Morgunblaðið - 30.11.1999, Blaðsíða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Söguleg myndun samstjórnar sljórnmálaflokka kaþólikka og mótmælenda á Norður-Irlandi
Framtíð stjórnarinnar
nátengd afvopnun IRA
Eftir margra mánaða stapp gerðust þau sögulegu tíðindi loks í gær
að skipuð var heimastjórn á Norður-írlandi sem hefur innanborðs
fulltrúa bæði mótmælenda og kaþólikka. Davíð Logi Siffurðsson
segir marga íbúa Norður-Irlands sjálfsagt eiga erfítt með að trúa
því að stjórnmálaarmur IRA eigi nú fulltrúa í heimastjórn.
STJÓRNMÁLAMENN á Norður-
Irlandi stigu sögulegt skref í átt til
sátta í gær þegar loks fóru fram til-
nefningar í fyrstu heimastjóm í
héraðinu í tuttugu og fimm ár. Lýð-
veldissinnar og sambandssinnar
munu sitja hlið við hlið í stjórninni en
hún kemur saman í fyrsta skipti á
fimmtudag og_í kjölfarið er vonast
efth' því að Irski lýðveldisherinn
(IRA) tilnefni fulltrúa sinn í svokall-
aða afvopnunarnefnd.
Nokkur átök voru reyndar á fundi
norður-írska heimastjórnarþingsins
í gær því hluti fulltrúa sambands-
sinna stóð fyrir málþófi enda eru þeir
algerlega mótfallnir því að Sinn
Féin, stjórnmálaannur IRA, fái að
taka sæti sín í stjórninni án þess að
IRA hafi byrjað afvopnun fyrst.
Þeim varð þó ekki kápan úr því klæð-
inu og þau tíðindi gerðust að tveh-
fulltrúar Sinn Féin voru skipaðir í
stjórn við hlið fulltrúum sambands-
sinna og hófsamra kaþólikka.
Næsta öruggt er að þessum degi
fagna lýðveldissinnar á Norður-ír-
landi vel en að sama skapi eru sjálf-
sagt margir mótmælendur sem eiga
erfitt með að sætta sig við tiihugsun-
ina um Martin McGuinness, sem tal-
inn er hafa verið leiðtogi í IRA á átt-
unda áratugnum þegar átökin á
Norður-írlandi stóðu sem hæst, sem
ráðherra menntamála í norður-írskri
heijnastjórn.
A móti telja mai’gir að einungis
með Sinn Féin og sambandssinna við
sama borðið sé raunverulega hægt
að vinna í átt að friði í héraðinu. Sam-
bandssinnar beri aukinheldur jafn-
mikla, ef ekki meiri, ábyrgð á var-
göld undanfarinna þrjátíu ára á
Norður-írlandi.
Endurkjör Mallons forsenda
stjórnarmyndunarinnar
Fyrsta mál á dagskrá fundarins í
gær var að kjósa Seamus Mallon,
varaformann flokks hófsamra kaþól-
ikka (SDLP), aðstoðarforsætisráð-
herra á nýjan leik en Mallon sagði af
sér með látum í júlí síðastliðnum
þegar tilraunir til að leysa afvopnun-
ardeiluna svokölluðu fóru út um þúf-
ur. Var endurkjör Mallons forsenda
þess að hægt væri að halda áfram og
tilnefna ráðherranna tíu, sem taka
munu sæti í stjórninni ásamt Mallon
og forsætisráðherranum David
Trimble, leiðtoga stærsta flokks
sambandssinna (UUP).
Samkvæmt ákvæðum friðarsam-
komulagsins sem kennt er við föstu-
daginn langa þurfa aðstoðarforsæt-
isráðherra og forsætisráðheira
heimastjórnarinnar á Norður-ír-
landi ekki aðeins að njóta meirihluta-
stuðnings á þinginu heldur í hvorri
fylkingu fyrir sig, hjá sambandssinn-
um og lýðveldissinnum. Slíkum
stuðningi var ekki til að dreifa meðal
sambandssinna þar sem klerkurinn
Ian Paisley, og flokkur hans DUP,
hefur alla tíð verið á móti friðarsam-
komulaginu og í röðum UUP finnast
einnig margir sem eru andsnúnir
myndun heimastjómarinnar með að-
ild Sinn Féin.
