Morgunblaðið - 04.03.2000, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 4. MARS 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Danska konan Bettina Aller skaut
hvítabjörn í sjálfsvörn
Aldrei verið eins
hrædd á ævinni
Reuters
Hvítabirnir hafa nú með stuttu millibili nálgast tvo norðurpólsleið-
angra svo freklega að grípa hefur þurft til vopna. Myndin er tckin af
hvítabjörnum í Manitoba í Kanada í október 1999.
ENN berast fréttir af hvítabjarn-
arárásum á norðurpólsfara. I
fyrradag var það danski pólfa-
rinn Bettina Aller, sem neyddist
til að skjóta hvítabjörn á fjögurra
metra færi. Hún reyndi að fæla
björninn burt með því að skjóta
viðvörunarskoti að honum með
merkjabyssu og garga á hann, en
án árangurs. Björninn nálgaðist
Bettinu engu að síður þrátt fyrir
varnarráðstafanir hennar og
neyddist hún því til að drepa
hann þegar hann átti ijóra metra
ófarna að henni.
Bettina Aller er 37 ára gömul,
tveggja barna móðir og hefur
verið í eina viku á ferðalagi sínu
áleiðis til norðurpólsins. Hún er
einsömul á ferðalagi sínu og ætl-
ar sér að verða fyrsta konan sem
gengur á norðurpólinn án stuðn-
ings. Hún lagði af stað frá Sí-
beríu, þar sem meira er af hvíta-
björnum en við Ellesmerey í
Kanada, þaðan sem Haraldur
Örn Ólafsson og Ingþór Bjarna-
son fara 10. mars. Til gamans má
geta þess að norski pólfarinn
Borge Ousland, sem var hér á
landi fyrir skömmu og fór í Land-
mannalaugar með Haraldi og
Ingþóri, var ráðgjafi Bettinu við
undirbúninginn að ferð hennar.
Fetaði í fótspor Bettinu
Sænska blaðið Aftonbladet
segir svo frá að hvítabjörninn
hafi verið stór og hafi fetað í fót-
spor Bettinu, sem beið hans
skjálfandi af hræðslu. Eftir að
hafa skotið viðvörunarskotinu
með merkjabyssunni, án þess að
björninn hörfaði, skaut hún
björninn með þeim afleiðingum
að hann nam staðar. Bettina
skaut síðan öðru skoti (þriðja
skotinu alls) og banaði birninum.
Ekki er þess getið hvort hún hafi
dregið fram annað vopn fyrir síð-
ari skotin tvö og virðist hún því
hafa drepið björninn með
merkjabyssunni.
Blaðið segir Bettinu aldrei
hafa verið eins hrædda á ævi
sinni og hefur eftir henni m.a.
þau orð að hún beri óttablandna
virðingu fyrir hinum stóru
bjarndýrum þar sem hún dvelji í
ríki þeirra og því hafi reynst erf-
itt að drepa björninn.
Siðastliðin 30 ár hefur verið í
gildi áætlun um verndun og veiði
hvítabjarna, þar sem fullrúar
Danmerkur fyrir Grænland,
Rússlands, Bandaríkjanna, Nor-
egs og Kanada taka sameiginleg-
ar ákvarðanir um meðferð hvíta-
bjarnarins í víðu samhengi. Hér á
landi hefur hvitabjörninn verið
friðaður siðan 1994, þó með und-
antekningum.
Stærsta rándýr heims
I bókinni Villt fslensk spendýr í
ritstjórn Páls Hersteinssonar og
Guttorms Sigbjarnasonar er
grein um hvítabirni eftir Ævar
Petersen og Þóri Haraldsson.
Þar segir að hvítabjörninn sé
stærsta rándýr heims og verði á
fjórða metra á lengd og allt að
800 kg að þyngd. Þeir geta orðið
allt að 30 ára gamlir en komast
sjaldan yfir tvítugt. Heimkynni
þeirra eru á norðurhjara verald-
ar allan jarðarhringinn.
