Morgunblaðið - 27.04.2000, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Útivist-
arsvæði
skipulagt í
Esjuhlíðum
SKÓGRÆKTARFÉLAG Reykja-
víkur og landbúnaðarráðuneytið
undirrita í dag samning um að félag-
ið hafi framvegis umsjón og eftirlit
með ríkisjörðunum Kollafirði og
Mógilsá. Mun félagið hefja þar skóg-
rækt og uppbyggingu á fjölbreyttu
útivistarsvæði. Skipulagsvinnan er
þegar hafin en svæðið allt er um þús-
und hektarar.
Forsvarsmenn Skógræktarfélags-
ins kalla svæðið „Esjuhlíðar“, en
svæðið hefur verið vinsælt útivistar-
svæði. Talsverð skógrækt hefur ver-
ið á Rannsóknarstöð Skógræktar
ríkisins á Mógilsá og hefur hópur
sem kallar sig „Esjuvini" unnið að
stígagerð og landbótum og heldur
því áfram. Auk þess mun Skógrækt-
arfélag Reykjavíkur hafa samstarf
við Skógræktarfélag Kjalarnes-
hrepps sem er einn af frumherjum
skógræktar í Esjuhlíðum.
■ Uppbygging/38-39
-----------------
Opinn háskóli
Um 400
hafa þegar
skráð sig
SÍMAKERFI Endurmenntunar-
stofnunar Háskóla íslands annaði
vart eftirspurn í gær, þegar tæp-
lega 400 manns skráðu sig í opinn
háskóla á fyrsta degi skráningar.
Að sögn Margrétar S. Björns-
dóttur, framkvæmdastjóra sam-
skipta- og þróunarsviðs Háskólans,
er verið að skrá á 14 námskeið
þessa dagana og var mestur áhugi
á námskeiðunum „Heimspeki
hversdagsleikans“ og „Sálfræði
daglegs lífs“ en það eru fyrstu
námskeiðin og hefjast þau dagana
1. og 2. maí nk.
„Það er ekki fullt á námskeiðin
ennþá,“ sagði Margrét. „Við viss-
um að þessi viðfangsefni sem við
völdum væru mjög vinsæl þannig
að gert er ráð fyrir kennslustofum
sem taka 100-120 manns. Það er
því ennþá hægt að komast að en þó
gæti verið að námskeiðin sem hefj-
ast í næstu viku séu um það bil að
fyllast."
Ekki verður skráð á þau 17 nám-
skeið sem ætluð eru börnum og
unglingum fyrr en 22.-26. maí nk.
------♦-♦-♦------
Náðu þriðja
sæti í dansi
Blackpool. Morgunbladið.
ÞORLEIFUR Einarsson og Ásta
Bjarnadóttir urðu í gær í þriðja sæti
í pasodoble í alþjóðlegu danskeppn-
inni sem fram fer í Blaekpool.
Þau kepptu í flokki ellefu ára og
yngri, en sjötíu pör tóku þátt í
keppninni í þeim aldursflokki.
ÍÞRÓTTAMEIÐSL selja ekki ein-
ungis strik í reikninginn hjá þeim
sem hafa atvinnu sína af íþrótta-
iðkun. Aðrar fræknar hetjur verða
einnig fyrir skakkaföllum sem
hafa áhrif á störf þeirra eins og
kom bersýnilega í Ijós í gær þegar
Alþingi tók til starfa á ný eftir
páskahlé.
Sökum íþróttameiðsla mun
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstrihreyfingarinnar -
græns framboðs, nefnilega ekki á
næstunni geta staðið í ræðustól
þegar hann tekur til máls við um-
ræður í þinginu og hefur hann því
fengið nýtt sæti í þingsalnum. Sett-
ur hefur verið hljóðncmi við sætið
svo að hann geti talað úr sæti sínu
þegar hann kveður sér hljóðs.
Ekki eru mörg fordæmi fyrir því
að slíkur viðbúnaður reynist nauð-
synlegur á Alþingi, að sögn Helga
Bernódussonar aðstoðarskrifstofu-
stjóra Alþingis. Hljóðnematenging
var sett upp við sæti Ástu B. Þor-
steinsdóttur heitinnar haustið 1998
en ekki reyndi á notkun hennar þá
og þarf að fara aftur til ársins 1978
til að finna dæmi þess að þingmenn
tækju til máls úr þingsæti. Bar þá
svo við að kjörtímabilin 1976-77
og 1977-78 hafði Jóhanni Hafstein
og Magnúsi Kjartanssyni verið sér-
úthlutað sætum vegna lasleika og
töluðu þeir þaðan. Fram yfir miðja
öld töluðu þingmenn reyndar
ávallt standandi úr sæti sínu en sú
regla var sett árið 1952 að þing-
menn skyldu mæla úr ræðustól.
■ Ekki heilbrigðisvottorð/10
Afengis-
magn
mælt við
Bláa lónið
FYRIR dyrum stendur að
bjóða þeim gestum Bláa lónsins
sem á þurfa að halda upp á þann
kost að blása í áfengismæli til að
kanna áfengismagn í blóðinu.
Yrði þetta gert með öryggi
gestanna í huga, að sögn Ónnu
G. Sverrisdóttur, rekstrarstjóra
ferðaþjónustu Bláa lónsins.
