Morgunblaðið - 12.10.1999, Qupperneq 30
30 ÞRIÐ.TLÍD'AGUK 12. OKTÓBER 1999
MORGUNBBAÐIÐ
LISTIR
tsfeoska
óperan
kqnnir:
í
jáín Ós
Oskarsdó
sópran
GLÆSILEGIR
ÓPERUTÓNLEIKAR
Fimmtuda^i
f kl. 20:30
og
föstudaginn
k. oNtóbor
kl. 20:30
Aríur, dúettar og
kórar úr óperum
efítir Verdi, Puccini,
Rossini, Mascani,
Bizet, Mozart,
von Weber og Gluck
Einsöngvarar:
Etín Ósk
*
Oskarsdóttír
Rannveig Frtða
Bragadóttír
Kolbeinn Jón Ketitsson
*
Kór Islensku
óperunnar
Kórstjóri:
Garðar Cortes
Píanó:
Gerrit Schuil
Rannveig Fnða
Bragadóttir
mezzosópran
Kolbeinn Jón
Ketilsson
tenór
Miðasalan er opin
frákl. 13-19.
Símapantanir
frá kl. 10.
operan
íslenska óperan ■ Ingólfsstræti
Sími í miðasölu 551 1475 • opera@opera.is
Ragna Róbertsdóttir sýnir í New York
Morgunblaðið/Hulda
Ragna Róbertsdóttir við verk sitt á sýningunni Microwave
íNew York.
Frá því
stærsta
til hins
smæsta
New York. Morgunblaðið.
RAGNA Róbertsdóttir mynd-
listarmaður er meðal 9 lista-
manna sem þátt taka í sýn-
ingunni Microwave sem
nýverið var opnuð í galleríinu
123 Watts við samnefnda götu
í New York-borg.
Myndlistarmennirnir koma
úr öllum áttum og sameigin-
leg einkenni þeirra eru
tempruð og hljóðlát framsetn-
ing verkanna sem eru í
sterkri andstöðu við skarkala
og hraða borgarinnar. Edda
Jónsdóttir, eigandi Gallerís
Ingólfsstræti 8, i8, var himin-
lifandi yfir góðum viðtökum
við opnun sýningarinnar en
hún var þar stödd ásamt
Rögnu og Kristjáni Guðmund-
ssyni myndlistarmanni sem til
stendur að haldi sýningu í
þessu sama galleríi síðar.
Sagði Edda að sér virtist sem
listunnendur kynnu vel að
meta yfirvegun og hógværa
framsetningu verka sem
kannski væru kærkomin hvfld
frá háværari og glannalegri
verkum eins og annars séu
áberandi um þessar mundir.
Þátttaka Rögnu í sýning-
unni í New York er til komin
í framhaldi af ferð Gallerís i8
á listamessunni ARCO í Madr-
id í byrjun ársins. Þar segist
Edda hafa komist í kynni við
Gallery 123 Watts sem Ieitt
hefur af sér þetta samstarf en
stefnt er að því að listamenn
á vegum jGalIery 123 Watts
komi til Islands á næsta ári
og sýni í Ingólfsstræti.
Myndlistarmaðurinn Jacob
E1 Hanani, frá Marokkó, er á
meðal þeirra en hann er tal-
inn forgöngumaður svo-
nefndrar Microwave-listar
sem sýningin er kennd við.
Verk hans eru gerð af afar
smágerðum línum sem síðan
mynda þéttofið net Ijóss bak-
grunns og dökkra blýants-
strikanna. Bendir hann á að í
manninum togist á ólík öfl; að
ná sem lengst og hæst og fara
með sem mestum hraða og
þess að brjóta til mergjar,
komast til þess smæsta, kljúfa
sundur og aðgreina niður í
hið óendanlega. Áskorun mín
var sú að sjá hversu lengi ég
gæti krufíð teikninguna -
kannað þolmörk fíngra minna
og augna,“ segir Jacob m.a. í
viðtali í sýningarskrá. Þar
segir sýningarstjóri sýningar-
innar, Jose Bienvenu, enn-
fremur að þó að stærðar-
hlutföll séu meginviðfangs
efni sýningarinnar þá fáist
listamennirnir ekki eingöngu
við smækkun veruleikans
heldur miklu fremur því smáa
sem búi í því stóra og nefnir í
því sambandi verk Rögnu,
Hraunlandslag.
