Morgunblaðið - 04.03.2000, Page 67
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
LAUGARDAGUR 4. MARS 2000 67
Fyrirlestur
um ást og
aga í uppeldi
FYRIRLESTUR verður í Foreldra-
húsinu að Vonarstræti 4b, bakhúsi,
mánudaginn 6. mars kl. 20:30. Fyrir-
lesturinn heitir „Ást og agi í upp-
eldi“. Farið verður yfir mikilvægi
aga og aðferðir fyrir foreldra til að
ná stjóm á bömum sínum á upp-
byggilegan hátt. Fjallað verður um
atriði eins og sjálfstraust, hlutverk
foreldra í því sambandi og það sem
kalla má „einkenni á árangursríku
uppeldi" og einnig algengustu mis-
tök í uppeldi. Fyrirlesari er Sæ-
mundur Hafsteinsson, sálfræðingur,
kennari og félagsráðgjafi með sér-
menntun í fjölskylduráðgjöf. Hann
starfar sjálfstætt, en hefur langa
reynslu af sálfræðistörfum t.d. innan
bamavemdar- og félagskerfisins og
kennslu í ýmsum skólum og nám-
skeiðahaldi. Allir velkomnir. Að-
gangseyrir er 500 kr.
--------------
Fylgist með
dýrunum
DÝRAVERNDARSAMBAND ís-
lands hefur beðið blaðið um að
birta eftirfarandi tilkynningu:
Nú em jarðbönn um allt land og
daglega berst fjöldi ábendinga og
fyrirspurna um húsdýr, sem virðast
vera í bjargarleysi úti á víðavangi.
Aðallega er um hesta að ræða.
Þar sem fólk virðist alveg ráðalaust
í slíkum tilvikum viljum við benda á
eftirfarandi. I lögum um dýravemd
nr. 15/1994 segir: Lögreglunni ber
að hafa eftirlit með aðstæðum og
aðbúnaði dýra. Þar segir einnig:
Hver sem verður var við sjúkt,
lemstrað eða bjargarlaust dýr skal
veita því umönnun eftir föngum og
gera lögreglu eða dýralækni við-
vart svo fljótt sem unnt er.
-----*-♦-♦----
Námskeið
fyrir barn-
fóstrur
REYKJAVÍKURDEILD Rauða
krossins gengst fyrir bamfóstru-
námskeiði fyrir nemendur fædda
1986-1988. Markmiðið er að þátttak-
endur fái aukna þekkingu um böm og
umhverfi þeirra og öðlist þannig aukið
öryggi við bamagæslu.
Fjallað er um æskilega eiginleika
bamfóstm, þroska bama, leikfanga-
val, mikilvægi fæðutegunda, matar-
hættí, aðhlynningu ungbama, pela-
gjöf, slys í heimahúsum og veikindi.
Leiðbeinendur eru Unnur Hermanns-
dóttir, leikskólakennari, Ragnheiður
Jónsdóttir og Kristín Vigfúsdóttir,
hjúkrunarfræðingar. Kennt verður
fjögur kvöld frá kl. 18-21 í Fákafeni
11, 2. hæð. Haldin verða 8 námskeið.
Næsta hefst miðvikudaginn 8. mars.
Fjölskyldu-
samkoma
við Holtaveg
FJÖLSKYLDUSAMKOMA verður
í aðalstöðvum KFUM og KFUK við
Holtaveg sunnudaginn 5. mars kl. 17.
Ungur félagsmaður, Heiðar Þór
Jónsson, mun lesa úr Biblíunni og
hafa vitnisburð og bæn. Kór Kristí-
legra skólasamtaka mun syngja.
Stjómandi kórsins er Ólöf Inger
Kjartansdóttir. Miðbæjarprestur
KFUM og KFUK, sr. Jóna Hrönn
Bolladóttir, hugleiðir Guðs orð með
allri fjölskyldunni í tílefni dagsins.
Létt og fjörug lög verða sungin.