Fyrir kemur, að hennar sögn,
að fólk undir áhrifum áfengis
sem vill baða sig í lóninu sé ósátt
við að vera vísað frá sökum
áfengisdrykkju. Með tilkomu
áfengismælanna gefst þessum
sömu gestum hins vegar kostur
á að blása í mæli sem sýnir fram
á hvort viðkomandi er baðfær
eða ekki. Anna leggur áherslu á
að með þessu sé fyrst og fremst
verið að hugsa um öryggi gest-
anna. Ekki sé æskilegt að vera
undir áhrifum í lóninu þar sem
hitinn frá því getur aukið áhrifin
og jafnvel valdið yfirliði. Hún
segir að ætlunin sé að hefja til-
raunir með mælana þegar nær
dregur vori og í framhaldi af því
verði kannað hvort ástæða þyki
til að bjóða upp á blástur í
áfengismæli að staðaldri.
Aðspurð segir Anna að eini
áfengi drykkurinn sem heimilt
er að selja gestum sem eru úti í
lóninu sé hinn svonefndi „Bláa
lóns-kokkteill“ en að sögn Önnu
er sá drykkur afar veikur.
Fjölsótt um páska
Að sögn Önnu koma um eitt
til tvö þúsund manns í Bláa lón-
ið um hveija helgi en um páska-
helgina, eða frá fimmtudegi til
og með mánudegi, fóru rúmlega
ellefu þúsund manns í Bláa lón-
ið. Séu þeir einnig taldir með
sem komu einungis til að litast
um í Bláa lóninu; fara á kaffihús
eða fá sér að borða, heimsóttu
um tólf þúsund manns Bláa lón-
ið um páskahátíðina.
Morgunblaðið/Sverrir
Ávarpar þingið sitjandi
vegna íþróttameiðsla
Hjartavernd hefur eignast 200.000 hluti í deCODE
Markaðsverðmæti hlutafjár-
ins 560-620 milljónir kr.
Langur
samninga-
fundur
flugvirkja
SAMNINGANEFNDIR flugyirkja
hjá Flugleiðum og vinnuveitenda
sátu á löngum fundi hjá ríkissátta-
semjara í gær. Fundurinn hófst í
gærmorgun og stóð fram yfir mið-
nætti.
Samningamenn farmanna og
vinnuveitenda funduðu einnig hjá
ríkissáttasemjara í gær og er ann-
ar fundur boðaður í dag.
Samninganefndir ýmissa fleiri
verkalýðsfélaga og vinnuveitenda
funda í húsnæði ríkissáttasemjara
í dag.
SAMTÖKIN Hjartavernd eignuðust
200.000 hluti í deCODE genetics,
móðurfélagi Islenskrar erfðagrein-
ingar, á seinasta ári. Að sögn Gunn-
ars Sigurðssonar, formanns Hjarta-
verndar, er hlutabréfaeignin til
komin vegna samstarfssamnings
Hjartaverndar og ÍE um rannsóknir
sem gerður vai- fyi-ir tveimur árum.
Samkvæmt ársreikningi Hjarta-
vemdar fyrir árið 1999 er hluta-
bréfaeign Hjartaverndar í deCODE
færð í efnahagsreikningi á upphaf-
legu kaupverði að fjárhæð 5.892.000
kr.
Ef miðað er við viðskipti með
hlutabréf félagsins sem átt hafa sér
stað hér innanlands að undanfömu,
skv. upplýsingum sem fengust á
verðbréfamarkaði í gær, hefur kaup-
og sölugengi bréfa í deCODE verið á
bilinu 38-42 dollarar á hlut. Sam-
kvæmt því má áætla að markaðsvirði
hlutabréfaeignar Hjartavemdar í
deCODE sé á bilinu 562 til 620 millj-
ónir íslenskra króna. Áætlað hefur
verið að það útboðsgengi sem boðið
verður þegar félagið verður skráð á
Nasdaq verði í kringum 25 dollarar á
hlut. Samkvæmt þeirri viðmiðun er
markaðsverðmæti hlutbréfa Hjarta-
verndar í deCODE um 370 milljónir
króna.
Ekki komið til tals að selja
Aðspurður hvort til tals hefði korn-
ið að selja eignarhluti í deCODE tij
að afla fjár fyrir samtökin sagði
Gunnar að það stæði ekki til. „Það l
hefur ekki komið neitt til umræðu á 1
þessu stigi,“ sagði hann.
„Við vitum ekkert í hvaða formi
þessi bréf verða metin þegar upp er
staðið. Þetta var aðeins hluti af þeim
samstarfssamningi sem gerður var.‘
Sérblöð í dag
35i>a»
Morgunbiaðinu
ídagfylgir tíma-
ritið 24-7.
Útgefandi:
Alltafehf.
Ábyrgðarmaður:
Snorri Jónsson
Með Morgun-
blaðlnu í dag er
droift blaði frá
Ferðaþjónustu
Akureyrar,
„Handverk og
ferðaþjónusta -
Laugardals-
höllfn 28. apríl
tll 1. maí“.
Fer Sigurður í KR?
/C1
•••••••••••••••••••#######
Stórþjóðirnar sluppu.
/C3
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.ls
mmm