Morgunblaðið - 16.02.2000, Side 32

Morgunblaðið - 16.02.2000, Side 32
32 MIÐVIKUDAGUR 16. PEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. REKSTUR OG ÞJÓNUSTA SJÚKRAHÚSANNA MÁLEFNI sjúkrahúsanna í Reykjavík hafa verið í stöðugri umræðu og endurskoðun síðustu einn til tvo áratugi. Ekki sízt hefur hún snúizt um það, hvort sameina ætti Landspítalann og Sjúkrahús Reykjavíkur (áður Borgarspítalann) í eitt stórt, ríkisrekið hátækni- sjúkrahús, en það var tillaga erlends ráðgjafarfyrirtæk- is. Sú sameining hefði í för með sér sparnað fyrir lands- menn og tryggði læknum beztu aðstöðu og aðgang að nýjustu hátækni í læknavísindum. Ráðgjafarfyrirtækið taldi enga þörf á því fyrir jafn fámennt þjóðfélag og það íslenzka, að reka tvö hátæknisjúkrahús vegna mikils kostnaðar. Um það bil áratug síðar og eftir ýmsar kúvendingar í málefnum sjúkrahúsanna í höfuðborginni, m.a. með sam- einingu Landakotsspítala og Borgarspítala, verður ekki betur séð en að unnið sé að sameiningu stóru sjúkrahús- anna nú um stundir. Allavega er það stefnumörkunin en talsvert vatn á eftir að renna til sjávar áður en samein- ingunni verður endanlega komið á. Að undanförnu hefur læknastéttin látið til sín heyra um málefni nýja, sameinaða spítalans. I fyrsta lagi hafa komið fram hugmyndir um, að hann verði ekki aðeins sjúkrahús til lækninga heldur einnig háskólastofnun, há- skólasjúkrahús, þar sem fram fari kennsla og rannsókn- arstörf. Með þessari skipan er ætlast til, að Háskóli ís- lands komi að rekstrinum og greiði hluta hans. Ástæðan er sú, að fjárveitingum til grunnrannsókna er ábótavant eins og kom fram í viðtölum hér í blaðinu við prófessora læknadeildar nýlega. Sumir þeirra gera ráð fyrir, að at- vinnulífið og áhættufjárfestar leggi fé í auknum mæli til grunnrannsókna á næstu árum og hvatti Morgunblaðið tilþíess í leiðara í kjölfarið. I öðru lagi sendu Læknafélag íslands og Læknafélag Reykjavíkur frá sér sameiginlega yfirlýsingu fyrir helg- ina, þar sem þeirri skoðun er lýst, að nauðsynlegt sé að mörkuð verði opinber stefna í sameiningarferli spítal- anna, sem þegar sé í gangi. Lýsa læknafélögin þeirri skoðun sinni, að núverandi húsnæði spítalanna sé óhent- ugt til sjúkrahúsreksturs og að stefna beri að byggingu nýs sjúkrahúss, sem rúmi starfsemi Landspítala og Sjúkrahúss Reykjavíkur. Hvað sem segja má um þá tillögu læknafélaganna, að ný bygging sé æskileg fyrir sameinaða starfsemi sjúkra- húsanna, þá hefur framtíðarskipan þessara mála komizt á dagskrá á nýjan leik. Það er aðeins af hinu góða, að vit- ræn umræða fari fram í landinu um hvað sé bezt og hag- kvæmast fyrir landsmenn í þessum efnum og sem tryggi öllum aðgang að þeirri miklu byltingu sem þegar er orðin og er fyrirsjáanleg í meðferð og lækningu sjúkdóma. í þeim efnum má ekki láta hagsmunagæzlu heilbrigðis- stétta villa um fyrir forustumönnum þjóðarinnar heldur taka mið af þörfum fólksins til langrar framtíðar. Morgunblaðið hefur um árabil hvatt til þess, að mótuð verði langtímastefna í málefnum sjúkrahúsanna í Reykjavík, en þar verði gengið út frá því, að allir eigi jafnan aðgang að þjónustu þeirra, jafnt fátækir sem rík- ir, enda er um það sátt í samfélaginu. Samt mætti að því huga, hvort ekki væri rétt að efla blandað kerfi í ein- hverri mynd í heilbrigðisþjónustunni án þess að það kæmi niður á þeim, sem minna mega sín. Slík hugmynd hefur m.a. komið fram í tillögum lækna og læknasamtaka að undanförnu. í yfirlýsingu læknafélaganna í Reykjavík, sem áður er vikið að, kemur fram að flytja þurfi verkefni frá sjúkra- húsunum til læknastöðva og heilsugæzlustöðva eða læknastofa og tengja þá starfsemi sjúkrahúsunum á þann hátt að nýta megi frekar til kennslu og rannsókna. Formaður Læknafélags Islands bendir m.a á, að nú til dags séu læknar á einkastofum í vaxandi mæli að fást við aðgerðir sem áður voru framkvæmdar á sjúkrahúsum og æskilegt sé að ýtt verði undir þessa þróun og álagið á sjúkrahúsunum minnkað. Það segir sig sjálft, að það er mikilvægt fyrir