Morgunblaðið - 16.02.2000, Side 42

Morgunblaðið - 16.02.2000, Side 42
£ 42 MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR LILJA SIGHVA TSDÓTTIR + Lilja Sighvats- dóttir fæddist í Reykjavík 12. sept- ember 1908. Hún lést á heimili sínu, Hrafn- istu, Hafnarfírði, hinn 6. febrúar síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Þóra Sveinbjarnardóttir, f. 27. ágúst 1883, d. 13. apríl 1954 og Sig- hvatur Brynjólfsson, f. 20. aprfl 1880, d. 1. aprfl 1953. Systkini Lilju eru Sveinbjörn, f. 14. september 1905, d. 5. október 1958; Brynjólf- ur, f. 14. september 1911, d. 12. janúar 1943; Unnur, f. 6. desember 1914, d. 22. janúar 1935; Steinunn, f. 11. desember 1916; Sigríður f. 11. desember 1916, d. 16. sama mánaðar; Haukur, f. 7. júlí 1919, d. 2. desember 1936; Margrét, f. 28. desember 1921. Lilja giftist 2. október 1930, Magnúsi B. Bjömssyni, vélstjóra, f. 22. nóvember 1904, d. 10. desem- ber 1986. Foreldrar hans voru Björn Hallgrimsson, f. 21. febrúar ^ 1976, d. 27. september 1953 og k.h. Stefanía Magnúsdóttir f. 7. sept- ember 1978, d. 2. janúar 1916. Börn Lilju og Magnúsar eru: 1) Bjöm, vélfræðingrur, f. 15. septem- ber 1932, kona hans er Sigrún Kaaber, sjúkraliði, f. 11. nóvember 1932. Böm þeirra eru: a) Magnús Björn, prestur, f. 27. nóvember 1952. K.h. er Guðrún Dóra Guð- mannsdóttir, hjúkrunarfræðing- ur, f. 17. nóvember 1954. Þeirra böm em María, f. 12. janúar 1984, Sigrún Elísa og Guömann f. 28. ap- rfl 1988, Rebekka, f. 19. júlí 1990, b) Ragn- ar Hallgrímur, ra- feindavirkjameistari, f. 7. mars 1958. Dætur hans og Kristínar Jónasdóttur eru Ing- unn Anna, f. 2. mars 1982 og Guðný Ragna, f. 5. nóvember 1989, c) Sigrún Birna, ís- lenskufræðingur og kennari, f. 30. desem- ber 1970. Dóttir Bjöms og Arnþrúðar H. Jóhannsdóttur er Heiðrún, sjúkraliði, f. 2. febrúar 1952. Eiginmaður henn- ar er Rafn Sverrisson, f. 30. júlí 1952. Börn þeirra eru Rúnar Öm, f. 26. júní 1969, Snorri Öm, f. 15. janúar 1974, Heiðrún, f. 28. janúar 1976 og Sverrir Örn, f. 26. apríl 1982. 2) Stefán Unnar, vélstjóri, f. 16. desember 1935. K.h. er Berg- rún Jóhannsdóttir, snyrtifræðing- ur, f. 9. nóvember 1933. Synir þeirra eru: a) Friðrik Þorgeir, lög- fræðingur, f. 1. maí 1955. K.h. er Margrét Hafdís Hauksdóttir, deildarstjóri, f. 27. ágúst 1956. Sonur þeirra er Elvar Örn, f. 11. nóvember 1989, b) Unnar Öm, kjötiðnaðarmaður, f. 12. júlí 1962. Maki er Ólöf Þorvaldsdóttir, versl- unarmaður, f. 3. maí 1962 og eiga þau tvær dætur, Heiðrúnu Rut, f. 28. september 1989 og Erlu Dögg, f. 15. maí 1996, c) Magnús Bjarki, flugmaður, f. 26. maí 1965, maki hans er Unnur Guðrún Pálsdóttir, sjúkraþjálfari, f. 11. desember 1970 og eiga þau einn son, Pál Stefán, f. 20. mars 1998, 3) Stefan- ía, kennari og ferðafræðingur, f. Kveðja til langömmu. Svo viðkvæmt er lífíð sem vordagsins blóm er verður að hlíta þeim lögum, að beygja sig undir þann allsherjardóm sem ævina telur í dögum. Við áttum hér saman svo indæla stund sem aldrei mér hverfur úr minni. Og nú ertu gengin á guðanna fund, það geislar af minningu þinni. (Friðrik Steingrímsson.) Hvíl í friði, elsku langamma. Þinn Torfí Geir. Ég beið þín