Morgunblaðið - 16.02.2000, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 16. PEBRÚAR 2000 61
tvo, fjogur,
18. febrúar
&tólf
Kvikmyndahúsin
fyrifi
990 PUNKU
FCRDU IBÍÓ
iMajiSki siMMlh siiíSMiHa
EINA BÍÓIÐMEÐ
THX DIGITAl í
ÖLLUM SÖLUM
KRINGLU
Kringlunni 4-6, sími 588 0800
www.samfllm.is
Sýnd meö íslensku tali kl. 4.S0 og 6.55. BŒlDK3tTAL
i.3d, y og 11 .ud. sgnDiGrrAL
■ PIXAR
LÍiiAiIj3SÍ :
ElOECErti
990 PUNKTA ——IIII' Ll'l —1———■
FBRDU I BlÓ Snorrabraut 37, sími 551 1384
www.samfilm.is
Sýnd kl. 4.45, 6.55, 9 og 11.05.
Tilnefningar til Óskarsverðlaunanna kunngjörðar í gær
Amerísk fegurð
fyrst í kapphlaupinu
SVO fór sem fróðir menn
höfðu spáð, „American
Beauty“, gráglettin sýn á líf
fólks í úthverfi Bandaríkjanna,
hlaut flestar tilnefningar til
Óskarsverðlaunanna í ár sem eru
þau 72. í röðinni.
Myndin er tilnefnd til alls átta
verðlauna, þar á meðal sem besta
myndin, leikstjóri hennar, Bretinn
Sam Mendes, sem besti leikstjórinn
og þau Annette Bening og Kevin
Spacey munu bítast um verðlaunin
sem bestu leikarar í aðalhlutverk-
um.
Það var þó mál manna að engin
ein mynd hefði stolið senunni og
hrifsað til sín svo margar tilnefn-
ingar að hún sjálfkrafa teldist lík-
legust til standa upp sem sigurveg-
ari 26. mars þegar sjálf verð-
launaafhendingin fer fram í Los
Angeles, eins og svo oft vill gerast.
Þannig fylgdu tvær myndir fast
á hæla „American Beauty“ með sjö
tilnefningar; „The Cider House
Rules“ eftir sænska leikstjórann
Lasse Hallström og mynd Michacl
Mann „The Insider".
Það sem kom mönnum mest á
óvart var hversu margar tilnefn-
ingar hin geysivinsæla „The Sixth
Sense“ fékk eða alls sex, þar á
meðal sem besta myndin. Fáir
höfðu búist við því að myndin félli
svo vel í kramið þótt mönnum hefði
orðið tíðrætt um að drengurinn
ungi Haley Joel Osment fengi ör-
ugglega tilnefningu, sem varð og
raunin.
Að öðru leyti er sem fyrr fátt
sem kemur verulega á óvart þegar
athugað er hveijir voru kallaðir til.
Hitt kemur hins vegar oftar á óvart,
hverjir ekki eru nefndir til sögunn-
ar. Þannig bjuggust flestir við að
Jim Carrey yrði tilnefndur sem
Hinn 14 ára Haley
Joel Osment fékk
tilnefningu fyrir
frammistöðu sína í
The Sixth Sense.
Þau Kevin Spacey og Annette Bening en
bæði tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir leil
sinn í American Beauty sem hlýtur flestar til
nefningar í ár.
Leikkonurnar ungu Hilary
Swank og Chloe Sevigny eru
báður tilnefndar fyrir frammi-
stöðu sína í Boys Don’t Cry, sú
fyrrnefnda fyrir aðalhlutverkið
og síðari aukahlutverk.
besti karlleikari í aðallhlutverki
fyrir túlkun sína á grínistanum
Andy Kaufmann í myndinni „The
Man on the Moon“. Hann hlaut fyr-
ir stuttu Golden Globe-verðlaunin
sem þótti gefa til kynna að hann
væri búinn að tryggja sér sæti á
verðlaunaafhendingunni. Það kom
hins vegar ekki á daginn og er
þetta annað árið í röð sem gengið
er framhjá honum því í fyrra töldu
margir að hann hefði í það minnsta
átt skilið að vera tilnefndur fyrir
leik sinn í „The Truman Show“. Ef-
laust munu því margir velta því
fyrir sér hvort Carrey sé einfald-
lega ekki í náðinni?
