Morgunblaðið - 04.03.2000, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 04.03.2000, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 4. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Tölvunefnd óskar eftir upplýsingum um meðferð og öryggi upplýsinga um barnaverndarmál Jafnvel viðkvæmari gögn en heilsufarsupplýsingar TÖLVUNEFND hefur ákveðið að eigin fi’um- kvæði að taka til athugunar hvernig meðferð og öryggi upplýsinga sem aflað er við meðferð barna- verndarmála er háttað. Páll Hreinsson, formaður tölvunefndar, sagði í gær að ekkert ákveðið tilfelli hefði leitt til þess að ákveðið var að athuga hvemig þessi gögn eru geymd. „Þetta eru jafn viðkvæmar upplýsingar og heilsufarsupplýsingar, ef ekki viðkvæmari," sagði hann. „Af þeim sökum er rétt að huga að þessu sviði.“ Tölvunefnd sendi barnaverndamefnd bréf 28. febrúar þar sem farið er fram á að látnar verði af hendi upplýsingar um meðferð gagna í barna- verndai-málum. Þar er þess óskað að upplýst verði hvort persónuuplýsingar, sem varða störf barna- verndarnefndar séu geymdar í traustum, læstum hirslum. Beðið er um að upplýst verði hvar gögnin séu geymd og hvort aðrir starfsmenn en starfsmenn og fulltrúar barnavemdarnefndar hafi aðgang að því herbergi þar sem þau séu geymd. Einnig er óskað eftir upplýsingum um hvort þeirri reglu sé ávallt fylgt að geyma gögn þeirra mála, sem verið sé að vinna með, í læstri hirslu yfír nótt. Að síðustu er þess óskað að haft verði samband við þá, sem setið hafí í barnaverndamefnd síðast- liðin tvö kjörtímabil, og kannað hvort einhver gögn, sem hafí að geyma persónuupplýsingar og varði störf barnaverndarnefndar, hafi fyrir mis- tök orðið eftir í þeirra vörslum þegar þeir hættu störfum í nefndinni. Komi slíkt í ljós beri barna- vemdarnefnd að taka slík gögn í sínar vörslur. Nefndin biður í bréfinu um að upplýsingar um nið- urstöður þessarar könnunar berist fyrir 25. mars. I fréttatilkynningu tölvunefndar kemur fram að hún sæki umboð til þess að í lögum um skráningu og meðferð persónupplýsinga kveði á um, að nefndin hafi eftirlit með framkvæmd þeima, en markmið laganna sé að tryggja mönnum vernd gegn hættu á misnotkun upplýsinga um einka- málefni þeirra, sem varðveittar em eða skráðar hafa verið með kerfisbundnum hætti. Allt á hvolfi Þ AÐ viðraði vel til skíðaferða á suðvesturhominu í gær og brugðu margir sér í Bláfjöll og léku listir sínar, bæði á skíðum og snjóbrett- um. í Bláfjöllum var lítill sera eng- inn vindur og bjart yfír, en frekar kaltílofti. Margir nutu veðurblíðunnar og hefur örugglega verið stór- skemmtilegt að steypa sér svona niður gilið, taka nokkur heljar- stökk á leiðinni og sjá heiminn á hvolfi til tilbreytingar. Spáð hlýnandi veðri Fremur kalt var á öllu landinu í gær en spáð er hlýnandi veðri um allt I; n íd ásamt hægri vaxandi sunn- anátt. í dag er gert ráð fyrir stöku éljum norðanlands en slyddu og rigningu vestan- og suðvestan- lands. Á höfuðborgarsvæðinu má búast við eins til fimm stiga hita í dag og suðvestan 13 til 18 m/s. Morgunblaðið/Golli Ein milljón til Mósambík RÍKISSTJÓRNIN ákvað á fundi í gærmorgun að veita eina milljón króna til hjálparstarfs í Mósambík þar sem tugir þúsunda manna eru enn í lífshættu eftir flóð á sunnudag. Halldór Ásgrímsson utanríkisráð- herra sagði í gær að í upphafi þeirra hörmunga, sem dunið hafa yfir í Mósambík, hefði Þróunarsamvinnu- stofnun íslands ákveðið í samvinnu við utanríkisráðuneytið að verja nokkru fé til hjálparstarfs. „Nú þegar hefur verið varið um 1,7 milljónum króna til þessa starfs á þeirra vegum,“ sagði hann. „Rflás- stjórnin ákvað [í gærmorgun] að bæta við einni milljón, sem við mun- um leggja fram í peningum." Fengur hefur þegar bjargað nokkrum Rannsóknaskipið Fengur var sent af stað á miðvikudag frá Maputo, höf- uðborg Mósambík, til að aðstoða við björgunarstarf og sagði Halldór að nú þegar hefði hann bjargað fólki, sem hefði verið sótt á litlum sex og hálfs metra báti, sem notaður hefur verið til rækjurannsókna á grunn- sævi. „Jafnframt fór Fengur með hjálp- artæki, þar á meðal rafstöðvar, til Xai-Xai,“ sagði hann. „Hann mun verða notaður til hjálparstarfs áfram.