Morgunblaðið - 17.06.2000, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 2000 37
Morgunblaðið/Amaldur
Vestnorræna menningarsetrið í Hafnarfirði verður opnað í dag.
V estnorrænt
menningarsetur
í Hafnarfírði
VESTNORRÆNT menningarsetur
verður opnað í Hafnarfirði í dag.
Setrið nefnist Vestnorden kultur-
hus. Starfsemin er í nánum tengsl-
um við Grænlendinga og Færeyinga
og er leitast við að draga fram sam-
eiginleg einkenni í menningu vest-
norrænu þjóðanna.
„Hugmyndin að menningarsetr-
inu hefur blundað í mér í nokkurn
tíma,“ segir Jóhannes Viðar Bjarna-
son, framkvæmdastjóri menningar-
setursins. „I gegnum tíðina höfum
við verið á vestnorrænum kaup-
stefnum sem hafa verið haldnar til
skiptis hér, í Færeyjum og á Græn-
landi. Okkur í ferðamálaiðnaðinum
hefur lengi langað til að tengja
böndin milli landanna sterkar og í
tilefni af nýrri öld fannst okkur til-
valið að láta drauminn rætast og
opna sameiginlegt menningarset-
ur.“
Fjölbreytt starfsemi
„Setrið er til húsa í gömlu stein-
húsi sem við höfum fært í stflinn,"
heldur Jóhannes áfram. „Pað er
sambyggt við Byggðasafn Hafnar-
fjarðar og starfsemi stofnananna
mun tengjast nokkuð. A neðri hæð
hússins er svo starfrækt verslun
með íslensku, grænlensku og fær-
eysku handverki auk þess sem hægt
er að nálgast upplýsingarit um lönd-
in. Við vonum að þetta verði eins
konar sameiginlegt sendiráð fyrir
þessi lönd því hér kemur fjöldi
ferðamanna á hverju ári.“
I menningarsetrinu er margs
konar önnur starfsemi. Listamaður-
inn Haukur Halldórsson hefur þar
vinnustofu og sýningarsal fyrir verk
sínen einnig er þar aðstaða fyrir
gestalistamenn til að sinna listsköp-
un sinni. Á efri hæðinni er ráðgert
að innrétta gistirými sem mun opna
í haust. „Þetta er svo auðvitað allt
tengt starfsemi Fjörukrárinnar allr-
ar, það er líka hægt að borða hér og
taka þátt í víkingaveislunum okkar.“
Setrið verður opnað kl. 12 í dag
með fjölbreyttri dagskrá og eru allir
velkomnir.
Fyrirlestur um
Vatnajökul
HELGI Björns-
son frá Raunvís-
indastofnun Há-
skóla íslands
heldur fyrirlest-
ur í Sindrabæ
þriðjudaginn 20.
júní kl. 20 á
Jöklasýningu
sem stendur yfir
á Höfn í Horna-
firði. Fyrirlesturinn heitir Vatna-
jökull: tilurð, yfirborð og botn, af-
koma og afrennsli íss og vatns og
mun Helgi gera grein fyrir mynd-
un Vatnajökuls og breytingum
hans frá landnámi, núverandi
stærð hans og þykkt. Lýst verður
botni undir jöklinum, sagt frá eld-
stöðvum undir honum, fjöllum og
dölum.
Greint verður frá afkomu jökuls-
ins síðastliðinn áratug og lýst
skriði hans og framhlaupum. Rætt
verður um afmörkun vatnasviða og
afrennsli til jökulfljóta, uppsöfnun
í lón undir jöklinum og loks rætt
um jökulhlaup.
Helgi Björnsson
Menning og náttúru-
auðæfí - Grindavfk
Laugardagur 17. júní.
Sameiginleg dagskrá í
Grindavík og við Bláa lónið.
Grindavíkurkirkja. Kl. 11.
Hluti af Kristnitökuhátíð í
Grindavík. Dagskrá í lok menn-
ingarhátíðar.
Kór Grindavíkurkirkju flytur
tónhugleiðingu um sjóferðabæn
sr. Odds V. Gíslasonar í saman-
tekt Guðmundar Emilssonar.
Einsöngvarar eru Signý Sæ-
mundsdóttir, sópran, Þórunn
Guðmundsdóttir, sópran, Matt-
hildur, alt, auk Júlíusar Karls-
sonar, drengjasópran. Píanó-
leikur: Kristinn Orn Kristins-
son.
Þá verður fluttur leikþáttur
eftir Berg Þór Ingólfsson um líf
og starf sr. Odds. Tveir leikarar
úr leikfélaginu La-gó í Grinda-
vík, Bogi Hallgrímsson og Víðir
Guðmundsson, leika öll hlut-
verkin. Jóhann Gunnarsson sér
um tónlistina.
