Morgunblaðið - 17.06.2000, Blaðsíða 78
78 LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Á A& FARA ) AÖREKA / HJÖRÐINA? j NEI, PAÐ ER " 4-0 ,—— GLIMUKEPPNIHJÁ NÁ TTÚRUVERNDAR- (Os>2£\ JU [samtökunumJ kæ&L fA
Grettir
Hundalíf
Ljóska
rHEY, PITCHER! IT HURT5
MV NECK IUATCHIN6 THE
OTHERTEAMMIT HOME
RUN5 OVER MV HEAP
I
5
|
MAVBE I LL JUST FACE THE
OTHER WAV, ANP THEN I
UJOH'T HAVE TO TURN AROUNP
EVERV TIME...VE5, THlS 15
60IN6 TO BE MUCH BETTER..
IT5 A NICE FEELIN6
KN0UIIN6 THAT YOUR
. PLAVER5 ARE COMFORTABLE,
Heyrðu, kastari! Mér verður illt
í hálsinum að horfa á hitt liðið
skjóta boltanum yfir höfuðið á
mér.
Kannski ég snúi mér bara við,
og þá þarf ég ekki að snúa mér
við í hvert einasta skipti.. Já,
þetta gengur miklu betur..
Það er góð tilfinning að vita að
lekmönnunum líður vel.
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Morgunblaðið/Ásdís
Skaftfell - menningarmiðstöð, Seyðisfirði.
Kyssti mig sól og
sagði: Sérðu ekki
hvað ég skín?
Frá Karólínu Þorsteinsdóttur:
„Á SE YÐI“ - listahátíð á Seyðisfirði:
Þetta er reyndar ekki í fyrsta sinn,
sem listahátíð er haldin á Seyðisfirði,
það er að verða hefð fyrir henni. Það
er mikill metnaður og gríðarleg
vinna, sem liggur að baki þess að sjá
um framkvæmd af þessu tagi. En allt
er samt hljóðlátara heldur en þegar
einn poppsöngvari frá Englandi
kemur og heldur tónleika í Reykja-
vík, - að visu ágætur -, en þó...?
Tónleikaröð Bláu kirkjunnar er
farin að vekja athygli. Þeir verða
haldnir öll miðvikudagskvöld í allt
sumar frá og með 21. júní - 6. sept-
ember. Ailir flytjendur eru frábært
tónlistarfólk, og hópurinn í heild yfir
40 manns.
Listsýningar verða opnaðar 17.
júní, á fleiri en einum stað. I menn-
ingarmiðstöðinni Skaftfelli ber hæst
sýningu Olav Christopher Jensen.
Hann er virtur listamaður í Skand-
inavíu og kemur ásamt Bemd
Koberling til þess að setja sýninguna
upp. Það er í raun mikið afrek fram-
kvæmdastjóra Skaftfells að ná þess-
ari sýningu hingað, og koma henni á
fót hér.
Þá er það menningardagur bama
24. júní í umsjón Péturs Kristjáns-
sonar, þar sem þema dagsins verður
„Karlinn í tunglinu - bömin á jörð-
inni“. „Karlinn í tunglinu - börnin á
jörðinni“, er samstarfsverkefni við
Reykjavík menningarborg Evrópu
árið 2000. Hugmyndasmiður er Pét-
ur Kristjánsson.
Ferða- og menningarmálafulltrúi
hefur haft í nógu að snúast. Hann
hefur verið framkvæmdastjóri
Kristnihátíðar 2000 hér á staðnum.
Og ef ég ætti að taka eitthvað alveg
sérstakt til viðbótar af öðmm
ónefndum atburðum, sem algjört
einsdæmi hér á landi, þá er það lista-
hátíð unga fólksins „LUNG“ sem
það kallar. Hér er um að ræða
sannkallaða sumarbústaða-rokk-
lista-útihátíða-festivalstemmningu.
Þar má segja að komi fram færir
listamenn á öllum sviðum, og þátt-
takendum er gefinn kostur á að
vinna eigin hönnun og listsköpun inn
í verk sín og flutning jafnóðum.
Þetta er hátíð þar sem verkefni og
skemmtan tengjast án þess að Bakk-
us sé í forsæti. Það er unga fólkið af
öllu Austurlandi sem verður gerend-
ur þessara gleðileikja.
Til viðbótar em Víkingadagar og
Norskir dagar o.f.l. fyrir höndum
hér, svo það er til margs að hlakka.
En það er unga fólkið sem ætíð
gleður mest, og núna um daginn hélt
Tónlistarskólinn sína árvissu loka-
tónleika, - þá fann ég að vorið var
komið.
Alltaf er það stórkostlegt að heyra
og sjá þessi litlu börn í hóp eða eitt
og eitt tjá sig í tónlistinni með alls-
konar hljóðfæmm og söng. Og alltaf
gerist það annað slagið að eitthvert
þessara barna tekur sér þann sess í
minningu manns, sem ekki gleymist
upp frá því.
A þessum tónleikum söng 13 ára
stúlka sig inn í mína minningu, sem
ég er viss um að muni endast mér
langa ævi. Kannski endist mér ævin
til að heyra hana aftur eftir 10 ár.
Hver veit?
Það er ótrúlegt hvað það vekur
mikla gleði þegar stóm bömin koma
og gefa ömmunni hlýtt faðmlag. Þeg-
ar ömmustrákarnir koma og vilja
leggja sig fram og hjálpa. Þegar litlu
börnin njóta þess að hlaupa út í vorið
og þegar táningurinn úr Reykjavík
kemur einu sinni enn til afa og
ömmu, og skilur ekkert í því af
hveiju pabbi og mamma vilja ekki
bara flytja „hingað", og þegar ég sé
svo stóran hóp af ungu fólki sitja
saman uppi í brekku og syngja og
spila á gítar.
Þá veit ég að sumarið er komið.
„Og segðu svo: Það er vetur.“ (G.B.)
KARÓLÍNA
ÞORSTEINSDÓTTIR,
húsmóðir, Seyðisfirði.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.