Morgunblaðið - 16.02.2000, Blaðsíða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Fjölbreytt dag-
skrá Gerðu-
bergs og M-2000
MENNINGARMIÐSTÖÐIN
Gerðuberg stendur fyrir fjölda við-
burða á árinu í samvinnu við Reykja-
vík, menningarborg Evrópu
árið 2000. Nú þegar hafa þar
verið haldnir tónleikar þar
sem flutt voru einsöngslög
ef'tii' Sveinbjöm Svein-
björnsson en samtímis
kom út geisladiskur með
lögunum í flutningi söngvar-
anna Signýjar Sæmundsdóttur
og Bergþórs Pálssonar við píanó-
undirleik Jónasar Ingimundarsonar.
Níu myndir frá hverri hinna
níu menningarborga Evrópu
I Gerðubergi stendur nú yfir yfir-
litssýning á verkum myndlistarkon-
unnar Önnu Líndal en sýningin var
sett upp í tengslum við Sjónþing
Önnu sem þar var háð um síðustu
helgi.
I júní nk. verður tékkneska lista-
konan Hana Jakrlova-Kirkpatrick,
gestur Gerðubergs, en þá verður
opnuð ljósmyndasýning hennar,
þar sem gefur að líta níu myndir frá
hverri hinna níu menningarborga
Evrópu. Hún hefur ferðast til allra
borganna og tekið myndir en í
kynningu frá Gerðubergi segir að
Hana minni á að þó að Evrópulönd-
in eigi margt sameiginlegt þá sé
mikilvægt að þau haldi í sérkenni
sín. Hún vinni bæði með jöfnuð og
mismun manna og hve umburðar- lagsstarfinu.
lyndi þeirra á milli skipti miklu
máli.
Bananaopnari og laukgleraugu
Samnorræna hönnunarsýn-
ingin Fantasi Design verður
opnuð í Gerðubergi 1. setember
í haust en þar má sjá hönn-
un bama og unglinga frá
öllum Norðurlandaþjóðun-
um. Sýningin hefst í Kalmar í Sví-
þjóð í apríl og verður á ferð um
Norðurlöndin á menningarárinu.
Meðal forvitnilegra hluta sem þar
verða til sýnis má nefna gripi á borð
við Bakteríusímann frá Danmörku,
Ferðastólinn frá Finnlandi, Banana-
opnarann frá Svíþjóð og Laukgler-
augun frá íslandi.
A haustdögum hefst í Gerðubergi
samvinnuverkefni Félags- og þjón-
ustumiðstöðva aldraðra í Reykjavík,
Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur og
félagsstarfs Menningarmiðstöðvar-
innar Gerðubergs, undir yfirskrift-
inni Kynslóðirnar mætast. Frá miðj-
um september munu börn úr
Ölduselsskóla koma í heimsókn í fé-
lagsstarfið í Gerðubergi í hverri viku
og taka þátt í verkefnum með öldr-
uðum í vinnustofum. Leiðbeinendur
félagsstarfsins verða til stuðnings og
markmið félagsstarfsins og námskrá
skólans höfð að leiðarljósi. Laugar-
daginn 25. nóvember verður svo opið
hús með fjölbreyttri dagskrá í fé-
Nokkrir fulltrúar Heimskórs æskunnar.
Heimskór æsk-
unnar til Spánar
sumarið 2000
I SUMAR mun Heimskór æskunn-
ar hittast á Spáni 15. júlí og æfa í
Altea í tvær vikur. Síðan mun kór-
inn verða á tónleikaferðalagi í
bækur
Ljóðasvig 1 er
eftir Stefán J.
Fjólan, en Stefán
hefur sent frá sér
nokkrar Ijóða-
bækur á undan-
förnum árum.
Ljóðasvig er
176 síður og
geymir fjölda
ljóða. Ljóðin sem
yfirleitt eru stutt
eru þéttprentuð.
Stefán J. Fjólan yrkir um lífið og
dauðann, hversdagslífið, tunguna og
atvinnulífið og margt annað og er
ádeilugjam í mörgum ljóða sinna.
