Morgunblaðið - 16.02.2000, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 16.02.2000, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Rætt um kostnað vegna væntanlegs MBA-náms í umræðum utan dagskrár Spurt hvort verið sé að fara í kringum háskólalög Morgunblaðið/Porkell Steingrímur J. Sigfússon gagnrýndi áform um skúlagjöld við viðskiptadeild Háskólans. |||||p ALÞINGI í UMRÆÐUM utan dagskrár á Al- þingi í gær gerði Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyf- ingarinnar - græns framboðs, að umtalsefni MBA-nám sem farið væri að auglýsa á heimasíðu við- skipta- og hagfræðideildar Háskóla Islands, og sem skipuleggja á í sam- vinnu við Endurmenntunarstofnun Háskóla íslands. Þar kæmi fram að öll námskeiðin yrðu á vegum við- skipta- og hagfræðideildar en jafn- framt væri tekið fram að kostnaður við námið yrði 1,2-1,4 milljónir á einstakling. Steingrímur vakti athygli á því að þetta gjald stæðist ekki lög um Há- skóla Islands, eina gjaldið sem Há- skólinn mætti rukka af nemendum sínum væri skráningargjald sem lögum samkvæmt mætti ekki vera meira en 25 þúsund krónur. Velti Steingrímur því fyrir sér hvort við- skipta- og hagfræðideild væri ein- faldlega að fara í kringum háskóla- lögin með því að bjóða upp á námið í samstarfi við Endurmenntunar- stofnun. í svari Björns Bjarnasonar menntamálaráðherra kom fram að málið væri skammt á veg komið og að hann gæti í raun ekki svarað því hver afstaða hans væri þar sem stjórn Háskólans væri enn að vinna í því að finna lagaforsendu fyrir þessari gjaldtöku. Rifjaði Björn hins vegar upp að í 18. grein há- skólalaga væri ekki fyrir hendi heimild handa Háskólanum að inn- heimta skólagjöld, það gæti Endur- menntunarstofnun Háskólans hins vegar en hún gæti aftur á móti ekki útskrifað fólk með háskólagráðu. Sagðist Björn eiga erfitt með að sjá hvernig Háskólinn gæti samræmt þetta tvennt og taldi eðlilegt að Há- skólinn skýrði betur hvernig þessi mál stæðu fyrir væntanlegum nem- endum í MBA-náminu, sem áætlað er að fari af stað í haust, sem og þingheimi. I lokaorðum sínum við umræðuna í gær lagði Björn hins vegar áherslu á að það væri ekki rétt, sem Svan- fríður Jónasdóttir, þingmaður Sam- fylkingar, hafði m.a. velt fyrir sér, að Háskólinn væri með þessum hætti að leita leiða til að brjótast undan því fjársvelti sem hann hefði átt við að stríða. Staðreyndin væri nefnilega sú að fjárhagur Háskólans hefði verið treystur að undanförnu. Ekki tekin upp skólagjöld nema með samþykki Alþingis Við umræðurnar í gær kom m.a. fram það álit Kolbrúnar Halldórs- dóttur, þingmanns Vinstrihreyfing- arinnar - græns framboðs, að menntamálaráðherra hefði með um- mælum sínum reynt að varpa ábyrgð yfir á stjórnendur Háskól- ans. Sagði hún að Björn yrði hins vegar að gangast við þeirri stefnu ríkisstjórnarinnar að þrýsta sífellt á um það að ríkisstofnanir öfluðu sér sértekna. Vildi Kolbrún vita hvers vegna ekki væri einfaldlega boðið upp á þetta MBA-nám innan hins eðlilega námskerfis Háskólans og lagði áherslu á að þessi leið, sem hér væri lögð til, samrýmdist ekki hug- myndum sínum um jafnrétti til náms. Hjálmar Árnason, þingmaður Framsóknarflokks, fagnaði því að nú ætti að bjóða upp á MBA-nám við Háskólann. Hann lýsti sig hins vegar ósammála þeirri leið sem væri lagt til að farin yrði og sagði hér á ferðinni grundvallarbreytingu frá ÞINGFUNDUR hefst á Alþingi í dag kl. 13.30. Fyrst fara fram atkvæða- greiðslur en síðan eru eftirfarandi fyrirspumir til ráðherra á dagskrá: 1. Upplýsingamiðlun EFTA til væntanlegra ESB-landa, fsp. til ut- anríkisráðherra. 