Morgunblaðið - 04.03.2000, Qupperneq 10
10 LAUGARDAGUR 4. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Lífsgæði fatlaðra metin
með staðlaðri aðferð
Morgunblaðið/Ásdís
Greint var frá rannsóknum á viðhorfum fatlaðra til lífsgæða.
RANNSÓKN á lífsgæðum fatlaðra
var kynnt í gær á fundi á vegum
svæðisskrifstofu um málefni fatl-
aðra á Reykjanesi. Almar Halldórs-
son, sem hefur meistaragráðu í
rannsóknarsálarfræði, kynnti rann-
sóknina sem hann segir vera
ákveðna aðferð til að meta viðhorf
fatlaðra og þorskaheftra til lífs-
gæða.
Fundinn sátu fulltrúar frá hags-
munaaðilum fatlaðra, Öryrkja-
bandalaginu og fleiri, starfsmenn
svæðisskrifstofa um málefni fat-
laðra og frá félagsmálaráðuneytinu.
Aðdragandi rannsóknarinnar var
meðal annars sá að eftir ítarlega út-
tekt á starfsemi svæðisskrifstofunn-
ar á Reykjanesi kom í ljós að hlut-
lausa og haldbæra aðferð vantaði til
að meta ánægju þeirra sem leita til
skrifstofunnar með þjónustuna.
Almar sagði í viðtali við Morgun-
blaðið að rannsóknin byggðist á
bandarískri aðferð, sem þróuð hefur
verið í háskólanum í Illinois, lífs-
gæðakvarðanum, sem hannaður var
í þeim tilgangi að meta lífsgæði fatl-
aðs fólks með skerta greind. Er not-
uð stöðluð viðtalsaðferð sem tekur
mið af persónulegu mati viðkomandi
á högum sínum. Spurt er um samfé-
lagsþjónustu og nánasta umhverfi,
persónulega hagi, svo sem um vini,
tómstundir og síðan atvinnu og
starfsumhverfi. Hann segir að ekki
sé til aðferð hjá þjónustufyrirtækj-
unum í einkageiranum sem nota
megi til að meta lífsgæði fatlaðra
þar sem gæðaeftirlit í þjónustu við
þá sé háð ákveðnum forsendum og
takmörkunum.
Úrtakið var 75 einstaklingar,
valdir voru af handahófi, sem
bjuggu ýmist á stofnun, sambýlum
eða þjónustuíbúð eða á eigin vegum.
Almar kveðst telja aðferðina áreið-
anlega til mats á aðstæðum og við-
horfum fatlaðra á eigin lífsstíl og
viðhorfum þeirra til þjónustu svæð-
isskrifstofunnar. Segir hann þarna
komna áreiðanlega aðferð sem nýst
geti þjónustustofnunum til að fatl-
aðir geti metið þessi gæði út frá eig-
in sjónarhóli, íslenska útgáfa mats-
kerfisins sé sambærileg þeirri
upprunalegu.
Reglugerð um sameiningu sjúkra-
húsanna í Reykjavfk gefín út
Nafnið verður
Landspítali há-
skólasjúkrahús
ÁKVEÐIÐ hefur verið að
sjúkrahúsin í Reykjavík verði
sameinuð undir nafninu Land-
spítali, háskólasjúkrahús, sam-
kvæmt reglugerð heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytisins um
sameiningu Ríkisspítala og
Sjúkrahúss Reykjavíkur, en
reglugerðin var gefin út í gær.
Samþykkt var í stjórn spítal-
ans að mæla með þessu nafni
við heilbrigðisráðherra á fundi
hennar á miðvikudaginn var, en
þar var jafnframt ákveðið að
nota merki Sjúkrahúss Reykja-
víkur til að auðkenna spítalann.
Starfsemin á
mörgum stöðum
í frétt frá spítalanum segir að
starfsemin verði á mörgum
stöðum og gert sé ráð fyrir að
nöfn staða haldi sér, svo sem
Landakot, Gunnarsholt, Vífils-
staðir og Arnarholt. í því sam-
bandi verði til dæmis talað um
Landspítala Landakoti.
Stærsta fyrirtæki landsins
með fimm þús. starfsmenn
Þá kemur fram að Landspít-
ali, háskólasjúkrahús sé stærsta
fyrirtæki landsins með um fimm
þúsund starfsmenn. Hann þjóni
öllum landsmönnum, en tvær
stærstu starfseiningarnar séu
Landspítali Hringbraut og
Landspítali Fossvogi. Þannig
verði hætt að nota nafnið
Sjúkrahús Reykjavíkur.
