Morgunblaðið - 15.02.2000, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 2000 55
UMRÆÐAN
Til hvers er hús-
næðiskerfíð?
UM síðustu áramót
tilkynntu borgaryfir-
völd í stórri veislu að
Reykjavík yrði á kom-
andi ári ein af menn-
ingarborgum Evrópu.
Varla var nema vika
liðin af menningarár-
inu þegar sýslumaður
bar útúr íbúð sinni
konu með þrjú börn að
kröfu sömu borgaryf-
irvalda. Konan sem er
75% öryrki var borin
út vegna fátæktar að
kröfu sveitarfélags
síns. Önnur kona með
tvö börn fékk útburði
frestað vegna veikinda
annars barnsins. Alls fengu 50
heimili samskonar jólakveðju frá
yfirvöldunum og enn bíða a.m.k. 30
fjölskyldur eftir útburðarúrskurði
þegar þetta er skrifað. Leigjenda-
samtökin hafa ráðið Lúðvík Kaaber
lögmann til að verja fólkið fyrir
Húsnæðismál
Markaðsstefnan í hús-
næðismálum sem hér
ríkir og hefur alla tíð
gert hefur, að mati Jóns
Kjartanssonar, reynst
öryrkjum og öðru fá-
tæku fólki dýr.
héraðsdómi ef til kemur.
Það er vel við hæfí að tengja
þennan dæmalausa útburð við
menningarstefnu, því í honum
kristallast fráhvarf frá samfélagi
menningar og samhjálpar til ofríkis
villimennsku og ójafnaðar. Aldrei
fyrr hefur sveitarfélag látið bera út
skjólstæðinga sína með þessum
hætti og verður látið reyna á lög-
mæti þess fyrir rétti. Sveitarfélög
og samfélagið í heild hefur skyldum
að gegna við fátækt fólk samkvæmt
lögum og stjórnarskrá og þeim
mannréttindasáttmálum sem við
erum aðilar að. Skipulag og fram-
kvæmd húsnæðismála er samfé-
lagsverkefni en ekki einkamál.
Húsnæðismálin eru hluti af velferð-
arkerfinu og hafa verið það allstað-
ar frá upphafi, þar sem slíkt kerfi
er á annað borð til.
Húsnæði er mannréttindi
Ráðamenn hér á landi hafa aldrei
haft mikinn áhuga á félagslegum
húsnæðisrétti almennings, fremur
en öðrum félagslegum réttindum.
Auk húsnæðisstefnunar birtist
þetta harla skýrt í bók próf. Stef-
áns Ólafssonar íslenska leiðin útg.
1999. Ég skal ekki auka mál mitt
með löngum tilvitnunum í þá bók,
enda er hún tiltæk þeim sem vilja.
En á bls. 174 er skýrsla um heildar-
útgjöld vegna elli- og örorkulífeyris
á Norðurlöndum árið 1995. Niður-
staða; Danmörk 15,8 Finnland 15,1
ísland 7,7 Noregur 13,0 og Svíþjóð
17,5. Á bls. 177 er fjallað á sama
hátt um heildarútgjöld vegna fjöl-
skyldubóta á Norðurlöndum sama
ár. Niðurstaða; Danmörk 4,0 Finn-
land 4,2 ísland 2,4 Noregur 3,8 og
Svíðþjóð 4,0. Heildarniðurstaða á
bls. 148 hljóðar svo; „Það virðist því
engum blöðum um það að fletta að
íslendingar verja litlum fjármun-
! um til almannatrygginga og opin-
berrar velferðarforsjár samanborið
við aðrar vestrænar þjóðir.“ Auk
þess eru almenn laun mun lægri
hér, vinnutími lengri og ýmis rétt-
indi stórum rýrari, m.a. þurfa ör-
yrkjar að greiða úr eigin vasa stór-
an hluta af lyfja- og lækniskostnaði.