Hjó Peter Mandelson, ráðherra
Norður-Irlandsmála í bresku ríkis-
stjórninni, á hnútinn með því að
breyta starfsreglum norður-írska
þingsins þannig að Mallon nægði ein-
ungis meirihlutastuðningur á þing-
inu sem heild.
Gerry Adams ekki í stjórninni
DUP-flokkur Paisleys hafði einnig
lagt fram þingsályktun sem miðaði
að því að útiloka Sinn Féin frá
stjórnarsetu á þeirri forsendu að
flokkurinn væri ekki lýðræðislegur
flokkur en þessi ályktun gat í besta
falli dregið þingfundinn á langinn
enda Ijóst að hún hlyti ekki brautar-
gengi meðal kaþólskra á þinginu.
Var þá loksins hægt að ganga til
þess að tilnefna ráðherra í heima-
stjórnina og áttu tveir stærstu flokk-
arnir, UUP og SDLP, rétt á þremur
ráðherrastólum hvor en Sinn Féin og
DUP tveimur. Erfitt er að vísu að sjá
fyrir sér að fulltrúar DUP taki sæti
sín í stjóminni við hlið ráðherra Sinn
Féin en þeir gætu þó talið það árang-
ursríkustu leiðina í áframhaldandi
tilraunum til að fá Sinn Féin úthýst.
Sú ákvörðun Sinn Féin að tilnefna
Martin McGuinness og Bairbre de
Brún í stjórnina en ekki Gerry
Adams, leiðtoga flokksins, hefur
vakið undrun nokkurra en talsmenn
Sinn Féin skýra hana með því að
segja að þar sem flokkurinn hafi
sameiningu írlands og Norður-ír-
lands á stefnuskrá sinni væri ekki
rétt að leiðtogi flokksins taki sæti í
norður-írskri heimastjóm.
Breska þingið afsalar sér völd-
um á Norður-Irlandi
í kjölfar þessarar sögulegu stjóm-
armyndunar, sem svo seint og illa
hefur tekist að koma á koppinn, mun
breska stjórnin á morgun, miðviku-
dag, leggja til við breska þingið að
það samþykki að framselja völd sín á
Norður-Irlandi í hendur heima-
stjórninni í Belfast. Heimastjómin
mun síðan koma saman í fyrsta skipti
á fimmtudag og þegar í kjölfarið er
gert ráð fyrir að IRA tilnefni fulltrúa
sinn í afvopnunarnefnd kanadíska
hershöfðingjans Johns de Chastela-
ins, í samræmi við yfirlýsingu sam-
takanna frá því 17. nóvember.
í kjölfarið myndu síðan breytingar
á áratugagömlum ákvæðum í írsku
stjórnarskránni taka gildi og fellur
þá niður formleg krafa írskra stjóm-
valda til alls landsvæðis eyjunnar.
Um leið yrði boðað til fyrsta fundar
nýrrar samráðsnefndar írskra og
norður-írskra stjórnvalda, sem
gegnir afar mikilvægu hlutverki í
hugum lýðveldissinna enda vonast
þeii' að hún marki fyi'sta skrefið í átt
að sameiningu Irlands og Norður-ír-
lands.
Trimble háður IRA - og öfugt
Niðurstaða miðstjórnai'funds
UUP um helgina gerði atburði gær-
dagsins mögulega en þai' náði David
Trimble að tryggja sér stuðning 58%
af 860 miðstjórnarfulltrúum við
myndun stjórnarinnar, þrátt fyrir að
IRA hafi ekki enn byrjað afvopnun.
Hann varð hins vegar að géfa nokk-
uð eftir til að tryggja sér stuðning
fundarmanna og m.a. varð úr, lýð-
veldissinnum til lítillar gleði, að boð-
að yrði til nýs miðstjómarfundar í
febrúar til að endurmeta stöðuna.
Hafi IRA ekki byi'jað afvopnun þá er
heimastjórnin andvana fædd.
Mun Trimble jafnvel hafa gengið
svo langt að afhenda til geymslu af-
sagnarbréf hans sem forsætisráð-
herra og leiðtogi UUP hafi IRA ekki
byrjað afvopnunina fyrir fund UUP í
febrúar. Framtíð Trimbles sem leið-
toga sambandssinna og forsætisráð-
herra á Norður-írlandi er því ná-
tengd ævilíkum heimastjórnarinnar
sjálfrar og með einhvern annan leið-
toga sambandssinna við stjórnvölinn
en Trimble em draumar lýðveldis-
sinna um þátttöku í stjómun Norð-
ur-Irlandi jafnframt úr sögunni.
