Morgunblaðið - 15.12.1999, Page 50
50 MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1999
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ
*
tyBBjingBYi)Timrtiumm. im iiim nll
liidiœanteM
Vola blöndunartæki hafa verið
margverðlaunuð fyrir sérstakan stíl og
fágun, en hönnuðurinn er hinn þekkti
danski arkitekt Arne Jacobsen, sem
öðlaðist heimsfrægð fýrir framúrskarandi
arkitektúr.
Tækin eru fáanleg í litum, krómuð og í
burstuðu krómi.
Vola - Dönsk hönnun
T€fl©l
r—iiii»"iihm.■■
Smiðjuvegi 11 • 200 Kópavogur
Sími: 564 1088 • Fax*. 564 1089
Y aldbeiting meirihlutans
ser.
3. desember lagði Kolbrún Hall-
dórsdóttir það til í umhverfisnefnd
Alþingis að háttsettir fulltrúar
Norsk Hydro yrðu kallaðir á fund
nefndarinnar til að kveða upp úr um
Síðasti vindill Jóns
Sigurðssonar
Hetjunum hefur yfír-
sést eitt í hamagangin-
um, segir Elísabet Jök-
ulsdóttir: Síðasti vindill
Jóns Sigurðssonar ligg-
ur enn óreyktur uppi á
Þjóðminjasafni.
ill Jóns Sigurðssonar liggur enn
óreyktur uppi á Þjóðminjasafni.
Og þegar þingsályktunartillagan
verður keyrð í gegn geta hetj-
urnar safnast saman í dimmu skoti
og látið vindilinn ganga á milli.
Þær geta notað hann við öll hugs-
anleg tækifæri eftir það: undir-
skrift samninga, skóflustungur og
þótt vindillinn verði löngu uppur-
inn geta hetjurnar samt haldið
áfram að reykja hann. Hetjugreyin
geta nefnilega talið sjálfum sér trú
um allt. Allt til að reisa hamingu-
samasta álver í heimi.
Höfundur er rithöfundur.
NÚ ER það ljóst að
ekki verður orðið við
óskum þingmanna
Vinstrihreyfingarinn-
ar - græns framboðs
um að fá hingað til
lands háttsetta full-
trúa frá Norsk Hydro
AS, til að fá tekin af öll
tvímæli um afstöðu
fyrirtækisins til mats
á umhverfisáhrifum
Fljótsdalsvirkjunar og
mögulegrar seinkunar
framkvæmda NOR-
AL-verkefnisins. Til
að rekja söguna í tím-
aröð hafa mál gengið
þannig fyrir sig:
2. desember sl. kvaddi Kolbrún
Halldórsdóttir sér hljóðs á Alþingi í
tilefni af yfirlýsingum forsvar-
smanna Norsk Hydro, þess efnis að
fyrirtækið myndi ekki tapa áhuga á
þátttöku í byggingu álvers á Reyð-
arfirði, þó Alþingi ákvæði að Fljóts-
dalsvirkjun yrði gert að sæta lög-
formlegu mati á umhverfisáhrifum.
í ljósi þessara yfirlýsinga fyrirtæk-
isins óskaði Kolbrún eftir því að
umhverfisnefnd Alþingis yrði veitt-
ur rýmri frestur til að skila iðnaðar-
nefnd umsögn sinni um þingsálykt-
unartillögu iðnaðarráðherra um
stuðning Alþingis við framhald
framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun,
enda hefur iðnaðarráðherra beitt
þeirri röksemd helstri fyrir tíma-
pressunni sem hvílir á Alþingi við
vinnslu málsins, að standa verði við
áætlun þá, sem undirrituð var að
Hallormsstað 29. júní sl. og Norsk
Hydro er aðili að. Umræða um
beiðni þingmannsins stóð í 20 mín-
útur og tóku 7 þingmenn til máls
auk flutningsmanns. Að umræðunni
lokinni kvaðst forseti Alþingis,
Halldór Blöndal, hafa hlýtt á um-
ræðurnar og komist að þeirri niður-
stöðu að ekki væri tilefni til að veita
nefndinni frekari frest til að skila af
Árni Steinar
Jóhannsson
afstöðu fyrirtækisins til mögulegr-
ar frestunar framkvæmda vegna
lögformlegs umhverfismats. Enda
hefðu verið höfð misvísandi ummæli
eftir forsvarmönnum fyrirtækisins í
íslenskum fjölmiðlum síðustu daga.
