Morgunblaðið - 17.11.1999, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Morgunblaðið/Ásdís
Þær Stefanía Sif Stefánsdóttir og Sandra Sif Sverrisdóttir sögðu
að það væri gaman að lesa Ijóð.
Matthi'as Björnsson og Olgeir Óskarsson ætluðu að Iesa sín
Ijóð fyrir marga til að vinna keppnina.
Dagur íslenskrar tungu
Ljóð í flösku
Ingvar Rafn Jónsson las ljóð sitt fyrir Ijósmyndara sem kvittaði fyrir.
Morgunblaðið/Kristinn
Börnin f Álftanesskóla tóku þátt í Degi íslenskrar tungu í gær, líkt og önnur ungmenni á
landinu. Nokkur þeirra komu saman á Bókasafni Bessastaðahrepps og leystu gátur, sem
Erla Lúðvíksdóttir, forstöðumaður safnsins, las fyrir þau.
Grafarvogur
DAGUR íslenskrar tungu
var í gær og héldu fjölmargir
grunnskólar daginn hátíðleg;
an með ýmsum hætti. I
Rimaskóla tóku nemendur
upp á því nýmæli að bjóða
gestum og gangandi að lesa
fyrir þá ljóð sem þeir
geymdu í plastflösku um
hálsinn.
Dagskráin í Rimaskóla
hófst formlega með því að
Snædís Snorradóttir, nem-
andi í 6. bekk, las eitt ljóða
Jónasar fyrir nemendur 4.-7.
bekkjar, en það var sá hópur
sem í gær flutti ljóð Jónasar
Hallgrímssonar fyrir hvem
þann sem heyra vildi. Hug-
myndin kom upp á kennara-
fundi í Rimaskóla og þótti vel
við hæfi að nemendur læsu
ljóð Jónasar þar sem Dagur
íslenskrar tungu er einnig af-
mælisdagur skáldsins.
A göngum Rimaskóla
mátti víða finna nemendur
með plastflösku um hálsinn
sem ólmir vildu lesa ljóð fyr-
ir viðstadda gegn kvittun.
Hálsmenin voru útbúin úr
LGG-plastflöskum, mynd af
Jónasi límd á og tappinn síð-
an merktur LJH, þ.e. ljóð
Jónasar Hallgrímssonar.
Hver flaska geymdi svo
miða með stuttu æviágripi
skáldsins, ljóði hans og reit-
um þar sem kvitta átti fyrir
ljóðalestur. Nemendur voru
hvattir til að fara um skólann,
hverfið, verslanir og heimili
og bjóða fólki upp á ljóða-
flutning. En keppni stóð yfir
milli bekkjardeildanna um
hvaða bekkur fengi mesta
áheym og flestar kvittanir.
Orti fyrsta Ijóðið sjö ára
Stefanía Sif Stefánsdóttir
og Sandra Sif Sverrisdóttir,
nemendur í 5. bekk, voru í
hópi þeirra sem lásu ljóð
Jónasar. Sandra Sif valdi sér
Runki fór í réttirnar og Stef-
anía Sif Hákarl í hafi. Báðar
voru þær staðráðnar í að
lesa ljóðið sitt fyrir marga.
„Eg ætla að plata Dóru og
Ernu til að fara með mér í
hús og dingla á bjölluna og
lesa þar,“ sagði Sandra Sif,
á meðan Stefanía sagðist
ætla að lesa sitt ljóð fyrir
mömmu sína og frænku.
Sandra Sif og Stefanía Sif
sögðust hafa lært svolítið
um Jónas með ljóðalestrin-
um og voru ánægðar með
daginn. „Mér finnst þetta
gaman,“ sagði Stefanía Sif
um ljóðalesturinn.
Þeir Matthías Bjömsson
og Olgeir Óskarsson sem
einnig era í 5. bekk, vora
auðkennanlegir á LJH-flösk-
unum sem þeir bára. Ljóðið
sem Matthías valdi sér var
Sigga litla systir mín á með-
an Olgeir valdi Runki fór í
réttimar. Þeir vora ekki
búnir að lesa fyrir marga
þegar blaðamaður ræddi við
þá, en Matthías sagði að ljóð-
in ættu krakkamir helst að
lesa fyrir fullorðna.
Hann og Olgeir voru báð-
ir staðráðnir í að fylla blaðið
sitt, enda er keppni í gangi.
Þeir virtust nokkru fróðari
um skáldið eftir daginn.
„Hann var sjö ára gamall
þegar hann orti fyrsta ljóð-
ið,“ sagði Matthías og
kvaðst ekki hafa ort neitt
sjálfur. „Nei,“ sagði hann og
dró seiminn. „Það kemur
kannski að því einhvern tím-
ann.“
Upplestrarkeppni sjö-
undubekkinga
Að sögn Helga Arnasonar,
skólastjóra Rimaskóla, er
útlit fyrir að ljóðalesturinn
verði gerður að árlegum við-
burði í skólanum, enda
mæltist verkefnið vel fyrir
hjá bæði nemendum og
kennurum. Þá sagði hann
það vera góðan undirbúning
fyrir nemendur í því að
koma fram fyrir aðra.
Helgi sagðist enn fremur
viss um að þekking nem-
enda á Jónasi og ljóðum
hans yrði meiri eftir daginn
þar sem þeir voru látnir
skrifa upp æviágrip Jónasar
á bak ljóðamiðans. „Ég segi
það nú bara sjálfur að þau
[börnin] eru nokkur búin að
lesa upp kvæði fyrir mig og
það hefur komið mér á óvart
að nokkur kvæðanna era eft-
ir Jónas,“ sagði Helgi og
kvað Jónas hafa samið ótrú-
lega mikið af ljóðum.
