Morgunblaðið - 15.12.1999, Síða 72
MORGUNBLAÐIÐ
72 MIÐVTKUDAGUR 15. DESEMBER 1999
A-----------------------------
FÓLK í FRÉTTUM
Forvitnilegar bækur
RITHÖFUNDURINN JOSEPH HELLER LÁTINN
Forvitnilegar bækur
Hvað er heilbrigft
í geðveikri veröld?
Joseph Heller á ljósmynd frá árinu 1961.
Drauga-
saga frá
Lissabon
Requem, skáldsaga eftir Antonio
N Tabucchi. 111 bls. kilja í stóru
broti. Harvill gefur tít. Kostaði um
800 kr. í bókaverslun í Lundtínum.
SÍÐUSTU misseri hafa menn fengið
æ meiri mætur á skáldinu portú-
galska Fernardo Bessoa, sem telja
má með merkustu skáldum aldarinn-
ar. Pessoa lét eftir sig grúa ljóða í ól-
íkum stíl undir ýmsum dulnefnum og
eitt verk í óbundnu máli, Bók ógleð-
innar, sem sumir vilja telja sjálfsævi-
sögulega.
Pessoa hefur haft áhrif á marga
' nútímahöfunda og þar á meðal An-
tonio Tabuechi, höfund bókarinnar
Requem, sem hér er gerð að umtals-
efni. Tabucchi hefur skifað fjölda
bóka, skáldsögur og smásagnasöfn,
aukinheldur sem hann hefur þýtt
portúgalskar bókmenntir ylir á ít-
ölsku, þar á meðal Ijóð Pessoa. Með-
al helstu bóka Tabucchis er Sosteine
Pereira, sem komið hefur út á ensku
unduir nafninu Pereira Declares, en
sú bók gerist í Lissabon á tímum
Salazars. Requem gerist einnig í
Lissabon á óræð-
, um tíma, en svo
vill til að Tabucchi
skrifaði bókina á
portúgölsku. í inn-
■►gangi að sögunni
segist hann hafa
gert það öðrum
þræði vegna þess
að slíka sögu sé
aðeins hægt að
skrifa á portú-
gölsku, einnig sé
sagan hylling
Portúgals og íbúa
þess, auk þess sem
hann hafi ekki
treyst sér að
skrifa sálumessu á
latínu eða ítölsku.
Requem segir
frá því er sögu-
hetjan, „ég“, held-
•ur af stað til að
hitta náunga sem
er mesta skáld
tuttugustu aldar-
innar og fer ekki á milli mála að ná-
unginn er Pessoa. A leiðinni á
stefnumótsstaðinn gerist ferðin æ
ótrúlegri og líkist æ meir draumi eða
ofskynjun, sem og Tabucchi reyndar
kallar bókina í undirtitli hennar.
Sögumaður hittir fyrir lifendur og
látna, fólk úr nútíð og fortíð, og einn-
ig fólk sem aldrei hefur verið til en
birtist meðal annars í verkum Pes-
,soas. Matur er fyrirferðarmikill í
bókinni ekki síður en vangaveltur
um lífið og listina sem allar eru sett-
ar fram með beittri kímni.
Sálumessa Tabucchis er merkileg
bók og stór í sniðum þótt ekki séu
síðurnar margar. Hún er þess eðlis
að best er að lesa hana í einni lotu og
sjálfsagt gera margir eins og ég, lesa
,jaana aftur um leið.
Árni Matthíasson
RITHÖFUNDURINN Joseph Hel-
ler sein vakti athygli með fyrstu
skáldsögu sinni „Catch 22“ lést tír
hjartaslagi á heimili sínu í East
Hampton í New York-fylki síðast-
liðinn sunnudag 76 ára að aldri.
Hann hafði nýlega lokið við ritun
síðustu skáldsögu sinnar, „A
Portrait of the Artist, As an Old
Man“ þar sem hann vísar með nafn-
inu í þekkta skáldsögu írska skáld-
jöfursins James Joyce og má btíast
við að bókin verði gefin tít á næstu
mánuðum.
Stríð í nýju ljósi
„Catch 22“ kom tít árið 1961 og
var htín án efa vinsælasta bók Ilel-
lers og hefur selst í meira en tíu
milljónum eintökum ef aðeins er
litið til sölu í Bandaríkjunum. Bók-
in fékk þó misjafna dóma þegar
htín kom tít og á ineðan sumir
gagnrýnendur hófu hana til skýj-
anna og sögðu bestu skáldsögu sem
komið hefði tít í Bandaríkjunum
um margra ára skeið fannst öðrum
minna til hennar koma.