„Hlutverk Landspítala, há-
skólasjúkrahúss er að veita
sjúklingum góða þjónustu, heil-
brigðisstéttum menntun og að
stunda vísinda- og rannsókna-
störf. Náin tengsl eru við Há-
skóla íslands og fleiri mennta-
stofnanir. Árlega njóta um 500
nemendur kennslu á spítalan-
um,“ segir ennfremur.
Aðalfundur Þormóðs ramma -
Sæbergs haldinn í Ólafsfírði
Morgunblaðið/Helgi Jónsson
Róbert Guðfinnsson framkvæmdasljóri á aðalfundi Þormóðs ramma -
Sæbergs sem haldinn var í Ólafsfirði.
474 milljóna
króna hagnaður
AÐALFUNDUR útgerðarfyrir-
tækisins Þormóðs ramma
Sæbergs hf. var haldinn í félags-
heimilinu Tjamarborg í Ólafsfirði í
gær, föstudag. Hagnaður fyrirtæk-
Forsætis-
ráðherra
til Kanada
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
heldur áleiðis til Ottawa í Kanada
þriðjudaginn 4. aprfl nk.
í for sinni mun forsætisráðherra
eiga fund með forsætisráðherra
Kanada, Jean Chrétien, og vera við-
staddur upphaf hátíðarhalda í tilefni
landafunda £ Museum of Civilization
6. apríl nk. Auk þess mun ráðherra
taka þátt í fundi íslensk-ameríska
verslunarráðsins um viðskipti land-
anna.
isins á árinu 1999 nam 474 milljón-
um króna, en var 200 milljónir árið
áður. Hagnaður af reglulegri starf-
semi nam 455 milljónum. Rekstrar-
tekjur námu 4.626 miljónum saman-
borið við 3.800 milljónir árið áður.
Rekstrarárið einkenndist af góðu
gengi flakafrystitogara félagsins
annars vegar og hins vegar sam-
drætti og erfiðleikum í rækju-
vinnslu og rækjuútgerð.
Fjárfestingar í aflaheimildum,
varanlegum rekstrarfjármunum og
öðrum félögum einkenndu einnig
árið. Árnes hf. í Þórlákshöfn var
sameinað Þormóði ramma
Sæbergi hf. á árinu, en tap varð af
reglulegri starfsemi í Þorlákshöfn.
Á síðasta ári unnu um 276 manns
að meðaltali hjá Þormóði ramma -
Sæbergi hf. Reiknað er með að
rekstri fyrirtækisins á yfirstand-
andi ári verði hagað með svipuðu
sniði og verið hefur. Stjórn félags-
ins hefur gert það að tillögu sinni
að greiddur verði 8% arður á árinu
2000.
Formaður Eflingar leggur áherslu á breytingar í skattamálum
Þörf á lægra skattþrepi
fyrir láglaunafólk
HALLDÓR Björnsson, formaður
Eflingar, sagði á fundi Flóabanda-
lagsins sl. fimmtudag að nauðsynlegt
væri að taka upp annað skattþrep
fyrir fólk sem er á lægstu laununum.
Sú gagnrýni sem verkalýðshreyfing-
in hefði sett fram á núverandi tekju-
skattskerfi miðaði fyrst og fremst að
ósanngjarnri skattlagningu á tekjur
láglaunafólks og til framtíðar yrði
henni tæpast mætt nema með öðru
og lægra skattþrepi.
Halldór sagði að á fundi formanna
landssambanda ASÍ í siðasta mánuði
hefði verið rætt um að ekki væri
hægt að ljúka samningum nema að
ríkisstjómin kæmi á móts við sjónar-
mið verkalýðshreyfingarinnar með
breytingum á tekjuskatti. Hann
sagði brýnt að stjómvöld legðu fram
tillögur í þessum efnum sem allra
fyrst því annars væri hætt við að við-
ræður um gerð nýs kjarasamnings
drægjust á langinn.
Halldór sagði á fundinum að Flóa-
bandalagið hefði lagt áherslu á að
vanda allan undirbúning samninga.
Lagðir hefðu verið fram vandaðir út-
reikningar á kostnaði við kröfugerð-
ina. Niðurstaða þeirra eru að kostn-
aður við kröfugerð Flóabandalagsins
sé 7,51% og 6,74% fyrir vinnumar-
kaðinn í heild. Þessir útreikningar
byggjast á því aðrir launþegar semji
um sömu hækkanir og Flóabanda-
lagið.