Höfundur er útgefandi.
aðrar tvær vikur á Spáni og
Baleareyjum. Stjórnendur kórsins
í sumar verða Peter Erdei frá
Ungverjalandi og Paul Smith frá
Bandaríkjunum. Kórfélagar verða
sjálfir að bera kostnað af ferðinni
milli heimalands og Alicante á
Spáni. íslenskum kórsöngvurum á
aldrinum 17-26 ára gefst kostur á
að þreyta inntökupróf í kórinn í
byrjun mars. Þorgerður Ingólfs-
dóttir kórstjdri veitir nánari upp-
lýsingar.
Heimskór æskunnar (World
Youth Choir) var stofnaður árið
1989. Kórinn hefur starfað einn
mánuð á hverju sumri og alltaf á
ólíkum stöðum í heiminum. Kórfé-
lagar eru 96 talsins á aldrinum
17-26 ára og eru valdir úr hópi
þúsunda umsækjenda hvaðanæva
úr heiminum. Þeir þurfa að hafa
mjög góða kunnáttu i nótnalestri
og raddbeitingu ásamt reynslu í
kórsöng og kórstarfi. Nokkrir ís-
lenskir kórsöngvarar hafa við
góðan orðstír sungið með Heims-
kór æskunnar.
Nýiar
Stefán J.
Fjólan
Úr gamanleiknum Spanskflugan sem Leikdeild UMF Biskupstungna frumsýnir í Aratungu á föstudag.
Spanskflugan
í Aratungu
LEIKDEILD Ungmennafélags
Biskupstungna frumsýnir gaman-
leikinn Spanskfluguna í Aratungu
föstudaginn 18. febrúar kl. 21.
Höfundar Spanskflugunnar eru
þýskir leikarar, Arnold og Bach.
Þeir félagar voru afkastamiklir og
leikrit þeirra þekkt víða um heim,
en hraði og léttleiki eru ein-
kennandi fyrir stíl þeirra. Spansk-
flugan mun vera fyrsta leikritið eft-
ir Arnold og Bach, sem sýnt var hér
á landi og hefur hún verið sýnd víða
um land. Höfundarnir lýsa þeim
sem sigla undir fölsku flaggi, eru
með nefið niðri í annarra manna
högum og halda á lofti slúðursög-
um, til þess að beina athyglinni frá
sjálfum sér.
Leikstjóri er Björn Gunnlaugs-
son, aðstoðarleikstjóri í Þjóðleik-
húsinu. Björn er nýfluttur heim til
íslands eftir langa dvöl erlendis,
síðastliðin fimm ár bjó hann í Lon-
don og starfaði við leikhús vítt og
breitt um Bretland. Hann lærði
leikstjórn í Bandaríkjunum og
Bretlandi, en leikhúsfræði í Sví-
þjóð.
Á undan sýningum verður boðið
upp sérstakan leikhúsmatseðil í
Aratungu með léttum réttum.
Sýningar verða alls 11. Önnur
sýning verður sunnudaginn 20.
febrúar, þriðja sýning miðvikudag-
inn 23. febrúar, fjórða sýning föstu-
daginn 25. febrúar.
----------------
Sýningu lýkur
Gallerí Sævars Karls
SÝNINGU Önnu Líndal í Galleríi
Sævars Karls í Bankastræti lýkur á
morgun, fimmtudag.
Rodin
áflóa-
markaði
Fort Myere, Flórída. Reuters.
JOAN Comey-Smith á Flórída
datt heldur betur í lukkupott-
inn þegar hún keypti teikningu
eftir franska myndhöggvarann
Auguste Rodin á flóamarkaði á
140 krónur.
Teikninguna, sem er af dans-
ara, keypti Comey-Smith fyrir
einu og hálfu ári. Myndin er
gerð með vatnslitum og bleki
og var hún í gömlum og slitnum
ramma, en merkt A. Rodin.
Comey-Smith kvaðst þó hafa
haft uppi efasemdir um upp-
runa verksins í íyrstu - að það
væri raunverulega teikning eft-
ir Rodin. Fyrir 140 krónur hafi
verðið hins vegar verið of gott
til að kaupa myndina ekki.