I „Catch 22“ scgir frá söguhetj-
unni John Yossarian, sprengjuflug-
manni, sem þráir ekkert heitar en
að sleppa tír herþjónustu í síðari
heimsstyrjöldinni. Titill bókarinnar
vísar í þá óleysanlegu stöðu sem
Yossarian upplifir í stríðinu og Jos-
eph Heller þekkti vel af eigin raun.
Kaldhæðnisleg lýsing á stríðinu
höfðaði sérstaklega vel til lesenda
við upphaf Víetnamstríðsins og
telja margir að bók Hellers hafi
sýnt stríð frá algjörlega nýjum
sjónarhóli. Helsta spurning bókar-
innar er „Hvernig bregst maður
sem er heill á geðsmunum við geð-
veikri veröld?“
Andhetja Hellers, Yossarian,
reynir að fá sig títskurðaðan geð-
veikan til að losna undan herþjón-
ustu. Hins vegar er mál hans metið
svo að hver sá sem ber fyrir sig
geðveilu til að forðast stríð hljóti
að vera andlega heilbrigður eðli
málsins samkvæmt. Það er því eng-
in undankomuleið í stöðunni eins
og nafn bókarinnar gefur til kynna
en orðtakið „catch 22“ er ntína
skráð í Oxford-orðabókina sem lýs-
ing á óleysanlegri stöðu.
Rithöfundurinn E.L. Doctorow
sagði í gær í viðtali að þegar
„Catch 22“ kom tít hafi fólk sagt:
„Seinni heimsstyrjöldin var ekki
svona. En þegar Víetnamstríðið
hófst var hugarfarið sem kemur
fram í bókinni hugarfar al-
mennings í Bandaríkjunum. Stund-
um er sagt að bókmenntir breyti
engu en þær geta samt orðað hugs-
anir sem lita viðhorf heillar kyns-
Ióðar.“
Joseph Heller fæddist 1. maí
1923 á Coney Island í Brooklyn í
New York. Hann var sonur inn-
flytjenda af gyðingaættum, en
missti föður sinn aðeins fimm ára
að aldri. Hann fór að vinna 14 ára
gamall með skóla og vann ýmis
störf þar til hann gekk í banda-
ríska flugherinn árið 1942.1 stríðs-
lok var hann orðinn liðsforingi og
gekk í hjónaband sama ár. Hann
fór í háskólann í New York og síð-
an í framhaldsnám í Columbia-
háskóla. Árið 1949-50 var hann
Fulbright sendikennari í Oxoford
háskóla í Bretlandi.
Þegar heim var komið kenndi
hann ensku og skrifaði auglýsinga-
texta fyrir tím-
arit. Þá var
hann byrjaður
að skrifa stutt-
ar sögur og
birtustnokkrar
þeirra í blöðun-
um Esquire og
Atlantic
Monthly. Hins
vegar áttað
Heller sig fljót-
lega á að smá-
sögur hans
væru lítil við-
bót við þær
sögur sem þeg-
ar voru skrifað-
ar í Banda-
ríkjunum.
Það tók Hel-
ler átta ár að
skrifa „Catch
22“ og hann
var 38 ára
gamall þegar
htín kom tít.
Eins og áður sagði voru dómar í
Bandaríkjunum misjafnir í fyrstu
en í Bretlandi var bókinni líkt við
höfuðverk Hómers þegar htín var
sögð í The Spectator vera „stírrea-
lísk Iliad, með geðsjtíkar skipanir
yfirvalds í stað guða og lieigul í
stað hetju.“ Kvikmynd var gerð
eftir sögu Hellers árið 1970 undir
stjórn leikstjórans Mike Nichols
sem hafði áður leikstýrt „The
Graduate“ og fór Alan Arkin með
hlutverk Yossarian en einnig fóru
Orson Welles og Art Garfunkel
með hlutverk í myndinni.
Erfitt að fylgja eftir
vinsældum fyrstu bókarinnar
Heller tók sér góðan tíina í skrif-
in. Eftir mikla velgengni fyrstu
bókarinnar heyrðist ekkert frá
honum fyrr en árið 1967 þegar
hann gaf tít leikritið „We Bombed
New Haven“ sem hafði stríðið í
Víetnam að yrkisefni. Leikritið var
sýnt á Broadway en gekk ekki
mjög vel. Fimm ár liðu áður en
næsta skáldsaga Hellers kom tít,
„Something Happened", en þar
fjallar Heller um mann sem gengur
vel í vinnunni en á í erfiðleikum
heima fyrir með fjölskyldunni.