Hlýtur það að teljast heldur kald-
hæðnislegt hversu pólitísk framtíð
Davids Trimbles er nátengd gjörð-
um IRA næstu mánuðina - og
hversu IRA er háð Trimble vilji það
ná fram pólitískum markmiðum sín-
um á Norður-íriandi.
Vegna fjölda fyrirspurna frá neytendum, vekur
ísfugl ehf athygli á að eftirfarandi verslanir og
veitingahús bjóða upp á kjúklingafrá fyrirtœkinu.
Verslanir
Kjöthöllin, Skipholti 70, 105 Reykjavík
Þín verslun - Melabúðin, Hagamel 39, 107 Reykjavík
Kjöthöllin, Háaleitisbraut 58-60, 108 Reykjavík
Þín verslun - Miðbúðin, Seljabraut 54,109 Reykjavík
Þín verslun - Hólmgarður, Hólmgarði 2, 230 Reykjavík
Þín verslun - Skagaver, Miðbæ 3, 300 Akranes
Verslunin Grundarva\, Garðagrund 1,300 Akranes
Verslun Einars Ólafssonar, Skagabraut 9-11, 300 Akranes
Þín verslun - Ásakjör, Grundargötu 35, 350 Grundarfjörður
Þín verlsun - Kassinn, Ólafsbraut 35, 355 Ólafsvík
Verslunin Dalakjör, Vesturbraut 10, 370 Búðardal
Björnsbúð, Silfurgötu 1,400 ísafjörður
Mettubúð, 460Tálknafjörður
Mettubúð, Dalbraut 25, 465 Bíldudalur
Kjöt og fiskur, Strandgötu 5, 450 Patreksfirði
Verslunin Hlíðarkaup, Akurhlíð 1,550 Sauðárkrókur
Þín verslun - Verslunarfélagið Ásgeir, Lækjargötu 2, 580 Siglufjörður
Þín verslun - Valberg, Aðalgötu 16, 625 Ólafsfjörður
Þín verslun - Hornabær, Álaugavegi 1, 780 Höfn
Kaupfélag A-Skaftafelli, 780 Höfn
Þín verslun - Hornið, Tryggvagötu 40, 800 Selfoss
Þín verslun - Hverakaup, Breiðumörk 21,810 Hveragerði
Veitingahús
ISFUGL
Reykjavíkurvegi 36 • 270 Mosfellsbær
Sími 566 6103 • Bréfsími 566 6762
Brasserie Borg, Pósthússtræti, 101 Reykjavík
Veitingahúsið Sjanghæ, Laugavegi 28b, 101 Reykjavík
Veitingahúsið Ari í Ögri, Ingólfsstræti 3,101 Reykjavík
Veitingahúsið Jómfrúin, Lækjargötu4,101 Reykjavík
Veitingahúsið Kaffivagninn, Grandagarði 10, 101 Reykjavík
Salatbarinn hjá Eika, Pósthússtræti 13, 101 Reykjavík
Veitingahúsið Naustið, Vesturgötu, 101 Reykjavík
Veitingastaðurinn Kína Húsið, Lækjargötu 8,101 Reykjavík
Veitingahúsið Indókína, Laugavegi 178,105 Reykjavík
Veitingahúsið Creole & Mex, Laugavegi 178,105 Reykjavík
Veitingahúsið Banthai, Laugavegi 130,105 Reykjavík
Veitingahúsið Rauðará, Rauðarárstígur 39,105 Reykjavík
Veitingahúsið B.K. Kjúklingur, Grensásvegi 5, 108 Reykjavík
Kjúklingastaðurinn KFC, Faxafeni 2, 108 Reykjavík
Hjá Dóra í Mjódd, Þönglabakka 1, 109 Reykjavík
Veitingahúsið Ghengis Khan, Þönglabakka 8, 109 Reykjavík
Borgarnesti - Skalli, Grjóthálsi v/Vesturlandsveg, 110 Reykjavík
Hamragrill, Hamraborg, 200 Kópavogur
Kjúklingastaðurinn KFC, Hjallahrauni 15, 220 Hafnarfjörður
Hótel Borgarnes, Egilsgötu 3, 310 Borgarnes
Mótel Venus, Hafnarskógi, 311 Borgarnes
Hópið, Hrafndalsvegi, 460Tálknarfjörður
Hótel Egilsbúð, 740 Neskaupsstaður