Morgunblaðið - 04.03.2000, Side 14

Morgunblaðið - 04.03.2000, Side 14
14 LAUGARDAGUR 4. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Fulltrúi foreldra í fræðsluráði segir Reykja- víkurborg brjóta grunnskólalög Vetrarfrí skerða lögboðna kennslu Reykjavík FRÆÐSLURÁÐ Reykjavík- ur frestaði á síðasta fundi sín- um til næsta mánudags að taka afstöðu til tillögu áheym- arfulltrúa foreldra um að end- urskoða skóladagatöl og fella niður vetrarfrí þar sem það á við svo að fjöldi kennsludaga í ár nái lágmarki grunnskóla- laganna. Vetrarfrí grunn- skólabama í borginni hefst einmitt á mánudag, daginn sem fræðsluráð tekur málið fyrir. Óskar ísfeld Sigurðsson, formaður SAMFOKS og áheymarfulltrúi í fræðsluráði, bar fram tillögu á fundi ráðsins 21. febrúar sl. þar sem lagt er til að skólastjómm borgarinn- ar verði sent bréf frá fræðslu- ráði þar sem fram komi að lágmarksfjöldi kennsludaga samkvæmt grunnskólalögum sé 170. Samkvæmt úrskurði menntamálaráðuneytisins séu starfsdagar kennara og foreld- raviðtalsdagar ekki kennslu- dagar. Fræðsluráð beini því til skólastjóra að þeir endurskoði skóladagatöl í þessu ljósi og felli niður vetrarírí þar sem það á við svo fjöldi kennslu- daga verði ekki minni en 170. Afgreiðslu málsins var frestað til næsta fundar, sem eins og fyrr segir verður haldinn á mánudag, daginn sem flestir skólamir hefja vetrarfrí. Óskar ísfeld sagði í samtali við Morgunblaðið að tilefni til- lögunnar hafi verið að undan- farin ár hafi böm í gmnnskól- um borgarinnar ekki fengið þann lágmarksfjölda kennslu- daga sem gmnnskólalögin kveða á um. Skólaárið er sam- kvæmt lögum tíminn .frá 1. september til 1. júní og á þeim tíma eigi börnin minnst að fá 170 kennsludaga. Að meðaltali séu 175 virkir dagar í skólaári en þetta árið séu þeir 178. Engu að síður fái flestir nem- endur aðeins 168 kennsludaga þetta árið, vegna fimm starfs- daga kennara, tveggja daga fyrir foreldrafundi og, frá og með þessum vetri, þriggja daga vetrarfrís. Oskar segist telja að vetrar- fríið sé til komið vegna kjara- samninga kennara við borg- ina. „Lögin setja þennan ramma utan um skólastarfið og fræðsluyfirvöld og fræðsluráð bera ábyrgð á að eftir þessu sé farið,“ segir Óskar. „Skóla- menn em sammála um að stutt skólaár hér á landi komi niður á námsárangri bamanna okkar og það em til rannsókn- ir sem sýna fylgni milli lengd- ar skólaárs og námsárangurs. í ár var möguleiki til að vera með lengra skólaár en vana- lega vegna þess hvemig alm- anaksárið raðast upp en í stað- inn fyrir að nýta sér það grípa menn til þess að gefa aukafrí." Óskar sagði að fyrir lægju úrskurðir menntamálaráðu- neytisins um að starfsdagar og foreldraviðtalsdagar teljist ekki til kennsludaga og eigi því ekki að teljast með kennslu- dögunum 170. „Þrátt fyrir það fara menn svona að ráði sínu,“ sagði Óskar. Vinnan taki mið af lögunum „Við blöndum okkur ekki inn í hvemig samið er við starfsfólk um greiðslu fyrir vinnuna en vinnan hlýtur af taka mið af þeim lögum sem