Upplestrarkeppni hófst
Umferð
Kópavogur
EKKI verður ráðist í fram-
kvæmdir við nýja vegteng-
ingu frá Hafnarfjarðarvegi
og inn í Smára- og Linda-
hverfi í Kópavogi fyrr en í
fyrsta lagi árið 2007 til 2010,
en á því tímabili hyggst
Vegagerðin eyða u.þ.b. 1
milljarði króna í fram-
kvæmdir við
Hafnarfjarðar-
veg. Þetta kom
fram í samtali
Morgunblaðsins
við Þórarin
Hjaltason, bæj-
arverkfræðing
Kópavogsbæjar,
en hann sagði að
í aðalskipulagi
Kópavogsbæjar
væri gert ráð
fyrir vinstri
beygju af Hafn-
um land allt í gær og tóku
nemendur 7. bekkjar Rima-
skóla þátt ásamt nemendum
annarra skóla. Keppnin er
haldin á vegum Samtaka
móðurmálskennara og sam-
takanna Heimili og skóli.
Einungis sjöundu bekkingar
taka þátt og halda þau áfram
að æfa sig fram í janúar. Þá
verða þrír til fimm nemend-
ur valdir úr hverjum bekk
og síðan tveir úr skólanum
öllum til að taka þátt í loka-
Börnin
s
í Alftanes-
skóla leystu
gátur
Bessastaðahreppi
BÖRNIN í Álftanesskóla
tdku þátt í Degi íslenskr-
ar tungu með nokkuð sér-
stökum hætti, því í stað
þess að fara í sögustund á
Bókasafn Bessastaða-
hrepps eins og þau gera
venjulega reyndu þau að
leysa gátur, sem Erla
Lúðvíksdóttir, forstöðu-
maður bókasafnsins, las
fyrir þau.
„Með þessum hætti
kynnast þau orðum, sem
þau eru ekki vön að
heyra,“ sagði Erla. „Marg-
ar íslenskar gátur geyma
sjaldgæf orð íslenskrar
tungu og börnin læra því
á þessu, en þau fá líka leik
út úr þessu.“
Erla sagði að þau börn
sem ekki færu strax heim
að loknum skóladegi
kæmu á bókasafnið og
eyddu deginum þar í leikj-
um, við að lita og hlusta á
sögur, en að brugðið hefði
verið út af vananum nú í
tilefni dagsins.
hátíð síns byggðariags.
Mat á gæðum lestrarins
byggist m.a. á líkamsstöðu,
notkun talfæra, raddstyrk,
blæbrigðum, hraða, fram-
burði og samskiptum við
áheyrendur.
Aðalfundur
Aðalfundur Ferðamálasamtaka Norðurlands eystra
verður haldinn í Hvalamiðstöðinni á Húsavík
fimmtudaginn 18. nóvember kl. 20.30.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Ný vegtenging frá Hafiiaríj arðarvegi að Lindahverfí er á langtímaáætlun
beint upp á Arnarnesveg
arfjarðarvegi að Linda-
hverfi.
Þann 28. ágúst fjallaði
Morgunblaðið um erindi, sem
Stefán Ingólfsson arkitekt
sendi bæjaryfirvöldum í
Kópavogi, en Stefán gagn-
rýndi m.a. aðkomuna af
Hafnarfjarðarvegi inn í
Smára- og Lindahverfi. Hann
benti á að vegna þessarar
slöku aðkomu væri rnikil
gegnumstreymisumferð um
Digi'anesveginn í gamla bæn-
um og það væri m.a. slæmt,
þar sem margir skólar væru
á þessu svæði.
„Eg tel að það megi alveg
beina umferðinni frá Hafnar-
fjarðarvegi upp á Arnarnes-
veg og þaðan í austur að
Smárahverfi eða Linda-
hverfi," sagði Þórarinn.
„Þannig að ég hef ekki mikl-
ar áhyggjur af því að það
verði mikil gegnumumferð í
viðbót á Digranesveginum,
eins og íbúar þar hafa haft
áhyggjur af.“
Megináherslan á stofn-
brautakerfið
Að sögn Þórarins skiptir
mestu máli að stofnbrauta-
kerfi bæjarins sé afkastamik-
ið og öruggt og því hefur
megináherslan verið lögð á
að byggja það upp. Hann
sagði það ekki skipta jafn-
miklu máli þó vegfarendur
þyrftu að taka á sig krók upp
á einn til tvo kílómetra þegar
eknar væra langar vega-
lengdir innan höfuðborgar-
svæðisins, enda væri slíkt
eðlilegt í flokkuðu gatnakerfi.
í vegaáætlun Kópavogs-
bæjar frá 1998 til 2002,
skipta framkvæmdir við
Reykjanesbraut mestu máli.
Þórarinn sagði að tvöföldun
Reykjanesbrautar frá Breið-
holtsbraut suður að Fífu-
hvammsvegi væri u.þ.b. að
ljúka. Fyrirhugað væri að
klára mislæg gatnamót við
Nýbýlaveg og Breiðholts-
braut árið 2001 og að fljót-
lega eftir það tækju við fram-
kvæmdir við misiæg gatna-
mót við Smiðjuveg og Stekkj-
arbakka. Árið 2002 á einnig
að klára tvöföldun Reykja-
nesbrautar að Arnarnesvegi
og gera mislæg gatnamót við
Arnarnesveg.
Þórarinn sagði að helstu
framkvæmdirnar innanbæjar
tengdust Smáralindinni, sem
myndi líklega opna haustið
2001. Með tilkomu Smára-
lindarinnar þyrfti að auka af-
köstin á gatnakerfinu í kring-
um verslunarmiðstöðina, m.a.
tvöfalda Fífuhvammsveg
milli Smárahvammsvegar og
tengirampa austan Reykja-
nesbrautar.