Morgunblaðið - 04.03.2000, Side 22
22 LAUGARDAGUR 4. MARS 2000
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
GRANDI hf. wSjkáí^ Úr ársreikningi 1999
Rekstrarreikningur (JflflpfDI 1999 1998 Breyting
Rekstrartekjur Milljónir króna 3.665 3.604 +1,7%
Rekstrargjöld 2.805 2.593 +8,2%
Afskriftir 506 408 +24,0%
Fjármunatekjur (fjármagnsgjöld) 262 -203
Tekju- og eiqnarskattar -90
Hagnaður án áhrifa hlutdeildarfél. 526 400 +31,5%
Áhrif hlutdeildarfélaga 182 3 +5967%
Hagnaður ársins 708 403 +75,7%
Efnahagsreikningur 31.12.99 31.12.98 Breyting
Eignir samtals Milljónir króna 9.944 8.208 +21,2%
Eigið fé 4.069 3.372 +20,7%
Skuldir 5.875 4.836 +21,5%
Skuidir og eigið fé samtals 9.944 8.208 +21,2%
Kennitölur og sjóðstreymi 1999 1998 Breyting
Arðsemi eigin fjár 20% 13,3%
Eiginfjárhlutfall 41% 41%
Veltufjárhlutfall Milljónir króna 0,77 1,22
Veltufé frá rekstri 615 793 -22,4%
Hagnaður Granda
708 milljónir
Afkoma Oliuverslunar Islands á árinu 1999
Hagnaður af reglulegri
starfsemi jókst um 63%
pRfj Olíuverzlun íslands m. 1111 H Úr reikningum ársins 1999
Rekstrarreikningur 1999 1998 Breyting
Rekstrartekjur Milljónir króna Rekstrargjöld Afskriftir Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld Skattar 8.597 8.005 151 52 158 7.241 6.768 144 -37 86 +19% +18% +5% +84%
Hagnaður af reglulegri starfsemi Söluhagnaður Áhrif hlutdeildarfélaga 335 O 3 206 74 2 +83% +50%
Hagnaður ársins 338 282 +20%
Efnahagsreikningur 31. des.: 1999 1998 Breyting
Eignir samtals Milljónir króna 7.268 5.857 +24%
Eigið fé 2.915 2.505 +16%
Skuldir og hlutdeild minnihl. 4.353 3.352 +30%
Skuldir og eigið fé samtals 7.268 5.857 +24%
Kennitölur og sjóðstreymi 1999 1998 Breyting
Arðsemi eigin fjár 13,5% 12,6%
Eiginfjárhlutfall 40% 43%
Veltufjárhlutfall 1,4 1,2
Veltufé frá rekstri Milljónir króna 429 337 +27%
HAGNAÐUR Granda hf. á árinu
1999 nam 708 milljónum króna,
sem er 76% aukning frá árinu áður
en þá nam hagnaðurinn 403 millj-
ónum króna. Er þetta mesti hagn-
aður Granda frá upphafi. Hagnað-
ur samstæðunnar án áhrifa frá
hlutdeildarfélögum var 526 milljón-
ir króna en var 400 milljónir króna
árið 1998. Rekstrartekjur sam-
stæðunnar námu 3.665 milljónum
króna borið saman við 3.604 millj-
ónir króna árið áður og er það
aukning um 1,7%. Veltufé frá
rekstri dróst saman um 22,4%, fór
úr 793 milljónum króna í 615 millj-
ónir króna.
Brynjólfur Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri Granda, segir af-
komuna bærilega og að hagnaður-
inn samanstandi af nokkrum
mismunandi þáttum.
„Reksturinn var meira og minna
í samræmi við áform ársins, þó svo
að aflinn hafi verið nokkuð minni í
árslok en gert hafi verið ráð fyrir.
Hins vegar skiluðu fjárfestingar
félagsins í hlutabréfum annarra fé-
laga á undanförnum árum heldur
meiri tekjum en gert var ráð fyrir
eða rúmum 180 milljónum og er
það mjög ánægjulegt. Mestu mun-
aði þar um afkomu Pormóðs
ramma - Sæbergs hf., Bakkavarar
hf. og Deris í Chile.