Bláa lónið. K1 17.
Dixieland Band Árna ísleifs
leikur fyrir baðgesti.
www.grindavik.is.
Eldur og ís
í gufumekki
TOIVLIST
E1 d b o r g
MARK PHILIPS
KYNNIR VERK SÍN
Mark Philips: Intrusus, Summer
soft og Eldur og ís. Flutt af Há-
skólahljómsveitinni í Indiana,
Kammersveit háskólans í Ohio og
Kammersveit baltnesku fflharmón-
íunnar. Stjórnandi Guðmundur Em-
ilsson. Eldborg í Svartsengi kl. 17
þriðjudaginn 13.6. 2000.
MARK Philips er bandarískt tón-
skáld, lauk doktorsnámi frá Indiana-
háskóla og er nú prófessor við tón-
listardeild háskólans í Ohio. Hann
hefur samið fjölda tónverka sem
unnið hafa til alþjóðlegra verðlauna
og verið leikin víða um heim. Áður en
verkin voru flutt í orkuverinu mikla í
Illahrauni fluttu þeir Guðmundur
Emilsson og Mark Philips nokkur
aðfaraorð.
Intrusus er elst verkanna og var
samið meðan Mark var enn í námi og
var þá flutt af nemendum við Bloom-
ington-tónlistarháskólann í Indiana
og upptakan gerð á tónleikum. Verk-
ið er allt hávært, þar sem pákur og
málmblásarar ráða ríkjum, en á
stundum skýtur klarinetta upp koll-
inum og mildar tóninn.
Það má segja að lítil þróun eigi sér
stað í verkinu frá uppafi til enda,
andstæður þó oft miklar í skipulögð-
um hávaða með sterkum ryþma.
Kraftmikið æskuverk í hinum ágæt-
asta flutningi Guðmundar og Bloom-
ington-krakkanna.
Summer soft er ástarljóð til konu
Marks, ómþýtt, fallegt og róman-
tískt og var frumflutt af Islensku
hljómsveitinni í Neskirkju fyrir
mörgum árum. Sú hljóðritun sem
flutt var í orkuverinu er aðeins nokk-
urra vikna gömul og stjómaði Guð-
mundur þar verkinu í annað sinn.
Þetta ástarljóð var skrifað á viku og
er í tveimur þáttum sem h'ða fram
eins og lygn straumur með örstutt-
um einleiks-innskotum. Jafn ómþýtt
og Intrusus var ómstrítt og vel til
vinsælda fallið þó sykursæta stefið
vanti.
Þá var komið að því verki sem
flestir biðu eftir: Eldi og is, sem
Mark skrifaði sérstaklega fyrir
þessa menningarhátíð Grindavíkur.
Verkið er skrifað fyrir strengjasveit
og þar sem Mark hafði aldrei til ís-
lands komið og var ekki sérstaklega
vel að sér um íslandssöguna datt
honum í hug að nota þetta einkenni
landsins, eld og ís, í tónverki sínu. Og
það tókst honum sérlega vel.
Verkið er samfellt en þrískipt þó:
Eldur-ís-eldur og er síðasti hlutinn
unninn úr þeim fyrsta svo segja má
að þetta sé eins og í góðum söng-
dansi sem skiptist í a-b-a kafla. Þó
eru andstæðurnar í verkinu flull
sterkar til að falla að þeirri skýringu.
Kannski minnti verkið fremur á
stutta Ellington-rapsódíu með eld-
glæringum í upphafi og endi og ball-
öðu þar á milli. Ekki varð betur
heyrt en Guðmundur og sú
baltneska skiluðu verkinu með ágæt-
um. Styrkur eldgosanna var vel mót-
aður og fiðlur í millikafla bjuggu yfir
djassblæ og einleikskaflar og sam-
leikskaflar, mismannaðir, kölluðust
á og lituðu styrkinn.
0**
tmHaáhreinsunin
gSm 897 3634
Þrif á rimlagluggatjöldum.
Það þarf dálítið þor til að bjóða
upp á flutning af geisladiskum, þótt
heimsfrumflutningur sé, en um-
hverfið í samkomusal Svartengis-
orkuversins var sveipað þeirri dulúð
er þurfti til að slíkt gengi upp.
Það er margt líkt með nútíma-
djassi og tónskáldamúsík þó kollegar
mínir í skrifuðu deildinni hefðu trú-
lega hlustað á annan hátt og bent á
ýmislegt sem fór fyrir ofan garð og
neðan hjá mér. Aftur á móti þakka
ég Mark sér í lagi fyrir Eld og ís.
Frábært og skemmtilegt tónverk.