lengi, lengi mín liljan fríð, stillti mína strengi gegn stormum og hríð, ég beið þín undir björkunum í bláskógar- hlíð. Loksins hefur amma okkar fengið hvíldina. Ekki þykir okkur ólíklegt að afi sé búinn að syngja fyrir hana ljóðið hans Davíðs Stefánssonar, enda búinn að bíða í rúm 13 ár eftir að hún kæmi til hans. Ef til vill var hugurinn hennar löngu farinn til hans - hann virtist horfinn okkur. Þau voru einstaklega samrýnd, afi og amma, og nú er hann búinn að endurheimta hana og þau öll saman aftur; afi, amma, Maggi Binni og Sjöfn. Það hafa heldur betur orðið fagn- aðarfundir! Fyrir okkur, sem eftir erum, er söknuðurinn mikill. Sem betur fer eigum við allar góðu minn- ingarnar að ylja okkur við. Allt það skemmtilega sem mátti gera á Haga- melnum, t.d. að klæða sig í fötin hennar ömmu, nota skartið hennar, mála sig, teikna undir eldhúsborðið, sofa á sólstól við hliðina á rúminu þeirra ömmu og afa, tína rifsber, „spássera á fortóvinu“ og fleira og » fleira. Hún var svo sérstök mann- eskja hún amma, virtist alltaf miklu yngri en árin sögðu til um. Það geta sennilega ekki allar ömmur kennt bamabömunum að sippa í kross, þegar þær em komnar á áttræðis- aldur! En þetta gat hún amma. Hún var líka alltaf svo mikil dama, vel til höfð, snyrt og máluð með lakkaðar neglur og í fínum fötum. Hún var ótrúleg! Aldurinn virtist ekkert vinna á henni fyrr en hún lenti í slæmu slysi tæplega 77 ára gömul en seiglan hefur verið ótrúleg allar göt- ur síðan. Við emm þakklátar fyrir að hafa átt hana að og vitum að henni líður vel núna. Elsku mamma, Búbbi og Unnar. Ykkar söknuður er mestur, en kannski geta þessi orð verið ykkur einhver huggun. Þó ég sé látinn, harmið mig ekki með tár- um. Hugsið ekki um dauðann með harmi og ótta, ég er svo nærri að hvert ykkar tár snertir mig og kvelur þótt látinn mig hald- ið. En þegar þið hlæið og syngið með glöð- um hug, sál mín lyftist upp í mót til ljóss- ins. Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið gefur, og ég, þótt látinn sé, tek þátt í gleði ykkar. (Höf.óþ.) Við kveðjum ömmu Lilju með þakklæti og virðingu. Megi hún hvfla í friði. Anna Lilja, Bryndís og Edda. Þá em þau sameinuð á ný sóma- hjónin sem lengst af ævinnar bjuggu börnum sínum og afkomendum heimilið fallega að Hagamel 17 í Reykjavík. Við kveðjum Lilju ömmu í dag, vitandi að Magnús afi tekur á móti henni hinum megin, af sömu hlýjunni og einkenndi allt þeirra samband. Hún er hvfldinni eflaust fegin og glímdi af þrautseigju við langa bið eftir að fá að hitta hann aft- ur. Lilja helgaði h'f sitt fjölskyldu sinni og heimili og það var mikils virði fyrir bömin að eiga hana alltaf að heima þegar þau vom að vaxa úr grasi. Þegar hugsað er til baka, era þær dýrmætar minningarnar um stóra samhenta fjölskyldu sem reglulega hittist hjá afa og ömmu og voru fjölskylduhátíðir um jól og ára- mót þar engu líkar. Þar áttu fastar hefðir og siðir sinn stóra þátt í að gera þessar stundir svo ógleyman- legar. Mikið sungið og maturinn hennar Lilju ömmu öðmm betri. Þar framkallaðist það besta sem bindur fólk fjölskylduböndum og Lilja hélt af alúð utan um ungahópinn sinn. Við kveðjum því Lilju með söknuði því hún var okkur svo góð sem móðir, 29. maí 1942. Eigimaður hennar er Guðjón Torfi Guðmundsson, verk- fræðingur, f. 10. febrúar 1943. Börn þeirra eru: a) Anna Lilja, leikskólastjóri, f. 26. febrúar 1968. Sonur hennar og Símonar Bjarna- sonar er Torfi Geir, f. 9. maí 1989, b) Bryndís Lára, flugmaður, f. 10. desember 1971, c) Torfí Geir, f. 3. desember 1973, d. 28. ágúst 1977, d) Vilborg Edda, ferðafræðingur, f. 22. febrúar 1976. 