Halldór sagði að sú launastefna
sem Flóabandalagið hefði lagt fram
myndi hrynja ef aðrir hópar væm
fyrirfram ákveðnir í að sækja meira.
Sú hefði orðið raunin síðast. Á síð-
ustu þremur áram hefðu laun félags-
manna í Eflingu sem vinna á spítöl-
unum hækkað um 18% á meðan
sumar heilbrigðisstéttir hefðu fengið
um 40% hækkun.
Halldór sagði að það væri sitt mat
að þrennt gæti orðið til þess að við-
ræður við Samtök atvinnulífsins
strönduðu. í fyrsta lagi gæti orðið
viðræðuslit vegna ágreinings um
launalið. í öðru lagi gæti ági-einingur
um tryggingar komið £ veg fyrh'
samkomulag og £ þriðja lagi gæti rík-
isstjórnin spillt fyrir viðræðum ef
hún hafnaði óskum um breytingar á
skattalögum.
Fáir greiða
í séreignasjóði
Fram kom i máli Halldórs á fund-
inum að af 46 milljarða lífeyriseign £
lífeyrissjóðnum Framsýn væra ein-
ungis 20 milljónir í séreignarsjóðum.
Fólk hefði þv£ almennt ekki nýtt sér
rétt sinn til að leggja 2% iðgjald í
séreignasjóð. Hvetja þyrfti fólk til að
nýta sér þennan kost með þvf að
vinnuveitendur legðu fram 2% ið-
gjald á móti. Likur væra á að sam-
komulag tækist um það við vinnu-
veitendur.
Rannsakar eiturefni og
úrfellingu í gjosku Heklu
SÆNSKI jarðvisindamaðurinn Paul
Frogner hefur átt láni að fagna i sinu
starfi þvi þegar sá fyrir endann á
störfum hans hér á landi, sem var
rannsókn á eiturefnum og úrfellingu
þeirra úr ösku úr Heklugosinu 1970,
hófst nýtt Heklugos. Frogner er
styrkþegi Norrænu eldfjallastöðvar-
innar. Hann kom hingað til lands sl.
sumar og hefur starfað að rannsókn-
unum með Níelsi Óskarssyni hjá
Norrænu eldfjallastöðinni og Sigurði
R. Gíslasyni hjá Raunvísindastofnun
Háskólans. Það náðist tal af Frogner
þar sem hann var á vettvangi í hlíð-
um Heklu í gær.
„Ég er að leita að eiturefnum í
gjóskunni, eins og t.d. kobalti, kopar
og sinki. Einnig skoðum við önnur
efni eins og flúor, klór og ál sem í
miklu magni getur haft eitrunar-
áhrif. Við erum að skoða gjósku úr
núverandi Heklugosi og berum hana
saman við gjósku úr gosinu 1970.
Heklugosið nú var alveg ófyrirséð og
kom mér sannarlega skemmtilega á
óvart. Það gefur rannsóknarverkefni
mínu meira vægi,“ segir Frogner.
Hann segir að mikið magn áls,
sinks og kopars hafi mælst í gjósku
úr Heklugosinu 1970 en niðurstöður
mælinga í gjósku úr núverandi gosi
liggi ekki fyrir.
Sigurður R. Gíslason segir að
rannsóknin beinist að því hvaða efni
losni snarlega frá eldfjallaösku.
Hann segir að rannsóknin sé áhuga-
verð annars vegar í ljósi eituráhrif-
anna sem geti stafað frá öskunni og
hins vegar vegna þess að mörg þess-
ara efna geti virkað eins og áburður
fari styrkur þeirra ekki upp fyrir
eitranaráhrif. Frogner hefur, í um-
sjón Sigurðar og Níelsar Óskarsson-
ar, rannsakað gjósku sem var safnað
í Heklugosinu 1970 norður í landi
sem aldrei hafði komist í snertingu
við vatn. Athugað er hvaða efni losna
auðveldlega frá gjóskunni um leið og
hún kemst í samband við vatn.
Frogner var að vinna að þessu í vet-
ur og var að ljúka rannsóknunum
þegar Hekla byrjaði að gjósa.
Frogner og Níels söfnuðu sömuleiðis
gjósku á íyrstu klukkutímum goss-
ins fyrir norðan Búrfell og nú er ver-
ið að frostþurrka gjóskuna og hún
rannsökuð á sama hátt og gjóskan
frá 1970.
„Við eram að reyna að skilgreina
nákvæmlega hve hratt efnin losna og
í hve miklu rnagni," segir Sigurður.
R. Gíslason.