Morgunblaðið - 04.03.2000, Side 24
24 LAUGARDAGUR 4. MARS 2000
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Haukur Þór Hauksson á aðalfundi Samtaka verslunarinnar/FIS
Telur breytinga þörf hjá
Samkeppnisstofnun
HAUKUR Þór Hauksson, formaður
Samtaka verslunarinnar/Félags ís-
lenskra stórkaupmanna, FÍS, gerði
það m.a. að tillögu sinni að Alþingi
Islendinga setti á fót sérstaka þing-
nefnd um Evrópumál, í ræðu sinni á
aðalfund samtakanna sem haldinn
var í gær. Hann sagði einnig að það
væru alvarleg tíðindi ef aðilar hér á
landi héldu ekki vöku sinni um þróun
mála í Brussel.
Því hefðu Samtök verslunarinnar/
FÍS farið þess á leit að fá fyrr ráð-
rúm til að til að gera athugasemdir
við nýja löggjöf og reglur Evrópu-
sambandsins, eða strax á því stigi
þegar íslensk stjórnvöld koma að
málum. „ísland er verslunarþjóð en
ekki iðnríki. Afstaða okkar til
Evrópusambandsins hefur ávallt
tekið mið af þessari staðreynd,"
sagði Haukur.
Haukur sagði ánnig að Samtök
verslunarinnar/FÍS hefðu stutt heils
hugar aðild íslands að Evrópska
efnahagssvæðinu á sínum tíma. „Nú
eru það auk Islands Noregur og
Liechtenstein sem standa ein eftir
innan EES. Það er því ekki mikið
eftir af þessum samningi sem á sín-
um tíma var stærsti viðskiptasamn-
ingurinn sem ESB hafði nokkurn
tímann gert. Starfsfólk sendiráðs ís-
lands í Brussel telur sig merkja |
vaxandi tómlæti Evrópusambands-
ins gagnvart EES ríkjunum. Það eru
alvarleg tíðindi," sagði Haukur
I máli sínu vék Haukur einnig að
verðlagsmálum, en nýverið hefðu
orðið miklar umræður í blöðum og
víða um þróun verðlags á nauðsynja-
vöru. „Umræðurnar einar og sér
voru með miklum ólíkindum og væru
ágætt rannsóknarefni út af fyrir ;
sig,“ sagði Haukur. Hann sagði einn-
ig að í umræðunni hefði komið fram
að nauðsynlegt væri fyrir Hagstof-
una að reikna neysluvísitölu heild-
söluverðs.
Haukur sagði að samtökin tækju
undir þessi sjónarmið og blésu á þær
fullyrðingar að slíkt væri illfram-
kvæmanlegt, en í dag væru starfandi
tvær dreifingarmiðstöðvar með
neysluvöru sem seldu á stærstan
hluta markaðarins. „Það er því
hægðarleikur fyrh’ Hagstofuna að
hefja nú þegar útreikning á þessari
vísitölu,“ sagði Haukur.
Þróun í miðbænum
veldur áhyggjum
Haukur Þór vék einnig að sam-
keppnismálum og sagði það skoðun
Samtaka verslunarinnar/FÍS að
herða þyrfti reglur samkeppnislaga
sérstaklega að því er varðaði sam-
runa fyrirtækja og markaðsyfirráð.
„Samkeppnisyfirvöld hafa ekki haft
neina burði til að grípa inn í þar sem
á þarf að halda. Nú er staðan sú hér á
landi að þau fyrirtæki sem skilgreind
eru sem markaðsráðandi, þ.e. stóru
fyrirtækin, mega kaupa og yfirtaka
keppinauta án þess að það kalli á að-
gerðir samkeppnisyfirvalda. Hins
vegar gilda ekki sömu reglur um
minni fyrirtæki. Með öðrum orðum
þá má Landssíminn kaupa Tal en Tal
ekki Landssímann. Eða, annað
dæmi, Eimskip má kaupa Samskip
en Samskip ekki Eimskip. Hér hefur
eitthvað alvarlega gengið úrskeiðis,"
sagði Haukur. Hann sagði það skoð-
un samtakanna að gjörbreyta þyrfti
stofnuninni m.a. í mannahaldi og
stjómun, og þyrfti að laða að stofn-
uninni sérmenntaðan starfskraft og
sækja reynslu og starfsþjálfun til
annarra Evrópulanda.
