Morgunblaðið - 17.06.2000, Blaðsíða 68
^8 LAUGARD AGUR 17. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
i
f
!
!
!
Afleysingar
Á Flatir, Garðabæ og Foldir, Grafarvogi.
^ Upplýsingar í síma 569 1122.
Morgunblaðið leggur áherslu á að færa lesendum sínum vandaðar og áreiðanlegar
fréttir og upplýsingar. Morgunblaðið er eina dagblaðið á íslandi sem er i
upplagseftirliti og eru seld að meöaltali rúmlega 54.000 eintök á dag.
Höfuðstöðvar Morgunblaðsins eru í Kringlunni 1 í Reykjavik þar sem eru yfir
300 starfsmenn. Á Akureyri er starfrækt skrifstofa i Kaupvangsstræti 1.
Morgunblaðið kom fyrst út 2. nóvember 1913.
Árvakur hf. er útgefandi Morgunblaðsins.
I
AÐALDÆLAHREPPUR
Leikskólakennarar
■rAðaldælahreppur auglýsir eftir leikskólakenn-
ara eða leikskólastjóra við leikskóla Aðaldæla-
hrepps. Leikskólinn er í nýju húsnæði og um
20 börn eru í skólanum. Ráðið verður í stöðuna
frá 20. ágúst, eða eftir samkomulagi.
Aðaldælahreppur mun útvega húsnæði fyrir
nýjan leikskólakennara ef þess gerist þörf.
Upplýsingar eru veittar á skrifstofu Aðaldæla-
hrepps í síma 464 3510 þriðjudaga til föstudaga
kl. 13—17, og hjá leikskólastjóra í síma
„o464 3590 eða heimasíma 464 3532.
Umsóknarfrestur ertil 30. júní nk.
Umsóknir sendist til Aðaldælahrepps, Iðjugerði
1, 641 Húsavík.
Gull og grænir skógar!
í Fellaskóla, Fellahreppi, stendur nú yfir leit
að kennurum.
Um er að ræða umsjónarkennara á miðstigi
og kennara í erlendum tungumálum. Við get-
um ekki lofað miklu af gulli, þar sem greitt er
að mestu eftir kjarasamningi KÍ og Sambands
íslenskra sveitarfélaga, en grænir skógar eru
hér, þeir mestu á landinu!
Eins og þú veist eflaust er Fellahreppur 450
manna sveitarfélag norðan (vestan?) Lagarfljóts
í um 50 mínútna fjarlægð frá Reykjavík (með
flugi!) og í Fellaskóla eru um 90 nemendur.
Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir skóla-
stjóri í vs. 471 1015 og hs. 471 1748.
^Arkitekt — innanhússarki-
tekt — byggingafræðingur
— tækniteiknari
Óskum að ráða áhugasamt og metnaðarfullt
starfsfólk. Fjölbreytt viðfangsefni, skipulags-
mál, húshönnun og innréttingar. Starfsreynsla
og færni í tölvuteiknun (Auto-cad) áskilin.
Við bjóðum upp á góða vinnuaðstöðu og
áhugavert starf til lengri eða skemmri tíma.
>*^kriflegar umsóknir sendist til undirritaðs.
TEIKNISTOFA
ARKITEKTA
GYLFIGUÐJÓNSSON
OG FÉLAGAR
arkrtektar faí
Klapparstíg 16, 101 Reykjavík,
gylfi@mmedia.is
Domino's Pizzo óskar eftir
bíistjórum í vinnu.
Mjög góð iaun í boði fyrir gott fólk.
Athugíð að sveígjanlegur vinnutími er
í boði sem ætti að henfa öllum.
Umsóknareyðublöð fyrirliggjartdf t
öllum verslunum okkar eða a Netinu,
www.dominos.is
Menntaskólinn í Kópavogi
Framhaldsskóla-
kennarar
Menntaskólinn í Kópavogi óskareftirað ráða
kennara næsta skólaár í:
Dönsku — 1 staða
Launakjör fara eftir samningum kennarafélag-
anna og ríkisins. Umsóknum skal skila til skól-
ans fyrir 28. júní og verður öllum umsóknum
svarað. Nánari upplýsingar veita skólameistari
eða deildarstjóri í síma 544 5510.
Skólameistari.
Seltjarnarnesbær
Félagsþjónusta
Félagsráðgjafi
Félagsráðgjafi óskast í 75% starf við félags-
þjónustu bæjarins. Helstu þættir starfsins eru
félagsleg ráðgjöf, barnavernd, vímuvarnir,
umsjón með liðveislu fyrirfatlaða og stuð-
ningsfjölskyidum, eftirlit með daggæslu.
