Morgunblaðið - 15.12.1999, Page 45

Morgunblaðið - 15.12.1999, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1999 45 Smiðjuvegi 9 • S. 564 1475 í Kolaportinu Ótrúlegi úrwal csf nýjum geisla- diskum a kr. 300,- Mikið af tónlist sem ekki hefur sést óður hér á landi. Einnig falleg veggteppi á góðu verði. Ótrúleat úrwal af II 9 r | » Sjosum, lompum og heimilistækjum Sjónvörp og hljómtæki á frábæru verði. Einnig verkfæri, hnífasett og ýmis gjafavara. Ótrúlegt úrval af Tilboð á ofnpottum. Verð frá kr. 1990. Frábærvara. Kaffi- könnur og fleira á góðu verði. Ótrúlegt úrval af gjafavöru og *»•»?:; -•• C3" * I ^ ^ ** ■ ' Fjarstýrðir bílar á kr. 1 500 og úrval af loðdýrum. Töskur frá kr. 1200. Urval af glervöru. Ótrúlegt úrval af handofnum tepp- um og hornsófum Hornófarfrá kr. 69.000 og svefnsófar frá kr. 99.000. Persnesk teppi á góðu verði. Pétur Rotherford er Ótrúlegt úrval af postulíni, kristal, matar- -j- -* °9 kcffistdlum (m.a. Saxisk Bing og mæTTlir meo aHTIKIO Grönda|); borðlömpum, kirkjuijósakrónum góða frá Danmörku og mikið magn af fallegri koparvöru. OPIÐ ALLA DAGA *VáUf »9 |ík*»st Markaðstorg KOLAPORTIÐ 15.-17. Des. kl. 12:00-18:00 18.-19. Des. kl. 11:00-21:00 20.-23. Des. kl. 12:00-21:00 UMRÆÐAN Draugarnir dansa á ný ORÐIÐ virðing ei- eitt af þeim sem kemur upp í hugann þegar at- burðarásin varðandi umhverfísmat á Fljóts- dalsvirkjun er skoðuð. Er það virðing fyrir ís- lenskri náttúru að hún njóti ekki þess lágmarksvafa að vera metin með sömu að- ferðum og tíðkast í sið- menntuðum löndum, lögformlegu umhverf- ismati, áður en henni er fómað? Ber það vott um virðingu fyrir kjós- endum að leyfa ekki málinu að hafa þann sjálfsagða framgang? Sýna þessar aðfarir flokksráðenda á Alþingi virð- ingu fyrir þinginu, fyrh- þingmönnum og lýðræðinu? Já, kannski í því felist gífmieg virðing og upphefð fyrir alla þingmenn með tölu að þeir séu gerðir að umhverfissérfræðingum, með því að fá þá til að dæma svokallað um- hverfismat þess aðila sem mestra hagsmuna á að gæta, Landsvirkjun- ar. Upphefð hlýtur það að vera, úr því þeir ætla flestir að þiggja þessa heiðursnafnbót. Hér má rifja upp að einræðisherrafrú Ceaucescu, hár- greiðslukona að mennt, var gerð að doktor í eðlisfræði og fleiri greinum. Maðurinn hennar lét líka hækka töl- ur um hitastig í Rúmeníu til þess að þegnunum þætti vera notalegra í vetrarhörkum. Eitthvað í afstöðu og orðanotkun íslenskra flokksráðenda sem vilja ekki leyfa náttúrunni að njóta vafans minnir ískyggilega á gamla tíma fyrir austan tjald. Sama máli gegnir um hinai' sprenghlægilegu og hræsnis- fullu auglýsingar Landsvirkjunar, ætlaðar til þess að turna íslending- um til stóriðjutrúar. Græn orka á þeirra tungumáli er þá sú orka sem er fengin með því að sökkva græn- ustu gróðurvin á hálendinu, Eyja- bökkum. Græn orka fengin með því að útrýma grænu umhverfi og gi'ænni ímynd Islands. Og það heita heimsborgarar á tungumáli Lands- VLrkjunannanna sem vilja að Islend- ingar veiti loftmengun yfir heiminn, á undanþágu, og eyðileggi ómetanlega náttúru og landslag í leiðinni. Við eigum aðeins eitt land og eitt hálendi. Og ekkert því líkt er til á jörðinni. Það verða aldrei neinir aðrir Eyjabakkar ef þessir fara undir vatn. Eru það virkilega heimsborgarar sem heimta ómetanlegar umhverfis- fórnir í þágu misskilinnar byggða- stefnu, í þágu frumstæðra og meng- andi atvinnugreina eins og stóriðju? Ef íslendingar vildu