Morgunblaðið - 04.03.2000, Page 54

Morgunblaðið - 04.03.2000, Page 54
54 LAUGARDAGUR 4. MARS 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ JÓN INGOLFSSON + Jón Ingólfsson fæddist í Reykjavík 23. sept- ember 1934. Hann lést á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja 24. febrúar siðastliðinn. Foreldrar hans voru Bergþóra Jóhanns- dóttir, f. 23. nóv. 1906, d. 13. apríl 1983, og Ingólfur _ Guðmundsson, f. 21. rjúní 1899 í Laxholti, d. 8. janúar 1985. Bergþóra giftist síð- ar Jóni Ingimundar- syni Stefánssyni, f. 12. maí 1904, d. 6. júní 1969. Systkini Jóns sammæðra eru: Sigríður Jónsdóttir, f. 23. október 1938, d. 11. júlí 1947, Siguijón Jónsson, f. 3. ágúst 1940, d. 15. janúar 1973, Jóni'na Jónsdóttir, f. 2. febrúar 1943, og Bergþóra Jónsdóttir, f. 28. september 1945. Hinn 31. desember 1953 kvænt- ist Jón eftirlifandi eiginkonu sinni Hall- dóru Sigríði Hall- bergsdóttur, f. 11. desember 1932. For- eldrar hennar voru Þuríður Sigurðar- dóttir, f. 22.5. 1909, d. 6.4. 1998, og Hall- berg Halldórsson, f. 4.5. 1910, d. 24.9. 1982. Börn Jóns og Halldóru eru: Þuríð- ur, f. 12.9. 1952, maki Jóel Þór Andersen, f. 6.9. 1950, Bergþóra, f. 24.8. 1953, maki Óskar Óskarsson, f. 18.9. 1950, Stella, f. 31.7. 1955, d. 24.1. 1998, maki Benóný F. Færseth, f. 17.2. 1955, d. 31.3. 1999, Hallbjörg, f. 24.8. 1956, maki Róbert Gislason, f. 8.11. 1955, og Berglind, f. 4.1. 1964, maki Steinar P. Jónsson, f. 20.11. 1957. Jón ólst upp á Kárastöðum í Borgarfirði hjá frænda sínum Al- Það segir í laginu „Söknuður": „Eitt sinn verða allir menn að deyja“, Jí" En þegar ástvinur deyr erum við ailtaf jafn óviðbúin, sorgin og sökn- uðurinn yfmþyrmandi. I dag kveð ég tengdafoður minn, Jón Ingólfsson, sem alltaf gat gert gott úr öllu og hik- aði ekki við að gera að gamni sínu við hvern sem var. Mín fyrstu kynni af þér voru þau, að best væri að koma ekki nálægt Reykholtinu, því þú ætlaðir að vera með haglabyssu og skjóta á þennan peyja sem væri að sldla dótturinni heim svona seint á kvölin. Þessvegna g^ilaði ég henni heim, fyrstu mánuð- ina, alltaf við raftækjaverslun Har- aldar, en ég komst líka fljótt að því að þetta væri allt í gamni gert og þannig hefur þú alltaf verið og þannig mun ég alltaf minnast þín, fyrir léttleika og gamansemi sem hefur alltaf verið þitt aðalsmerki. Eg veit að þú lætur ekki þitt eftir liggja, að gera þeim sem taka á móti þér, vistina skemmtilega, enda birti til í veðri um leið og þú kvaddir þenn- an heim og þá vissi ég að þú hefðir látið eitthvað flakka. Margar skemmtilegar og góðar minningar koma upp í hugann, en ég vil fyrst og fremst með þessum orð- um kveðja þig og þakka fyrir sam- fylgdina og fyrir allt sem þú hefur gert fyrir okkar fjölskyldu. Allar yndislegu minningamar geymum við í hjarta okkar. Guð geymi þig og þína. Elsku Dóra tengdamamma, Guð blessi þig og styrki. Kær kveðja Óskar. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR B. SIGURÐSSON, sem lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á ísafirði # þriðjudaginn 29. febrúar sl., verður jarðsung- inn frá ísafjarðarkirkju laugardaginn 4. mars kl. 16.30. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeir, sem vilja minnast hans, eru beðnir að láta líknar- stofnanir njóta þess. Mildrid Sigurðsson, Frank Guðmundsson, Gunnar Guðmundsson, Jenný Guðmundsdóttir, Reynir Guðmundsson, Bryndís Gunnarsdóttir, Guðrún Guðmundsdóttir, Randý Guðmundsdóttir, Jóhann Dagur Svansson, barnabörn og barnabarnabörn. * + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug vegna andláts og útfarar elskulegrar eigin- konu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og systur, RANNVEIGAR STEINUNNAR ÞÓRSDÓTTUR, Litlu-Hámundarstöðum, Árskógsströnd. Guð blessi ykkur öll. Jón Guðmundsson, Hólmfríður Ósk Jónsdóttir, Ólafur Snæbjörn Bjarnason, Sólveig Olga Jónsdóttir, Bjarni Jónas Jónsson, Kristín Erna Jónsdóttir, Óli Jón Hermannsson, Ingi Steinn Jónsson, Valdimar Þór Jónsson, Guðmundur Geir Jónsson, barnabörn, barnabarnabörn