Morgunblaðið - 16.02.2000, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 2000 27
ERLENT
AP
Nokkuð hefur borið á mótmælum við fundarstað Sameinuðu þjóðanna í Bangkok en þau hafa verið friðsamleg.
Kona úr hópi mótmælenda sýnir hér lögreglu tennur sínar.
Varað við skipbroti
hnattvæðingarinnar
Bangkok. AP, AFP.
HNATTVÆÐING efnahagslífsins
mun rata í ógöngur fái hinir fátækari
í heiminum ekki í ríkari mæli að
njóta ávaxta hennar. Þessi viðvörun-
arorð komu frá framkvæmdastjóra
Alþjóðavinnumálastofnunarinnar
(ILO), Juan Somavia, á ráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna um viðskipti og
þróun í heiminum, UNCTAD, í Taí-
landi í gær.
Somavia sagði að þær alþjóða-
stofnanir sem stunduðu fjármála-
umsýslu, s.s. Alþjóðabankinn og Al-
þjóðagjaldeyrissjóðurinn, IMF, yrðu
að leggja meiri áherslu á að fjár-
magn skapaði rauverulegan hagvöxt
í ríkjum heimsins. Hann varaði við
því að fólk myndi rísa upp gegn hinu
opna hagkerfi ef það sæi engan
ávinning af því að viðhalda slíku
kerfi. Hnattvæðingin hefði lagt í rúst
hefðbundinn iðnað og með því skap-
að umframvinnuafl sem ekki nýttist í
hátæknigreinum. Ennfremur réðst
Somavia á þróuð ríki fyrir að halda
því stöðugt fram að markaðurinn
gæti leyst vandamál þróunarríkja,
en neita á sama tíma þessum ríkjum
um aðgang að mörkuðum sinum.
Tillögur stranda á
andstöðu Vesturlanda
UNCTAD-ráðstefnan er nú haldin
í tíunda sinn og að þessu sinni í
Bangkok, höfuðborg Taflands. Full-
trúar um 190 ríkja sækja ráðstefn-
una og þar hafa þróunarlönd gagn-
rýnt ríkari þjóðir harðlega fyrir að
vilja ekki deila með sér ávöxtum
hnattvæðingarinnar. Vonir voru
bundnar við að ráðstefnan sam-
þykkti tillögur um nýtt fyrirkomulag
heimsviðskiptamála, sem ekki tókst
að afgreiða á fundi Heimsviðskipta-
stofnunarinnar (WTO) í Seattle í
fyrra. Hermt er að vonirnar hafi
strandað á andstöðu Bandaríkjanna
og Evrópusambandsins, sem vilji að
málið verði afgreitt innan WTO.
Kofi Annan, framkvæmdastjóri
SÞ, og Michel Camdessus, yfirmað-
ur IMF, hafa á ráðstefnunni hvatt til
þess að „gefið verði upp á nýtt“
þannig að fátækari ríki fái aukinn
skerf af auðæfum heimsins. Mike
More, forstöðumaður WTO, hefúr
tekið í sama streng og lagt til að inn-
flutningshindranir á framleiðsluvör-
um 48 af fátækustu ríkjum jarðar-
innar verði afnumdar.
Clara Kringlunni, Sara Bankaslræti, Lyfja Lágniúla, Lyfja Setbergi, Lyfja Haniraborg,
Hagkaup Kringlunni, Hagkaup Smáranum,
Snyrtistofan Hrund, Grænatúni, Gullbrá Nóatúni, Amaró, Akureyri, Apótek Keflavíkur.
Nú einnig fyrir augu
Ný lyfting - nýtt líf
Estée Lauder kynnir
Resilience Li
; L * ■*» *
Eye Creme
r
lEgOEEtldWBMR
MimaUVl
Nú getur þú einnig fengið hið fræga Resilience Lift fyrir augu. Njóttu þess að horfa á færri línur, sléttara
og fastmótaðra augnsvæði, geislandi af nýju lífi. Þetta léttkennda, afar virka augnkrem sér um það.
Notaðu það ásamt Resilience Lift kremi fyrir andlit og háls frá Estée Lauder og þú getur glaðst yfir yngra
og ferskara útliti.
Resilience Lift Eye Creme 15 ml. kr. 3.315
Resilience Lift Face og Throat Creme 30 ml. kr. 4.050 og 50 ml. kr. 5.735
Resilience Lift Face and Throat Lotion 50 ml. kr. 5.735
Of auðveldur
spurningaleikur
Los Angeles. Reuters.
BRESKT tryggingafélag sem
vátryggir spurningaleikinn
„Who Wants to Be a Million-
aire“, eða Hver vill verða millj-
ónamæringur, sem sýndur er á
sjónvarpsstöðinni ABC, leitar
nú leiða til losna undan skuld-
bindingum sinum þar sem
spurningaleikurinn sé of auð-
veldur.
Yfirmenn ABC-stöðvarinnar
hafa sagst ekki munu breyta
neinu, en þátturinn nýtur gífur-
legra vinsælda í Ameríku.
Tryggingafélagið, Goshawk
Syndicate, fór hins vegar í mál
við stöðina fyrir breskum dóm-
stólum í síðustu viku. Félagið
yrði fyrir „óviðundandi tapi“
þar sem stjórnendur þáttarins
neituðu að þyngja spurningar
sfnar.
9:20
9:30
12:00
við upphaf nýrrar aldar
Mæting - afhending fundargagna
Iðnþing sett
Haraldur Sumarliðason, formaður
Upplýsingatækni- og þekkingariðnaður á íslandi
Möguleikar við upphaf nýrrar aldar?
Hreinn Jakobsson, forstjóri, Skýrr hf.
Guðmundur Óskarsson, verkfr., Hugvit hf.
Friðrik Sigurðsson, forstjóri, Tölvumyndir hf.
Gunnar Ingimundarson, framkv.stj., Hugur hf.
Gestir Iðnþings boðnir velkomnir
Haraldur Sumarliðason, formaður
Hádegisverður í boði Samtaka iðnaðarins
Margmiðlunarkynning á nokkrum verkefnum á vegum SI
Ræða formanns SI, Haraldar Sumartiðasonar
Ræða iðnaðarráðherra, Vatgerðar Sverrisdóttur
Opnun vefs um iðnað fyrir ungt fólk - idhiatUriiá;
Iðnaðarráðherra opnar vefinn formlega
Notendur upplýsingatækninnar
Hvemig nota iðnfyrirtækin upplýsingatæknina í sínu starfi?
Ari Arnatds, forstj., Verk- og kerfisfræðistofan hf.
Eysteinn Haraldsson, verkfr., íslenskir aðalverktakar hf.
Magnús Ingi Stefánsson, forst.m. upptýsingasviðs, Mjólkursamsatan
Ásgeir Ásgeirsson, forst.m. upplýsingatæknideildar, Marel hf.
Guðbrandur Magnússon, framl.stj., Morgunbtaðið
16:00 Aðalfundarstörf
17:00 Þingslit
<§)