Flest myndu verkin á sýn-
ingunni flokkast undir teikn-
ingar að undanskilinni inn-
setningu Rögnu og fáeinum
málverkum. Þó eru greinileg
tengsl milli verks Rögnu og
teikninganna. Voldugur fern-
ingur stendur á stórum vegg
salarins og tekur mið af hon-
um. Innan ferningsins er
óregluleg iða af agnarsmáum
dökkum hraunmolum. Það
sem augað nemur við eru
sterkur kontrastar annars
vegan hraunsins við hvítan
bakgrunninn og umhverfi og
hins vegar hvassar útlínur
verksins og fíngerðar hreyf-
ingar óreglulegra hraun-
breiðanna innan þess og
hvernig þær kallast á.
Sýningin stendur til 28.
nóvember.
MYJVDLIST
Ga11 erí Sævars Karls
MÁLVERK
MAGNÚS KJARTANSSON
Opið á verslunartíma til 14.
september.
MAGNÚS Kjartansson sýndi
nýlega í Galleríi Sævars Karls
mikla myndröð sem áður hafði
verið sýnd á Spáni á Norðurlanda-
hátíð fyrir nokkrum árum og vakið
mikla athygli. Nú sýnir hann enn
verk sem unnin eru fyrir nokkrum
árum eða nálægt síðustu stóru
sýningunni sem hann hélt á Kjar-
valsstöðum. Á þessum myndum
má aftur sjá að það er ekki að
ástæðulausu að margir telja
Magnús einn besta málara sinnar
kynslóðar og því mjög miður að
ekki skuli hafa sést frá honum ný
verk um nokkurt skeið.
I þessum myndum byggir
Magnús málverkið upp í þrívídd
og ofan á striganum liggja út-
brunnar eldspýtur og vindilstubb-
ar, allt í margfaldri yfirstærð. Við-
fangsefni málarans er því
jaðarsvæði hversdagsleikans, það
horf tilverunnar sem oftast er talið
bera litla eða enga merkingu og
skipta engu máli. Nú mætti lesa
þessar myndir sem svo að þeim
væri ætlað á einhvern hátt að upp-
hefja hið smáa, fá áhorfandann til
að líta sér nær og finna fegurðina í
sínu nánasta umhverfi, jafnvel í
útbrunnum leifum lífsins. En það
Af sýningu Magnúsar Kjartanssonar.
er samt ekki laust við að yfir
myndunum hvili einhver undarleg
melankólía eða deyfð: Kannski eru
þær til vitnis um að lífið allt sé
jafn lítilsiglt og það sem þær sýna
og því gildi eiginlega einu hvaða
viðfangsefni málarinn velji sér -
allt sé á endanum jafn merkingar-
laust og útbrunnin eldspýta.
Málverk Magnúsar hafa alltaf
haft mikla tilfinningalega og jafn-
vel trúarlega dýpt. í þeim hafa
birst vangaveltur listamannsins
um tilgang og möguleika mannlífs-
ins, þátt trúarinnar í því og ábyrgð
mannsins. I því samhengi virðist
manni ekki nærtækt að nálgast
neinar myndir hans eins og aðeins
sé um saklausan leik að ræða og
svo er ekki heldur um þessi vand-
lega unnu en annars tómlegu mál-
verk. En hvor túlkunin sem valin
er af þeim tveimur sem nefndar
voru hér er það víst að á þeim má
sjá að jafnvel hið smæsta og smáð-
asta flytur einhver skilaboð og
getur orðið listamanninum yrkis-
efni. i
Sýningin er gott dæmi um vinnu ■
hins hæfileikaríka málara Magn-i
úsar Kjartanssonar og vonandi1
verður þess ekki langt að bíða enn>
að við fáum að sjá aðra sýningu ogi
ný málverk frá hans hendi.
í
Jón Proppé^