4) Magnús Brynjólfur, verkamaður, f. 26. maí 1945, d. 11. júní 1989. K.h. er Júlía Hannam, viðskiptafræðingur, f. 30. október 1951. Þau skildu. Dótt- ir Magnúsar Brynjólfs og Ólafíu Kristínar Sigurðardóttur er Lilja, f. 1. febrúar 1965. Eiginmaður hennar er Skarphéðinn Ólafsson, f. 11. nóvember 1962. Börn þeirra em Ólafur Kristinn, f. 28. ágúst 1988, Sunna Björk, f. 30. janúar 1991 og íris Dögg, f. 15. júlí 1997. Dóttir Magnúsar Brynjólfs og Sol- veigar Pétursdóttur er Ingunn Péturs, flugfreyja, f. 7. nóvember 1971. 5) Sjöfn, f. 10. september 1948, d. 28. janúar 1995. Eigin- maður hennar, Sigurður Viggó Kristjánsson, flugstjóri, f. 28. maí 1946. Dóttir þeirra er Svandís Unnur, f. 10. aprfl 1984. Lilja fæddist og ólst upp í Reykjavík. Eftir bamaskóla gekk hún í Lýðskólann í Bergstaða- stræti 3, einnig kenndur við Isleif Jónsson, og vann síðan við af- greiðslustörf þar til hún gifti sig. Magnús og Lilja bjuggu fyrst við Ljósvallagötu og Leifsgötu en byggðu sér ibúð að Hagamel 17, sem varð heimili þeirra í 40 ár og helgaði Lilja sig heimili og börnum lengst af. Hún rak heimagistingu í mörg ár en vann einnig í Melaskól- anum í nokkur ár. Útför Lilju fer fram frá Garða- kirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. tengdamóðir, amma og langamma. Blessuð sé minning hennar. Hvíli hún í guðs friði. Unnar, Rúna og ijölskyldur. Óttistekkielli, þér íslands meyjar! þó fagra hýðið hvíta hrokkniogfólni, ogbrúnalogiðílampa ljósunum daprist, ogverðirósirvanga aðvisnuðumliljum. Þetta upphafserindi í undurfallegu erfikvæði Bjama Thorarensens um látna heiðurskonu leitar á hugann þegar ég nú kveð með nokkram orð- um kæra vinkonu, Lilju Sighvats- dóttur, sem lést í hárri elli 6. febrúar sl. eftir langan og síðast strangan ævidag. Þetta kvæði, sem mér finnst ekki aðeins ort um ákveðna konu heldur sem óður til allra íslenskra kvenna og holl ábending, á einkar vel við um Lilju, sem bauð ellinni birg- inn og hélt glæsilegu útliti og reisn svo af bar fram á háan aldur. Hún lét sér líka annt um útlitið og varðveitti guðsgjafirnar, fríðleika og fallegt vaxtarlag, af kostgæfni og það var tekið eftir henni hvar sem hún fór. En fleira prýddi hana en fagurt útlit, því hún var einstök blanda af hefðar- konu, hversdagshetju og glæsidömu. Lilja og Magnús bjuggu á Haga- mel 17 þegar ég á bamsaldri varð heimagangur hjá þeim, en við Níní dóttir þeirra eram æskuvinkonur. Þar bjuggu þau „stórbúi" í einu af fallegustu húsunum í vesturbænum. Lilja var óumdeildur bóndi á þvi búi og stjórnaði af röggsemi. Magnús var vélstjóri til sjós fyrstu búskapar- ár þeirra og fól því Lilju stjómina og fannst fara vel á því. Alla tíð var sam- vinna þeirra og sambúð