Morgunblaðið - 16.02.2000, Page 31

Morgunblaðið - 16.02.2000, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 2000 31 LISTIR Ógæfusöm kóngsdóttir LEIKLIST Geisladiskur THE SEA-KING’S DAUGHTER Eftir George Mackay. Leikstjórn: David Gray. Leikendur: Bergljdt Arnalds, Michael Elder, Marilyn Gray, Sheila Latimer, Julie Goombe, Sheila Donald, Norman Fraser, John Maclsaac. Stjóm upptöku: David Gray og Marillyn Gray. Framleiðandi: The Saltire Society Scotland. Dreifíng Japis. Þetta er dapurleg saga um litla prinsessu sem send var yfir hafið frá Noregi til Skotlands til að giftast prinsinum af Wales. Sagan er göm- ul, en vel þekkt í Skotlandi, því hún gerist árið 1290 og segir frá ferð Margrétar drottningar, sjö ára, yfir Norðursjóinn til að heimta arf sinn, skosku krúnuna eftir afa sinn, Al- exander III. Henni var svo ætlað að ganga í hjónaband við enska prins- inn til að sameina konungdæmin tvö. Margrét komst aldrei alla leið heldur lést á leiðinni yfir hafið og hafði þó, í meðförum hins ork- neyska sagnaskálds George Mackay Brown, upplifað frelsið á hafinu, laus frá skyldum sínum við norsku hirðina, bamslega glöð yfir því ævintýri sem í vændum var, allt- of ung til að gera sér grein fyrir hvað í því fólst og auðvitað alltof ung til að ganga hjónaband, ef nútíma- skilningur er lagður í slíkan gjöm- ing. Sagnaskáldið George Mackay Brown (1921- 1996) verðskuld- ar nokkra frá- sögu þar sem hann er óþekktur hérlendis en lagði ávallt í verkum sínum mikla áherslu á að viðhalda þeim fomu sögnum af tengslum norð- ureyjabúa við nágrannana norðri og bjó sjálfúr lengst af ævi sinnar í fæð- ingarbæ sínum, Straumnesi á Orkn- eyjum. Eftir hann liggja skáldsög- ur, smásögur, leikrit og ljóð og ein þekktasta skáldsaga hans er Beside the Ocean of Time, sem hann hlaut skosku bókmenntaverðlaunin fyrir árið 1994. The Sea-king’s Daughter er sögulegur Ijóðleikur og framúrskar- andi vel fluttur af völdum hópi skoskra leikara ásamt Bergljótu Amalds sem leikur hina bamungu drottningu. Hljómfall bragsins og afgerandi framburður hinna skosku leikara gera Bergljótu að sumu leyti erfitt fyrir, greinilegt er að hún kemur úr annarri átt með framburð sinn. Það kemur þó ekki verulega að sök þar sem Bergljót hefur sterka tilfinningu fyrir pers- ónunni og nær vel að túlka barnslega forvitni og gleði hinnar sjö ára stúlku og dapurleg endalok hennar. Michael Elder er í hlut- verki sögumannsins, hann hefur frábært vald á rödd sinni og textanum og fyrir þá, sem hafa ánægju af fal- legum enskum texta sem hefur aðrar áherslur en hið daglega ameríska brauð, er þetta hreint eymakonfekt að hlýða á. í raun hefur þetta alla kosti vel samins og unnins útvarpsleikrits, hljóðmyndin er skýr og svipmikil, ferðin yfir hafið í opnu skipi verður ljóslifandi fyrir áheyrandanum og er studd af seiðandi tónlist eftir Corrina Hewat. Það er greinilegt að vel hefur verið vandað til þessarar upptöku á öllum sviðum og minn- ingu eyjaskáldsins George Mackay Brown er góður sómi sýndur með henni. Hávar Sigurjónsson Tónlistar- deild Lista- háskólans kynnt SÍÐASTI kynningarfundur Félags um Listaháskóla Islands að sinni, um framtíðarskipulag Listaháskóla Islands, verður í kvöld, miðviku- dagskvöld, kl. 20.30 í fyrirlestrar- sal Listaháskólans í Laugarnesi. Að þessu sinni munu Ámi Harðarson og Mist Þorkelsdóttir kynna tillög- ur sínar að uppbyggingu tónlistar- deildar skólans. f fréttatilkynningu segir að allt áhugafólk um listmenntun á há- skólastigi sé hvatt til þess að mæta, einkum er þess vænst að tónlistar- menn láti sig málið varða og taki þátt í umræðum. Súrefnisvörur Karin Herzog * Vita-A-Kombi olía Bergljót Amalds Ieikari. Tk bilan betní notaðin bílan ViPka daga 9-18 Laugardag 10-16 TILBOÐSDAGAR A VETRARSTANDSETTUM BILUM Kr. 790.000,- Kr. 1.690.000,- Kr. 690.000-, Kr. 1.150.000,- MMC Lancer GLXi Nýskr. 05.1993, 1600cc, 4 dyra, 5 gfra, rauður, ekinn 98 þ. Skrnr. NZ-385 Hyundai Accent Glsi Nýskr. 03.1995, 1500cc, 4 dyra, sjálfskiptur, grænn, ekinn 58 þ. Skrnr. OK-041 Hyundai Elantra Wagon GT Nýskr. 04.1996, 1800cc, 5 dyra, 5 gíra, v.rauður, ekinn 55 þ. Skrnr. TZ-844 Renault Express 1.4 Nýskr. 11.1997 (árg. 1998), 1400cc, 4 dyra, 5 gíra, hvltur, ekinn 25 þ. Skrnr. SB-500 Suzuki Baleno GL Nýskr. 09.1995, 1300cc, 4 dyra, 5 gíra, d.grænn, ekinn 62 þ. Skrnr. VS-787 Grjóthálsi 1 • 575 1230 Kr. 350.000,- MMC Colt GLX Nýskr. 09.1998, 1500cc, 3 dyra, 5 glra, hvltur, ekinn 161 þ. Skrnr. JM-381 Kr. 390.000,- Hyundai Pony Lsi Nýskr. 05.1993, 1300cc, 3 dyra, 5 glra, rauður, ekinn 101 þ. Skrnr. VZ-546 MMC Spacewagon Nýskr. 11.1996, 2000cc, 5dyra, sjálfskiptur, grænn, ekinn 74 þ. Skrnr. KY-586 Kr. 860.000,- Renault Mégane Berline RN Nýskr. 103.1996, 1400cc, 5 dyra, 5 gíra, silfurgrár, ekinn 55 þ. Skrnr. YD-181 Kr. 690.000,- Hyundai Atos Nýskr. 03.1999, 1000cc, 5 dyra, 5 gfra, blár, ekinn 14 þ. Skrnr. PP-843 Kr 1.190.000,- Daewoo Nubira SX Nýskr. 05.1998, 1600cc, 5 dyra, 5 gíra, rauður, ekinn 30 þ. Skrnr. TE-785 Hyundai Sonata Glsi Nýskr. 03.1994, 2000cc, 4 dyra, 5 gíra, hvltur, ekinn 108 þ. Skrnr. DA-863 Kr. 790.000,- Kr. 690.000-, Kr. 990.000,-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.