y og systkini. w berti og eiginkonu hans Guðrúnu en flyst til Vestmannaeyja 1951, þá 17 ára gamall. Jón stundaði vélskólanám á ár- unum 1953-54 og nám í Stýri- mannaskólanum árið 1956. Hann stundaði sjóinn bæði sem háseti, stýrimaður og skipstjóri og rak eigin útgerð með Metuna VE 1967-1972. Jón og Dóra hófu búskap í Mandal hjá Beggu, mömmu Jóns, en bjuggu síðar á Brekastíg í stuttan tíma uns þau festu kaup á Reykholti við Urðarveg 17. Þau höfðu nýflutt sig um set í nýlegra og stærra húsnæði á Bakkastíg þegar Heimaeyjargosið hófst 1973, bjuggu í Hafnarfirði á gos- tímanum, en fluttust síðan aftur til Eyja 1974, þar sem Jón festi kaup á vörubíl og hóf akstur við hreinsun á vikri. Áður en Jón fór að vinna við vikurhreinsun vann hann með bunustokksliðinu, eins og það var kallað, við kælingu á hrauninu. Jón réð sig sem vörubflstjóra til Isfélags Vestmannaeyja hf. ár- ið 1984 og vann þar til æviloka. Utför Jóns fer fram frá Landa- kirkju í Vestmannaeyjum í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Mig langar í örfáum orðum að minnast og kveðja pabba minn. Ég mun seint gleyma þeim tíma er ég sat hjá þér í veikindum þínum og þeini baráttu sem þú áttir í, þú sem ætlaðir að ferðast svo mikið með mömmu og njóta elliáranna með henni, af hverju ert þú kallaður burt frá okkur og færð ekki að njóta elliáranna eins og þú hlakkaðir mikið til þess? Elsku pabbi minn, ég vona að þú hafír fundið frið og hafir hitt Stellu systur og getir rætt við Binna um allt sem ykkur var svo kært. Elsku pabbi, ég kveð þig með söknuði og bið góðan Guð að varð- veita þig. Elsku mamma, Guð veri með þér. Þín dóttir Bergþóra (Begga). Elsku afí minn. Það er svo sárt að vita til þess að þú sért farinn frá okk- ur. Enn eitt áfallið í fjölskyldunni. Þetta er bara ekki sanngjarnt. Þegar þú og amma komuð hingað til Reykjavíkur í janúar til þess að fara með þig í allsherjar rannsóknir hvarflaði ekki að mér að þú ættir svona stutt eftir. Þetta var erfið vika að bíða eftir niðurstöðum, og þá sér- staklega fyrir þig og ömmu. Þegar ég kom til þín á spítalann sagðir þú við mig að j)að væri ekkert hægt að gera meir. Ég átti mjög erf- Sérfræðingar í blómaskreytingum við öll tældfæri I m blómaverkstæði I | Binna^ | Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, simi 551 9090. itt með mig en þú varst fljótur að snúa umræðunni upp í léttari nótur. Það er eitt af því sem lýsir þér svo vel, afí minn. Það var alltaf svo stutt í brosið og grínið hjá þér. Það var svo gaman að sögunum þínum sem þú sagðir okkur alltaf þegar þið amma komuð frá Kanarí eða öðru útlandi. Þú sýndir okkur myndirnar og kryddaðir aðeins sögurnar sem voru bara betri fyrir vikið. Þú varst alltaf svo ljúfur og góður við okkur barna- börnin. Dæmi um það er þegar þú náðir alltaf í pening úr skyrtuvasan- um þínum og gafst okkur krökkunum og sagðir okkur að kaupa eitthvað gott fyrir þetta. Svo fengum við alltaf harðfisk hjá þér með miklu smjöri. Síldin fannst mér ekki eins góð að smakka. En hún var í miklu upp- áhaldi hjá þér. Það var lfka alveg frá- bært þegar við fengum að fara bíltúr með þér á stóra vörubílnum þínum. Litla ættarmótið sem þær Dísa og Gunna stóðu fyrir síðasta sumar er ógleymanlegt. Þetta var svo gaman fyrir okkur öll að hittast. Elsku Jón afi. Það eru til svo margar góðar minningar um þig sem ég geymi og þetta er bara stutt brot af því. Takk fyrir mig. Megi góður Guð geyma þig. Elsku amma, mamma, Þurý, Halla og Berglind. Megi Guð styrkja ykkur í þessum sorgum. Jóna Dóra. Mig langar til þess að minnast hans Jóns afa eins og við barnabörn- in vorum vön að kalla hann. Ein af mínum fyrstu kynnum af afa voru þegar ég u.