Morgunblaðið - 16.02.2000, Síða 43

Morgunblaðið - 16.02.2000, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 2000 43 A GUÐBJORG DANÍELSDÓTTIR + Guðbjörg Daní- elsdóttir fæddist 16. febrúar 1915. Hún lést á elli- og hjúkrunarheimilinu Sólvangi hinn 1. jan- úar síðastliðinn. For- eldrar Guðbjargar voru Daníel Sigurðs- son, bóndi á Kolmúla við Reyðartjörð, og Guðný Jónsdóttir húsfreyja. Systkini Guðbjargar eru Sig- rún, f. 16. desember 1911, Guðjón, f. 18. mars 1913, Elís, f. 11. febrúar 1917, d. 30. september 1995, og Anna Dagmar, f. 4. des- ember 1925. Hinn 25. desember 1933 giftist Guðbjörg Hálfdani Þorsteinssyni frá Vattarnesi við Reyðarfjörð, f. 27. september 1904, d. 22. júlí 1981. Foreldrar hans voru Þor- steinn Hálfdanarson og Sigur- björg Indriðadóttir. Börn Guð- bjargar og Hálfdans eru: 1) Guðný, f. 26. febrúar 1934, maki Guðj mundur Þórðarson, búsett í Hafnarfirði og á hún fjögur börn af fyrra hjónabandi. 2) Helena, f. 23. júní 1935, búsett í Reykjavík og á hún fjögur börn. 3) Sig- urbjörg, f. 30. júlí 1942, búsett í Hafn- arfirði og á hún tvö börn. 4)Þorsteinn, f. 12. október 1945, maki Asta Sigurðar- dóttir, búsett í Hafn- arfirði og eiga þau ijögur börn. 5) Steingrímur, f. 13. apríl 1949, maki Jóhanna Þ. Ingimarsdóttir, búsett í Reykjavík og eiga þau tvö börn. 6) Daníel, f. 2. ágúst 1954, maki Erna Ingibjörg Pálsdóttir, búsett í Hafnarfirði og eiga þau þrjú börn. Útför Guðbjargar fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu hinn 10. janúar. Það var á einum fegursta degi vetrarins sem Guðbjörg amma kvaddi okkur, á hádegi nýársdags sl. Dagurinn var sólríkur og merki- legur, enda árþúsundamót, en lét þó ekki mikið yfir sér - féll í skuggann fyrir skarkala næturinnar. Ein- hvern veginn var þessi nýársdagur svo táknrænn fyrir ömmu; fallegur, hægur og látlaus. Þótt amma hafi fylgst mjög vel með, bæði mönnum og málefnum, þá var hún hæglát og oftast ekki margmál. Hún gat þó komið skemmtilega fyrir sig orði, ef sá gállinn var á henni. Að koma til ömmu var alltaf gott. Heimili hennar var fallegt og hún hafði gaman af að geta reitt eitthvað fram úr ísskápnum. Eins og margar konur af hennar kynslóð tók hún sér oft stöðu við hlið eldhúsborðsins, hún settist ekki alltaf til borðs með gestum sínum heldur beið átekta með svuntuna bundna um sig miðja meðan gestir gæddu sér á góðgæt- inu og hún fylgdist grannt með því hvort eitthvað vantaði á borðið. Þegar allir voru mettir settist amma niður í hógværð sinni og fékk sér bita. Þetta er þjónustulund sem trú- lega hverfur með þeirri kynslóð sem fædd er á fyrri hluta 20. aldarinnar. Nýtnin var hvarvetna í fyriiTÚmi, nokkuð sem við sem yngri erum gætum tekið okkur til fyrirmyndar. Þrátt fyrir að amma hafi verið fé- lagslynd og haft fullan hug á að taka þátt í gleðistundum fjölskyldunnar næstu árin, þá kveið hún ekki dauð- anum. Langömmubörnum sínum kom hún á óvart þegar hún, næstum með tilhlökkun í röddinni, sagði þeim fi-á því að einn góðan veðurdag myndi hún hvíla við hlið langafa þeiiTa í kirkjugarðinum í Hafnar- firði. Þessi staðhæfing