2. Breyting á áfengiskaupaaldri, fsp. til dómsmálaráðherra. þeirri hugsun að skólagjöldum skyldi haldið í hófi. Hjálmar sagði reyndar eðlilegt að menntamálaráð- herra fjallaði ekki um málið á þessu stigi, enda ætti Háskólaráð enn eftir að taka afstöðu til þess. Einar Már Sigurðarson, þing- maður Samfylkingar, kvaðst fyrir sitt leyti fagna viðbrögðum mennta- málaráðherra svo langt sem þau næðu en velti því fyrir sér hvort ver- ið væri að gefa í skyn að málið væri styttra á veg komið en raun væri. Viðskipta- og hagfræðideild Há- skólans væri jú farin að auglýsa námið á heimasíðu sinni. 3. Rannsóknir á tveimur sjóslys- um, fsp. til samgönguráðherra. 4. Islenski hrafninn, fsp. til um- hverfisráðherra. 5. Varðveisla sjaldgæfra hrossa- lita, fsp. til landbúnaðarráðherra. 6. Endurgreiðslur vegna kvik- myndagerðar, fsp. til iðnaðar- ráðherra. Alþingi Dagskrá Umfjöllun norskra fjölmiðla um baráttu Umhverfísvina Ranglega greint frá staðreynd- um mála NORSKA dagblaðið Dagens Nær- ingsliv fór ekki rétt með ýmis atriði þegar það greindi frá afrakstri undir- skriftarsöfnunar Umhverfisvina í frétt sinni í gær. Á þetta bendir kynningai'fyrirtækið Áthygli sem þjónustai' m.a. Staðaivalsnefnd ál- vers í Reyðarfii'ði - STAR. Athygli bendir á að í fyrrgreindri frétt hafi m.a. verið greint frá því að yfii' 45 þúsund undirskriftir hefðu safnast í átaki Umhverfisvina en þvi jafnframt haldið fram að þessar 45 þúsundir hefðu verið að mótmæla byggingu Fljótsdalsvirkjunar norðan Vatnajökuls. Hið rétta sé hins vegar að fólkið á undirskriftai'lista Um- hverfisvina hafi verið að krefjast lög- formlegs mats á umhverfisáhrifum fyrirhugaðrar Fljótsdalsvirkjunar. Þá bendir Athygli á að í fréttinni hafi verið sagt að þúsundimar hafi verið að óska eftir því að norska stór- fyrirtækið Norsk Hydro byggði ekki álverskmiðju á íslandi áður en lög- formlegt umhverfismat hefði farið fram en hið rétta sé að mótmælin hafi snúist um byggingu Fljótsdals- virkjunar en ekki álversins sem slíks. Að lokum átelur Athygli blaðið fyrir að halda því fram að ekkert verði af álversframkvæmdum hætti Norsk Hydro við að taka þátt í verkefninu. Hið rétta sé hins vegar að álverk- smiðjan verði byggð hvort sem Hydro „hoppar af lestinni eða ekki“. Önnur álfyrirtæki hafi þegai' lýst áhuga á verkefninu svo sem Col- umbia Ventures sem reki álverk- smiðju í nágrenni Reykjavíkur. Athugasemdir sendar blaðamanni Ami Þórður Jónsson, starfsmaður hjá Athygli, sendi fyrrgreindar at- hugasemdir til þess blaðamanns Dagens Næringsliv í gær sem skrif- aði títtnefnda frétt en sá greindi m.a. frá því að hann hefði m.a. fengið upp- lýsingar í fréttina úr fréttatilkynn- ingu Landvemdar sem og frá ónefndum Islendingum sem við- staddir vora afhendingu mótmæla- skjals frá Umhverfisvinum til framkvæmdastjóra Norsk Hydro í Ósló í fyrradag. Vilja lögleiða ólymp- íska hnefaleika GUNNAR Birgisson, þingmaður Sjálfstæðisflokks mælti á Alþingi í gær fyrir frumvarpi til laga um lög- leiðingu ólympískra hnefaleika en að baki frumvarpinu standa tíu þing- menn úr þremur flokkum, Sjálfstæð- isflokki, Framsóknarflokki og Sam- fylkingu. Lögðu þeir þingmenn, sem mæltu með samþykkt frumvarpsins í gær, áherslu á að ekkert benti til þess, að ólympískir hnefaleikar væra hættulegri en aðrar íþróttir. Hnefaleikar hafa verið bannaðir á Islandi frá árinu 1956 en í framvarp- inu er lagt til að þeir verði lögleiddir og að Ólympíusamband íslands setji reglui- um íþróttina. í greinargerð kemur fram að ólympískir hnefaleik- ar séu keppnisgrein á Ólympíuleikum og hafi verið það lengi. Það hljóti að vera algjört einsdæmi, að ólympísk keppnisgrein sé bönnuð með sér- stakri löggjöf, auk þess sem aðild að Ólympíuleikum feli í sér viðurkenn- ingu á þeim greinum, sem keppt er í á leikunum hverju sinni. í greinargerðinni segir ennfremur, að gera verði skýran greinarmun á ól- ympískum hnefaleikum, þ.e. áhuga- mannahnefaleikum, og