Morgunblaðið - 27.04.2000, Qupperneq 22
MORGUNBLAÐIÐ
22 FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 2000
veðríð
Nú getur þú fylgst með veðrinu á mbl.is
mbl.is
ÞITT FE
HVAR SEM
ÞU ERT
Veistu ekki hvaðan á þig stendur
URVERINU
Neraendur úr Seljaskóla skoða fjörudýr í smásjá í Sædýrasafninu í Höfnum á Reykjanesi.
Fjölbreytt verkefni
í Sædýrasafninu
Eigum varahluti í
bremsukerfi
flestra
bifreiða
°8
naust
Sfmi 535 9000
Stofnanir og
fyrirtæki styrkja
náttúrufræðinám
í grunnskólum
Meyvant Þórólfsson, kennsluráð-
gjafi við Fræðslumiðstöð Reykjavík-
ur, stóð að verkefnasmíðinni, ásamt
fjórum kennurum og einum líffræð-
ingi, en Meyvant hefur sinnt verk-
efnum undanfarin ár sem miða að
því að efla náttúrufræðikennslu
samkvæmt nýrri aðalnámskrá.
Hann segir að í aðalnámskrá sé ein-
mitt lögð rík áhersla á að nemendur
fari á vettvang og kynnist náttúr-
unni að eigin raun og námið tengist
þannig merkingarbærum og áhuga-
verðum verkefnum sem fela í sér at-
huganir, úrvinnslu og túlkun niður-
staðna.
Meyvant segir val á verkefnum
sem nemendumir leysa í Sædýra-
safninu í Höfnum fara eftir aldri
nemendanna og þeim áherslum sem
teknar eru hverju sinni. „Sumir
fjalla eingöngu um fiska, aðrir um
sjávarútveg, enn aðrir um lífríki
fjörunnar eða sjávarföll og eitt verk-
efnið gengur út á veðurmælingar.
Verkefnin eru ákaflega fjölbreytt,
meðal annars eru gerðar tilraunir
með fallhraða hluta í vatni, saman-
burð á söltu og fersku vatni, hvernig
lífverur skipta um lit í umhverfinu og
hvernig lögun fiska skiptir máli.
Reyndar finnst mér vanta fleiri
verkefni um sjávarútveginn sjálfan,
svo sem veiðarfæri, veiðiaðferðir,
afla og fiskvinnslu, en það stendur til
að bæta úr því.“
Góð aðstaða
Meyvant segir að í Sædýrasafninu
í Höfnum sé fyrirtaksaðstaða fyrir
verkefnavinnu af þessu tagi. „Þar er
góð kennslustofa og við höfum notið
aðstoðar Hafrannsóknastofnunar
við kennsluna. í kennslustofunni er
hægt að kryfja fisk og skoða til
dæmis fjörulífverumar í smásjá.
Ennfremur era settar niður krabba-
gildmr við bryggjuna sem nemend-
umir geta vitjað um. Aðstaðan í
Sædýrasafninu er einstök hérlendis,
því þar em allir helstu nytjafiskar
við Islandsstrendur og þar fá böm
einstakt tækifæri til að kynnast lif-
andi fiskum og fylgjast með atferli
þeirra við sem náttúrulegastar að-
stæður. Þar er líka að finna mikið af
fjömdýmm sem börnin fá að gera
tilraunir með og rannsaka. Á safninu
er líkan af fuglabjargi með upp-
stoppuðum fuglum og nokkur verk-
efni tengjast því á beinan hátt. Okk-
ur þykir einnig staðsetningin vera
stór kostur því að Reykjanesskaginn
er eins og sniðinn fyrir kennslu af
þessu tagi. Þar er að finna eldstöðv-
ar og hraun og á leiðinni suður eftir
fá nemendurnir meðal annars verk-
efni sem tengjast jarðfræðilegu útliti
og þróun landsins."
Leita eftir samstarfi
við fleiri aðila
Alls fóra nemendur úr fimm
grannskólum í Sædýrasafnið í Höfn-
um á síðastliðinni vorönn í tengslum
við verkefnið, samtals um 180 nem-
endur á aldrinum 10-12 ára. Að sögn
Meyvants var um tilraunaverkefni
að ræða en stefnt er að því að halda
verkefninu áfram í haust. Það sé
hinsvegar nokkuð háð fjármagni.
„Náttúrafræðinám er einfaldlega
þess eðlis að það útheimtir hlutfalls-
lega meiri kostnað en aðrar náms-
greinar. Þetta er þekkt bæði hér á
landi sem í nágrannalöndum okkar.
Til að koma til móts við nýjar áhersl-
ur á sviði náttúruvísindanáms þarf
meira fé en raun ber vitni, jafnt hér
sem annars staðar. Enda hefur kom-
ið í ljós að unglingar þekkja ekki þær
fisktegundir í sundur í sínu raun-
vemlega umhverfi, sem við borðum
hvað mest af hér á íslandi. Náttúmf-
ræði kallar á verklegar æfingar á
vettvangi og kennarar vildu gjarnan
fara fleiri slíkar ferðir. En vandinn
er sá að kostnaðurinn við vettvangs-
ferðir af þessu tagi er of mikill fyrir
grunnskólana. Ein ferð með 50
krakka kostar um 20 þúsund krónur
og ég vænti þess að leitað verði eftir
áframhaldandi samstarfi við þá aðila
sem styrktu okkur í vor en einnig að
fá aðra til liðs við okkur, einkum
stofnanir og fyrirtæki sem eiga
hagsmuna að gæta á þessu sviði. Er-
lendis em dæmi þess að fyrirtæki og
einstaklingar styrki vettvangsferðir
grannskólanema með beinum hætti
og ég tel slíkt eðlilegt ef það reynist
vera beggja hagur; hagur rann-
sóknastofnana og atvinnufyrirtækja
sé sá að þau kynni starfsemi sína og
veki athygli á störfum sem þar eru
unnin,“ segir Meyvant.
FRÆÐSLUMIÐSTÖÐ Reykjavík-
ur hefur í vor átt samstarf við stofn-
anir og fyrirtæki um tilraun til að
efla verklegt náttúmfræðinám í
grunnskóla. Að verkefninu komu,
auk Fræðslumiðstöðvar Reykjavík-
ur, Hafrannsóknastofnunin, Sölu-
miðstöð hraðfrystihúsanna, Hóp-
ferðamiðstöðin og Sædýrasafnið í
Höfnum. Hafa SH og Hópferðamið-
stöðin styrkt ferðir nemenda af
miðstigi úr nokkrum skólum
Reykjavíkur suður í Hafnir til að
vinna þar verkefni er snerta öll
helstu svið náttúmvísinda sam-
kvæmt nýrri aðalnámskrá. Sérfræð-
ingur frá Hafrannsóknastofnun,
Agnar Steinarsson, hefur komið með
og veitt faglega ráðgjöf og leiðbein-
ingar.
Hópur kennara og annarra sér-
fræðinga hefur unnið allmikið verk-
efnasafn sem kennarar skólanna
geta valið úr til að vinna á Sædýra-
safninu í Höfnum á Reykjanesi. Um
er að ræða fjölbreytt verkefni sem
tengjast flokkun, lífsferlum og at-
ferli fiska og fjörulífvera og um-
hverfi þeirra, greiningu og rannsókn
á bjargfuglum, jarðfræði Reykja-
ness, eðlisfræði o.fl.