Morgunblaðið - 17.06.2000, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 2000
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Auðveldara með
hverju árinu sem líður
Sigríður Hrólfsdóttir er
nýráðin framkvæmda-
stjóri fjármálasviðs
Eimskips. Hún er að-
eins 33 ára og frami
hennar innan fyrirtæk-
isins hefur verið mjög
skjótur. Ivar Páll Jöns-
son ræddi við Sigríði um
nýja starfið, námsferil-
inn og fleira.
SIGRÍÐUR réðst til Eimskipa-
félagsins í ágúst 1998 sem
forstöðumaður fjárreiðu-
deildar. Nú, tæpum tveimur árum
seinna, hefur hún verið ráðin fram-
kvæmdastjóri fjármálasviðs fyrir-
tækisins. Því má með sanni segja
að hún hafí náð toppi íslensks við-
skiptalífs á skömmum tíma, ekki
síst með tilliti til þess að hún eign-
aðist tvíbura árið 1997, en þá starf-
aði hún hjá Islandsbanka F&M.
Sigríður er fædd í Reykjavík árið
1967. Hún ólst upp í Vesturbænum
og gekk í Vesturbæjarskóla og
Hagaskóla. Þaðan lá leiðin í Verzl-
unarskóla íslands og svo viðskipta-
fræðideild Háskóla íslands árið
Morgunblaðið/Þorkell
Sigríður Hrólfsdóttir, nýráðinn framkvæmdastjóri fjármálasviðs Eimskips.
1986. Sigríður útskrifaðist sem við-
skiptafræðingur árið 1990 og vann
þá í eitt og hálft ár hjá VÍB. í
kjölfarið dvaldi hún í Kanada í
nokkra mánuði og hóf svo loks
MBA-framhaldsnám við Berkeley-
háskólann í Kaliforníu. Þaðan út-
skrifaðist hún árið 1994.
Só sem vill kaupa verSbréf sem búið er að skrá rafrænt
hjá Verðbréfaskráningu Islands fer alveg eins að og hefði
hann keypt verðbréf í pappírsformi. Hafa þarf samband
við verðbréfafyrirtæki, banka eða sparisjóð og ganga frá
kaupunum. Söluaðilinn færir verðbréfin inn á VS-reikning
kaupanda og gefur kvittun fyrir viðskiptunum. Eini munurinn
er sá að bréfin fást ekki afhent í pappírsformi.
Sá sem vill selja verðbréf sem búið er að skrá rafrænt
hefur samband við söluaðila og gengur frá viðskiptunum.
Hægt er að óska eftir flutningi á viðkomandi rafbréfum til
annars verðbréfafyrirtækis.
Verðbréfafyrirtæki, bankar, sparisjóðir og aðrir aðilar á
fjármagnsmarkaði veita nánari upplýsingar um rafræna
skráningu verðbréfa.
Rafræn skráning verdbréfa
- augljós ávinningur, engin fyrirhöfn.
VERÐBREFASKRANING ISLANDS HF
The lcelandic Securities Depository Itd.
HaFnofhvol! • Trytjgvagölu 11 • Sími 540 5500 • v/ww.verdbfofaskranirfg.ífc
Hvernig var að
nema við Berkel-
ey-háskólann?
„Þessi skóli er
mjög skemmtileg-
ur. Hann hefur
stundum verið
kallaður „vagga
hippamenningar-
innar“ og því var
svolítið sérstakt og
gaman að stunda
þar viðskiptanám."
Varstu þá ekki
svolítið á skjön við
þann anda, sem ís-
lendingur?
„Kannski ekki
beint í náminu.
Þar var fólk frá
mörgum þjóðum;
30% nemenda voru
útlendingar. Þar
var keyrt hratt áfram. Kennslan
var í hæsta gæðaflokki, en námið
var töluvert frábrugðið náminu við
háskólann hérna heima og byggðist
að miklu leyti á verkefnum. Hrað-
inn var umtalsverður, en nemend-
um var vel sinnt og gerðar kröfur
til þeirra, enda höfðu þeir verið
valdir úr stórum hópi umsækjenda.