Loks skilaði sala hlutabréfa í Ár-
nesi hf. tæpum 200 milljóna króna
hagnaði og er sá hagnaður reiknað-
ur til fjáreignatekna," segir Brynj-
ólfur.
Hann segir afla ársins hafa verið
svipaðan og árið áður en gengi ís-
lensku krónunnar hafi haft þau
áhrif að verð afurða lækkaði til
Evrópu. Þetta hafi þýtt minni
tekjur til félagsins en á móti komi
minni fjármagnskostnaður þar sem
lán félagsins séu í sömu mynt og
afurðirnar eru seldar í. Þessi tekju-
samdráttur skýrir, að sögn Brynj-
ólfs, samdrátt á veltufé frá rekstri.
Hvað varðar horfurnar á yfir-
standandi ári segir Brynjólfur þær
vera sæmilegar.
„Miðað við það að stofnarnir
haldi sér eins og allt bendir til, þá
eigum við ekki von á því að afla-
samsetning breytist mikið á þessu
ári. Nú, veiði á uppsjávarfiski hef-
ur byrjað ágætlega á nótaskipum
okkar og í ár er í fyrsta skipti rekin
á okkar vegum fiskimjölsverk-
smiðja í Þorlákshöfn, sem er viðbót
við starfsemina. Þá gerum við okk-
ur vonir um að hlutdeildarfélögin
standi sig jafnvel á þessu ári og
skili til félagsins ámóta upphæð og
árið 1999. Við teljum því að árið
2000 verði okkur farsælt," segir
Brynjólfur Bjarnason.
Esther Finnbogadóttir hjá
greiningardeild Kaupþings segir
afkomu Granda að mörgu leyti
ágæta og að heildarniðurstaðan sé
vissulega betri en spár markaðar-
ins gerðu ráð fyrir.
„Það sem kemur á óvart er að
hagnaður fyrir afskriftir og fjár-
magnsliði dregst saman. Fram-
legðin er einnig að minnka, úr
24,3% í 23%. Þá koma fjármagnsl-
iðirriir ekkert sérlega vel út ef frá
er talinn söluhagnaður hlutabréfa.
Afkoman af reglulegri starfsemi er
því heldur lakari en menn bjuggust
við og það sést greinilega á þvi að
veltufé frá rekstri dróst töluvert
saman á milli ára. Jákvæðu hlið-
arnar eru hlutdeildarfélögin, þau
eru að gera mun betur en almennt
var búist við,“ segir Esther.
Verð á hlutabréfum félagsins tel-
ur hún nokkuð hátt en segist samt
sem áður þeirrar skoðunar að þau
séu góður fjárfestingarkostur þeg-
ar til lengri tíma er litið.
TAP af reglulegri starfsemi Haraldar
Böðvarssonar hf. á árinu 1999 nam
214 milijónum króna, en hagnaður
varð af reglulegri starfsemi árið á
undan, upp á 212 milljónir. Hagnaður
tímabilsins var 116 milljónir kr., borið
saman við 270 milljónir kr. árið 1998.
Rekstrartekjur félagsins nettó
lækkuðu úr 4.035 milljónum í 3.388
milljónir milli ára. Þá jukust skuldir
þess og námu í árslok 5.033 milljón-
um, til móts við 3.586 milljónir árið
1998.
Haraldur Sturlaugsson, fram-
kvæmdastjóri Haraldar Böðvarsson-
ar, segir afkomuna ekki vera viðun-
andi fyrir félagið. Ein meginástæða
hinnar slöku afkomu sé sú að loðnuafli
á sumar- og haustvertíð hafi brugðist
nær algjörlega, auk þess sem afurða-
verð á mjöli og lýsi hafi verið í lág-
marki. Þá hafi afkoma landfrystingar
verið óviðunandi, en rekstur bolfisk-
vinnslu á sjó aftur á móti verið í góðu
horfi.
Hann segir félagið hafa unnið að
ýmsum vöruþróunarverkefnum sem
myndað hafi kostnað en séu enn ekki
farin að skila íramlegð. Þar beri hæst
rekstur loðnuþurrkunarverksmiðju í
Sandgerði. Mikil verðlækkun á mörk-
uðum í Japan fyrir þurrkaða loðnu á
árinu 1999 haíl einnig haft veruleg
áhrif á afkomu þessarar vinnsluein-
ingar.