Skrímsli o g
ljúfur djass
Bláa lónið
TONY BAKER
Tony Baker básúnuleikari og
hljóðband flytja verk Marks Phil-
ips: Grameðlan. Þriðjudaginn 13.
júní kl. 20.
MARK Philips var ekki alveg
búinn með sitt þó tónskáldakynning-
unni í Illahrauni væri lokið. Klukkan
átta um kvöldið hafði Bjarni Bragi,
hljóðmeistari menningarhátíðar
Grindavíkur, stillt græjum sínum á
bakka Bláa lónsins og á milli hátalar-
anna hafði sá blakki básúnuvirtúós
Tony Baker tekið sér stöðu. Nú
skyldi flytja Tyrannosaurus Rex eða
Grameðluna fyrir hljóðband og
básúnu eftir Mark Philips. Þetta
verk er aldrei eins í flutningi því þó
það sé að mestu skrifað er rúm fyrir
u.þ.b. 20% spuna auk þess sem tóna-
list básúnuleikarans setur mark sitt
á verkið. Þetta er í annað sinn sem
verkið er flutt, en það var John
Marshallic er írumflutti það og fór
minna fyrir djasshrifunum en í flutn-
ingi Tony Bakers.
Rafhljóð þau er drundu úr hátöl-
urunum voru all mögnuð og hrotta-
fengin og ekki laust við að færi um
gesti Bláa lónsins, en aðeins augna-
blik, því brátt hóf Tony upp básúnu-
raust sína og manngerði hljóðlistina.
Ég sat úti í lóninu í heitu vatninu og
hlustaði heillaður á verkið. Tony var
með tvo dempara, annar „vava“, og
beitti þeim óspart við tónsköpunina.
Auk þess framleiddi hann allskonar
hljóð með munnstykkinu sem
minntu stundum á mannleg búkhljóð
meðan drundi í innyflum eðlunnar.
Þetta var tóngjömingur í orðsins
bestu merkingu og ég er viss um að
hinir aðskiljanlegustu gestir Bláa
lónsins hafa orðið fyrir upplifun sem
þeir gleyma seint.
Tony Baker, básúnu, Eyþór
Gunnarsson, rafpíanó, Tómas R.
Einarsson, bassa og Einar Valur
Scheving, trommur. Veitingahúsið
Jenný við Bláa lónið.
Þriðjudaginn 13.5. 2000 kl. 22.
Það var nokkuð öðruvísi Tony
Baker sem lék með þrælfínni hryn-
sveit Eyþórs Gunnarssonar í veit-
ingahúsi Jennýar við Bláa lónið eftir
að hafa jafnað sig eftir átökin við
Grameðluna hans Marks Philips. Nú
skyldi djassað á hefðbundinn hátt og
þar sem þeir félagar höfðu aldrei hist
áður var nauðsynlegt að bregða fyrir
sigstandardamáli djassins. Enn einu
sinni fengum við að heyra Bye, bye,
blackbird hjá Jennýju, en það var
allt í lagi, því lagið býr yfir nýjum
töfrum í hvert sinn og í þetta sinn
réð innhverf íhugun í upphafi. Lögin
streymdu svo fram eitt af öðru:
There’U never be another you, On
Green Dolphin Street, Jobim, Monk
og Ellington og í Satin doll meistar-
ans átti Eyþór glæsisóló eins og svo
oft þetta kvöld s.s. grúfið í There will
be no greater love og cresendóið í
Someday my prince will come. En
Eyþór er ekki einn í heiminum. Tony
Baker blés margan áætan sóló.
Tónninn er breiður og voldugur og
hann beitti demparanum skemmti-
lega í Body and soul þó hann ætti í
smáerfiðleikum með melódíuna.
Hann er greinilega ekki mjög vanur
standarddjassinum, enda fæst hann
mest við kennslu og tónskáldatón-
list. Djassinn er honum þó í blóð bor-
inn og hann hefur leikið með ýmsum
áætum djassleikurum vestra.
Tómas R. Einarsson var traustur í
ryþmanum að vanda og ekki lét Ein-
ar Valur sitt eftir liggja og skreytti
oft glæsilega hrynmyndina.
Frábært framtak hjá veitingahús-
inu Jenný að bjóða upp á djass og
vonandi verður framhald á slíku,
bæði þar og annars staðar á lands-
byggðinni - en það ræðst auðvitað af
því hversu almenningur kann vel að
meta herlegheitin.
Vernharður Linnet
TILBOÐ ÓSKAST
í Chevrolet Blazer LS 4x4 árgerð ‘95,
Ford Explorer XLT 4x4 árgerð ‘92
og aðrar bifreiðar, er verða sýndar að
Grensásvegi 9 þriðjudaginn 20. júní kl. 12-15.
Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16
UMSÝSLUSTOFNUN VARNARMÁLA
SALA VARNARLIÐSEIGNA