Nú þegar loksins hefur verið til-
kynnt hverjir muni berjast um Ósk-
ar frænda er mönnum ekki til set-
unnar boðið og þegar byijaðir að
spá í spilin. Að vanda þykir sú
mynd sem flestar útnefningar hef-
ur hlotið líklegust til þess að
hreppa flest þau verðlaun sem hún
mun bítast um. Þannig verður
„American Beauty" að teljast lík-
legust til að verða valin besta
myndin og sama á við um tilnefn-
ingarnar í öðrum flokkum. Hins
vegar vilja margir meina að þau
Helstu Öskarsverð-
launatilnefningarnar
Besta myndin
American Beauty
The Cider House Rules •
The Green Mile
The Insider
The Sixth Sense
Besti leikstjórinn
Lasse Halström (The Cider House
Rules)
Spike Jonze (Being John Malkovich)
Michael Mann (The Insider)
Sam Mendes (American Beauty)j9
M. Night Shyamalan (The Sixth Sense)
Besta leikkonan í aöalhlutverki
Annette Bening (American Beauty)
Janet McTeer (Tumbleweed)
Julianne Moore (The End of thé Affair)
Meryl Steep (Music of the Heart)
Hilary Swank (Boys Don’t Cry)
Besti karlleikarinn í aðalhlutverki
Russel Crowe (The Insider)
Richard Farnsworth (The Straight
Story)
Sean Penn (Sweet and Lowdown)
Kevin Spacey (American Beauty)
Denzel Washington (The Hurricane)
Besta leikkonan í aukahlutverki
Toni Collette (The Sixth Sense)
Angelina Jolie (Girl, Interrupted)
Catherine Keener (Being John Malko-
vich)
Samantha Morton (Sweet and
Lowdown)
Cloé Sevigny (Boys Don’t Cry)
Besti karlieikari f aukahlutvcrki
Michael Caine (The Cider House
Rules)
Tom Cruise (Magnolian)
Michael Clarke Duncan (The
Green Mile)
Jude Law (The Talented Mr. Ripley)
Haley Jóel Oament (The Sixth Sense)
Besta handritið byggt á öðru verki
John Irving.fThe Cider House Rules)
Jim Taylor og Alexander Payne (El-
ection)
Frank Darabont (The Green Mile)
Eric Roth og Michael Mann (The Insi-
der)
Anthony Minghella (The Talented Mr.
Ripley)
Besta frumsamda handritið
Paul Thomas Anderson (Magnolian)
Alan Ball (American Beauty)
Charlei Kaufman (Being John Malko-
vich)
Mike Leigh (Topsy-Turvy)
M. Night Shyamalan (The Sixth Sense)
Besta kvikmyndatakan
Conrad L. Hall (Ameriean Beauty)
Roger Pratt (The End of the Affair)
Dante Spinotti (The Insider)
Emmanuel Lubezki (Sleepy Hollow)
Robert Richardson (Snow Falling on
Cedárs)
Besta erlenda myndin
Allt um móður mína (Spánn)
Vagninn (Nepal)
Austur-vestur (Frakkland)
Solomon og Gaenor (EnglandAVales)
Undir sólinni (Svíþjóð)
Besta frumsamda tónlistin
Thomas Newman (American Beauty)
John Williams (Angela’s Ashes)
Rachel Portman (Cider House Rules)
John Corigliano (The Red Violin)
Gabriel Yared (The Talented Mr.
Ripley)
Denzel Washington og Hilary
Swank muni hljóta verðlaunin sem
bestu aðalleikararnir en þau fengu
einmittt bæði Golden Globe-
verðlaunin fyrir frammistöðu sína.
Tom Cruise, annar Goldcn Globe-
hafi, þykir og líklegur til þess að
endurtaka leikinn á Óskar-
sverðlaununum en hann mun mæta
harðri samkeppni frá hinum unga
Osment og Michacl Caine.
Erfiðara þykir mönnum að spá
um líklega vinningshafa úr röðum
leikkvenna í aukahlutverkum en
Samantha Morton hefur síðustu
daga fengið byr undir báða vængi
og þykir hæglega geta hreppt
hnossið.
Þessar getgátur eru þó á byijun-
arreit því menn eiga eftir að velta
sér fram og aftur upp úr því hverj-
ir drekka inunu sigurskál hinn 26.
mars. Nú hefst hörð og vægðarlaus
herferð framleiðenda þeirra
mynda sem til voru kallaðar því
það hefur margsinnis sýnt sig að
Óskarsverðlaunin hafa stórkost-
legt fjárhagslegt gildi fyrir myndir
sem falla jafnan annars í skugga
stærri og útbreiddari mynda.