Haukur sagði einnig að þróun mið-
borgar Reykjavíkur ylli mönnum
áhyggjum. „Samtökin hafa eftir
megni stutt kaupmenn í miðbænum í
baráttu gegn aðgerðum borgaryfir- 1
valda eins og lokun Hafnarstrætis í
austur sem stórskaðaði verslun í
þeirri götu og fyrirhugaðar stór-
hækkanir stöðumælagjalda. Þegar
verslun hopar í miðbænum taka við
klámbúllur og hætta á eiturlyfja-
starfsemi, vændi og öðrum ósóma
eykst. Blómleg verslun í miðbæ er
sómi hverrar höfuðborgar. Samtökin
hvetja borgaryfirvöld til að taka
höndum saman við kaupmenn og
fjárfesta til að reisa miðbæ Reykja- i
víkur aftur til vegs og virðingar,"
sagði Haukur einnig.
Vilja halda sambandi við bíl-
eigandann allan eignartímann
Þorgeir Ibsen Þorgeirsson, að-
stoðarforstjóri neytendaþjónustu
um Netið hjá Ford-bílaverksmiðjun-
um í Bandaríkjunum, var heiðurs-
gestur fundarins, og sagði hann m.a.
að fyrir nokkrum árum hefðu margir
í Bandaríkjunum talið að ekki yrði
mikið um hagnýtingu rafrænna við-
skipta um Netið t.d. á sviði bíla og ol-
íu, en reyndin hefði orðið önnur.
Kannanir hefðu sýnt að árið 1999
hefðu 36% bílkaupenda þar í landi
notað Netið á einhvern hátt í kaup-
unum, og væri talið að talan yrði 50-
60% á þessu ári. „Flestir ætla að nota
vefinn í framtíðinni. Það er stórkost-
legt að sjá hversu mikil breyting hef- j
ur orðið á þess á þremur til fjórum
árum,“ sagði Þorgeir.
Hann sagði að afleiðingin af upp-
lýsingaleit á Netinu væri oft sú að
viðskiptavinirnir vissu oft meira um
bílana og þau tilboð sem í boði væru
en starfsmenn bílaumboðanna, og að
neytendur í bílaviðskiptum gerðu nú
ráð fyrir því að geta haft beint sam-
band við framleiðandann, en sagði
jafnframt að umboðsaðilar myndu
áfram gegna mikilvægu hlutverki.
Þorgeir sagði það vera álit manna j
að í Evrópu yrði helsti vaxtarbrodd-
ur Netsins á næstu árum. Árið 1998
Gjaldeyrismarkaður
á Netinu
Á Gjaldeyrismarkaði F&M
á Netinu er hægt að:
■ Eiga milliliöalaus viðskipti á tilboösmarkaði
með erlenda gjaldmiðla.
Fylgjast með rauntímaupplýsingum um gengi
gjaldmiðla.
Framkvæma greiningu á þróun gjaldmiðla og
mæla áhættu, hvort sem er fyrir einstakar
myntir, erlenda krossa eða myntkörfur.
Fylgjast með fréttum frá VÞÍ, viðskiptavef
mbl.is eða frá fréttaveitu F&M.
Framkvæma millifærslur, skoða stöðu
reikninga, fá yfirlit yfir viðskipti, o.s.frv.
F&M
Islandsbanki - F y r i r t æ k i & m a r k a ð i r
www.isbank.is