Morgunblaðið - 16.02.2000, Blaðsíða 64
Heimavörn
Sími: 580 7000
Drögum næst
24. febrúar
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMIS691100, SÍMBRÉFS691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIDSLA 5691122, NETFANG: RITSTJISMBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
Islandslíkanið í Ráðhúsinu
Fj öll lagfærð
og sj órinn
gerður grænni
ÞESSA dagana er verið að leggja
lokahönd á viðhaldsvinnu við Is-
landslíkanið, sem staðsett hefur
verið í Ráðhúsi Reykjavíkur frá
árinu 1992. Þeir Sigurður Hall-
dórsson og Eggert Sigurðsson,
starfsmenn Módelsnuði ehf., hafa
siðastliðinn mánuð unnið við að
lagfæra fjöll, jökla og sjó líkansins.
„Við erum bara að fríska aðeins
upp á líkanið," sagði Sigurður.
„Fólk kemur mikið með fingurna í
þetta og þá þurfum við að bletta
og laga fjöll til og síðan hefur sjór-
inn afmyndast svolítið síðustu átta
ár. Plöturnar undir honum hafa
sigið og við höfum verið að sefja
styrkingar undir þær og í leiðinni
gert sjóinn aðeins grænni."
Gert er ráð fyrir að líkanið verði
klárt í lok vikunnar, en þá verða
þeir félagar, Sigurður og Eggert,
búnir að vinna við það í rúman
mánuð.
„Þetta er engin smásmíði," sagði
Sigurður. „Líkanið er um 80 fer-
metrar eða á stærð við meðal-
íbúð.“
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Verið er að fríska upp á Islandslíkanið í Ráðhúsinu, en gert er ráð fyrir því að verkinu Ijúki í lok vikunnar.
Þórhildur Þorleifsdóttir
Dregur um-
sókn til baka
ÞÓRHILDUR Þorleifsdóttir, leik-
hússtjóri Leikfélags Reykjavíkur, til-
kynnti í gær að hún hefði ákveðið að
draga til baka umsókn sína um starf
leikhússtjóra Borgarleikhússins. I
fréttatilkynningu sem Þórhildur
sendi frá sér gagnrýnir hún harðlega
leikhúsráð LR. „Enn einu sinni er
búið að kljúfa Leikfélag Reykjavíkur
í herðar niður og skapa andrúmsloft
þar sem tortryggni og upplausn ríkir
og listrænt starf er að lamast," segir í
yfirlýsingunni.
Ellert A. Ingimundarson, formað-
ur leikhúsráðs, vildi lítið tjá sig um
yfirlýsingu Þórhildar í gær. Hann
sagði að stefnt væri að því að ganga
frá ráðningu leikhússtjóra fyrir helgi.
■ Segir óheilindi/4
Fjölmennur starfsmannafundur Þj óðminj asafns Islands haldinn í gær
Morgunblaðið/Golli
Þór Magnússon þjóðminjavörður, til vinstri, á fundi starfsmannafélags
Þjóðminjasafnsins í gær, en hann sat fundinn í upphafi.
Go, lágfargjaldaflugfélag í eigu British Airways
Hyggst fljúga reglulega
*
til Islands næsta sumar
GO lágfargjaldaflugfélagið, sem er í
eigu British Airways, tilkynnti í
gær að það hygðist fljúga til Is-
lands fjórum sinnum í viku. Flogið
verður frá Stansted-flugvelli
skammt utan London, og mun
fargjaldið kosta frá tæpum 14.000
krónum.
Félagið tilkynnti einnig í gær að
það hygðist bæta við daglegu flugi
til Napólí á Italíu frá sama flugvelli.
Steinn Logi Björnsson, fram-
kvæmdastjóri markaðs- og sölu-
sviðs Flugleiða, segir í samtali við
Morgunblaðið að hjá Flugleiðum sé
litið svo á að ísland sé að verða vin-
sælla sem áfangastaður, en Flug-
leiðir hafi rekið mjög öflugt mark-
aðsstarf í Bretlandi um Island.
„Það hefur ekki farið fram hjá nein-
um í ferðaþjónustu í Bretlandi, og
menn hafa kannski rennt hýrara
auga til þessa markaðar en stærð
hans býður upp á,“ segir Steinn
Logi. Hann sagði að þetta undir-
strikaði að markaðurinn með flug-
ferðir til Islands væri opinn mark-
aður og hingað gætu allir komið, en
athyglisvert væri að fargjöldin sem
Go ætlaði að bjóða væru ekki lægri
en Flugleiðir bjóða.