En mér fannst afar notalegt að
vera þarna og það var mjög vel tek-
ið á móti fólki.
Ég fékk tækifæri til að taka eina
önnina í London Business Sehool
og þótti gaman að fá tækifæri til að
bera skólana saman. Kennslufyrir-
komulagið í London Business
School var líkara því sem gerist
hérna, en meira er byggt á verk-
efnaskilum í Berkeley, eins og ég
kom að áðan, og frammistöðu í
tímum. Athyglisverður munur á
hugsunargangi Lundúnabúa og
Kaliforníumanna var áhersla þeirra
síðarnefndu á Asíuálfu. Evrópa er
svolítið fjarlæg í þeirra huga. I
London var einblínt á Evrópu og
Bandaríkin, en Asía var ekki í
sviðsljósinu."
Að löngu námi loknu hófstu svo
störf hjá íslandsbanka árið 1994 og
vannst þar í fjögur ár.
„Já, þar vann ég í fjárstýringar-
deild, sem síðar varð hluti íslands-
banka F&M og enn síðar hluti af
Islandsbanka-FBA. Verkefni mín
fólust í fjárstýringu og viðskiptum
með gjaldeyri og aíleiður. Til að
byrja með vorum við frekar fá í
deildinni og því fékk maður tæki-
færi til að kynnast fjölbreyttum
störfum. Ég tók þátt í fjármögnun
bankans og stýringu á lausafé hans.
Þá átti maður einnig samskipti við
viðskiptavini bankans og gerði við
þá ýmiskonar samninga. Um það
Morgunblaðiö/Amaldur
Sigríður í faðmi fjölskyldunnar; ásamt eiginmanninum Gunnari Sverr-
issyni og tvíburunum Halldóri Árna og Sverri Geir, þriggja ára.
leyti voru framvirkir samningar
íyrst að ryðja sér til rúms.“
Þú hefur semsagt verið í hring-
iðu byltingarinnar sem varð á ís-
lenskum fjármálamarkaði á þessum
árum.
„Já, ég kom eiginlega inn í byrj-
unina, þegar fáir vissu deili á val-
réttarsamningum, svo dæmi sé
nefnt. Kennsla í fjármálum hafði
verið af skomum skammti, en hún
hefur auðvitað gjörbreyst og batn-
að síðustu ár. Við þessar aðstæður
kom sér afskaplega vel fyrir mig að
hafa sérhæft mig í fjármálum í
MBA-náminu ytra. Ég hafði reynd-
ar haft tækifæri til að vinna hjá Is-
landsbanka á sumrin þessi tvö ár
sem ég stundaði námið úti og fékk
því smjörþefinn af því sem myndi
bíða mín. Ég reyndi að velja þau
námskeið á seinna árinu sem ég
taldi að myndu nýtast best hér
heima.“
Árið 1998 varstu svo ráðin sem
forstöðumaður fjárreiðudeildar
Eimskipafélagsins. Hvernig breyt-
ing var það?
„Hún var afar kærkomin. Ég
hafði áhuga á að færast úr fjár-
málaheiminum yfir í fyrirtækja-
rekstur. Hér eru gerðir margir
samningar af ýmsu tagi og mikið
unnið á fjármálamarkaðinum. Flest
lán Eimskips eru í erlendri mynt
og mikil áhættustýring á sér stað í
tengslum við það. Reynslan sem ég
hafði aflað mér hjá íslandsbanka
nýttist mér mjög vel og gerir enn.“
Ferill ræðst af hæfileikum,
ekki kynferði
Nú ert þú með hæst settu konum
í íslenskum fyrirtækjum og ein af
fáum í stjórnunarstöðum. Er móðg-
andi að spyrja þig um stöðu kvenna
í íslensku viðskiptalífi og hvernig sé
að vera kona í karlaveldi? Er verið
að gefa í skyn að þú hafír náð meiri
árangri en ella vegna þess að þú ert
kona?
