Morgunblaðið - 15.12.1999, Page 20
20 MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
.
Flest tölvuþjónustufyrirtæki með bakvakt vegna hugsanlegs 2000-vanda
VIÐSKIPTI
Tæknival býð-
ur aðgang að
sérfræðingum
gegn gjaldi
Morgunblaðið/Golli
Mjög mörg fyrirtæki hafa gert ráðstafanir vegna hugsanlegs 2000-vanda í
tölvukerfum sinum um áramótin.
TÆKNIVAL hf. hefur boðið fyrir-
tækjum aðgang að sérfræðingum
sínum á nýársnótt vegna hugsanlegs
2000-vanda í tölvukerfum. Gjaldið
fyrir aðganginn er um 75 þúsund
krónur en er breytilegt eftir umfangi
þjónustu og fjölda þátttakenda og
starfsmanna.
Að sögn Sebastian Alexandersson-
ar sem sér um þjónustusamninga á
fyrirtækjasviði Tæknivals, er Tækni-
val nú að bíða svara frá fyrirtækjum
sem hefur verið boðin sérstök þjón-
usta um áramótin. Annars vegar er
um að ræða aðgang að sérfræðingum
Tæknivals á nýársnótt, hins vegar er
sérfræðingsþjónusta l.-3.janúar. Að
sögn Sebastians hefur undanfarið
staðið yfir könnun á áhuga meðal íyr-
irtækja sem eru með þjónustusamn-
ing við Tæknival á að kaupa sér slíka
þjónustu.
Hann segir marga viðskiptavini
þegar hafa aíþakkað þjónustuna á
þeirri forsendu að þeir hafi þegar
gert allar þær ráðstafanir sem þeir
telja þörf á. „Við höfum boðið
ákveðnum fyrirtækjum þjónustu á
nýársnótt og höfum sett viðmiðunar-
verðið 75 þúsund krónur, en það er
breytilegt eftir umfangi og fjölda
þátttakenda og starfsmanna. Auk
þess er greitt fyrir útkall ef svo ber
undir,“ segir Sebastian, en viðmiðun-
arverð 1.-3. janúar er enn ekki
ákveðið að hans sögn.
Ákveðin fyrirtæki hafa þjónustu-
samninga við Tæknival. Þeir ítarleg-
ustu fela í sér aðgang að sérfræðing-
um Tæknivals allan sólarhringinn,
alla daga ársins nema stórhátíðar-
daga. Um 30 aðilar hafa þegar lýst
yfir áhuga á að nýta sér þjónustuna á
tímabilinu 1.-3. janúar, að meðtalinni
nýársnótt.
Grunnþjónustan hefur forgang
Að sögn Ragnars Marteinssonar,
þjónustustjóra Opinna kerfa, hefur
þjónusta við þær stofnanir sem veita
grunnþjónustu í landinu forgang um
áramótin. „Við höfum engan áhuga á
að græða á 2000-vandanum, heldur
viljum við þjóna viðskiptavinum okk-
ar og samstarfsaðilum eins vel og við
getum. Við munum ekki velta kostn-
aðaraukanum, sem felst í sérstakri
bakvakt hjá okkur, yfir á viðskipta-
vini okkar. Við vonum það besta, bú-
um okkur undir það versta og gerum
okkar besta,“ segir Ragnar.
Að hans sögn verða yfir 20 þjón-
ustumenn á bakvakt allan sólar-
hringinn frá 24. desember til 23. jan-
úar til að veita fyrirtækjum þjónustu
vegna hugsanlegra vandamála. „Yfir
40 fyrirtæki og stofnanir hafa nú
rekstrarþjónustusamning við Opin
kerfi og þjónusta um áramótin verð-
ur veitt á hefðbundinn hátt þótt for-
gangsraðað verði ef álag verður mik-
ið,“ segir Ragnar. ,Aftur á móti er
alltaf samningsatriði um gjald á
þjónustu þegar ekki er um bakvakt
að ræða heldur t.d. pantaða viðveru
vegna vöktunar og fyrirbyggjandi
þjónustu og það er nokkuð um slíkt
hjá okkur.