þ.b. átta ára var í einni af mínum ófáu heimsóknum úti á Hamri. Afi náði að lokka mig inn í herbergi til sín og spurði mig hvort ég ætti kærustu. Ég svaraði feimnis- lega og hálf skömmustulega nei. Þetta myndi hann afi þinn aldrei láta spyrjast út sagðir þú og dróst fimm hundruð kall upp úr skyrtunni og sagðir að ég yrði að kaupa eitthvað handa kærustunni en ég fengi ekki peninginn fyrr en ég væri búinn að segja þér hvað það yrði. Eftir dálitla stund sagði ég með svo lágum rómi að ég held að þú hafir ekki heyrt það: Ég ætla að kaupa eina rós. Já, sagðir þú, alveg eins og hann afi þinn hefði gert. Seinna á unglingsárunum frétti ég svo að þú hefðir stundað þessa iðju við nánast öll barnabörnin. Þú varst alltaf að gefa okkur eitthvað. Það sem gerði þig sérstakan, afi minn, var að þú gast alltaf séð spaugilegu hliðina á öllu saman. Ég man þegar við sátum inni í stofu úti á Hamri og vorum að horfa á fréttir, við hlógum að þessum vitleysis stjórnmálamönn- um. Við vissum lausnina á öllum vandamálunum. Þau eru ófá skiptin að mér sé líkt við þig í vaxtarlagi og hugsun og það er eitt það besta hrós sem ég hef fengið. Ég vil þakka þér, afi minn, fyrir allt sem þú og amma hafið gert fyrir m ^ Groðrarstöðin ^ WJ mtcm* Hús blómanna Blómaskreytingar við öll tækifæri. Dalveg 32 Kópavogi sími: 564 2480 + Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vinsemd við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, BÁRU EYFJÖRÐ JÓNSDÓTTUR, Ásgarði, Grenivík. Þórhildur Ingólfsdóttir, Elísa Ingólfsdóttir, Heimir Ingólfsson, Jóhann Ingólfsson, Jón Stefán Ingólfsson, Áskell Bjarnason, Ásgeir Kristinsson, Sigríður Sverrisdóttir, Guðný Sverrisdóttir, Jórlaug Daðadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. mig og bíllinn reyndist mér írábær- lega. Elsku amma, dætur og nánustu, megi guð styrkja ykkur í þessari miklu sorg. Elsku afi, sjáumst síðar. Þinn Sigþór. Okkur langar til að kveðja afa okk- ar Jón Ingólfsson með nokkrum orð- um. Þetta líf getur verið svo óréttlátt, afi, þú sem varst ekki nema 65 ára gamall og þið amma ættuð einmitt núna að fara að hafa það gott og taka því rólega, bæði búin að vinna alla ykkar tíð, ala upp fimm dætur og eignast 17 bamabörn auk fimm barnabarnabama. En þá greindist þú með þennan illvíga sjúkdóm sem sigraði þig, ekki nema rétt um mán- uði eftir að hann greindist. Það var alltaf mjög gaman að koma á Dverghamarinn til ykkar ömmu, þú varst með eindæmum orð- heppinn í tilsvömm og ekki vantaði brandarana, þú varst ekki lengi að sjá spaugilegu hliðina á öllum málum. Sögurnar þínar munu aldrei vera sagðar skemmtilegri en þegar þú sagðir þær, hvort sem þær voru sannar eða vel kryddaðar. Ef eitt- hvert okkar var að fara í ferðalag varstu alltaf kominn með kortið upp á borð og sýndir okkur leiðina, hvert best væri að fara og einnig ef þú viss- ir um skemmtilega staði sagðir þú okkur frá þeim. Þá bar hugurinn mann oft hálfa leið. Það var alltaf gaman að tala við þig, þú gast haldið uppi samræðum við börn, unglinga og gamalmenni og aldrei var hægt að láta sér leiðast í návist þinni. Eins og gengur og ger- ist kom nýtt fólk inní fjölskylduna og tókst þú öllum alltaf jafnvel og lést öllum geðjast að þér. Það var alltaf svo gaman að skemmta sér með ykk- ur ömmu, þið voruð bæði hrókar alls fagnaðar. Elsku afi, minningin um þig mun lifa í hjörtum okkar allra um aldur og ævi og munum við segja yngri kyns- lóð frá því hvað þau hafi átt góðan og skemmtilegan afa. Elsku amma, Guð varðveiti þig á þessum erfiðu tímum. Far þú í friði friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. GekkstþúmeðGuði, Guðþérnúfylgi, hans dýrðar hnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Þórdís, Halldór Jón og Emil Marteinn. Kæri vinur. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, égbiðaðþúsofirrótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þásælteraðvitaafþví þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um huga minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er Ijós sem lifir oglýsirumókomnatíð. (Þórunn Sig.) Öllum ástvinum sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Guð geymi og blessi minningu þína, hafðu þökk fyrir allt og allt. Sigríður og Björgvin Magnússon. omra 4IÖTÍL ÍOÍC MÍIflUMHT (flft Upplýsingar í s: 5511247

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.