„Við munum mæta þessari sam-
keppni, en það verður tiltölulega
auðvelt fyrst þeir ætla ekki að und-
irbjóða okkur í verði,“ segir Steinn
Logi.
Yilja að þjóð-
minjavörður
segi af sér
STARFSMENN Þjóðminjasafns ís-
lands samþykktu ályktun á fundi
starfsmannafélagsins í gærdag, þar
sem skorað er á Þór Magnússon
þjóðminjavörð að segja af sér og
gangast við ábyrgð sinni á fjármála-
stjóm safnsins. Fundurinn var hald-
inn vegna mikillar óánægju starfs-
manna með þá ákvörðun þjóð-
minjavarðar, að víkja Hrafni Sig-
urðssyni, fjármáiastjóra safnsins, úr
starfi, en sú ákvörðun var tekin
vegna slæmrar fjárhagsstöðu safns-
ins.
Starfsmenn byggja áskorun sína á
því að samkvæmt stjórnskipulagi
safnsins eigi þjóðminjavörður að
hafa forystu um gerð fjárhagsáætl-
unar og því sé hann ábyrgur fyrir því
að útgjöld séu í samræmi við þann
ramma sem áætlanir setji.
í ályktun starfsmannafélagsins
segir: Akvörðun þjóðminjavarðar að
segja fjármálastjóranum upp á sama
tíma og þjóðminjaráð hefur fjármál
safnsins til sérstakrar athugunar
ber vitni um bráðræði og örvænt-
ingu, því að upplýst er að fjái-mála-
stjóri hefur ekki brotið af sér £
starfi.“
Þór Magnússon sagðist ekkert
hafa um málið að segja og að þau
skrifuðu orð, sem honum hefðu bor-
ist í ályktuninni, yrðu að standa án
hans umsagnar.
■ Skorar á /6
Metviðskipti á markaði
METVIÐSKIPTI voru með hluta-
bréf á Verðbréfaþingi íslands í gær
og námu viðskiptin 1.332 milljónum
ki’óna, sem eru nærri tvöfalt meiri
viðskipti en mest hafa orðið áður á
Verðbréfaþingi. Heildarviðskipti
með hlutabréf í gær námu samtals
2.126 milljónum króna. Viðskipti
með skuldabréf á Verðbréfaþingi
námu 758 milljónum króna og heild-
aiviðskiptin á Verðbréfaþingi námu
því tæpum 2,1 milljarði í gær.
Mest voru viðskiptin á Verðbréfa-
þingi með hlutabréf Landsbanka Is-
lands, eða fyrir 795 milljónir króna.
Ein viðskipti með bréf bankans voru
skráð upp á 100 milljónir króna að
nafnverði á genginu 4,90.
■ Metvelta/20
Maestro
ÞITT FE
HVAR SEM
ÞÚ ERT
Verðá kvóta lækkar
NOKKURS titrings gætir á kvóta-
mörkuðum hérlendis vegna óvissu
um framtíð fiskveiðistjórnunar í
kjölfar Vatneyrardómsins svokall-
aða.
Verulega hefur dregið úr spurn
eftir varanlegum aflaheimildum og
svo virðist sem kaupendur haldi að
sér höndum uns Hæstiréttur hefur
fjallað um mál Vatneyrar BA. Reikn-
að er með að dómurinn falli í lok apr-
fl.
Kvótamiðlarar segja að kvótaeig-
endur séu nú viljugri en áður til að
selja hluta heimilda sinna. Þetta hef-
ur leitt til þess að verð á varanlegum
aflaheimildum hefur lækkað nokkuð
á undanförnum vikum.
I þeim fáu viðskiptum sem átt hafa
sér stað að undanförnu hefur kflóið
af varanlegum þorskkvóta verið selt
á um 850 krónur en verðið fór upp í
1.000 krónur undir lok síðasta árs.
Verð á varanlegum heimildum í
krókakerfinu hefur einnig lækkað úr
560 krónum kílóið í 510 krónur.
Aukið framboð á leigukvóta
A sama tíma og menn halda að sér
höndum í kaupum á varanlegum
aflaheimildum hefur framboð á
leigukvóta aukist. Eftirspurn á
leigumarkaðnum er mun meiri núna
en á sama tíma í fyrra.
■ Óvissa leiðir/Bl