Morgunblaðið - 04.03.2000, Side 8
8 LAUGARDAGUR 4. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Lifi samkeppnin.
alltað
Russell síðermabolir 4.200 1.995 495
Bomsur 12.900 9.995 5.990
Bamafleece 2.990 1.950 995
Russell fleecepeysur 6.990 2.495 1.398
Bamaúlpur 8.900 4.450 1.995
HREYSTI
ÆFINGAR - ÚTIVIST - BÓMULL
— Skeifunni 19 - S. 5681717-
afslattur
öpiðídag
rT1 fmkL 10-18
Ulpur
Fleecefatnaður
Bómullarfatnaður
Barna-og fullorðinsstærðir
Verðdæmi Verð Útsöluverð Lokaverð
Skíðabrettaúlpur 22.400 9.950 4.480
Allar vetrarvömr á útsölu
Fréttir á Netinu
vfú mblús
-At-L.TAf= e/TTH\SA£> /VÝTT
Æskulýðsdagur þjóðkirkjunnar
Ungt fólk sýni-
legt í helgihaldi
Halldór Elías Guðmundsson
skulýðsdagur
þjóðkirkjunnar
er á morgun
og verður hann haldinn
hátíðlegur í flestum
kirkjum landsins. Hall-
dór Elías Guðmundsson
er framkvæmdastjóri
Æskulýðssambands
kirkjunnar í Reykjavík-
urprófastsdæmum, hann
var spurður hvernig æsk-
ulýðsdagurinn væri hald-
inn hátíðlegur.
„Nú, eins og undanfar-
in þrjú ár er stefnt að því
að í hverri kirkju lands-
ins sé dagskrá þar sem
ungt fólk er sýnilegt sem
þátttakendur. Er það
gert með því að barna-
og unglingakórar kirkn-
anna syngja, ungt fólk í
söfnuðunum er með kristilega
leikþætti og ljóðalestur og í
nokkrum kirkjum verður ungt
fólk með myndlistarsýningar
sem tengjast trúarlífi. Allt
helgihald dagsins í kirkjum
landsins miðast við að það sé
sem aðgengilegast fyrir ungt
fólk, sungnir verða léttari sálm-
ar og sums staðar gospel-tónlist
einnig. Með óvenjulegri viðburð-
um þetta árið eru umræður
ungs fólks í Neskirkju um
trúarleg stef í tónlistarmynd-
böndum. Einnig má nefna popp-
djassmessu í Arbæjarkirkju og
kirkjuvöku í Hallgrímskirkju.“
- Hvað lengi hefur þessi dag-
ur verið haldinn hátíðlegur með
þessum hætti?
„Fyrsti sunnudagur í mars er
tileinkaður ungu fólki i kirkjum
mjög víða í heiminum. En það
var með stofnun embættis
æskulýðsfulltrúa þjóðkirkjunnar
sem farið var að halda hátíðleg-
an æskulýðsdag í kirkjum Is-
lands fyrsta sunnudaginn í
mars.“
- Er æskulýðsdagurinn einnig
haldinn hátíðlegur í sveitum
landsins?
„Hann á að vera haldinn há-
tíðlegur í kirkjum í öllum bæj-
um landsins og í sumum sveit-
um. Hver söfnuður um sig er
sjálfstæð eining og af þeim sök-
um er áherslan á daginn mis-
munandi í hverjum söfnuði fyrir
sig, en í öllum messum þennan
sunnudag verður æskulýðsdags-
ins minnst með einhverjum
hætti.“
- Er æskuiýðsstarf kirkjunn-
ar sýnilegt í messum í kirkjum í
annan tíma?
„ Það er mjög misjafnt, mjög
víða er æskulýðsstarfið það
sjálfstæður þáttur í starfi safn-
aðarins að það tengist ekki með
beinum hætti inn í sunnudags-
helgihaldið. En takmark Æsku-
lýðssambandsins er að virkja
unga fólkið inn í helgihald
sunnudagsins og jafnframt að
gera sunnudagshelgihaldið
þannig úr garði að það sé að-
gengilegt ungu fólki.“
- Hefur Æskuiýðs-
sambandið samstarf
við söfnuði um kirkju-
legt starf fyrir ungt
fóik?
„Hlutverk Æsku-
lýðssambandsins er
þjónusta við söfnuðina sem felst
í námskeiðahaldi fyrir starfs-
fólk, ráðgjöf um framkvæmd
æskulýðsstarfs og undirbúning-
ur og skipulagning sameigin-
legra verkefna safnaðanna á
sviði æskulýðsmála. Því felst
starfið í mjög nánum samskipt-
um við grunneiningu kii-kjunnar
- söfnuðina. Önnur verkefni
► Halldór Elías Guðmundsson
fæddist í Reykjavík 3. mars 1973.
Hann lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavik
1992 og BA-prófi í guðfræði frá
Háskóla íslands 1997. Hann hef-
ur starfað á ýmsum stöðum
skamman tíma með námi en fékk
djáknavígslu hjá Þjóðkirkjunni
1997 og hefur síðan gegnt starfi
framkvæmdastjóra Æskulýðs-
sambands kirkjunnar í Reykja-
víkavíkurprófastsdæmum. Hall-
dór er kvæntur Jennýju
Brynjarsdóttur stærðfræðingi og
nema í verkfræði og eiga þau
eina dóttur.
sambandsins felast í samskipt-
um við æskulýðshreyfingar utan
kirkjunnar í verkefnum sem
ekki er hægt að vinna á safnað-
argrunni. Gott dæmi um þetta
er að við önnuðumst helgihald á
landsmóti skáta sumarið 1999.“
- Á Æskulýðssambandið sam-
skipti við erlend sambönd af
sama tagi?
„Já, Æskulýðssamband
kirkjunnar er hluti af Sam-
kirkjuráði ungs fólks í Evrópu,
sem er samráðshreyfing flestra
kirkjudeilda í 22 löndum
Evrópu. Æskulýðssambandið
tekur virkan þátt í starfi sam-
bandsins og hefur á síðustu fjór-
um árum tvívegis haldið ráð-
stefnur eða málþing hér á landi
auk þess sem á fjórða tug ung-
menna hefur farið á ráðstefnur
og málþing á þeirra vegum í
Evrópu héðan.“
-Hver eru helstu baráttumál
Æskulýðssambands þjóðkirkj-
unnar hér?
„Markmið starfsins er að gera
ungt fólk meðvitað um sjálft sig
og ákvarðanir sem það tekur í
lífinu. Það er trú okkar að það
verði best gert með virku trúar-
lífi og virkum samskiptum við
annað fólk. Við reynum að
hvetja unglingana til að hugsa á
gagnrýninn hátt um umhverfi
sitt og spyrja sig mikilvægra
spurninga um líf sitt og um-
hverfi sitt.“
-Hvers vegna þarf
djáknavígslu til þess
að annast fram-
kvæmdastjórn Æsku-
lýðssam bandsins?
„Djáknavígslan er
ekki skilyrði en hluh'erk djákna
í þjóðkirkjunni er að vera þjón-
andi starfsmaður, áherslan í
menntun minni er á hinum fé-
lagslega þætti sem hentar vel í
þetta starf. Með vígslu
kirkjunnar er þjónustuhlutverk
mitt staðfest af söfnuðum í
Reykjavík og yfirstjórn
kirkjunnar."
Markmiðið að
geraungtfólk
meðvitandi
um sjálft sig