Hvítabirnir lifa aðallega á sel-
um og sækja helst út á landfastan
ís, sérstaklega þar sem mikið er
um vakir.
Þeir hafa komið til íslands með
hafis á liðnum öldum og eru ýms-
ar heimildir til um komu þeirra.
f grein Ævars og Þóris kemur
fram að vitað sé a.m.k. um rúm-
lega 500 hvítabirni sem hafa
komið til landsins. „Aðeins fáir
þeirra hvítabjarna sem hafa ver-
ið felldir hafa varðveist," segir í
greininni. „Hér á landi er vitað
um sex uppstoppuð dýr á opin-
berum stöðum. Sá elsti var felld-
ur í Grímsey árið 1969 og er
varðveittur í Safnahúsinu á
Húsavík. Árið 1974 var hvíta-
björn drepinn í Fljótavík á Vest-
fjörðum og er nú uppsettur í
Náttúrugripasafni Selfoss.
Grunnskólinn í Ólafsfirði státar
af þriðja dýrinu sem skotið var á
Grímseyjarsundi árið 1975.“
Fjórði björninn er í Varmahlíð
í Skagafirði, sem drepinn var í
Fljótum árið 1988, sá fimmti, af
erlendum uppruna, í Náttúr-
ugripasafni Dalvíkur. Sjötta dýr-
ið er húnn, sem er í Flensborgar-
skóla í Hafnarfirði.
Greinin var birt í áðurnefndri
bók, sem kom út árið 1993 og er
því a.m.k. ótalinn uppstoppaður
hvítabjörn í versluninni Nanoq í
Kringlunni, sem sjálfsagt er að
geta í þessari upptalningu.
Heimilt að skjóta alla hvíta-
birni á færi fram eftir öldinni
Samkvæmt veiðitilskipun frá
árinu 1847 var heimilt að skjóta
alla hvítabirni á færi innan ís-
lensks lögsagnarumdæmis. Með
setningu laga um vernd, friðun
og veiðar á villtum spendýrum,
sem sett voru árið 1994, var hins
vegar kveðið á um friðun hvíta-
bjarna. 116. grein laganna segir
að þó megi fella hvítabjörn, sem
gengið hefur á land og fólki eða
búfénaði stafar hætta af honum.
Þar segir einnig að gangi hvíta-
björn á land þar sem fólki eða bú-
fénaði erekki talin stafa bráð
hætta af er umhverfisráðherra
heimilt að fela veiðstjóraembætt-
inu að fanga björninn og flytja
hann á stað þar sem ekki stafar
hætta af honum.
Hagfræðingur LÍÚ vill skýringar á hærra
olíuverði á fslandi en í nágrannalöndum
Yfír tveg’gja milljarða
hækkun fyrir útgerðina
VERÐ á gasolíu til fiskiskipa hefur
hækkað hérlendis á rúmu ári um
66% og þýðir það yfir tveggja millj-
arða króna útgjaldaaukningu, að því
er Sveinn Hjörtur Hjartarson, hag-
fræðingur hjá Landssambandi ís-
lenskra útvegsmanna, tjáði Morgun-
blaðinu. Hann segir lítrann vera
fjórum til fimm krónum dýrari hér-
lendis en í mörgum nágrannalönd-
Andlát
SIGRÍÐUR ÞÓRA
GESTSDÓTTIR
SIGRÍÐUR Þóra
Gestsdóttir fyrrver-
andi flugfreyja lést í
gær á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur á 74. al-
dursári.
Sigríður Þóra fædd-
ist í Reykjavík hinn 30.
júní árið 1926. Foreldr-
ar hennar voru Gestur
Pálsson, lögfræðingur
og leikari, og Dóra Þór-
arinsdóttir húsfreyja.
Sigríður Þóra ólst upp í
Reykjavík og stundaði
nám í Verzlunarskóla
íslands í tvö ár. Rúm-
lega tvítug hélt hún til Bandaríkj-
anna þar sem hún stundaði nám við
New Jersey College for Women en
einnig vann hún hjá sendiráðsritara
fslendinga í Bandaríkjunum.