“ Talið er að enn séu þúsundir manna fastar í trjám og á húsþökum eftir að akrar og bújarðir í kringum borgirnar Xai-Xai og Chokwe fóru á kaf í flóðum á sunnudag. Þá eru um hundrað þúsund manns á hæðum, sem standa upp úr vatninu, og eru án matar, læknisaðstoðar og ferskvatns. Ekki er hægt að neyta flóðavatnsins vegna þess að í því eru hræ af naut- gripum og villtum dýrum og úrgang- ur, sem veldur hættu á kóleru. Mikil áhersla var lögð á að hraða hjálparstarfi í gær vegna þess að undan ströndum Mósambík er hvirf- ilbylur, sem óttast er að fari yfir flóðasvæðin. Notaðar eru bæði þyrl- ur og bátar til að bjarga fólki. Halldór sagði að þessir atburðir þýddu að endurskoða þyrfti hjálpar- starf í slands í Mósambík: „Þær áætl- anir, sem Þróunarsamvinnustofnun hefur haft, munu að sjálfsögðu rask- ast vegna þessara hræðilegu at- burða. Við höfum einnig gert ráð fyr- ir því í okkar áætlunum að auka starfið í Mósambík á næstu árum þannig að við eigum eftir að vinna í landinu í langan tíma.“ Þróunarsamvinnustofnun íslands (ÞSSÍ) hefur starfað í Mósambík undanfarin fjögur ár, einkum að fiskirannsóknum og hefur Fengur hefur verið í Mósambík í þrjú ár. Fyrsti íslenski diplómatinn í Afríku Hann kvaðst ekki vita hvaða afleið- ingar flóðin hefðu fyrir það starf, sem þegar hefði verið unnið í landinu, en það hefði verið ætlunin að stofna sér- staka skrifstofu í Maputo á næsta ári. „Við höfum þegar fengið inni í norska og danska sendiráðinu þar og höfum ætlað okkur að það verði fyrsti íslenski diplómatinn í Afríku, sem tekur þar til starfa.“ Trygg- ingafélög- in vara við vatnstjóni TRYGGINGAFÉLÖGIN hvetja íbúðareigendur til að moka snjó af svölum og tryggja að niðurfóll séu op- in. Spáð er hlýindum um helgina og er talin veruleg hætta á vatnstjóni af þeim sökum. Fyrirsjáanlegt vatns- tjón er ekki bótaskylt. Hugi Hreiðarsson, kynningarfull- trúi hjá Sjóvá-Almennum, sagði að um daginn þegar hlýnaði í veðri hefðu allmai-gir haft samband við tjónavakt fyrirtækisins og tilkynnt vatnstjón. Ékki væri hins vegar um bótaskylt tjón að ræða. Sú almenna regla gilti að tjón sem hægt væri að sjá fyrir væri ekki bætt. íbúðareigendur hefðu tækifæri til að moka snjó í burtu og huga að niðurföllum og koma þannig í veg fyrir tjón. Tjón vegna asahláku þar sem holræsakerfi sveitarfélaga hefði ekki undan væri hins vegar bótaskylt. Hugi sagði að það væru mörg ár síðan svo mikfll snjór hefði safnast fyrir á höfuðborgarsvæðinu. Þetta gerði það að verkum að hætta á vatns- tjóni væri nú meiri en oftast áður. Fólk þyrfti sérstaklega að huga að því að moka snjó af svölum. Einnig þyrfti að huga að kjöllurum og bakgörðum og tryggja að niðurföll væru opin. Þiðnar fyrst við húsvegg Hreinn Úlfarsson, starfsmaður í tjónadeild VÍS, sagði að hætta væri á umtalsverðu tjóni þegar hlýnaði í veðri. Mörg ár væru síðan svo mikill snjór hefði fallið á höfuðborgarsvæð- inu og raunar víðar um land. Mikfll snjór væri á húsaþökum og á svölum. Tjónahætta stafaði af þessu þegar snjórinn tæki að þiðna. Hreinn sagði mikflvægt að fólk mokaði rás í snjóinn á svölum og við húsveggi þannig að snjórinn ætti greiða leið frá húsinu, en safnaðist ekki í tjamir. Fólk þyrfti að átta sig á að snjórinn bráðnaði fyrst upp við húsveggi og leitaði inn í hús ef hann ætti ekki aðra leið. Hann sagði að fólk gæti opnað stífluð niður- fóll með því að hella heitu vatni í þau og setja síðan salt í kringum þau. Hreinn sagði, eins og Hugi, að vatnstjón væru almennt ekki tjóna- skyld. Fólk yrði því sjálft að vera á varðbergi gagnvart þessari hættu. Hætt við leka við plötuskil Bjami Jónsson, starfsmaður í tjónadeild Tryggingamiðstöðvarinn- ar, sagði að oft gæti orðið talsvert mikið tjón þegar vatn læki inn í hús- næði. Mest hætta stafaði af leka frá svölum og kjöllurum. Hann benti sér- staklega á að þegar vatn safnaðist fyrir á svölum gæti það gerst að vatn læki inn um spmngur á plötuskflum og læki síðan niður í næstu íbúð. Slflct tjón gæti verið erfitt að laga því að yf- irleitt væri talsvert vatn komið inn í spmnguna þegar lekinn uppgötvað- ist. Þetta tjón, eins og annað vatns- tjón af völdum snjóbráðnunar, væri ekki bótaskylt. Það væri því brýnt að fólk hugaði að því að moka snjó í burtu og gera rásir í snjóinn þannig að vatn kæmist burt frá húsveggjum. öð í dag i'llM Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is Arnar beint í byrjunarlið Stoke / B1 »••••••••••••••••••••••••••••••• Vala hársbreidd frá Norður- landameti / B3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.