4. desember tilkynnti formaður
umhverfisnefndar, Ólafur Örn Har-
aldsson, á fundi nefndarinnar, að
ekki hefði reynst unnt að verða við
ósk um að fulltrúar Norsk Hydro
yrðu kallaðir fyrir nefndina. Þar
sem tíminn væri of naumur og ljóst
væri að frestur nefndarinnar til að
skila niðurstöðu yrði ekki fram-
lengdur, væri ekki svigrúm til að
kalla fleiri gesti að málinu.
6. desember skrifaði Arni Steinar
Jóhannsson, fulltrúi Vinstrihreyf-
ingarinnar - græns framboðs í iðn-
aðarnefnd Alþingis, bréf til for-
manns nefndarinnar og óskaði eftir
því að háttsettir fulltrúar Norsk
Hydro yrðu kallaðir á fund þeirrar
nefndar, enda ætti hún ekki að skila
af sér fyrr en 10. desember.
7. desember óskaði formaður
nefndarinnar, Hjálmar Árnason,
eftir atkvæðagreiðslu um erindi
Árna Steinars og fór hún á þann
veg að stjórnarmeirihlutinn felldi
tillöguna og hafnaði því að gestir
Kolbrún
Halldórsdóttir
Lýðræðið þýðir ekki
bara, segja Árni Steinar
Jóhannsson og Kolbrún
Halldórsdóttir að meiri-
hlutinn ráði, heldur líka
að minnihlutinn eigi
réttindi.
frá Norsk Hydro kæmu á fund
nefndarinnar. Þann sama dag
kvaddi Árni Steinar sér hljóðs á Al-
þingi um störf þingsins og mót-
mælti harðlega þessari málsmeð-
ferð og gat þess að fá dæmi væru
um að þingmönnum væri neitað um
að kalla gesti fyrir þingnefndir og
benti einnig á fordæmi fyrir því að
gestir frá erlendum álfyrirtækjum
væru kallaðir fyrir iðnaðarnefnd
Alþingis. Talsverð umræða skapað-
ist í þinginu og kvöddu alls tíu þing-
menn sér hljóðs. Málum lyktaði
þannig að ákvörðun iðnaðarnefndar
varð ekki haggað.
Opnum fundi hafnað
Þingmenn Vinstrihreyfingarinn-
ar - græns framboðs höfðu, nokkru
áður en upp komu þessar óskir um
fund með forsvarsmönnum Norsk
Hydro, lagt áherslu á að staðið yrði
við loforð iðnaðarráðherra varðandi
aðkomu almennings að málinu. I því
sambandi höfðu þingmennirnir Ár-
ni Steinar Jóhannsson og Kolbrún
Halldórsdóttir óskað eftir því í um-
hverfisnefnd og iðnaðarnefnd að
haldinn yrði opinn fundur nefnd-
anna tveggja, þar sem valdir gestir,
sem þegar hefðu hitt nefndirnar,
sætu ásamt nefndarmönnum og
færu yfir rök málsins og gæfu al-
menningi kost á að spyrja spurn-
inga eða koma með athugasemdir.
Þessari beiðni var fálega tekið í
nefndunum. Að því kom að formað-
ur umhverfisnefndar, Ólafur Örn
Haraldsson, lagði beiðni um slíkan
fund fyrir forseta Alþingis, Halldór
Blöndal. Beiðninni var hafnað af
forseta og þeim boðum kom for-
maður umhverfisnefndar til þing-
mannanna. Hinn 3. desember rit-
uðu Kolbrún Halldórsdóttir og Árni
Steinar Jóhannsson bréf til forseta
þingsins og óskuðu rökstuðnings. 6.
desember barst svar frá forseta þar
sem greint var frá því að beiðnin
hefði verið formlega borin undir at-
kvæði í forsætisnefnd Alþingis og
þar hefði henni verið hafnað með
þremur atkvæðum gegn einu. í
bréfinu segir svo: Rétt er að minna
á að þingsköp Alþingis eru í endur-
skoðun. Sjálfsagt er að sérstaklega
verði fjallað um það álitaefni hvort
nefndarfundir skuli vera opnir eða
ekki eða í hvaða tilvikum það skuli
gert. Hlýtur þá jafnframt að koma
til athugunar hvaða reglur skuli
gilda um slíka fundi, þar á meðal til-
efni þeirra, fundarsköp, kostnað
o.fl.