Stjómendur samkomunnar verða
feðgamir Þorkell Gunnar og Sigur-
björn Þorkelsson, framkvæmdastjóri
KFUM og KFUK í Reykjavík.
Eftir samkomuna geta viðstaddir
fengið keypta máltíð.
Búnaðarþing
sett á sunnudag
BUNAÐARÞING 2000 verður
sett sunnudaginn 5. mars kl. 14 í
Súlnasal Hótels Sögu. Húsið verð-
ur opnað kl. 13.30.
Ávörp flytja: Ari Teitsson, for-
maður Bændasamtakanna og
Guðni Ágústsson, landbúnaðar-
ráðherra. Þá ávarpar dr. Sigmun-
dur Guðbjarnason, prófessor,
þingið í tilefni setningarinnar.
Barnakór Biskupstungna syng-
ur undir stjórn Hilmars Arnars
Agnarssonar, leikararnir Edda
Heiðrún Backman, Pálmi Gests-
son og Erlingur Gíslason flytja
þátt úr Gullna hliðinu eftir Davíð
Stefánsson. Afhent verða land-
búnaðarverðlaunin 2000.
Að lokinni setningarathöfn
verður Davíð Oddssyni, forsætis-
ráðherra og Guðna Ágústssyni,
landbúnaðarráðherra, afhent álit
nefndar um þátttöku hesta og
hestamanna í opinbemm móttök-
um og landslið hestamanna fylkir
liði við Hótel Sögu.
Allri velunnarar landbúnaðar á
íslandi em boðnir velkomnir.
Fuglaskoðun
í Fossvogi
FUGLAVERNDARFÉLAG ís-
lands gengst fyrir fuglaskoðun og
vettvangsfræðslu sunnudaginn 5.
mars.
Kl. 14 verða sérfróðir leiðsögu-
menn við botn Fossvogs að sunnan-
verðu, niður af Sæbólsbraut og Mar-
bakkabraut, fólki til leiðbeiningar,
halds og trausts.
Litið verður á vetrarfugla en
þama getur oft að líta margar tegun-
dir anda, vaðfugla og ýmsar óvæntar
tegundir. Jafnvel er hugsanlegt að
sjá fyrsta farfuglinn.
Fólk er beðið að taka með sér
sjónauka en fjarsjár verða á staðn-
um.
Hekluferð
á morgun ,
FERÐAFÉLAG íslands efnir til
Hekluferðar sunnudaginn 5. mars.
Farið verður á jeppum og stærri bíl-
um og er stefnt að því að aka fólki al-
veg að hraunkantinum. Jarðfræðing-
amir Haukur Jóhannesson og
Sigmundur Einarsson sjá um leið-
sögn.
Farið verður frá Mörkinni 6 kl. 10
á sunnudagsmorgun. Þar sem bfla-
fjöldi verður sniðinn að farþega-
fjölda er nauðsynlegt að kaupa mið-
ana íyrirfram og verður skrifstofa
F.I., Mörkinni 6, opin vegna miða-
sölu kl. 11-14 í dag, laugardag. ^
Áformuð heimkoma er milli 22 og 23
á sunnudagskvöld.
Ariö 2030
munt þú
geta gert ’
ótrúlegustu
Vertu viss um
aö þú hafir efni á því
framtíðin bíðuneftirþér
Landsbankans
Lífeyrisbók Landsbankans: ?,?% viöbótarlífeyrissparnaöur
Fjárvörslureikningar Landsbréfa: 2,2% viöbótarlifeyrissparnaöur
íslenski lífeyrissjóöurinn: 2,2% viöbótarlífeyrissparnaöur
Islenski lífeyrissjóðurinn: 10% lögbundiö lágmarksiögjald
Lífís lífeyríssöfnun: 2,2% viðbótarlífcyrissparnaöur
i Ifá II 1 il 19
Fjölbreytt val í
lífeyrissparnaði
Landsbankinn
Betri banki
www.landsbref.is
I ANDSHRI-I