kalla sig heims- borgara væri þeim nær að standa vörð um lífríki jai'ðar og lífríki eigin lands. En með auglýsingum Lands- virkjunar er gefið í skyn að það sé sveitó að vilja verja það sjaldgæfasta og dýrmætasta sem íslensk náttúra hefur að geyma. Kannski næsta auglýsing Landsvirkjunar verði um sveitavarginn Reyndar þekki ég engan í íslenskri sveit sem verðskuldar það nafn. Hins vegar vill svo til að íslensku sveita- fólki sem ég þekki, þar á meðal öldr- uðu fólki sem lítið hefur lagst í ferða- lög, og þá ekki inn á Eyjabakka, rennur til rifja varnarleysi fóstur- jarðarinnar gegn gróðaprangi þröngs hóps og ásælni í það að eyði- leggja fyrir fullt og allt ómetanleg svæði sem eru sameiginleg eign þjóð- arinnar og alls heimsins. Hjarta þessa fólks slær fyrir landið. Það hef- ur búið lengur í landinu og nær því en við hin, og ættjarðarást þess er fölskvalaus. Þetta fólk verður í hópi þehTa fjölmörgu íslendinga sem hefja nýtt árþúsund ósáttir, í skugg- anum af valdníðslu íslenskra flokks- ráðenda sem hafa kverkatak á peð- unum sínum. Á nýju árþúsundi verður þeiira stjórnmálamanna sem beittu sér gegn því að Fljótsdalsvirkjun færi í Steinunn Sigurðardóttir lögformlegt umhverfis- mat minnst fyi'h' and- lýðræðislega fram- göngu og í rauninni svik við land og þjóð í þessu mesta deilumáli síðari tíma á Islandi. Þeir verða dæmdir því harð- ar þeim mun lengra sem líður, og ekki að- eins í eigin landi. Og ekki aðeins í huga fólks. Flest rök hníga að því að aðferðir þeirra eigi hvorki innlenda né er- lenda lagastoð. Vinir ís- lenskrar náttúru eru tilneyddir að láta á það reyna fyrir dómstólum, úr því að allt um þrýtur. Engin mót- mæli duga, engar fortölur, engin rök. Það breytir engu að færustu menn Eyjabakkar Flest rök hníga að því að aðferðir stjórnmála- mannanna eigi hvorki innlenda né erlenda lagastoð. Vinir íslenskr- ar náttúru eru tilneydd- ir, segir Steinunn Sig- urðardóttir, að láta á það reyna fyrir dómstól- um, úr því að allt um þrýtur. reikna út að Fljótsdalsvirkjun sé óarðbær framkvæmd. Það skal anað út í stórtækustu náttúruspjöll á Isl- andi frá upphafi, án þess að skoða málið grannt og í takt við vinnuað- ferðir eru notaðar í siðmenntuðum löndum. Hernaðurinn gegn íslandi, eins og Halldór Laxness kallaði það fyrir hartnær þrjátíu árum (greinin er prentuð í greinasafninu Yfirskyggðir staðir) er í algleymingi. Það eru ís- lendingar, eða fólk sem kallar sig ís- lendinga, sem fara fram gegn landi sínu og gersemum þess. Á móti sér hafa þeir ekki aðeins hug og hjörtu og vilja landa sinna í stórum hópum og útlendinga sem til þekkja, heldur einnig tímann sjálfann, og hann er óvinur sem enginn stenst snúning. Einu sinni var háð stríð sem geis- aði líka hart á íslandi og var kallað kalda stríðið. Þar voru notuð orð eins og landvarnir og föðurlandssvik. Óskandi hefði verið að allt sem heyrði kalda stríðinu til, orðaforðinn líka, væri niðurkveðnir draugar. En fyrir misgjörðir þeirra sem nú stjórna Islandi öðlast draugarnir nýtt líf og sundrungin, í nýju sam- hengi, þegar árið tvö þúsund fer í hönd. Höfundur er rithöfundur. Ert þú aflögufær? - . Gfróseðlar liggja frammi í öllum bönkum, sparisjóðum og á pósthúsum. Þú getur þakkað fyrir þitt hlutskipti Gefum bágstöddum von Bókin MIKILVÆGUSTU TUNGUMÁL JARÐAR svarar: Á hvaða tungumáli eru flestar kvikmyndir í heiminum? www.tunga.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.