Sterk saga af hetju
KVIKMYIVDIR
L a u g a r á s b í ó
THE INSIDER
★ ★★%
Leikstjóri: Michael Mann. Handrit:
Mann og Eric Roth eftir blaðagrein
Marie Brenner. Aðalhlutverk:
Russell Crowe, A1 Pacino, Diane
Venora, Debi Mazar og Christo-
pher Plummer. Touchstone
Pictures 1999.
THE Insider er margslungin
kvikmynd um eitt stærsta réttar-
mál í bandarískri sögu, um græðgi
og sjálfsupphafningu, um pólitík.
En það sem mér fannst skemmti-
legast við þessa mynd var mann-
legi þátturinn. Sagan af hetjunni.
Mér finnst svo frábærar svona
hetjusögur þar sem venjulegt fólk
stendur upp á móti öllu og öllum
til að tryggja það að sannleikurinn
og réttlætið nái fram að ganga.
I þessari sannsögulegu mynd er
sagt frá Jeffrey Wigand, vísinda-
manni hjá tóbaksfyrirtæki sem,
eftir að hafa verið rekinn fyrir
samstarfsörðugleika, hættir á að
fara í fangelsi og að konan fari frá
honum með börnin til að segja frá
því í fréttaþættinum 60 mínútur að
sígarettuframleiðendur sætu á
upplýsingum um skaðsemi tóbaks
og settu vísvitandi aukaefni í síg-
arettur til að gera þær ávanabind-
andi.
Russell Crowe leikur dr. Wigand
svo vel, á svo hógværan, áhrifarík-
an og sannfærandi hátt að mér leið
nákvæmlega eins og honum og var
við það að fá taugaáfall í sætinu
mínu. Ég hef enga trú á því að
þessi mynd hefði verið nærri því
jafnsterk ef svo góðra leikara hefði
ekki notið við því spennan og
krafturinn liggur í sálarlífi pers-
ónanna en ekki þétt skipaðri at-
burðarrás, og það gerir myndina
enn áhugaverðari.
A1 Pacino stendur sig ekki síður
með ágætum í hlutverki Lowells
Bergman, fréttastjórans sem fær
Wigand til að segja frá, og það er
gaman að sjá hann í hlutverki
„venjulegs" náunga. Christopher
Plummer leikur skemmtilega hinn
sjálfsánægða Mike Wallace, og til-
breyting að sjá þennan virtúósa í
góðri mynd. Debi Mazar, sem
ávallt leikur glyðru, fær hér al-
varlegt en lítið hlutverk sem gefur
nýja sýn á þessa leikkonu. Diane
Venora hefur ekki verið áberandi í
gegnum tíðina, en alltaf traust, og
hún er mjög sannfærandi sem eig-
inkona Wigands sem líður varla
betur en honum á þessum harka-
lega vendipunkti í lífi þein-a.
Fyrri helming myndarinnar er
einblínt á Jeffrey, sálarkreppu
hans, valkreppu og vandasömu að-
stöðu. í seinni helmingnum er síð-
an einblínt á pólitískari og siðferð-
islegri hlið málsins; það að einn
virtasti fréttaþáttur í heimi hafi
ætlað að láta peninga ráða því
hvort þeir sýndu eitt af mikilvæg-
ari fréttaskoti aldarinnar eða ekki.
Maður vill auðvitað að þar sigri
réttlætið, en saknar samt Jeffreys
sem maður var búinn að fá svo
mikla samúð með, og er algjörlega
orðinn „okkar maður“. Hvernig
hans mál eru gerð upp í lokin er
hálfendasleppt, og fyst höfundarn-
ir voru að dramatísera myndina
fyrir hvíta tjaldið hefði mátt hnýta
betur um hnútana hans Jeffreys.
Kvikmyndatakan öll er mjög í
ætt við heimildamyndatöku og
myndavélin sífellt á hreyfingu.
Mér fannst það allt í lagi, en stöð-
ug nærmynd af öllum persónunum
fannst mér öllu óþægilegri. Áreitn-
in verður enn meiri fyrir vikið og
það er vart á það bætandi í þessari
sterku mynd sem plantar hnút í
magann á manni sem ekki losnar
um fyrr en þremur tímum seinna.
Hildur Loftsdóttir