Ráðið verður tímabundið í starfið til eins árs
frá 1. september nk. Nánari upplýsingar gefur
félagsmálastjóri, Snorri Aðalsteinsson, eða
Sigrún Hv. Magnúsdóttir, félagsráðgjafi, Bæjar-
skrifstofum Seltjarnarness, Austurströnd 2,
sími 59 59 100. Umsóknarfrestur ertil 28. júní
2000. Umsóknir sendist félagsmálastjóra.
Félagsmálaráð Seltjarnarness.
I.EIKFÉLAG ÍSLANDS
® ■ " i -i.i—. i
Iðnó / Loftkastalinn / Hljóðsetning
Leikhúslistamenn
Nýtt sameinað leikfélag auglýsir eftir leikurum
og leikstjórum fyrir næsta leikár. Vinsamlegast
skilið inn umsóknum í Iðnó fyrir 23. júní nk.
Upplýsingar veittar í síma 5303030 þri
kl. 10 — 12 eða : magnus@idno.is.
Farið verður með allar umsóknir sem
trúnaðarmál.
Starfsmaður GLÍ
Glímusamband íslands auglýsir eftir starfs-
manni til að sjá um glímukynningar í grunnskól-
um landsins á næsta vetri. Áætlaður starfstími
er frá 1. ágúst til 1. júní og e.t.v. lengur ef um
semst. Starfsmanni verður lögð til bifreið.
Skrifleg umsókn sendist GLÍ íþróttamiðstöðinni
Laugardal, 104 Reykjavík.
Tölvupóstur: gli@toto.is
ÍSTAK
Byggingakranamenn
Óskum eftirað ráða byggingakranamenn með
kranaréttindi og starfsreynslu.
Vinnuvélastjórnendur
Óskum eftir að ráða vana vélamenn með
þungavinnuvélaréttindi.
Nánari upplýsingar veitir Jón Gils Ólason í
síma 897 7446, Smiðshöfða 3 — 5, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri
Frjáls félagasamtök óska eftir að ráða fram-
kvæmdastjóra í fullt starf. Leitað er að einstak-
lingi sem getur:
• unnið sjálfstætt
• með frumkvæði
• góð mannleg samskipti
• góða almenna menntun
• reynslu sem nýtist í starfinu
• þarf að hafa gott vald á íslensku, ensku og
einu Norðurlandamáli.
Áhugasamir sendi upplýsingar um menntun
og fyrri störf til auglýsingadeildar Mbl. fyrir
23. júní n.k. merkt: „F—9753".
Heilbrigðisstofnunin á Seifossi
Hjúkrunarfræðingar
Á Heilsugæslustöð Selfoss er laus afleysinga-
staða hjúkrunarfræðings. Um erað ræða 100%
stöðu til tveggja ára. Ráðning miðast við
1. sept. nk. A stöðinni er unnið í teymum sem
eykurfjölbreytni og sjálfstæði í starfi. Starfs-
svæði heilsugæslunnar er Selfoss og nálæg
sveitarfélög en á svæðinu búa um sex þús.
manns.
Nánari upplýsingar veitir Anna María Snorra-
dóttir, deildarstjóri, í síma 482 1300 og 696 7117.
Frá Grunnskólanum
í Bárðardal
Kennara vantar til almennrar kennslu næsta
skólaár. Um er að ræða eitt og hálft stöðu-
gildi.
I skólanum eru 13 nemendurá aldrinum 9
til 12 ára.
Áhugasamir hafi samband til að fá nánari upp-
lýsingar.
Umsóknarfrestur er til 15. júlí nk.
Svanhildur Hermannsdóttir skólastjóri,
s. 464 3291, fax 464 3215, netfang:
svanah@ismennt.is.
Jóhanna Rögnvaldsdóttir formaður skóla-
nefndar, s. 464 3292, fax 464 3392, netfang:
storuvellir@isholf.is.
Hollustuvernd ríkisins auglýsir eftir
sérfræðingi
Hann á að sinna fjölbreyttum störfum á sviði
mengunarvarna með höfuðáherslu á úrgangs-
mál. Æskileg menntun er meistarapróf eða
meira á sviði raunvísinda eða verkfræði. Ráðn-
ingartími í byrjun ertil eins árs.
Nánari upplýsingar veitir ÞórTómasson eða
Davíð Egilson í síma 585 1000.
Umsóknarfrestur ertil 1. júlí. Æskilegt erað
starfsmaður geti hafið störf sem fyrst.
Hollustuvernd ríkisins starfar skv. lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti Oj
og mengunarvarnir. Stofnunin hefur yfirumsjón með mengunar-
varna-, matvæla- og eiturefnaeftirliti í landinu og sér um rannsóknir
því tengdar. Starfsmenn eru um 50 og ársvelta rúmar 200 millj. kr.
Hollustuvernd ríkisins er reyklaus vinnustaður.
Póstfang: Pósthólf 8080, sími 585 1000, fax 585 1010.