gilda. Mér skilst að kennarar hafi bent á að þessi staða gæti komið upp en það sem að okk- ur snýr er að bömin okkar fái þá lágmarkskennslu sem lögin tryggja þeim,“ sagði Óskar. Oskar sagði að langt væri síðan fræðsluráði var gerð grein f yrir að þessi staða kynni að koma upp því foreldraráð hefðu bent á þetta í umsögnum sínum um skóla- dagatöl. Bærinn og hestamenn í framkvæmdum Morgunblaðið/Ásdís Ingimundur Sigurpálsson bæjarstjóri og Sveinn Skúla- on og Ársæll Hafsteinsson, frá hestamannafélaginu Andvara, undirrituðu samninga um samvinnu vegna svæðisins við Kjdavelli í gær. Gardabær GARÐABÆR mun næstu fimm ár leggja fram 9,6 m.kr. að núvirði til upp- byggingar á félagssvæði hestamannafélagsins And- vara á Kjóavöllum og um 2 m.kr. vegna endurbóta reiðvega á svæðinu næstu tvö árin. Bærinn og Andvari undirrituðu í gær samn- inga um þetta efni. „Það er skilningur aðila samnings þessa, að í framangreindar fram- kvæmdir sé ráðist til efl- ingar hestaíþróttinni í Garðabæ og að sem flest- um bæjarbúum gefist þar með kostur á þátttöku í þeirri fþróttagrein án óhóflegrar gjaldtöku. Sér- staklega eru aðilar áhugasamir um að efla áhuga æsku bæjarins á hestaíþróttinni og að Hestamannafélagið And- vari standi fyrir reiðnám- skeiðum unglinga f sam- vinnu við bæjarfélagið," segir í 5. grein samnings- ins um uppbyggingu mannvirkja og rekstur svæðisins á KjóavöIIum. I samningnum er fjallað um uppbyggingu keppnis- valla, áhorfendasvæðis og gerða samkvæmt skipu- lagsteikningu. Bærinn leggur fé til framkvæmda við nýjan keppnisvöll, áhorfendasvæði, reið- gerði, hringgerði og gerði og aðstöðu við félags- heimili. Kostnaður við fram- kvæmdirnar er áætlaður 14 milljónir króna og greiðir Garðabær að há- marki 9,8 m.kr. en And- vari 4,2 m.kr. Næstu þrjú ár greiðir bærinn 1,8 m.kr. árlega og árin 2003 og 2004 2,2 m.kr. árlega vegna samn- ingsins og eru greiðslur bundnar vísitölu neyslu- verðs miðað við janúar sl. Hestamannafélagið ber fulla ábyrgð á fram- kvæindum og áskilur bær- inn sér rétt til að fresta greiðslum þyki kostnaðar- áætlunum og verklýsing- um áfátt. Jafnframt fylg- ist bærinn með kostnaðarþáttum og verða greiðslur úr bæjar- sjóði ekki meiri en 70% af sannanlegum fram- kvæmdakostnaði hverju sinni. Jafnframt sömdu aðil- arnir um að félagið tæki að sér sorphirðu á svæð- inu en bærinn annist við- hald, lýsingu og snjó- mokstur gatna og reiðstíga á félagssvæðinu á Kjóavöllum. Vímuefnanotkun 10. bekkinga í Kópavogi könnuð Minni hassneysla en drykkja á börum áhyggjuefni Seltjarnar- nes Göng undir Öskjuhlíð og Kópavog Vatnsmýrin GÖNG undir Öskjuhlíðina og Kópavoginn eru lausnir, sem Orri Gunnarsson, nemi í um- hverfis- og byggingaverk- fræði við Háskóla Islands, bendir á í verkefni, sem hann vann um skipulag byggðar í Vatnsmýrinni. Verkefnið, sem fjallað var um í Morgunblaðinu í gær, gerir ráð fyrir rúmlega 20 þúsund manna byggð í Vatns- mýrinni. Til þess að anna aukinni umferð frá svæðinu gerir Orri ráð fyrir að fjölga stofnbrautum