Sigríður Þóra hóf að starfa sem
flugfreyja hjá Loftleið-
um árið 1947 og var þar
ílugfreyja númer tvö.
Árið 1949 byrjaði hún
að vinna á skrifstofu
Loftleiða en þremur
árum síðar hóf hún
hins vegar aftur störf
sem flugfreyja hjá
Loftleiðum og sinnti
því starfi til 1958. Þá
.tók hún að starfa hjá
söluskrifstofu Loft-
leiða, seinna Flugleiða,
og vann þar til ársins
1996 er hún fór á eftir-
laun.
Sigríður Þóra lætur eftir sig eigin-
mann, Guðgeir Þórarinsson klæð-
skera og uppkomna dóttur, Dóru
Guðrúnu Kristinsdóttur. Dóra Guð-
rún er fædd árið 1951 og á fjögur
böm.
um.
„Viðmiðunarverð gasolíu sem við
fylgjumst með náði ákveðnu lág-
marki í desember 1998 og var þá 100
dollarar fyrir tonnið,“ segir Sveinn
Hjörtur. „Það var hagstætt verð en
síðan hefur það farið hækkandi og
var komið í 200 dollara um síðustu
áramót og hækkar enn.“
Sveinn segir olíuverð á erlendum
markaði hafa afgerandi áhrif á verð-
þróun innanlands. „En við erum
jafnframt með dýrt olíudreifingar-
kerfi. Við höfum aldrei fengið al-
mennilega skýringu á því hvernig
stendur á því að olía þarf að vera
dýrari hér til stórnotenda en í sam-
bærilegum löndum og það er baga-
legt,“ segir Sveinn Hjörtur og telur
að hana þuríi útgerðarmenn að fá.
Sveinn segir spuminguna þá hvað
gerist næst en slík hækkun segi
vemlega til sín. „Miðað við að árs-
notkunin sé um 260 milljónir lítra
þýðir hækkunin yfir tvo milljarða en
þetta em ekki alveg nýjar tölur um
notkun og Þjóðhagsstofnun telur
þessa hækkun vera um 2,5 milljarða
áári.“
Sveinn rifjaði upp að fyrir fjómm
áram, í október 1996, hafi verðið ver-
ið í hámarki sem var 232 dollarar en
síðan lækkaði það nokkuð hratt.
Sveinn sagði útgerðir gera sér far
um að kaupa olíu erlendis hvenær
sem færi gæfist enda væri verðið þar
töluvert lægra. „Verðið var um 5
krónum lægra í Bremerhaven eftir
tölum sem ég hef nýlega fengið þar
sem olían kostaði 14,50 kr. en hér er
verðið 19,60,“ sagði Sveinn og sagði
einnig skorta nokkuð á að gæði væm
svipuð hérlendis.
Hlutfall olíu-
kostnaðar 6-12%
Hlutfall olíukostnaðar er nokkuð
mismunandi eftir stærð fiskiskipa og
hvaða veiðarfæri em notuð en
Sveinn segir það vera á bilinu 6 til
12%, hæst hjá togurum. Olíuverðið
er einn af fjómm stærstu kostnaðar-
póstunum í útgerðinni. Aflahlutur
skipshafnar er að nokkru leyti
tengdur olíuverði hverju sinni og
segir Sveinn sjómenn taka ákveðna
áhættu með útgerðunum, þeir njóti
lækkunar en taki jafnframt ákveðna
áhættu vegna olíuhækkana. Segir
Sveinn skiptaprósentuna hafa lækk-
að, hún sé nú í 71% en geti lægst orð-
ið 70% ef frekari olíuverðshækkun
verður, eftir það taki útgerðin alveg
á sig hækkunina.
„Tekjur útgerðar og tekjur sjó-
manna minnka því í hlutfalli við
hækkun olíuverðs sem gerir sóknina
dýrari og leiðir til verri afkomu."