hennar lýsti vel afstöðu hennar til lífsins. Hún trúði á líf eftir þetta og að hún og afi myndu hittast þar á ný. Það fannst henni einnig góður kostur. Amma fæddist á Kolmúla við Reyðarfjörð 16. febrúar árið 1915. Þótt hún hafi búið í Hafnarfirði í um hálfa öld, þá var hún ávallt fyrst og fremst Austfirðingur, enda sótti hún mikið til Austfjarða eftir að hún fluttist suður til Hafnarfjarðar. Amma var í foreldrahúsum á Kol- múla fram til ársins 1932. Þá fór hún til Vestmannaeyja sem vinnukona til Sigurbjargar Indriðadóttur og Þorsteins Hálfdanarsonar frá Vatt- arnesi við Reyðarfjörð, sem síðar urðu tengdafoi'eldrar hennar. A þessum árum var algengt að fólk færi til Vestmannaeyja, þar sem mikla vinnu var að fá í kringum sjávarútveg. Þannig var það að í Vestmannaeyjum tókust kynni með ömmu og Hálfdani Þorsteinssyni frá Vattarnesi, og gengu þau í hjónaband árið 1933. Amma og afi bjuggu ekki lengi í Vestmannaeyjum, heldur fluttust árið 1940 aftur austur á Reyðarfjörð og bjuggu þá fyrst á Kolmúla og síð- an á Vattarnesi, þar sem stunduð voru hefðbundin bústörf og útróður. Ekki var lífið eintómur dans á rós- um hjá þeim, sem kom m.a. fram í því að þegar börnin voru orðin fimm fékk amma berkla og þurfti að dveljast langdvölum fyrir sunnan sér til lækninga. Það varð til þess að fjölskyldan tók sig upp og fluttist öll suður árið 1950 og settist að á Sel- vogsgötu 8 í Hafnarfirði, þar sem amma og afi bjuggu þar til afi lést árið 1981. Þá flutti amma á Álfa- skeiðið og síðar á Sólvangsveg 1, þar sem hún undi hag sínum vel. Eftir að amma og afi fluttust til Hafnarfjarðar fóru þau austur á Kolmúla á sumrin þar sem þau stunduðu búskap og afi útróður með Guðjóni, bróður ömmu og Jónu Björgu konu hans. Eftir að afi lést hélt amma áfram að fara austur á Kolmúla og Vattarnes á sumrin, meðan henni entist heilsa og kjark- ur til. Þrátt fyrir að henni líkaði vel í Hafnarfirði voru þessar ferðir aust- ur á firði henni mikils virði. Þannig hélt hún tengslum við átthagana og frændfólk sitt, en amma lagði mikið upp úr því. Ættarmót, afmæli, heim- sóknir og ferðalög til ættingja og vina var líf hennar og yndi. Þrátt fyrir að amma væri orðin fullorðin og heilsan farin að bresta, þá kom það okkur frekar í opna skjöldu þegar hún kvaddi. Minning- arnar leituðu á hugann um álfasög- ur, prjónaskap, spilamennsku og dansi. En eftir stendur þó fyrst og fremst þakklæti til lífsins fyrir það að hafa fengið að hafa ömmu hjá okkur þetta lengi. Minning Guðbjargar ömmu mun lifa meðal okkar, svo björt og svo falleg. Guðbjörg Linda Rafnsdóttir. Guðbjörg Daníelsdóttir, amma mín, hefði orðið 85 ára í dag, hefði hún lifað. Hún lést á Sólvangi í Hafnarfirði á nýársdag. Ég átti ekki von á að fyrstu fréttir sem ég fengi á nýju árþúsundi væru þessar. Ég hringdi í ömmu á gamlársdag og ætlaði að líta til hennar, en hún sagði mér að hún væri lasin, ég skyldi bara koma þegar hún væri orðin hressari. En svona er lífið, maður veit aldrei hvað næsti dagur ber í skauti sér. Amma var hæglát kona, sagði lít- ið af sjálfri sér og talaði aldrei um