farsæl og Magnús leit upp til konu sinnar í að- dáun og ástúð. Á þessu stóra búi var mikið húsrúm, margar vistarverur, en þar var ekki síður mikið hjartar- úm og alltaf virtist hægt að bæta við og hýsa fólk um lengri eða skemmri tíma. Þar var viðkomustaður vina og vandamanna og þar bauð Magnús upp á eðalkaffi, sem var engu líkt. En mitt í öllum þessum önnum var alltaf tími til að gleðjast og fagna, því Lilja og Magnús vora gleðifólk, buðu gjarnan til veislu og veittu vel. Þetta vora fjörugir fagnaðir og söngur í hávegum hafður. Öll árin á Haga- melnum var líka haldin fjölskylduhá- tíð á jóladag. Á þessum áram sýndi Lilja ótrúlega útsjónarsemi og ráð- deild og stundaði ýmsar „aukabú- greinar" til að drýgja tekjur heimil- isins. Hún var feiknarlega hugmyndarík og hafði ráð undir rifi hverju. Hún var vísindaleg í hugsun, gerði allskonar tilraunir og í eldhús- inu hennar gerðust ótrúlegustu hlut- ir. Eldhúsið var ekki stórt, en vinsæll fjöldasamkundu með ört stækkandi hópi barna, tengdabama og barna- barna. Ennþá kemur þessi stóra fjöl- skylda saman á jóladag en núna heima hjá Níní og Torfa. Eftir lát Magnúsar 1986 fór að halla undan fæti hjá Lilju. Þau höfðu þá nýlega fest kaup á húsnæði í fal- legu húsi verslunarmanna við Hvassaleiti 56, þar sem þau ætluðu að njóta ævikvöldsins. En vistin þar varð ekki löng og Lilja flutti 1992 á Hrafnistu í Hafnarfirði. Dvöl hennar þar síðustu árin er kapítuli út af fyrir sig og full ástæða til að fjalla um hana sérstaklega. Það var lærdóms- ríkt og eftirminnilegt að heimsækja hana þar og upplifa og skynja þá hlýju, alúð og nærgætni sem starfs- fólkið sýndi vistmönnum. Eg er hrædd um að erfitt og óeigingjarnt starf þessa ágæta fólks sé unnið af hugsjón, sem oft er ekki metin að verðleikum og víst er að það reiðir ekki laun sín heim í þverpokum. Lilja varð fyrir þeim þunga harmi að missa yngri börnin sín tvö í blóma lífsins en hin þijú sem lifa móður sína era þessu góða fólki óendanlega þakklát og finnst þau seint geta full- þakkað þá frábæra umönnun sem hún hlaut á Hrafnistu. Sjálf vora þau ásamt mökum og börnum vakin og sofin yfir velferð hennar. Þau pöss- uðu upp á að alla daga liti einhver ættingi til hennar jafnvel þótt vitundin væri þverrandi og þau sáu um að hún væri fallega klædd og snyrt til hins síðasta. Ég sé Lilju fyr- ir mér á ljósmynd frá sjötugsafmæli hennar þar sem hún situr í blómahafi í fallegu stofunni sinni á Hagamel glæsileg og uppstrfluð og virðist ekki degi eldri en fimmtug. Þannig minn- ist ég hennar og þannig kveð ég hana. Búbba, Unnari og Níní og fjöl- skyldum þeirra votta ég nú að leiðar- lokum djúpa samúð. Þótt löngu væri orðið tímabært að Lilja mín blessuð fengi hvfldina og færi á fund Magn- úsar, Magga Binna og Sjafnar, er skilnaðarstundin samt sár og erfið. Þau ylja sér nú við dýrmætar minn- ingar. Lilju kveð ég með þökk og virð- ingu. Þóra G. Möller. Látin er í hárri elli heiðurskonan Lilja Sighvatsdóttir. Leiðir okkar lágu saman í rúma fjóra áratugi og mættumst við upphaflega vegna vin- áttui minnar og Sjafnar, dóttur henn- ar. Örlögin höguðu því svo þannig að samferð okkar Lilju varð lengri og