úr einni í þrjár. Braut yfir Skerjafjörð? Auk Miklubrautarinnar, gerir hann ráð fyrir stofn- braut úr Vatnsmýrinni og að Breiðholtsbraut, en hún myndi liggja í göngum undir Öskjuhlíð og Kópavog og kæmi í staðinn fyrir braut í gegnum Fossvogsdal. Þá ger- ir hann einnig ráð fyrir þeim möguleika að gera braut frá Vatnsmýrinni, sem lægi yfir Skerjafjörð og út á Álftanes, en tengdist síðan Hafnar- fjarðarvegi. Stofnbrautirnar mynda möskva Samkvæmt verkefni Orra, verður gatnakerfi Vatnsmýr- arinnar í samræmi við gatna- kerfi miðborgarinnar. Það liggur að miðbænum og tekur við umferðarflæði þaðan og veitir auk þess mótflæði og gegnumstreymi til annarra hverfa. Stofnbrautimar mynda möskva, sem skapa stofn- brautanet. Tengibrautir og safngötur miðla umferð í hverfið innan möskvanna, en þar taka húsagötu við. Húsagöturnar eru sveigðar eða hlykkjaðar og tengjast á fleiri stöðum til þess að hægja á umferð svo það borgi sig frekar að aka eftir stofnbrautum en að stytta sér leið í gegnum hverfið. Kópavogur DAGLEGAR reykingar nemenda í 10. bekk í grunn- skólum Kópavogs hafa stað- ið í stað síðastliðin þrjú ár og hassreykingar meðal þeirra hafa minnkað. Áber- andi er hve hátt hlutfall unglinganna drekkur áfengi í heimahúsum og einnig hve hátt hlutfall þeirra sem hafa neytt fíkniefna fá efnin hjá eldri vinum eða jafnöldrum. Þá er áberandi hve hátt hlutfall 10. bekkinga drekk- ur áfengi á börum í Kópa- vogi. Þetta kemur m.a. fram í niðurstöðum rannsókna á vímuefnaneyslu nemenda í 10. bekk árin 1997 til 1999, sem Rannsóknir og greining ehf. gerði fyrir íþrótta- og tómstundaráð Kópavogs. Langflestir þeirra 228 10. bekkinga í Kópavogi sem spurðir voru í fyrra, eða 83%, höfðu einhvern tímann notað áfengi það ár og 39% þeirra höfðu orðið drukknir síðastliðna 30 daga fyrir síð- ustu könnunina, sem gerð var í mars 1999. Á landsvísu var áberandi hversu mikið hassneysla dróst saman meðal 10. bekk- inga milli áranna 1998 og 1999 eftir verulega aukningu undanfarinn áratug. Hlutfall nemenda í 10. bekk um land allt, sem hafði prófað hass jókst úr 4% árið 1989 í 17% árið 1998. Ári síðar lækkaði hlutfallið niður í 15%. Svipuð þróun átti sér stað í Kópa- vogi. Árið 1998 sögðust tæp- lega 19% nemenda hafa prófað hass en 16% í fyrra. í Reykjavík var hlutfallið 20% á sama tíma. 8% stráka í 10. bekk reyktu hass þrisvar eða oftar í ljós kom að 8% stráka í 10. bekk í grunnskólum Kópavogs höfðu reykt hass þrisvar sinnum eða oftar ár- ið 1999 og 7% stelpna. Sam- bærilegar tölur eru í hærri í Reykjavík, einkum meðal stráka. Þar höfðu 15% reykt hass þrisvar eða oftar í fyrra og 9% stelpna. Minna en hálft prósent 10. bekkinga í Kópavogi sagðist hafa prófað e-töfluna í fyrra og tæplega 2% amfetamín. Til samanburðar sögðust 5% 10. bekkinga í Reykjavík hafa prófað amfetamín og 1,5% e-töfluna. Spurningalistar voru lagð- ir fyrir nemendur í öllum 10. bekkjum í grunnskólum á landsins og þar af 228 10. bekkinga í Kópavogi eins og fyrr gat. Alls svöruðu 3.554 