Þess má geta að í þingsköpum Al-
þingis, sem hafa lagagildi, segir svo
um aðgang að nefndarfundi: Fundir
nefnda skulu lokaðir öðrum en
nefndarmönnum og starfsmönnum
þeirra nema nefnd ákveði annað.
Sá sem valdið hefur
Hér hefur verið rakin barátta
tveggja stjórnarandstöðuþing-
manna fyrir því að framfylgt sé
þeim sjálfsögðu reglum lýðræðisins
að minnihlutinn eigi sanngjarna að-
komu að málum og að allra sjónar-
miða skuli gætt við meðferð mála.
Lýðræðið þýðir ekki bara að meiri-
hlutinn ráði heldur líka að minni-
hlutinn eigi réttindi.
Höfundar eru alþingismenn.
strauoorð
auðveldar þér vinnuna
1. Helmingi styttri strautími
2. Loftsog í strauborði
3. Fer vel með viðkvæmt efni
4. Með aukabúnaði breytir þú
tækinu í gufuhreinsitæki
SKEIFUNNI 3E-F • 128 REYKJAVlK
SÍMI 581 2333 • FAX 568 0215
...eftirleikurinn verður auðveldur
www.boksala.is
ÞAÐ eru enn til
hetjur á Islandi. Þess-
ar hetjur munar ekki
um neitt. Þær gefa
sig út fyrir að vera
sannkallaðar sjálf-
stæðishetjur en fara
með hamagangi um
landið og bjóða auð-
æfi þess fyrir slikk.
Nú vilja þær setja lög
um þennan hama-
gang. Og þó að birtan
á íslandi, þessi töfra-
birta úr annarri ver-
öld, sem þeim finnst
sjálfsagt ekki nothæf
nema í skáldskap, sé í
húfi og verði ekki
lengur sjálfstæð, heldur gul og
sjúk af mengun, þá munar þær
ekki um að eyðileggja þessa birtu.
Ó nei. Hvað með einhverja birtu,
hér er alltaf svartasta skammdegi,
stynja hetjurnar. Og hvað með
skáldskapinn, hann er ekki not-
hæfur nema á 17. júní og öðrum
tyllidögum. Skáldskapur er ekki
hluti af lífi fólks, stynja hetjurnar
og eru eiginlega komnar í fýlu.
Skáldskapur er bara fyrir skáld.
Fólk er ekkert að pæla í þessari
Bókin
MIKILVÆGUSTU
TUNGUMÁL JARÐAR
svarar:
Á hvaða tungumáli eru
gefín út flest dagblöð?
www.tunga.is
birtu eða sýna börn-
unum sínum himininn.
Eru þau ekki öll í
tölvuleikjum og vant-
ar rafmagn? Já,
stynja hetjurnar og
kunna ekki að búa til
ósýnilegt rafmagn,
eitthvað sem liggur í
loftinu. Getum við
fengið frið? Við viljum
bara frið, stynja
hetjurnar, við erum
svo þreyttar, svo
þreyttar, við fáum
ekki að vera hetjur í
friði, alltaf einhver
mótmæli og svona. Og
svo liggja þær þvers-
um yfir landakortið og segja: Mal-
bikum Dimmugljúfur, setjum
krana á Dettifoss, sökkvum Eyja-
bökkum. Okkur munar ekkert um
það. Við erum svo miklar hetjur,
hvað munar okkur um einn Detti-
foss, hvað munar okkur um ein
Dimmugljúfur, þegar hetjuskapur
okkar er í húfi. Og svo skrifa
hetjurnar undir, rétt einsog þær
séu að skrifa íslendingasögurnar
uppá nýtt. En hetjunum hefur yf-
irsést eitt í öllum hamaganginum.
Það er semsagt þetta: Síðasti vind-
Elísabet
Jökulsdóttir
Stóriðja
Umhverfisáhrif