk Búri 5 eða hæstu einkunn. Tveir Mjaldurssynir frá Haga- landi fylgdu fast á eftir Búra og lentu í öðru og þriðja sæti og þar á eftir fýlgdi annar Bútssonur frá Sveinungsvík. Þyngsti hrúturinn vó 102 kíló en það var hrútur frá Syðra-Alandi. Frumkvöðlar að stofnun fjár- ræktarfélagsins Þistils voru bræð- urnir Arni og Þórarinn Kristjáns- synir í Holti, Vigfús og Grímur Guðbjörnssynir á Syðra-Alandi ásamt bændum í Laxárdal og á Gunnarsstöðum. Víða um land er fé sem komið er út af kynbótahrút- um frá Holti og hefur haft mikil áhrif á landsvísu og Arni Kristjáns- son í Holti, núna rúmlega áttræð- ur, er heill hafsjór af fróðleik um ræktun fjár í Þingeyjarsýslu. Verðlaunagripur eftir Ríkharð Jónsson Fjárræktarfélagið fékk á sínum tíma listamanninn Ríkharð Jóns- menn á Rif! Ólafsvík - Þeir sem átt hafa leið um þjóðveginn við Rif í Snæ- fellsbæ undanfarnar vikur hafa tekið eftir því að miklar „fram- kvæmdir" eiga sér stað í börð- unum við veginn. Hvernig sem viðrar eru alltaf nokkrir ungir menn að vinna þarna með stór- virkum vinnuvélum við vega- lagningu, stíflugerð og þesshátt- ar. Þegar myndin var tekin voru þó aðeins þrír að vinna við fram- kvæmdirnar þeir Höskuldur 8 ára, Friðþjófur Orri 12 ára og Sindri Hrafn 7 ára. Þeir voru þá nýkomnir úr skólanum og drifu sig út að vinna eftir að hafa litið sem snöggvast í skólabækurnar. Nefndu þeir að með þeim væru oft þeir Birkir, Albert og Grasjó, sem er pólskur. Þeir piltar segj- ast leggja vegi með slitlagi og taka að sér hverskonar verk enda búast þeir við því að verða verktakar. Þeir sögðu að mæður þeirra segðu sjaldnast mikið þótt oft kæmu þeir óhreinir úr vinnunni. Það er enda líklegt að þær sjái í sonum sínum stórhuga framkvæmdamenn. Stöð 2 og Tal styrkja stöðu sína í Borgarfirði Reykholtsdal - íbúum í uppsveit- um Borgarfjarðar, frá Bæjarsveit um Reykholtsdal og upp í Húsafell, mun á næstunni gefast kostur á að sjá Stöð 2. Sendir hefur verið sett- ur upp á Skáneyjarbungu í Reyk- holtsdal, og er verið að ganga frá uppsetningu og stillingum fyrir út- sendingar. Davíð Davíðsson hjá Islenska út- varpsfélaginu segir að um sé að ræða vandaðan og öflugan 200 W Thomson-sendi og verði sent út á rásinni UHF59. íbúar á um 30 bæjum í Hálsasveit, Reykholtsdal og Hvítársíðu sendu í sumar undir- skriftalista til Islenska útvarpsfé- lagsins með óskum um að Sýn, Stöð 2 og Bíórásin hefji útsending- ar á svæðinu. Davíð segir að fyrst um sinn verði skoðuð þau viðbrögð sem verða við þessari nýju þjón- ustu, en ekki hafí verið teknar neinar ákvarðanir um að opna fyrir Sýn eða aðrar sjónvarpsrásir, enda þurfi sérstakan sendi fyrir útsend- ingu á Sýn og Bíórásinni. Fjarskiptasamband eflist í héraðinu Tveir aðrir sendar eru fyrir á Skáneyjarbungu, einn í eigu RÚV og annar sem Tal hefur nú sett upp fyrir símafjarskipti, en sá sendir er kominn í gagnið. Gautur Þorsteins- son hjá Tali segir í samtali við blað- ið, að samvinna hafí verið höfð við Islenska útvarpsfélagið um tækja- skýli og möstur fyrir þessa nýju senda. Af þessum útsendingarstað sér mjög víða og verður dreifingin því góð. Hægt er að ná símasam- bandi í uppsveitum Borgarfjarðar upp fyrir Húsafell. Tal hefur í sumar sett upp tvo aðra senda á Borgarfjarðarsvæð- inu, við Bifröst í Norðurárdal og í Borgarnesi. Ragnar Sigfússon með hrút sem verið er að mæla. Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Morgunblaðið/Björn Blöndal Tveir fyrrverandi forystumenn íþróttahreyfingarinnar voru sérstak- Iega heiðraðir við þetta tækifæri. Á myndinni eru kapparnir ásamt for- manni og varaformanni hins nýja félags. Frá vinstri til hægri eru: Ein- ar Haraldsson, formaður Keflavíkur, Sigurður Steindórsson, Hafsteinn Guðmundsson og Kári Gunnlaugsson, varaformaður Keflavíkur. Af þessu tilefni var haldin sögusýning í máli og myndum í íþróttahús- inu, sýndir voru verðlaunagripir og ýmislegt annað úr safni félagsins. son til að skera út verðlaunagrip fyrir félagið. Það er stór, útskor- inn hrútur, farandgripur, sem er veittur besta veturgamla hrútnum í N-Þingeyjarsýslu og afhentur á Búnaðarsambandsfundi í sýslunni. í gegnum tíðina hefur orðið breyting á því hvaða eiginleikum menn sækjast eftir að ná fram með ræktun. Áður fyrr var fitan meira metin, þar sem helsta geymsluað- ferðin var að salta eða reykja kjöt og þá var betra að hafa það feitt. Einnig var féð háfættara, því það þótti kostur við útigöngu. Þessir eiginleikar þykja ekki lengur æski- legir því háfætt og feitt fé hefur bæði hærra fítu- og beinahlutfall. Elstu bændurnir muna því tímana tvenna og hafa upplifað miklar breytingar frá upphafi búskapar- ára sinna. Morgunblaðið/Helgi Kristjánsson Framkvæmda-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.