Morgunblaðið - 16.02.2000, Blaðsíða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Deilur blossa upp meðal samstarfsmanna Hugos Chavez, forseta Venesúela
Ásakanir um
víðtæka fj ár-
málaspillingu
Caracas. AP.
Reuters
Hugo Chavez, forseti Venesúela, fagnar átta ára afmæli valdaránstil-
raunar sinnar á útifundi í Caracas fyrir skömmu.
MISKLÍÐ er komin upp milli Hug-
os Chavez, forseta Venesúela, og
fyrrverandi yfirmanns leyniþjón-
ustunnar, Jesus Urdanetas. Hinn
síðarnefndi sagði í liðinni viku í
auglýsingu, sem hann birti í dag-
blöðum, að fyrirtækjum í eigu öfl-
ugra stuðningsmanna forsetans
hefði verið hyglað í útboðum á
verkefnum fyrir ríkið. Þrír fyrrver-
andi herforingjar og gamlir stuðn-
ingsmenn forsetans segja að hætta
sé á að stjórn Chavez svíki fyrirheit
um að gerbylta samfélaginu.
Tobias Carrero, sem lengi hefur
stutt Chavez með fé og veitt honum
pólitíska ráðgjöf, sagði um helgina
að ásakanirnar væru liður í herferð
sem hefði að markmiði að grafa
undan „friðsamlegri byltingu" for-
setans. Hann sagði að andstæðing-
arnir beittu aðferðum hryðjuverka-
manna, væru vel skipulagðir og vel
fjáðir.
Nefnir 46 dæmi
Áðurnefndur Urdaneta nefndi 46
dæmi um meinta fjármálaspillingu
stjórnvalda og hefur kært málin til
ríkissaksóknara. Segir hann meðal
annars að tryggingafyrirtæki hafi
fengið þjónustusamninga með
óeðlilegum hætti, einnig hafi fyrir-
tæki sem Carrero á hlut í fengið
einkaleyfi á að prenta nýja stjórn-
arskrá í milljón eintökum. Carrero
segir að um fullkomlega heiðarleg
útboð hafi verið að ræða.
Einnig hefur Urdaneta sakað for-
setann um að hindra að yfirvöld
gætu rannsakað bækistöð stjórn-
málasamtaka Chavez, Hreyfingu
fimmta lýðveldisins. Grunur lék á
að þar væru geymd vopn sem Chav-
ez notaði í uppreisn sem hann stóð
fyrir árið 1992.
Forsetinn tjáði sig í fyrsta sinn
um öll þessi mál í sjónvarpsávarpi
sl. föstudag, sagði að um ósannindi
væri að ræða en allar ásakanirnar
yrðu rannsakaðar.
Takist Urdaneta að sanna mál
sitt yrði um mikið áfall að ræða fyr-
ir forsetann vegna þess að barátta
gegn spillingu var eitt helsta kosn-
ingamál hans er hann náði kjöri ár-
ið 1998. Fátækt er mikil í Venes-
úela þrátt fyrir geysimiklar
olíulindir og er spillingu einkum
kennt um.
Svo mildl er heiftin orðin vegna
spillingarinnar að tveir stjórnmála-
flokkar, sem skiptu með sér völdum
i landinu í um 40 ár, hafa hrunið og
má heita að engin virk stjórnar-
andstaða sé í landinu. Klofningur
vegna meintrar spillingar í röðum
stjórnarsinna gæti breytt stöðunni,
að sögn stjórnmálaskýrenda og gef-
ið andstöðuöflum byr í seglin.
Chavez var áður foringi í hernum
og hefur verið sakaður um að bera
litla virðingu fyrir lýðræði. Þrír
fyrrverandi liðsmenn hans í valda-
ránstilraun hersins 1992 eru ósáttir
við stefnu hans núna og segja að
ekki fari fram nein lýðræðisleg um-
ræða um stjórnarstefnuna í flokki
forsetans.
„Forsetinn er umkringdur þjón-
um sem einfaldlega lúta höfði og
segja „Já, herra“,“ sagði einn
þeirra, Yoel Acosta Chimos, fyrr-
verandi ofursti, í samtali við dag-
blaðið E1 Nacional á sunnudag.
Mario Ivan Carratu Molina, fyrr-
verandi flotaforingi, kom þáverandi
forseta, Carlos Andres Perez, í ör-
uggt skjól er Chavez og menn hans
reyndu að ræna völdum 1992. Mol-
ina segir að innanbúðardeilurnar
séu upphafið að endinum á stjórn-
artíð Chavez. Fréttaskýrandi á
dagblaði sagði að forsetinn ætti um
tvo kosti að velja, höggva af hægri
höndina eða þá vinstri.
Blásýrumengunin
í Mið-Evrópu
Undir-
búa mál-
sókn
Belgrad, Búdapest. Heuters, AFP.
UMHVERFISRÁÐHERRA
Serbíu, Branislav Blazic, sagði í
gær, að magn blásýru sem
streymdi í Dóná á sunnudag
hefði á tímabili verið 130 sinnum
yfir leyfilegum mörkum. Hann
sagði jafnframt að höfða ætti
mál gegn eigendum gullnámu í
Rúmeníu, þaðan sem blásýra
lak í eina af þverám Dónár,
Tisza, um síðustu mánaðamót.
Lífríki Tisza hefur orðið fyrir
gífurlegum skaða af völdum
mengunarinnar og er talið að
um 80% af öllum lííverum árinn-
ar hafi drepist. Serbneski um-
hverfisráðherrann sagði hins-
vegar, að mjög hefði dregið úr
mengun í Dóná, sem er stærsta
fallvatn Evrópu.
Ungversk stjómvöld óskuðu í
gær eftir alþjóðlegri aðstoð við
að glíma við afleiðingar meng-
unarslyssins, bæði efnahagsleg-
ar og umhverfislegar. Ungveij-
ar hafa einnig, líkt og Serbar,
sagt, að þeir hafi í hyggju að
stefna því fyrirtæki sem ber
ábyrgð á mengunarslysinu og
séu að kanna möguieika í því
sambandi. Fyrirtækið, sem not-
ar blásýru til að vinna gull úr
bergi, er að hálfu í eigu ástr-
alska námafyrirtækisins Esm-
eralda Exploration Ltd.
Framleitt fyrir framtíöina
- fæst í dag.
Að aftan og framan, frá byrjun til enda. Beovision 1
fæst núna í 6 fallegum litum með einstakri mattri
áferð sem þekur alla fleti.
Beovision 1 - ný upplifun í sjónvarpi.
Beovision 1 með standi frá: 185.400,-
BANG & OLUFSEN
Síðumúli 21. Reykjavík.
Sími. 581 1100
t
j
L
I
I