nemendur spurningunum og var svarhlutfallið 89,6% af öllum nemendum sem skráð- ir voru í 10. bekk vorið 1999. Fengu fíkniefnin frá eldri vinum og jafnöldrum 10. bekkingarnir voru m.a. spurðir hvernig þeir urðu sé úti um þau ólöglegu vímu: efni sem þau prófuðu fyrst. í þeim tilvikum sem spurning- in átti við og þess skal getið að hún átti ekki við um 82,3% svarenda, sögðust 4,1% hafa fengið efnin frá eldri vini/vinkonu og 4,5% frá jafnaldra. Aðrir svar- möguleikar voru: deilt í hópi (1,8%), gefið af eldra systk- ini (0,9%), keypt af vini (0,9%), keypt/gefið af kunn- ingja (0,9%), gefið af for- eldrum (0,0%), fann það heima (0,9%) og gefið/keypt af ókunnugum (0,5%). Þá niðurstöðu að flestir þeirra sem á annað borð prófuðu vímuefni skyldu segjast hafa fengið þau hjá eldri vini/vinkonu og jafn- aldra er fróðlegt að skoða í samhengi við það sem Fjóla Þorvaldsdóttir, sem situr í stjórn Samkóps, Samtökum foreldrafélaga og foreldra- ráða í Kópavogi hefur að segja. Hún hefur heimildir fyrir því að nemendur í efstu bekkjum grunnskóla, sem sækjast eftir fíkniefnum, kaupi þau á framhaldsskóla- böllum. Sækja mjög stíft í framhaldsskólaböllin „Krakkarnir í efstu bekkj- um grunnskólanna í Kópa- vogi sækja mjög stíft í fram- haldsskólaböllin, sérstaklega í böll Menntaskólans í Kópa- vogi vegna þess að vinir þeirra eru komnir í skól- ann,“ segir Fjóla. „Á sama hátt höfum við í foreldrarölt- inu séð að nemendur í fyrsta bekk MK sækja mjög mikið í grunnskólana. Við höfum einmitt verið í vandræðum með það hvað nemendur í fyrsta bekk MK hanga mikið yfir grunnskólanemendun- um. Við höfum reynt að vinna á þessu vandamáli með góðum árangri í vetur með því að loka diskótekum grunnskólanna klukkan 22 á kvöldin og eftir það fær eng- inn að fara út. Þannig er komið í veg fyrir að nemend- ur rápi út og inn og þeir sem vilja vera á diskótekunum til klukkan 23.30 eru því innan- dyra. Við höfum því lokað á það að krakkar séu hang- andi reykjandi og drekkandi fyrir utan skólana.“ Spurð um viðbrögð sín við niðurstöðum rannsóknarinn- ar segir Fjóla að svör 10. bekkinganna við því hvar þeir drekki áfengi, veki sér- staka athygli sína. 48,7% þeirra sem á annað borð drekka, sögðust drekka í heimahúsum annarra. „Ég er ekki sátt við það að tæplega 50% unglinganna drekki í öðrum húsum. Mér finnst hræðilegt að vita til þess og langar því mikið að sjá hvort foreldraröltið, eftir að það hófst af fullum krafti í Kópavogi, hafi fært drykkj- una af götunum inn á heimili okkar. Það hefur greinilega náðst mikill árangur með foreldraröltinu, því það er frekar lágt hlutfall ungling- anna sem dekkur á götum úti (18,4%). Þetta segir mér að foreldraröltið eitt og sér dugar ekki. Við verðum að gera stórátak á okkur sjálf- um heima hjá okkur, enda á forvarnarstarfið að byrja þar. Ég er heldur ekki sátt við það að 8,8% aðspurðra, sem drekka segjast drekka á börum í Kópavogi. Það er 5% meira en annars staðar á landinu.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.