„Ég kýs nú að líta svo á að ferill
einstaklings innan fyrirtækis ráðist
af hæfileikum hans, og kannski að
einhverju leyti heppni, frekar en
kynferði. Ég hef til að mynda enga
trú á því að stórfyrirtæki á borð við
Eimskip fari að ráða konur í stjórn-
unarstöður bara vegna kynferðis.
Það væri einfaldlega út í hött.
Stjórnendur fyrirtækisins hafa hins
vegar verið mjög opnir fyrir því að
ráða konur, en þá bara á þeim for-
sendum að þær sitji við sama borð
og karlar. Hlutur kvenna hefur ver-
ið of lítill í íslensku viðskiptalífi og
er enn. Kannski vegna þess að
stjórnendur fyrirtækja eru flestir á
miðjum aldri og menntuðu sig á
þeim tíma þegar andinn var annar
og konur stóðu körlum ekki jafn-
fætis hvað menntun varðar. En
sem betur fer er þetta smám sam-
an að breytast og sú þróun mun
halda áfram.“
í hverju felst starf þitt sem
framkvæmdastjóri fjármálasviðs
Eimskips?
„Ég stýri fjármálasviðinu, eins
og starfsheitið gefur til kynna. Inn-
an fjármálasviðsins eru fjárreiðu-
deild, sem ég stýrði áður, fjárhags-
deild, starfsþróunardeild og
trygginga- og tjónadeild. Fjár-
reiðudeildin heldur utan um fjár-
magnsflæðið í fyrirtækinu og sér
um lántökur, lausafjár- og áhættu-
stýringu. Innan hennar er líka inn-
heimtudeild sem
sér um allar inn-
heimtur. Fjár-
hagsdeildin skipt-
ist í bókhald og
hagdeild. Hún sér
um uppgjör og
upplýsingagjöf um
afkomu félagsins.
Starfsþróunar-
deild sér um
starfsmannamál
og skrifstofuþjón-
ustu og trygg-
inga- og tjóna-
deild sér um
tryggingamálin.
Starfsmenn á
fjármálasviðinu
eru sjötíu talsins.
Þessu starfi fylgir
auðvitað hlutverk
yfirmannsins, sem
þarf að stýra og
vinna með fólki. Sá hluti starfsins
er því stærri en áður hjá mér, þeg-
ar ég sinnti meira praktískum
verkefnum. Mér finnst þetta mjög
spennandi starf; það er fjölbreytt
og ég fæ að fást við ýmislegt sem
ég hef ekki reynt áður.“
Rótgróið fyrirtæki
Hyggstu beita þér fyrir einhveij-
um breytingum í fyrírtækinu?
„Eflaust verða alltaf breytingar
þegar nýtt fólk tekur til starfa.
Hins vegar er alls ekki tímabært að
vera með neinar yfirlýsingar þess
efnis."
Hvernig vinnustaður er Eim-
skip? Hvernig er hin svokallaða
„menning“ í fyrirtækinu?
„Eimskip er auðvitað rótgróið og
gamalt fyrirtæki. Ég myndi segja
að því fylgdi góður og hlýlegur
andi. Starfsemin er í föstum skorð-
um og að mínu mati er starfsandi
almennt með miklum ágætum. Eft-
ir því sem ég best hef séð er fólk al-
mennt mjög sátt.“
Þú eignaðist tvibura árið 1997.
Fyrirfram myndi maður ætla að
slíkur stórviðburður yrði þrándur í
götu konu á uppleið?
„Auðvitað var þetta nokkuð erf-
itt, enda held ég að umönnun tví-
bura sé að minnsta kosti tvöfalt
verk á við umönnun eins barns. Ég
var ennþá hjá Islandsbanka þegar
ég eignaðist þá og tók mér ellefu
mánaða leyfi frá störfum. Þetta
hefur verið töluvert púsluspil, en
hefur gengið alveg ágætlega. Yfir-
menn mínir hafa sýnt þessu mikinn
skilning og svo má ekki gleyma því
að Gunnar eiginmaður minn hefur
tekið þátt í uppeldinu til jafns við
mig. Þetta verður auðveldara með
hverju árinu sem líður.“