Víðbragðaáætlun hjá Skýrr
Sigríður Vilhjálmsdóttir, verkefn-
isstjóri 2000-verkefnishóps hjá
Skýrr, segir Skýrr hafa unnið að
undirbúningi vegna hugsanlegs
2000-vanda frá árinu 1996. „Hjá okk-
ur er vakt allan sólarhringinn, allt ár-
ið, líka um næstu áramót. Nú verða
að vísu aðeins fleiri á vakt og starfs-
menn kallaðir út sunnudaginn 2. jan-
úar til að staðfesta prófanir á kerfun-
um. Við höfum einnig óskað eftir því
við ákveðna viðskiptavini okkar að
þeir reyni kerfin sín 2. janúar, þannig
að það sé hægt að gera ráðstafanir
áður en full starfsemi hefst mánu-
daginn 3. janúar. Við veitum við-
skiptavinum okkar þessa þjónustu
sem hluta af annarri þjónustu okkar
við þá en rukkum ekki sérstaklega
fyrir hana.
Við höfum gert viðbragðaáætlun
og búið er að skilgreina alla vinnu
starfsmanna og viðskiptavina yfir
áramótin."
Haukur Garðarsson, fram-
kvæmdastjóri Strengs, segir suma
viðskiptavini fyrirtækisins hafa ósk-
að eftir því að hægt yrði að nálgast
aðstoð vegna hugsanlegra tölvu-
vandamála um áramótin og Strengur
hafi orðið við því. „Það verða nokkrir
starfsmenn á bakvakt en við reiknum I
ekki með því að til útkalla þurfi að
koma,“ segir Haukur. „Okkar starf-
semi byggist að miklu leyti á þjón-
ustu við Navision notendur og fram-
leiðandi Navision hefur lýst því yfir
að kerfið sé 2000-vænt. Við gerum
því ekki ráð fyrir að einhver vanda-
mál komi upp yfir áramótin en höfum
þó menn á bakvakt lyrir viðskipta-
vini okkar. Aðalatriðið er að það er
hægt að lagfæra ef eitthvað kemur
upp á.“
Ekki gert ráð fyrir áföllum
Jón Kristjánsson, þjónustustjóri
hjá Aco, segir fyrirtækið ekki halda
úti bakvakt um áramótin. „Viðskipta-
vinir okkar eru ekki í þannig starf-
semi að þeir þurfi að keyra tölvukerfi
yfir áramótin. Við veitum ákveðnum
viðskiptavinum okkar þó aðgang að
tæknimönnum okkar á nýársdag
samkvæmt fyrirfram gerðum samn-
ingum og ef til útkalls kemur verður
rukkað fyrir það eins og á helgidegi."
Hjá Teymi fengust þær upplýsing-
ar að í gildi væru sérstakir þjónustu-
samningar við ákveðin íyrirtæki um
þjónustu allan sólarhringinn, allt ár-
ið og þar með nú um áramótin.
A.m.k. tveir starfsmenn verða á bak-
vakt hjá Teymi um næstu áramót en
undirbúningur fyrir áramótin hefur
staðið í töluverðan tíma.
Ólafur Daðason, framkvæmda-
stjóri Hugvits, segir skipulagningu á
bakvöktum um áramótin standa yfir
um þessar mundir. „Endanleg út-
færsla liggur ekki fyrir en það er
ljóst að tveir menn verða á bakvakt
um áramótin. Kerfi frá okkur er yfir-
leitt ekki verið að nota nema á dag-
vinnutímum og afar óh'klegt er að
eitthvað komi upp á,“ segir Olafur.