Veitir 2
milljónir til
þjónustu
prests í
London
RÍKISSTJÓRNIN ákvað á fundi
sínum í gærmorgun að veita tvær
milljónir króna til þjónustu prests
við sendiráð íslands í London á
þessu ári og fól Tryggingastofnun
ríkásins sömuleiðis að fjármagna 1,5
milljón króna sem þá vantar til þess
að unnt verði að halda uppi óbreyttri
þjónustu sendiráðsprestsins á árinu.
í minnisblaði sem Ingibjörg
Pálmadóttir heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðherra lagði fram á ríkis-
stjórnarfundinum kemur m.a. fram
að embættismenn sendiráðs íslands
í London kveði að það vanti um 3,5
milljónir króna á þessu ári til að
unnt verði að halda uppi óbreyttri
þjónustu sendiráðsprests en auk
sjúklinga hefur hann þjónað þörfum
fjölda námsmanna í London og ann-
ars staðar í Englandi. Auð auki sinn-
ir hann Islendingum sem lenda í
vanda, sérstaklega vegna afbrota og
fangelsisvistar. Þá gegni hann
margháttaðri þjónustu við íslend-
inga sem eigi leið um London eða
dveljast þar um lengri eða skemmri
tíma.
Gerð verði tillaga
um framtíðarþjónustu
Auk þessa samþykkti ríkisstjórn-
in að setja á stofn starfshóp aðstoð-
armanns utanríkismálaráðherra og
fjármálaráðherra undir forystu að-
stoðarmanns heilbrigðisráðherra í
þeim tilgangi að gera tillögu til rík-
isstjórnarinnar um framtíðarfyrir-
komulag prestsþjónustu við íslend-
inga á erlendri gmnd. Sérstaklega
verði skoðað hvort rétt kunni að
vera að fella þess þjónustu undir ut-
anríkisráðuneyti með tilliti til þess
að þeir sem þessum störfum gegni
þurfi að njóta diplómatískrar stöðu
á erlendri grand.
------------------
Látnir og alvarlega
slasaðir í umferðinni
Hlutfallið
álíka hátt og
í Bretlandi
SAMKVÆMT tölum sem liggja
fyrir um fjölda banaslysa í umferðinni
hérlendis frá 1994 til 1999 hafa 18 :
manns að meðaltali látist í umferðinni j
árlega, eða um 0,006% landsmanna.
Um 200 manns slasast alvarlega á ári
hveiju eða um 0,07% landsmanna.
í Bretlandi er hlutfallið svipað og
vilja stjómvöld þar draga úr umferð-
arslysum um 40% næstu 10 árin. Ár-
lega látast 3.500 manns í umferðinni
þar og 40 þúsund slasast alvarlega.
Tony Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, hefur sagt að ríkisstjómin ætl- ;
ist til þess að yfirvöld í borgum og j
bæjum lækki hámarkshraða. Þá á að |
þyngja refsingar vegna hraðaksturs
og veita aukið fé til samgöngumála.
Stefnt að 20% fækkun
slysa hérlendis
Samkvæmt áætlun sem samþykkt
var á Aíþingi 1996 og gildir til 2001 er :
markmiðið að fækka alvarlegum um-
ferðarslysum hérlendis um a.m.k.
20% fyrir árslok. Stefnt er að því að j
færri en 200 slasist alvarlega eða lát-
ist árlega fyrir árslok árið 2000.
Fram hefur komið fyrr á þessu ári
að rannsóknamefnd umferðarslysa
telji í nýlegri skýrslu, að auka eigi eft-
irlit lögreglu með umferðarlagabrot-
um. Það er einnig álit nefndarinnar að
huga eigi að því hvort ekki sé rétt að
herða viðurlög og refsingar við urm
ferðarlagabrotum. Innan skamms á
að halda ráðstefnu um álit nefndar-
innar og aðrar niðurstöður úr skýrslu .
hennar sem Sólveig Pétursdóttir, j
dómsmálaráðherra, kynnti á ríkis- i
stjómarfundi í lok desember.