afrek sín, þótt vissulega væru þau mörg. Við amma fórum saman til Sví- þjóðar sumarið 1990. Þá bjó Guð- björg Linda, systir mín, í Lundi og við skruppum til hennar með Bjarka sem þá var tveggja ára. Þetta var góð ferð. Við vorum mikið á labbinu með Bjarka í kerru. Við skoðuðum Lund og fórum yfir til Kaupmannahafnar og gengum þar. Amma var þá 75 ára en hún var svo létt á sér að við systur máttum hafa okkur allar við að halda í við hana. Amma hafði gaman af börnum, og aldrei var að sjá að hún væri þreytt á þeim, fannst bara gaman að hafa svolítið fjör í kringum sig. Amma fór á Sólvang síðastliðið sumar eftir að hún veiktist snemma á síðasta ári. Hún undi sér þar vel og var ekki að gera kröfu um að hafa meira pláss út af fyrir sig. Ég held að við mættum öll taka til fyrirmyndar nægjusemi hennar og hógværð. Ingi minn er alveg viss um að nú sé langamma orðin engill á himnin- um og hafi það stóra hlutverk að sitja á sængunum okkar og passa okkur. Vertu nú yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson.) Ég, Erling, Bjarki, Rafn og Ingi þökkum ömmu fyrir allt. Hvíl í friði. Arnheiður Edda Rafnsdóttir. + Innilegar þakkir fyrir samúð og hiýhug við and- lát og útför bróður okkar og mágs, HALLDÓRS SiGURÐSSONAR frá Seyðisfirði, Hátúni 10b, Reykjavík. Guðrún Sigurðardóttir, Bjarney Sigurðardóttir, Svanhildur Sigurðardóttir, Ólöf Anna Sigurðardóttir, Gunnar Hannesson, Ásbjörn Björnsson, Ingi Sigurðsson, Halldóra Friðriksdóttir. Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SVANBORGAR MAGNEU SVEINSDÓTTUR, Engimýri 3, Akureyri. Jónas Davíðsson, Sveinn Jónasson, Guðný Anna Theodórsdóttir, Anna Jónasdóttir, Kristján Árnason, barnabörn og barnabarnabörn. í dag er fæðingardagur ömmu minnar, Guðbjargar Daníelsdóttur. Hún hefði orðið 85 ára í dag. Amma var fædd árið 1915 og hafði því lifað tímana tvenna. Fædd í miðri heimsstyrjöldinni fyrri, þriggja ára þegar ísland verður fullvalda, bam og unglingur á krepputíma, ung kona á Vífilsstöð- um í baráttu við berklana, flytur suður í kjölfar seinni heimsstyrja- ldarinnar og sjálfstæðis, á vit nýrra tíma. Síðast en ekki síst var amma Guð- björg eiginkona, móðir, amma og langamma. Fjölskyidan var ömmu allt. Það er að vissu leyti foiTéttindi að hafa átt ömmu eins og hana. Ömmu sem var til fyrir okkur - og bara fyrir okkur, héldum við systk- inin. Þegar hugsað er til baka kemur margt upp í hugann; Selvogsgatan, afi við gluggann að reykja og amma með svuntu um sig miðja og síða hárið bundið upp í hnút í hnakkann. Amma í peysufötum við hina og þessa atburði í fjölskyldunni, amma að passa mig og bræður mína, við í Ölfusborgum með ömmu og afa, þau að koma í bað upp á Melabraut, fjár- sjóðurinn sem amma kom með úr Flensborg í formi strokleðra og blý- antsbúta, amma að spila við okkur. Og fyrsta utanferðin til Austurríkis með afa þar sem amma keypti flott- ustu göngustafi sem við höfðum nokkurn tímann séð. Amma var með okkur hvort sem við vorum heima eða að heiman. Amma var stór hluti af æsku minni og síðustu ár æsku barnanna minna tveggja, í hlutverki langömmunnar; langamma