OLÍUVERSLUN íslands hf„ OHs,
hagnaðist um 338 milljónir króna ár-
ið 1999, en hagnaður ársins á undan
nam 282 milljónum króna og var
aukning hagnaðar 20%. Velta félags-
ins nam 8.597 milljónum króna og
jókst um 19%. Rekstrargjöld jukust
hins vegar um 18% og námu 8.005
milljónum króna. Hagnaður félags-
ins fyrir skatta jókst úr 292 milljón-
um króna í 493 milljónir, eða um
69%. Hagnaður af reglulegri starf-
semi jókst hins vegar um 63% milli
áranna 1998 og 1999 og var 335 millj-
ónir króna á síðasta ári.
Einar Benediktsson, forstjóri Olís,
segir í samtali við Morgunblaðið að
helstu ástæður betri afkomu félags-
ins séu veruleg aukning á sölu á ýms-
um þjónustuvörum, bæði á bensín-
stöðvum og á fyrirtækjamarkaði.
„Auk þess varð nokkur magnaukn-
ing á sölu eldsneytis á seinasta ári,
en hún nam tæpum 3% sem er tölu-
vert mikið á eldsneytismarkaði.
Aukningin varð helst í ÓB-sjálfsaf-
greiðslustöðvum sem notið hafa vax-
andi vinsælda, og í gasolíu til fiski-
skipa,“ segir Einar. I tilkynningu frá
Olís kemur einnig fram að hækkun
eldsneytisverðs á heimsmarkaði hafi
haft áhrif á rekstrartekjur til hækk-
unar.
I ársreikningi kemur fram að við-
snúningur varð í fjármunatekjum/
fjármagnsgjöldum, og námu tekjur í
fyrra 52 milljónum króna í stað 37
milljóna króna gjalda árið 1998. Að-
spurður um þetta atriði segir Einar
að það hafi verið áframhaldandi góð-
ur árangur í fjárstýringu félagsins,
en aukin áhersla hefur verið á þann
þátt á undanfömum tveimur árum.
„Þess utan var verulegur gengis-
hagnaður.“
Hvað varðar aðra viðburði sein-
asta árs nefnir Einar einnig sérstak-
lega að markaðsverðmæti Olís hafi
hækkað um 80% á árinu, eða úr 3.350
Haraldur segir að aðrar tekjur í
rekstrarreikningi, sem nemi 346
milljónum króna, skýrist af söluhagn-
aði félagsins. Þar hafi sala hlutabréfa
mikið vægi, einkum sala félagsins á
bréfum í SH. Að sögn Haraldar voru
helstu ástæður skuldaaukningar fé-
lagsins endurnýjun á skipaflotanum.
Haraldur gerir ráð íyrir að rekstur-
inn á þessi ári verði betri en rekstur-
inn í fyrra. „Veiðar og vinnsla á loðnu
hafa gengið vel það sem af er vertíð-
inni, en afurðaverð eru þó enn lágt.
Við höfum þegar náð betri árangri í
rekstri bolfiskvinnslunnar í landi með
nýrri vinnslulínu í fiystihúsi fyrirtæk-
isins og nýjum áherslum í afurðavali.
Við gerum einnig ráð fyrir því að
rekstur bolfiskvinnslu á sjó verði
áfram viðunandi.“
Hlutabréf í félaginu lækkuðu um
1%, úr 5,10 í 5,05, í rúmlega 14 millj-
óna króna viðskiptum á Verðbréfa-
þingi Islands í gær.
Magnús Karlsson, sérfræðingur
hjá Viðskiptastofu Landsbanka ís-
lands á Akureyri, segir ársuppgjör
Haraldar Böðvarssonar hf. vera slakt.
„Hagnaður fyrir afskriftir lækkar um
463 milljónir króna á milli ára og tap
af reglulegri starfsemi er 214 milljón-
ir. Niðurstaða rekstraireikningsins
er hins vegar jákvæð um 116 m.kr.
vegna annarra tekna. Veltufé frá
rekstri er 53 milljónir, sem er einung-
milljónum króna í 6.030 milljónir.
Um það ár sem hafið er segir hann
að hjá félaginu séu menn bjartsýnir.
