Morgunblaðið - 15.12.1999, Page 1

Morgunblaðið - 15.12.1999, Page 1
286. TBL. 87. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS MÍRAFLÖRtS 'CÖ'Ctó PANAMA CANAL Reuters Bandaríkjamenn afhenda Panamaskurð BANDARÍKJAMENN afhentu stjórnvöldum í Panama yfirráð yfir Panamaskurðinum við hátíð- lega athöfn í gær. Meðal þeirra sem viðstaddir voru athöfnina voru Mireya Moscoso, forseti Panama, Jóhann Karl Spánarkon- ungur og Jimmy Carter, fyrrver- andi forseti Bandaríkjanna. Sá síðastnefndi gerði samkomulag við Omar Torrijos, einræðisherra í Panama, árið 1977 um að yfir- ráð yfir skurðinum skyldu afhent stjórnvöldum í Panama. Form- lega mun yfirráðum Banda- ríkjamanna ljúka um áramótin en ástæða þess að athöfnin fór fram í gær er sú að ráðamenn vildu forðast að hún stangaðist á við hátíðahöld sem fyrirhuguð eru vegna árþúsundaskiptanna. A myndinni sjást starfsmenn við undirbúning athafnarinnar í gær. Iiinflutningsbann á nautakjöti Frökkum veitt- ur lokafrestur Brussel. AP, AFP, Reuters. BRESKIR fulltrúar á þingi Evrópusambandsins, ESB, gripu í gær tækifærið þegar nýtt hús þingsins í Strassborg var tekið í notkun við hátíðlega athöfn og gengu út til að mótmæla innflutn- ingsbanni Frakka á bresku nauta- kjöti. Gerðist þetta er Jacques Chirac, forseti Frakklands, hóf ávarp sitt. Nokkrir þingmenn skildu eftir styttu af kú sem skreytt var breska fánanum. „Setja verður Frökkum stólinn fyrir dyrnar í Evrópusambandinu þar til þeir læra að fara að lögum,“ sagði leiðtogi breskra íhaldsmanna í þinginu. Hann bætti við að fram- ferði Frakka hlyti að valda miklum efasemdum um að þeir verði færir um að taka við forsæti sambands- ins í júlí á næsta ári. Framkvæmdastjórn sambands- ins gaf í gær Frökkum fimm daga frest til að svara athugasemdum vegna bannsins sem sambandið ákvað að fella úr gildi í ágúst sl. David Byrne, sem fer með málefni heilbrigðis- og neytendamála í framkvæmdastjórninni, sagði að afléttu Frakkar ekki banninu áður en fresturinn rynni út myndu þeir verða dregnir fyrir dómstól ESB í Lúxemborg. Jospin óttast almenningsálitið Frakkar segjast ekki ætla að hvika en þeir telja að Bretar hafi ekki tryggt nógu vel að kjötið sé laust við kúariðu. Lionel Jospin forsætisráðherra sagði að sér hefði komið á óvart að matvælaeftirlitið franska skyldi ekki telja óhætt að aflétta banninu en að ákvörðun þess gerði ókleift fyrir hann að fara að fyrirmælum ESB. „Við hefðum gert út af við mat- vælaeftirlitið og síðan hefði franskur almenningur krossfest okkur. Ég vil fremur að breskur almenningur geri það ef ég á val,“ sagði ráðherrann. Vísindanefnd ESB úrskurðaði í október að breskt nautakjöt væri jafnhæft til neyslu og annað nauta- kjöt. Rússar vilja ræða hlutskipti óbreyttra borgara í Grosní Vollebæk býður milligöngu ÖSE iskvu, Alkhan-Júrt, Grosní. AFP, AP. Japanskur héraðsstjóri Milljóna- sekt fyrir kynferðis- lega áreitni Tókýó. AP. HÉRAÐSSTJÓRINN í Osaka í Jap- an, Knock Yokoyama, hefur verið dæmdur í sem svarar átta milljóna króna sekt fyrir áreitni við unga stúlku. Talsmenn kynjajafnréttis í landinu segja að um tímamót sé að ræða þar sem hefð sé fyrir því að karlar megi beita kynferðislegri áreitni óátalið. „Þetta er stórt skref fram á við fyrir réttindi kvenna,“ segir Haru- eko Kato, prófessor í kvennafræðum í Tókýó. Yokoyama er fyrrverandi skemmtikraftur og nú einn af þekkt- ustu stjórnmálamönnum landsins. Hann hefur margsinnis vísað ákær- unni á bug en mætti ekki þegar mál- ið var tekið fyrir í réttinum. Um- rædd stúlka vann fyrir hann í kosningum í vor og sakaði hann um að hafa káfað á sér í bfl en falið á meðan hendumar undir teppi. Stúlk- an er 21 árs en héraðsstjórinn 67 ára. Ekkert japanskt orð yfír hugtakið Ekki er til japanskt orð yfir hug- takið kynferðisleg áreitni og nota þeir því