Þórir Þórisson, framkvæmdastjóri
tækniþjónustu Nýherja, segir þjón-
ustu við viðskiptavini Nýherja um
áramótin felast í þjónustusamning-
um. „Um áramótin verða 12 manns á
vakt hjá okkur og flestallir í fyrir-
tækinu verða til taks,“ segir Þórir.
Hampiðjan
kaupir meiri-
hluta hlutafjár
í Swan Net
HAMPIÐJAN hf. gekk í gær frá
samningum við eigendur írska veið-
arfæraframleiðandans Swan Net
Ltd. um kaup á meirihluta hlutafjár í
fyrirtækinu. í tilkynningu um kaupin
kemur fram að ekki sé fyrirhugað að
sameina fyrirtækin, en stefnt sé að
ýmiss konar samvinnu þar sem
markaðstarf verður meðal annars
skipulagt með hagsmuni hvorra-
tveggju að leiðarljósi.
Meginframleiðsluvara Swan Net
Ltd. er flottroll en jafnframt veitir
fyrirtækið hluta viðskiptavina sinna
alhliða netaverkstæðisþjónustu.
Swan Net er með ársveltu á bilinu
400-500 milljónir króna og er aðal-
markaðssvæðið Irland og Stóra-
Bretland, en fyrirtækið hefur einnig
náð góðum árangri á vesturströnd
Bandaríkjanna og haslað sér völl í
Suður-Ameríku. Höfuðstöðvar Swan
Net eru í útgerðarbænum Killybegs
á vesturströnd Irlands.
Hampiðjan og Swan Net eru bæði í
hópi stærstu fyrirtækja í framleiðslu
á flottrollum fyrir alþjóðlegan mark-
að, og er Hampiðjan hið eina sem
framleiðir sjálft efni í veiðarfærin.
Liður í að efla styrk Hampiðjunnar
Að sögn Hjörleifs Jakobssonar,
forstjóra Hampiðjunnar, eru kaupin
á hlutabréfunum í Swan Net liður í
því að efla styrk Hampiðjunnar enn
frekar. Hann segir að með kaupun-
um á Swan Net sé annars vegar horft
til skipulegs samstarfs á sviði mark-
aðssetningar, ekki síst á nýjum
mörkuðum, og hins vegar til þess að
selja Swan Net efni í þau veiðarfæri
sem fyrirtækið framleiðir og ná
þannig betri nýtingu á verksmiðju
Hampiðjunnar. Hjörleifur kveðst
gera ráð fyrir því að hagkvæmni
þessarar fjárfestingar Hampiðjunn-
ar byiji að skila sér á síðari hluta
næsta árs.
Framkvæmdastjóri Swan Net
Ltd., Martin Howley, segist hlakka
til samstarfsins við Hampiðjuna. Is-
lendingar séu þekktir fyrir að standa
framarlega í sjávarútvegi og Hamp-
iðjan hafi náð athyglisverðum ára-
ngri í vöruþróun og markaðsstarfi.
Samningurinn undirritaður í Killybegs í gær. Standandi frá vinstri eru Hjörleifur Jakobsson, forstjóri Hampiðj-
unnar, Seanus Tully og John Bach, stjómarmenn Swan Net. Sitjandi frá vinstri eru Bragi Hannesson, sfjórnarfor-
maður Iiampiðjunnar, og Martin Howley, forstjóri Swan Net.
Hampiðjan muni styðja við markaðs-
starf Swan Net á heimamarkaði og
fyrirtækin komi til með að vinna sam-
an á öðrum mörkuðum. Ennfremur
opnist með sameiningu Hampiðjunn-
ar og J. Hinrikssonar nýir möguleik-
ar fyrir Swan Net á að selja heildar-
lausnir. Þá sé ótalið samstarf um
vöruþróun sem væntanlega muni
vaxa að umfangi síðar meir.
Swan Net Ltd. var stofnað árið
1974 af Albert Swan, sem á þeim tíma
var einn reyndasti skipstjóri íra og
brautryðjandi í flottrollsveiðum á
svæðinu.
í
I
|