„Við teljum að sú enduruppbygging
sem unnið hefur verið að hjá félaginu
á seinustu 3-4 árum, sem nú er nán-
ast lokið, muni gefa okkur tækifæri
til frekari hagræðingar í rekstrin-
um,“ segir Einar.
Guðni Hafsteinsson, verðbréfa-
miðlari hjá Fjárvangi hf„ segir að
rekstrarafkoman hjá Olís hafi staðið
undir þeim væntingum sem Fjárvan-
gur gerði til félagsins. „Félagið eyk-
ur hagnað af reglulegri starfsemi
eftir skatt um 129 mkr. og veltufé frá
is tíundi hluti þess sem var árið á und-
an.“
Hann segir að Ijóst sé að minni
loðnuveiði og lækkandi verð á mjöli
og lýsi hafi mikil áhrif á afkomu fé-
lagsins. Einnig það, að félagið sé ekki
að nýta bolfiskkvóta sinn nógu vel en
hagstæð skilyrði í veiðum og vinnslu
bolfisks hefðu átt að vega að ein-
hverju leyti upp slæma afkomu í upp-
sjávardeildinni.
„Félagið hefur nú brugðist við
þessu með því að kaupa frystitoga-
rann Helgu Maríu og endumýja
vinnslulínu í landi og ég tel að þær að-
gerðir eigi að leiða til betri afkomu í
bolfiski."
rekstri um rúmar 90 mkr. Þá er tæp-
lega 90 mkr. viðsnúningur í fjár-
magnsliðum sem rekja má til sterkr-
ar krónu, vaxtakostnaðar og
gengishagnaðar.
Verðlagning á bréfum félagsins á
síðustu misseram ber merki þess að
töluverðar væntingar voru gerðar til
uppgjörsins, sem það stendur undir.
Að teknu tilliti kennitalna geta fjár-
festar samt ekki vænst skammtíma-
gróða af fjárfestingu í Olís, en til
lengri tíma litið teljum við Olís, eins
og hin Olíufélögin, vera ágæta fjár-
festingarkosti án umtalsverðrar
áhættu," segir Guðni Hafsteinsson.
Miklar fjárfestingar á árinu leiða til
þess að afskriftimar aukast um tæp
20% en þessar fjárfestingar eru ekki
famar að skiia sér að fullu inn í rekst-
urinn, að sögn Magnúsar. Hann telur
að framlegð félagsins þurfi að aukast
mikið til að standa undir fjárfesting-
unum, en stór hluti þeirra séu upp-
sjávarveiðiskip sem koma inn í rekst-
urinn á erfiðum tíma. Þau skip muni
þó nýtast félaginu vel við öflun veiðir-
eynslu í kolmunna sem ætti að styrkja
rekstur félagsins til lengri tíma.
Aðalfundur Haraldar Böðvarsson-
ar verður haldinn 6. apríl nk. Stjóm
félagsins mun leggja þar til að greidd-
ur verði 6% arður til hluthafa.
Afkoma Haraldar Böðvarssonar hf ■ versnar frá fyrra ári
Tap af reglu-
legri starfsemi
214 milljónir
Haraldur Böðvarsson Hf, ^SmT
| Rekstrarreikningur 1999 1998 Breyting
Rekstrartekjur Milljónir króna Rekstrargjöld Afskriftir Fjármagnsliðir nettó 3.388 3.120 445 35 4.035 3.304 372 131 -16% -6% +20% -73%
Hagnaður/tap af reglul. starfsemi Aðrar tekjur og gjöld Áhrif hlutdeildarfélaga -214 346 -16 212 79 -21 +338% -24%
Hagnaður ársins 116 270 -57%
Efnahagsreikningur 3i.des.: 1999 1998 Breyting
Eignir samtals Milljónir króna 8.123 6.398 +27%
Eigið fé 2.870 2.777 +3%
Skuldir 5.033 3.586 +40%
Skuldir og eigið fé samtals 8.123 6.398 +27%
Sjóðstreymi og kennitölur 1999 1998 Breyting
Veltufé frá rekstri Milljónir kr. 53 553 -90%
Eiginfjárhlutfall 35,3% 43,4%
Veltufjárhlutfall 1,38 2,24