enska heitið. Fyrir þrem ár- um vann kona er starfaði hjá útibúi Mitsubishi í Bandaríkjunum mál er hún höfðaði gegn japönskum yfir- manni fyrir áreitni og fékk yfir tvö þúsund milljónir króna í skaðabæt- ur. Vakti málið mikla athygli í Japan. RÁÐHERRA neyðaraðstoðar í rík- isstjórn Rússlands, Sergei Shoigú, segist ætla að ræða við Aslan Maskhadov, forseta uppreisnarhér- aðsins Tsjetsjníu, um hlutskipti óbreyttra borgara í höfuðborginni Grosní. Hét Shoigú því að reyna að ná sambandi við forsetann í dag. Óljóst er hve margir óbreyttir borgarar eru enn í borginni. Ráð- herrann taldi að þeir væru á bilinu 8.000 til 35.000, þeir hefðust við í úthverfum en miðborgin væri rúst- ir einar. Að sögn Shoigú verður enginn lokafrestur settur fyrir fólkið til að hafa sig á brott eins og gert var í síðustu viku. Rússneskir hermenn börðust í gær við her Tsjetsjena við Severní- flugvöllinn í austurjaðri Grosní og heyrðust drunurnar frá stórskota- liði Rússa vel í bænum Alkhan- Júrt, um þrjá km frá borginni. Tal- ið er að nokkur þúsund manns séu í liði Tsjetsjena í höfuðborginni. Fullyrt var að rússneskt fótgöngu- lið hefði tekið borgina Shalí í gær og er Grosní þá eina borgin í hérað- inu sem Tsjetsjenar ráða enn yfir. Rússneskir liðsforingjar segja að ætlunin sé að nota liðsmenn úi-vals- sveita og Tsjetsjena, hlynnta Moskvustjórninni, til að taka Grosní í áföngum en borgin hefur verið umkringd rússneskum herj- um frá því í liðinni viku. Margir borgarbúar óttast stórskotaliðshríð og loftárásir rússneska hersins og kjósa þeir fremur að leita verndar í kjöllurum og öðrum byrgjum. Er talið að aðeins rúmlega 2.000 manns hafi flúið Grosní síðustu daga til grannhéraðanna Dagest- ans og Ingúsetíu. Orðrómur er um að margir óbreyttu borgaranna í Grosní séu Rússar en ekki Tsjetsjenar. Sök- uðu talsmenn stjórnvalda í Moskvu leiðtoga Tsjetsjena í gær um að stunda „þjóðarhreinsun" og meina Rússum að yfirgefa borgina. Knut Vollebæk, formaður Ör- yggis- og samvinnustofnunar Evrópu, ÖSE, heimsótti í gær Dag- estan og kannaði kjör tsjetsjenskra flóttamanna þar. Sagði Vollebæk ÖSE myndu geta komið á fundi um vopnahlé. En aðstoðarutanríkisráð- herra Rússlands, Alexander Avdeyenkó, sem var fylgdarmaður Vollebæks, var lítt hrifinn. „Vopna- hlé nú myndi gagnast hryðjuverka- mönnunum,“ sagði hann. Itar-Tass-fréttastofan hafði eftir Maskhadov í gær að hann væri fús að ræða við Rússa hefðu fulltrúar ÖSE milligöngu. Reuters Aftur í Cavern- klúbb Sir Paul McCartney kom í gær- kvöldi fram í Cavern-klúbbnum í Liverpool í fyrsta sinn í þrjá ára- tugi. Hann scst hér æfa sig á sviði kiúbbsins fræga fyrir tónleikana. Þegar Bítlamir léku í klúbbnum í upphafi ferilsins á sjöunda ára- tugnum fengu þeir greidd fiinm pund fyrir vikið. MORGUNBLAÐIÐ 15. DESEMBER 1999 Lifað á Netinu í eitt ár London. Daily Telegraph. MAÐUR nokkur í Bandaríkjun- um, DotComGuy að nafni, ætlar að halda sig innan dyra að mestu allt næsta ár til að sýna og sanna, að hann geti sótt alla sína lífsbjörg ígegnum Netið. DotComGuy, 26 ára gamall tölvufræðingur, sem flestir þekkja betur sem Mitch Maddox, ætiar að koma sér fyrir í húsi í Dallas í Texas 1. janúar nk. og ekki með annað en ígangsklæðin, ferðatölvu og kreditkort. Er það haft eftir talsmanni þeirra, sem standa fyrir tilrauninni, að hún hafi verið í undirbúningi í eitt ár og liður í honum var, að Maddox lét breyta nafni sínu í DotCom Guy nú í haust. Reglurnar eru strangar. DotComGuy má ganga um í garð- inum en ekki fara neitt frá nema einhver í fjölskyldu hans veikist alvarlega eða látist. Hann má þó taka á móti gestum. Talsmaður DotComGuys segist ekki ráða neinum að fara að dæmi hans enda sé með tilrauninni að- eins verið að kanna hvað sé unnt í þessum efnum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.