Markaðsstefna í
húsnæðismálum
Það er að mínu áliti nokkur galli
i á bók próf. Stefáns að húsnæðis-
þáttinn vantar og
einnig skuldasöfnun-
ina sem oftast fylgir.
Þetta hefði gert hlut
íslands mun svartari.
Markaðsstefnan í hús-
næðismálum sem hér
ríkir og hefur alla tíð
gert, öfugt við önnur
Evrópulönd, hefur
reynst öryrkjum og
öðru fátæku fólki dýr
og valdið öryggisleysi
og félagslegum vand-
ræðum. Félagslega
húsnæðiskerfíð sem
hófst hér 1965, þegar
Reykjavík var orðin
stærsta fátækrakverfi
á Norðurlöndum, hefur nú verið
lagt niður og höfuðborgin selt
leiguíbúðir Félagsþjónustu sinnar
og hækkað leiguna. Húsaleigubæt-
ur sem loksins komu fyrir þremur
árum eru skattlagðar að fullu og
skerða auk þess sumar aðrar bæt-
ur.
Meðan aðrar þjóðir lögðu áherslu
á félagslegar leiðir og leigumarkað
með niðurgreiddri leigu, ráku ís-
lendingar rándýra Húsnæðisstofn-
un sem þjónaði nær eingöngu íbúð-
areigendum og markaðskerfínu.
Hámarki náði vitleysan á 9. ára-
tugnum er lánsfé var vísitölubund-
ið. í áratug mátti fólkið búa við óða-
verðbólgu, okurvexti,
verðtryggingu, stórfellda niður-
færslu á launun, bótum og skatt-
leysismörkum, sem enn hefur ekki
verið leiðrétt hvað sem ráðamenn
segja. Skuldirnar hlóðust allstaðar
upp, t.d. skulduðu 10.000 heimili í
Verkamannabústöðum meira en 3
afborganir af lánum sínum og
margir miklu meira. Ekki var þó
krafist útburðar en reynt að leysa
málið eftir öðrum leiðum og enginn
talaði um að fólkið vildi ekki borga.
Er fjárfestingarstefnan
skynsamleg?
Því fer fjarri, þótt einstakir hús-
eigendur hafi oft hagnast á þessu.
Þessi stefna stórhækkar fram-
færslukostnað með tilheyrandi
kröfum um laun og bætur, eykur
verðbólgu og ógnar rómuðum stöð-
ugleika auk þess sem hún bindur
óeðlilega mikið fé í húsnæði. Því
hærri sem framfærslukostnaður er,
því dýrara sem húsnæði er, því
meiri er þörfin fyrir félagslega að-
stoð. Styrkþegum fjölgar og hver
einstaklingur þarf meira. Niður-
greiddur leigumarkaður aftur á
móti slær á þenslu, dregur úr kröf-
um, eykur stöðuleika og bætir hag
heimila og þar með þjóðfélagsins.
Auk þess bindur sú stefna minna fé
í húsnæði því aðeins er lánað einu
sinni út á hverja íbúð. Fé bundið í
íbúðum er yfirleitt dautt fé sem
engu skilar og breytir litlu þótt ein-
hverjir græði á veltunni. Þetta
kæmi í veg fyrir svarta leigustarf-
semi með tilheyrandi skattsvikum.
Stundum er sagt að fólk skuli láta
húsnæðiskostnað hafa forgang.
Þetta er ströng krafa eins og hér er
í pottinn búið og getur komið illa
niður á barnafólki. Hvernig væri að
ráðamenn þjóðfélagsins láti hús-
næðismálin hafa forgang og beiti
sér fyrir skynsamlegum lausnum
sem ekki hafa refsingar í för með
sér? Borgin ætti t.d. að skila Fé-
lagsþjónustunni aftur íbúðum
hennar, lækka leiguna og fella nið-
ur skuldirnar svo fólkið geti byrjað
með hreint borð að greiða viðráðan-
lega leigu. Stofnun Félagsbústaða
hf. var góð humynd. Það er brýn
þörf á fyrirtæki sem leigir út íbúðir
á kostnaðarverði óháð félagsmála-
yfirvöldum. Heimskan fellst í því að
nota íbúðir Félagsþjónustunnar í
fiessu skyni. Það getur ekki gengið.
búðir Félagsbústaða hf. yrðu þá
viðbót við þær íbúðir sem fyrir eru
og það er full þörf á því.