atvinnu- mannahnefaleikum. Reglur og öryggiskröfur greinanna séu afar ólíkar, t.d. sé skylt að nota höfuðhlífar í ólympískum hnefaleikum og hver leikur standi í þrjár lotur, í stað 12-15 lotna í atvinnumannahnefaleikum. Stuðningsmenn frumvarpsins lögðu áherslu á það í gær að rann- sóknir sýndu að þótt alvarleg slys væra þekkt í atvinnumannahnefa- leikum væra meiðsl í áhugamanna- hnefaleikum ekki meiri en í öðrum íþróttum. Jafnframt sagði Gunnar Birgisson að það væri mikil tíma- skekkja að ólympískir hnefaleikar skyldu bannaðir á Islandi árið 2000 og kvaðst hann telja það eiga að vera á valdi hvers og eins að ákveða hvaða íþrótt hann stundaði. Ásta Möller þingmaður Sjálfstæð- isflokks sagði atvinnumannahnefa- leika vissulega afar umdeilda. Ólymp- ískir hnefaleikar væra hins vegar allt annars eðlis, ekki væri t.d. um það að ræða, að heilaskaði hlytist af iðkun þeirra, líkt og gjaman væri talið um atvinnumannahnefaleika. Sagði Ásta það niðurstöðu sína að leyfa ætti ól- ympíska hnefaleika á íslandi en halda banninu á atvinnumannahnefaleik- um. Þó mætti athuga hvort rétt væri að setja aldurstakmark við iðkun íþróttarinnar. Andmæli við frumvarpið Katrín Fjeldsted, þingmaður Sjálf- stæðisflokks, hélt ein uppi vömum fyrir núverandi fyrirkomulag við um- ræðurnar í gær og sagði hún m.a., að hafa bæri í huga að hnefaleikar væra óvenjulegir að því leytinu til að þeir væra árásaríþrótt. Taldi hún síst nauðsyn á því á íslandi í dag að lög- leiða árásaríþrótt. Staðreyndin væri jafnframt sú að þótt notaðir væra höfuðhlífar í ólympískum hnefaleik- um gætu höfuðhögg engu að síður valdið áverkum á heila. Vísaði hún m.a. í rannsóknir sem sýndu að lík- legt væri að aukin hætta á Parkinson- og Alzheimer-sjúkdómi fylgdi hnefa- leikum. Taldi hún rétt að lögin stæðu óbreytt þar til óyggjandi niðurstaða fengist um þessi tengsl. Rekstur stofnana á spilakössum Fundnar verði aðrar leiðir ÖGMUNDUR Jónasson, þing- maður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, mælti fyrir þingsályktunartillögu á Alþingi í gær sem felur í sér að ríkisstjórn- inni verði falið að skipa nefnd til að gera tillögur um leiðir til fjáröflun- ar fyrir Háskóla Islands, Rauða krossinn, SÁÁ og Slysavamafé- lagið Landsbjörg sem komið geti í stað tekna af rekstri söfnunar- kassa. Kemur tillaga þessi í kjölfar lagaframvarpa, sem Ögmundur lagði fram á Alþingi fyrir jól, um bann við rekstri á spilakössum. Ögmundur sagði hér á ferðinni þverpólitískt mál sem endurspegl- aðist í því að meðflutningsmenn hans að þingsályktunartillögunni kæmu úr öllum stjómmálaflokk- um sem sæti ættu á Alþingi. Sagð- ist hann jafnframt hafa fengið mikil viðbrögð við lagafrumvörp- um sínum í haust. Ögmundur kvaðst telja að líta ætti á spilakassa sem spilavíti enda væra þeir uppistaða t.d. spilavítanna í Las Vegas í Banda- ríkjunum. Þær upplýsingar komu einnig fram í máli Ögmundar að árið 1998 hefðu 184 verið í meðferð á Vogi vegna sjúklegrar spilafíkn- ar, þar af 74 undir 25 ára aldri. Sagði hann að ekki þyrfti að fjöl- yrða um hörmulegar afleiðingar spilafíknar, ekki aðeins fyrir þá sem ánetjuðust heldur einnig fjöl- skyklur þeirra. Ögmundur sagði reyndar ljóst að spilafíklar væra ekki þeir einu sem ánetjuðust spilakössunum því rekstraraðilar þeirra væra jafn- framt orðnir háðir tekjunum sem af þeim hlytust. í ljósi þess að ýmsar þjóðþrifastofnanir ættu mikið undir þessum tekjum væri því rétt að kanna hvort ekki mætti finna þeim aðrar fjáröílunarleiðir. Vart væri rétt að þær ættu sitt undir ógæfu annarra. Hitt tók Ög- mundur fram að þótt mikilvægt væri að þessi könnun yrði gerð þá teldi hann það ekki forsendu fyrir því að spilakassar yrðu bannaðir.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.