með tár- in í augunum í heimsókn á vöku- deildinni, langamma að spila olsen, langamma að fara með eina af þeim óteljandi vísum sem hún kunni, langamma að kenna að lesa. Við á göngu og komið við í íspinna hjá ömmu á Sólvangsveginum. Og síð- ast ekki ekki síst er minningin um síðustu jól okkur ofarlega í'huga. Þeim jólum eyddum við amma sam- an, eins og við höfum gert alla mína ævi, en amma var orðin þreytt og var sátt við að kveðja líf sem þrátt fyrir erfiðleika á köflum var henni mestan part gott og hamingjuríkt. Amma lést að morgni nýársdags, nýtt árþúsund var gengið í garð. Öldin hennar ömmu var liðin. Með þessum orðum kveð ég og fjölskylda mín ömmu Guðbjörgu með þökk og virðingu. Góða ferð, elsku amma. Steinunn Þorsteinsdóttir. ídag hefði hún Guðbjörg amma orðið 85 ára, en hún lést á nýársdag síðastliðinn. Okkur langar að minn- ast hennar hér í nokkrum orðum. __________ Þakklæti og hlýja er það sem kemur upp í hugann þegar hugsað er til ömmu. Þakklæti til ömmu fyrir allt, en þó sérstaklega fyrir fyrstu ár fjölskyldunnar sem fluttist frá Reykjavík austur á land. Frá fyrsta degi búsetunnar var hún til staðar, búin að elda góðan mat, búa upp rúmin og fleira er tilheyrði húsverk- um. Ekki síður kom kunnátta henn- ar til sveitastarfa sér vel fyrir borg- arfjölskylduna sem var að setjast að í fyrsta sinn í sveit. Með sinni hæversku og einlægni leiðbeindi hún okkur í störfum okkar sem og öðru og ekki gleymdi hún systrun- um þremur sem í fyrsta sinn voru að koma í sveit. Fræddi hún þær um dýrin og sveitina og var óspör á sög- ur og kvæði. Það ríkti ávallt tilhlökkun til vors- ins, ekki síst fyrir það að þá kom Guðbjörg amma og yrði til hausts- ins. Megi góður Guð blessa minningu hennar. Farþúífriði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkstþú með Guði, Guð þér nú fylgi, « hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V.Briem.) Fjölskyldan Vattarnesi. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og bróðir, KRISTJÁN JÓAKIMSSON, frá Hnífsdal, Miðhúsum 19, Reykjavík, lést á líknardeild Landspitalans sunnudaginn 13. febrúar. Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju þriðju- daginn 22. febrúar kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á líknardeild Landspítalans eða Heimahlynningu Krabba- meinsfélagsins. Sigríður Harðardóttir, Jón Kristjánsson, Kristín Björgvinsdóttir, Gabriela Kristjánsdóttir, Páll Magnússon, Kristján Einar Guðmundsson, barnabörn og systkini hins iátna. HI ......-.... m + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, ÞÓRUNN SIGURJÓNSDÓTTIR, Flúðabakka 2, Blönduósi, verður jarðsungin frá Blönduóskirkju laugar- daginn 19. febrúar kl. 10.30. Hermann Sigfússon, Ósk Óskarsdóttir, ^ Brynhildur Friðriksdóttir, Sigtryggur Ellertsson, Guðrún Friðriksdóttir, Sigmundur Magnússon, Indíana Friðriksdóttir, Fritz Berndsen, Sigríður Friðriksdóttir, Steindór Jónsson, Sigurlaug Friðriksdóttir, Björn Friðriksson, Guðrún Tryggvadóttir, barnabörn, barnabarnabörn og iangalangömmubarn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.