Höfundur er formaður Lcigjendu-
samtakanna.
Jón
Kjartansson
KAMÍNUR
Vandaðar, fallegar.
Ótrúlega hagstætt verð.
-MDQÐÚRVAL-
PFAFF
cHeimilishekjaverslun
Grensásvegur 13 -108 Reykjavík - Sími 533 2222
www.fenger.is
kvenfatnaður
! H ;fi7TTTT
SJALFSTÆÐUR
DREIFINGARAÐILi
895 8225
Ólafur Þór Ólafsson
leiöbeinandi
námskeið til
árangurs
*Þú getur gert, átt eða verið það sem þú vilt
m m * r m m m Brian Tracy .
Naðu arangri og Phoemx
eru frábær námskeið í sjálfsrækf og markmiðasetningu
sem færa þér lyklana að þinni eigin velgengi í lífi og starfi
Næsta námskeið hefsl miðvikudaginn 23. febrúar kl. 18 á Hótel Loftleiðum
www.markmidlun.is
■ markmidlun@markmidlun.is
s.896 5407
MARKrriðfw Upplýs. og skráning
SlðmniStfiir limínar
itKH iiQa sfii i HðimilHi!
Njóttu stemmningar við flöktandi eld
Viö bjóðum úrval enskra rafmagnskamína með kola- eða viðarglóð
og flöktandi kamínuloga. Þær henta hvar sem er;
I stofur, sólstofur, forstofur og sumarbústaði.
Útvegum einnig viðar- og kolaeldstæði tengd rafmagni,
sem setja má í opnar kamínur.
Einar
Farestveit & Co. hf.
Borgartúni 28 « 562 2901 og 562 2900
www.ef.is
Friðrik Sophusson forstjóri ||p '
Landsvirkjunar hefur pr
kynnst Leiðtogatíglinum. Tfe
Hann segir: \
„Ég mæli með þessari þjálfun til
að laða fram þá eiginleika sem
nauðsynlegir eru í allri stjórnun"
Leiðtogaþjálfun fyrir konur
Islensk fyrirtæki þurfa á öllum sínum kröftum að halda. Einungis
tæp 2% af stjórnunarstöðum eru skipaðar konum. Með því að
efla leiðtogahæfileika kvenna og virkja ónýttan mannauð sem
býr í konum má styrkja samkeppnisstöðu fyrirtækjanna.
Skref fyrir skref býður sérstakt leiðtoganámskeið fyrir konur
sem vilja takast á við krefjandi stjórnarhætti með það að
leiðarljósi að íslenskt hagkerfi þarf á hæfileikum kvenna halda.
STEPS leiðtogaþjálfun fyrir konur er 200 stunda þjálfun á einu
ári. Þátttakendur verða m.a. þjálfaðir í stefnu- og starfsmótun,
nýsköpun og myndun tengslaneta, siðfræði í stjórnun,
fjölmiðlanotkun og í aðferðum við að stjórna í miklum og
hröðum breytingum.
Allar nánari upplýsingar og skráning hjá Skref fyrir skref.
Skref fyrir skref hefur fengið einka-
leyfi frá Koestbaum Institute um
sérleyfi á notkun líkans sem kallast
„Leiðtogatígullinn
Tígullinn veitir stjórnendum öflugt
tæki til að takastá við vandamál og
spurningar nýrrar aldar.
(Jj kref
V *skref
Ármúla 5 • 108 Reykjavlk • sími 581 1314 • fax 581 1319 • sfs@skreffyrirskref.is • www.skreffyrirskref.is