í bókinni „Good As Gold“ frá ár-
inu 1979 snýr Heller sér að eigin
bakgrunni og fjallar um innfiytj-
endur af gyðingaættum í Banda-
ríkjunum. í „God Knows“ eru
trúmál í brennidepli og gagnrýninn
andi svífur yfír vötnuin.
Joseph Heller skildi við eigin-
konu sína, Shirley Held, árið 1984
en þau áttu saman son og dóttur.
Hann gekk að eiga Valerie Hump-
hries, en hún hafði hjtíkrað honum
í langan tíma í gegnuin baráttu
hans við Iömunarsjúkdóminn
Guillain-Barré eða frá árinu 1981.
Eina bók Hellers sem er ekki
skáldsaga er „No Laughing Matt-
er“ sem hann gaf tít árið 1986 en
hann skrifaði hana með Speed Vog-
el. I hcnni lýsir hann þeirri reynslu
að kljást við Guillain-Barré sjtík-
dóminn og þykir írónískur stíll
hans njóta sín vel í bókinni.
Skáldsagan „Picture This“ kom
tít árið 1988. Þar leitar Heller
fanga á slóðum fornra heimspek-
inga á borð við Sókrates, Plató og
Aristóteles. I síðustu títgefnu skáld-
sögu Hellers, „Closing Time“ sem
koin tít árið 1994, tekur hann upp
þráðinn sem frá var horfið í „Catch
22“ og lesendur geta endurnýjað
kynnin við andheljuna Yossarian.
Umbúða-
laus
ljótleiki
Lord of the Barnyard, skáldsaga
eftir Tristan Egolf. Picador í Bret-
landi gefur tít. 410 bls. kilja. Kost-
aði 1.495 kr. í Máli og menningu.
TRISTAN Egolf vakti mikla at-
hygli fyrir þá bók sem hér er gerð
að umtalsefni, enda þóttust menn
sjaldan hafa lesið aðra eins frum-
raun ungs rithöfundar, en Egolf var
27 ára gamal þegar bókin kom út á
síðasta ári. Ekki var bara að menn
dáðust að því hvernig Egolf hafði
tekist að setja saman ímyndað sam-
félag úrkynjaðra undirmálsmanna,
afkomenda þýskra og skandina-
vískra innflytjenda vestan hafs,
heldur þótti stíllinn á bókinni
óvenju vel mótaður og líflegur af
svo ungum höfundi.
Lord of the Barnyard er saga
manns sem tekst á við óyfirstígan-
leg öfl, vinnur sigur en lætur fyrir
lífið. Vissulega gömul saga og ný,
en Egolf nær að gæða hana lífi með
því að skapa stórskemmdan ein-
stakling sem er þó sá eini í bókinni
sem hefur í sér hreinan harðan
kjarna sem umhverfið fær ekki
sigrast á. Á köflum er sagan hrein
goðsögn, enda sögumenn þeir sem
eftir lifa og eiga söguhetjunni, John
Kaltenbrunner, að þakka að hafa
öðlast mannsæmandi líf og sjálf-
virðingu.
Garrison Keillor hefur skrifað
frægar og góðar bækur sem gerast
á álíka slóðum og Lord of the Barn-
yard, en hann fer aðrar leiðir, fer
varfærnari höndum um söguper-
sónurnar og umhverfi þeirra. Egolf
lætur aftur á móti vaða á súðum, fer
slíkum hamförum í stíl og orðfæri
að lesandinn gapir iðulega að orða-
flauminum og lýsingunum. Sjá til
að mynda lýsingu á körfuboltaleik
undir lok bókarinnar sem vert er að
lesa nokkrum sinnum til að kjamsa
á textanum.
Lord of the Barnyard er líklega
ekki bók fyrir viðkvæma, en þeir
sem innbyrt geta ljótleikann um-
búðalaust eiga góða daga í vændum
í höndum Egolfs.
Árni Matthíasson
Leikstjórinn Mike Nichols ræðir við Orson Welles við upptökur niyndar-
innar „Catch 22“ frá árinu 1970 sem tekin var upp í Mexíkó.
AP
Þessi mynd af Heller var tekin á síðasta ári á Coney Island í New York.