Morgunblaðið - 15.12.1999, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 15.12.1999, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1999 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Kristján Skrúfan úr togaranum Svani EA frá Hrísey er sú eitthundraðasta sem tekin hefur verið til viðgcröar á skrúfuverkstaeði Slippstöðvarinnar á undan- förnum tveimur árum. Hér eru þeir Gunnar Gunnarsson og Jónas Jónsson að koma skrúfunni í togarann á ný. Hluti af sprengi- efninu fannst Framkvæmdasijóri STAR um niðurstöðu skipulagsstjóra Ekki útilokað að rir- skurður verði kærður Skrúfuviðgerðir mikilvægur þáttur hjá Slippstöðinni Gert hefur verið við 100 skrúfur á tveimur árum SLIPPSTÖÐIN á Akureyri hef- ur rekið sérstakt verkstæði til viðgerða á skipsskrúfum und- anfarin tvö ár og í gær voru ákveðin tímamót, er lokið var viðgerð á eitt hundruðustu skrúfunni. Slippstöðin hefur á þessum tíma verið í samstarfi við hollenska fyrirtækið Van Voorden Repair BV og hafa starfsmenn Slippstöðvarinnar fengið þjálfun á verkstæði og rannsóknarstofu hollenska fyr- irtækisins. Skrúfuviðgerðir eru mikil- vægur þáttur skipaþjónustunn- ar og hefur Slippstöðin með þessu samstarfi við hollenska fyrirtækið styrkt mjög stöðu sína hér á landi. Auk þess að gera við skrúfur skipa sem koma til viðhalds í Slippstöðinni hefur fyrirtækið fengið verkefni frá dráttar- brautum víða um land, m.a. frá Vestmannaeyjum, Njarðvík, Stykkishólmi, Isafírði og Seyð- isfírði. Þá bætast við skrúfuvið- gerðarverkefni frá Stálsmiðj- unni í Reykjavík, í kjölfar sameiningar Slippstöðvarinar og Stálsmiðjunnar nú um ára- mótin. Verkstæði Slippstöðvarinnar er vel tækjum búið til mælinga og viðgerða og þá eru tveir starfsmenn með prófskírteini frá tryggingafélaginu Lloyds í suðu í skrúfublöð, þeir einu hérlendis. Sparar stórfé í olíukostnaði Marteinn Hámundarson, verkefnisstjóri hjá Slippstöð- inni, sagði viðgerðir á skrúfu- blöðum hafa gengið mjög vel. Hann sagði það hafa sýnt sig mjög áþreifanlega að útgerðir geti sparað stórfé í olíukostnaði með því að láta gera við skrúfublöðin á skipum sínum. Einnig hefðu slitin skrúfublöð áhrif á titring í skipum og ganghraða. Skrúfublöðin sem hafa verið til viðgerðar eru af ýmsum stærðum og gerðum. Stærstu blöðin til þessa voru úr Húsvík- ingi ÞH en hvert þeirra er 750 kg að þyngd og 3,60 metrar í þvermál. Hluti af sprengi- efninu fannst HLUTI af sprengiefninu, sem stolið var úr geymslu við Hagasmára í Kópavogi fyrstu helgina í desember, fannst í ólæstum gámi við Tunguháls í Reykjavík í gær. Þetta kemur fram í frétta- tilkynningu frá lögreglunni í Kópavogi, en alls fundust tæp 50 kfló af sprengiefni. í tilkynningunni segir að lögreglunni hafi borist ábend- ing um að sprengiefnið og hvellhetturnar væru í gámn- um og að við athugun hefði svo reynst vera og efnið flutt í örugga geymslu. Enn er þó talið að tvær túp- ur, eða um 3 kíló af sprengi- efni hafi ekki skilað sér og er málið enn í rannsókn. MAGNÚS Ásgeirsson, fram- kvæmdastjóri samstarfsnefndar um álver í Reyðarfirði (STAR), segir að ekki hafi verið ákveðið hvort ráðist verði í frekara mat á umhverfisáhrif- um álvers í Reyðarfírði eða hvort úrskurður skipulagsstjóra um frek- ara mat verði kærður til umhverfis- ráðherra. Magnús segir að tíma- og vinnuáætlun íslenskra stjórnvalda, Landsvirkjunar og Norsk Hydro um að tekin verði endanleg ákvörðun um framkvæmdir í byrjun júní á næsta ári geti vel staðist, hvor leiðin sem farin verði. „Við erum ekki búnir að taka ákvörðun um hvað við gerum. Við erum að skoða þennan úrskurð gaumgæfilega. Það