Morgunblaðið - 15.12.1999, Side 66

Morgunblaðið - 15.12.1999, Side 66
66 5 — MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Grettir Hundalíf Ferdinand Smáfólk P0E5 5TANDINÖ IN THE RAIN WAITIN6 FORTHE 5CH00L EU5 5UOU) OUR PE5IRE FOR EDUCATION ? ,'NO,IT 5HOU)SHOWOUR , 1 LIVE5 ARE CONTROLLEPj BV TH05E INPOWER.. Er þetta þrá okkar eftir menntun að standa hérna í rigningunni og híða eftir skólabflnum? Nei, það sýnir bara að líf Hver Hundar gera okkar stjórnast af þeim er þín bara það sem sem hafa viiidin. afsökun? er heimskulegt. BREF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Ölvunarakstur er ekkl okkar einkamál, Sá sem ekur ölvaður ógnar öllum í krlng um sig. Bílbelti og áfengi? Frá ungum ökumönnum í ökuskóla Sjóvár-Almennra: VIÐ erum tveir hópar sem sóttu um- ferðarskóla Sjóvár-Almennra fyrir unga ökumenn í október og nóvem- ber. Við veltum fyrir okkur tveimur mikilvægum þáttum er snerta ör- yggi okkar í umferðinni. Það eru bíl- beltin annars vegar og ölvunarakst- ur hins vegar. Við veltum fyrir okkur spurning- unni: Af hverju bílbelti? Hvað er hægt að gera til að fá okkur unga fólkið til að nota þau? Við erum sannfærð um að bílbelti auki öryggi okkar ökumanna og far- þeganna í bílum og að minni líkur séu á að fólk slasist ef það notar þau. Beltin þurfa að vera stillanleg til að þægilegt sé að nota þau. Margir am- erískir bílar eru með sjálfvirk belti sem spennast sjálfkrafa þegar sest er í bílinn. Það væri ekki úr vegi að fleiri væru með slík belti. Auka þarf fræðslu um beltin og þær hættur sem fylgja rangri notk- un þeirra. Ef við kennum börnunum að nota beltin um leið og þau setjast í bíl þá eru meiri líkur til að þau noti þau þegar þau eldast. Að sjálfsögðu eiga foreldrai- að vera góð fyrir- mynd. Okkur finnst of mikið um að að leikarar í bíómyndum séu ekki í beltum. Þeir eru oft fyrirmyndir okkar unga fólksins og ættu því að nota belti. Við hvetjum íslenska leik- stjóra til að láta beltin sjást í sínum myndum. Til að unga fólkið noti belt- in, þurfa fyrirmyndimar að nota þau. Ölvunarakstur Það er mjög algengt að 17-20 ára ökumenn prófi að aka undir áhrifum áfengis og allt að helmingur okkar hefur prófað þetta einhvern tíma á þessu tímabili. Við gerðum okkur ekki grein fyrir hversu alvarlegt það er að aka ölvaður. Nú höfum við ákveðið að blanda akstri og áfengi ekki saman. Því nú vitum við að: • Afengi skerðir sjónsviðið. • Það skerðir dómgreind. • Mikil hætta er á að sofna undir stýri. • Viðbragðstíminn lengist. • Fólk hefur ekki fulla athygli. • Fjarlægðarskynið skerðist. • Við tökum meiri áhættu en ella. • Meiri líkur á alvarlegum mis- tökum. • Það getur valdið alvarlegum slysum, en slys hjá ölvuðum ökumanni eru yfirleitt alvar- legri en hjá allsgáðum. Við minnum alla ökumenn á að sleppa akstrinum ef þeir hafa smakkað bjór eða áfengi, sérstak- lega höfum við áhyggjur af ykkur nú í desember þegar þið skemmtið ykk- ur í vinnunni eða farið á jólahlað- borð. Munið að við erum á ferðinni í umferðinni og þið viljið ekki skaða okkur - er það? Með kveðju frá ungum ökumönn- um í ökuskóla Sjóvár-Almennra. EINAR GUÐMUNDSSON, forvarnafulltrúi Sjóvár-Aimennra. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.