samfélag- ið ef efling slíks einkareksturs drægi úr kostnaði við hið opinbera kerfi heilbrigðisþjónustunnar, sem er orðið hin mesta hít. Hjúkrunarfræðingar undrandi á yfirlýsingu læknafélaganna i Hjúkrunai-fræðingar eru úsáttir við yfírlýsingu læknafélaganna ura að afnema þurfi tvískiptingu faglegrar stjórnui Vegið að sjál mynd stéttarii ✓ / Alyktun Læknafélags Islands og Læknafé- lags Reykjavíkur, um að afnema þurfí með lagabreytingu tvískiptingu faglegrar stjórn- unar á milli lækninga og hjúkrunar, hefur vakið hörð viðbrögð meðal hjúkrunarfræð- inga, sem telja að sér vegið. Læknar vilja árétta forræði lækna á faglegri yfirstjórn deilda, en í gær mótmæltu hjúkrunarfræð- ingar þessari afstöðu. Herdís Sveinsdóttir Sigurl Svein "■T "^pjúkrunarfræðingar lýsa yf- ■ ir undrun sinni á yfirlýs- I ingu stjórna Læknafélags JL iÆ. íslands og Læknafélags Reykjavíkur um málefni Landspítala og Sjúkrahúss Reykjavíkur. í jrfir- lýsingu læknafélaganna er m.a. talað um að afnema þurfi með lagabreyt- ingu tvískiptingu faglegrar stjórnun- ar á milli lækninga og hjúkrunar og árétta forræði lækna á faglegri yfir- stjórn deilda og eru hjúkrunarfræð- ingar á móti þessu. „Við vitum ekki hvað læknafélög- unum gengur hreinlega til og þessi yfirlýsing þeirra er óskiljanleg,“ sagði Herdís Sveinsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, en stjórn þess ásamt stjórnum deilda hjúkrunarforstjóra á sjúkrahúsum og í heilsugæslu og fagdeild hjúkr- unardeildarstjóra samþykktu álykt- un, þar sem lýst er yfir undrun á yf- irlýsingu læknafélaganna. I ályktuninni segir að samkvæmt heilbrigðislögum og hjúkrunarlögum beri hjúkrunarfræðingar faglega ábyrgð á sínum störfum. Hjúkrunar- stjórnendur og hjúkrunarfræðingar hafi fyllilega axlað þá faglegu og rekstrarlegu ábyrgð sem þeim sé fal- in og því komi ekki til greina að láta af þessari ábyrgð. „Það hefur verið í lögum í 25 ár að hjúkrunarfræðingar beri ábyrgð á sér og sínu fagi og því hvarflar ekki að mér að þessi tvískipting faglegrar stjórnunar verði afnumin, enda myndu hjúkrunarfræðingar aldrei sætta sig við það,“ sagði Herdís. „Hjúkrunarfræðingar eru fagstétt með langt háskólanám að baki og þessi ábyrgð er partur af sjálfsmynd þeirra, þannig að þeir myndu bregð- ast mjög harkalega við ef það ætti að fara að vega að rótum þessarar sjálfsmyndar þeirra.“ Viðbrögð hjúkrunar- fræðinga ekkert óeðlileg Sigurbjörn Sveinsson, formaður Læknafélags íslands, sagðist ekki undrandi á viðbrögðum hjúkrunar- fræðinga, þar sem þessi ágreiningur væri gamall og þekktur. „Viðbrögð hjúkrunarfræðinga eru ekkert óeðlileg," sagði Sigurbjörn. „Enda höfum við ekki sömu sýn á það hvernig stjórnunarapparatið eigi að vera.“ Sigurbjörn sagði að læknar hefðu áður ályktað í þessa veru, en að læknafélögin myndu vafalítið ekki taka þátt í efnislegum átökum um þetta, sérstaklega ekki eins og stendur. „Það sem sameinar þessar stéttir er miklu meira en það sem veldur ágreiningi og læknar hafa miklu oftar ályktað hjúkrunarfræðingum í hag, svo sem um menntun þeirra og kjör. Þannig að það er ekki ástæða til að drepa meginefni ályktunar læknafélaganna um sjúkrahúsin á dreif með því að fara að deila sér- staklega um þetta atriði núna. Það er betra að leggja það til hliðar og láta það bíða annars tíma.“ Menntun í stjórnun innbyggð í hjúkrunarfræðinám Stjórn hjúkrunarráðs Sjúkrahúss Reykjavíkur fann sig knúna til að senda frá sér ályktun um málið. I ályktuninni segir að hjúkrunar- fræðingar, sem séu fjölmennasta heilbrigðisstéttin og nánustu sam- starfsmenn lækna, hafi stýrt rekstri deilda sjúkrahúsa frá upp- hafi vega. I ályktuninni segir ennfremur: „Hjúkrunarfræðingar bera faglega og rekstrarlega ábyrgð á rekstri deilda, en yfirlæknar eru yfirmenn sérgi-eina en ekki deilda. Hjúkrun- arfræðingar hafa menntun í stjórn- un innbyggða í sitt grunnnám og þess utan hafa margir þeirra aflað sér framhaldsmenntunar á því sviði.“ Stjórn hjúkrunarráðs segir að í

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.