er ekki útilokað að við kærum hann,“ sagði Magnús. „Það er ýmislegt í úrskurðinum sem kemur á óvart,“ bætti hann við. Kærufrestur til 19.janúar Frestur til að kæra úrskurð skipu- lagsstjóra er til 19. janúar 2000. Samkvæmt reglugerð um mat á umhverfisáhrifum ber fram- kvæmdaraðila að meta þá þætti sem skipulagsstjóri tilgreinir í úrskurði sínum um nauðsyn frekara mats á umvherfisáhrifum. Þegar því mati lýkur skilar framkvæmdaraðili skýrslu um niðurstöðurnar til skipu- lagsstjóra og hefst þá önnur athug- un á matinu af hálfu skipulagsstjóra og í raun samskonar ferli og þegar um frummat er að ræða. Skipulag- sstjóri birtir niðurstöður úr frekara mati með opinberri auglýsingu inn- an tveggja vikna frá því að skýrsla framkvæmdaraðila barst honum. Hægt er að skila athugasemdum við frekara mat til skipulagsstjóra innan fimm vikna frá birtingu auglýsingar- innar, auk þess sem skipulagsstjóri skal óska eftir umsögnum frá lög- boðnum umsagnaraðilum og getur leitað álits sérfræðinga. Innan átta vikna frá því að skipu- lagsstjóri hefur birt niðurstöður frekara mats á umhverfisáhrifum skal hann kveða upp rökstuddan úrskurð þar sem hann getur fallist á viðkomandi framkvæmd, lagst gegn henni eða gert kröfu um frekari könnun einstakra þátta. Magnús segir að ekki ætti að taka langan tíma að afla viðbótarupplýs- inga ef sú leið verði fyrir valinu að ráðast í frekara mat og ætti niðurs- taða eða úrskurður skipulagsstjóra varðandi það að liggja fyrir ekki síð- ar en í maí. Vinna miðast við 120 þúsund tonna álver Magnús benti á að undirbúnings- vinnan miðaðist við álver með 120 þúsund tonna árlegri afkastagetu, sem er fyrsti áfangi verkefnisins. „Núna er verið að undirbúa umsókn um starfsleyfi fyrir 120 þúsund tonna álver þannig að þessi vinna sem framundan er miðar að því. Það þarf hugsanlega að afla einhverra viðbótarupplýsinga vegna starf- sleyfisins. Það er alveg ljóst að það eru ákveðin vandamál í tengslum við byggingu 480 þúsund tonna álvers, enda verður ákvörðun um stækkun aldrei tekin fyrr en eftir að reynsla er fengin af fyrsta áfanganum," sagði hann. HOLTACARÐAR Eftirlitsstofnun EFTA sendir frá sér staðfest álit OPIÐ í DAG KL» 10-22 Skattfrelsi ríkisverðbréfa kann að brjóta reglur EES BONUI FRÁ 12-22 ESA, Eftirlitsstofnun EFTA, hef- ur sent íslenskum stjórnvöldum staðfest álit þar sem gerðar eru athugasemdir við ákvæði laga varðandi eignarskattsfrelsi ís- lenskra ríkisverðbréfa í saman- burði við ríkisverðbréf annarra þjóða á Evrópska efnahagssvæð- inu. Geir H. Haarde, fjármálar- áðherra, kynnti þetta á ríkisstjórn- arfundi í gær, en íslensk stjórnvöld hafa þrjá mánuði til þess að bregðast við álitinu. Geir sagði í samtali við Morgun- blaðið að málið yrði tekið til skoð- unar í ráðuneytinu og þeir hefðu þrjá mánuði til þess að svara því. Hann sæi í fijótu bragði ekki ástæðu til þess að breyta ákvæð- um laga í þessum efnum, en farið yrði yfir málið innan ráðuneytis- ins. Einnig hlutabréf og hlutdeildarskírteini í áliti Eftirlitsstofnunarinnar eru gerðar athugasemdir við 78. gr. laga um tekju- og eignaskatt og þar haldið fram að þau ákvæði sem þar er að finna brjóti í bága við samninginn um Evrópska efna- hagssvæðið. Lýtur málið bæði að greinarmun sem gerður er á skattalegri meðferð innlendra og erlendra ríkisskuldabréfa og einn- ig að mun sem gerður er á hluta- bréfum og hluddeildarskírteinum í innlendum félögum og erlendum- Er talið að hvort tveggja kunni að brjóta gegn ákvæðum EES-samn- ingsins um frjálsa fjármagnsflutn- inga. f —'•MRMKP
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.