fundir tíðari en okkar Sjafnar. í reisulegu húsi í nágrenni Mela- skóla áttu Lilja og eiginmaður henn- ar, Magnús Björnsson, heimili sitt um árabil. Þeim varð fimm barna auðið og yngst var dóttirin Sjöfn. í fylgd hennar komum við vinkonurn- ar reglulega í heimsókn á þetta glað- væra og gestrisna heimili. Á mennta- skólaáranum áttum við þama at- hvarf og sama var hvenær við kom- um og hversu mörg, móttökurnar vora alla tíð höfðinglegar. Sjöfn dótt- ir þeirra var langyngst systkina sinna og vora þau hjón komin á miðj- an aldur er við kynntumst. Vakti það strax athygli allra sem þau umgeng- ust hve ástfangin þau voru og sam- band þeirra var traust og gefandi. Af þeim stafaði hlýju og glaðværð, þau nutu þess að dekra við gesti sína og við flykktumst til þeirra í hópum og sátum oft og lengi. Kynslóðabilið var ekki til í þessum samskiptum og okk- ur þótti sjálfsagt að koma til þeirra við hátíðleg tækifæri eins og á stór- hátíðum og fyrir árshátíðir. Stóðu þau oft fyrir mannfagnaði og eru mér ljóslifandi fyrir hugskotssjón- um, skartbúin og hátíðleg, húsmóðir- in glæsilegust kvenna á staðnum og Magnús við hlið hennar með aðdáun- arblik í auga. Og árin liðu. Sjöfn flutti vestur um haf að loknum menntaskóla og sett- ist þar að, en við vinkonur hennar héldum áfram að koma á Hagamel- inn til að njóta samvista og sam- ræðna við þau Magnús og Lilju. Þarna áttu þau fjölda góðra ára og við skemmtilegar stundir með þeim, sérstaklega þegar Sjöfn var í heim- sókn. Alveg var einstakt að fylgjast með sambandi þeirra hjóna, þau vora alltaf sem eitt og nutu nærvera hvor annars. Ekki komust þau þó áfallalaust frá lífínu frekar en aðrir og Magnús átti við veikindi að stríða áður en hann lést árið 1986. Skömmu áður slasaðist Lilja og náði sér aldrei fyllilega eftir það. Eins og sambandi þeirra hjóna var háttað var líka aug- ljóst að lífið yrði erfitt því hjónanna sem lengur lifði. Við lát Magnúsar var sem lífsgleðin og viljinn hyrfi Lilju. Ótímabært andlát yngsta son- ar þeirra, Magnúsar, árið 1989, setti líka djúp spor í sálu hennar og um svipað leyti byrjaði minnið að þverra. Síðustu árin sem hún lifði var ver- öldin henni fjarlæg og naut hún þá umhyggju og ástúðar fjölskyldu sinnar og starfsfólks Hrafnistu í Hafnarfirði. Ekki er því ljóst hvort hún skynjaði hið mikla áfall sem fjöl- skyldan varð fyrir er Sjöfn, dóttir hennar, lést langt um aldur fram árið 1995. Fyrir hönd okkar vinkvenn- anna vil ég kveðja þessa heiðurskonu og þakka henni ómetanlega vináttu og skemmtileg kynni. Fjölskyldunni sendi ég mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Sigþrúður Guðmundsdóttir. + Eiginmaður minn, PÁLL V. ÓLAFSSON, frá Dagverðartungu, andaðist á dvalarheimilinu Hlíð, aðfaranótt mánudagsins 14. febrúar. Jarðarförin verður auglýst síðar. Hulda Snorradóttir. + Okkar elskaði sonur, bróðir, barnabarn og faðir, KNÚTUR STEINAR, Laugarnesvegi 74, Reykjavík, lést föstudaginn 4. febrúar. Útför hans fer fram frá Laugarneskirkju föstu- daginn 18. febrúar og hefst kl. 13.30. Steinunn Ólafsdóttir Eðvarð T. Jónsson og fjölskylda, og fjölskylda.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.