Morgunblaðið - 17.06.2000, Blaðsíða 52
52 LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 2000
VIKII
m
MORGUNBLAÐIÐ
Vísindavefur Háskóla íslands
Verða ruslatunnur í fram
tíðinni lítil svarthol?
VISINDI
í þessari viku hefur verið fjallað á Vís-
indavefnum um skólaskyldu, hvítasunn-
una, lögun DNA-sameindarinnar, óendanleika tímans, dauðasynd-
irnarsjö, andþyngdarafl, einhyggju ogtvíhyggju, hraða í kappakstri
ogskíðastökki, dauða risaeðlanna, fjarlægð Plútós, drauga, hugs-
anlega risaplánetu, salt í umhverfinu, nærbuxur og sitthvað fleira.
Þá hefur verið rætt um sálina frá mismunandi sjónarmiðum og á
síðustu dögum hafa birst fróðleg svör um læknisfræði eftir nokkurt
hlé á því sviði. Þeir Haukur Már Helgason og Tryggvi Þorgeirsson
vinna í sumar í fuilu starfi við Vísindavefinn ásamt Þorsteini Vil-
hjálmssyni ritstjóra. Starfsmenn í hlutastarfi eru þau Elín Elísabet
Torfadóttir, Hrannar Baldursson ogStefán Ingi Valdimarsson.
Verða ruslatunnur í
framtíðinni lítil svarthol?
SVAR:
Svarið er í stuttu máli að við
höfum ekki trú á þessu af ýmsum
ástæðum. Svarthol eru ekki þægi-
legir nágrannar og athuganda
sýnist ekki að hlutir falli nokkurn
tímann inn fyrir sjónhvörfin. Við
mundum því geta skynjað rafseg-
ulgeislun frá ruslinu til eilífðar-
nóns eða jafnlengi og svartholið
varir! Þyngdarkraftar frá svart-
holinu yrðu til óþæginda. Auk
þess eru minni háttar svarthol
eins konar tímasprengjur og
geysileg orka losnar þegar þau
springa.
Fjallað er nánar um svarthol al-
mennt í svari Tryggva Þorgeirs-
sonar og Þorsteins Vilhjálmssonar
við spurningunni Hvað er svart-
hol?
Eftir því sem við best vitum eru
svarthol ekki beinlínis þægilegir
nágrannar. Flest þeirra eru sem
næst ósýnileg en jafnframt orka
þau á mann með verulegum
þyngdarkrafti. Og ef maður fiæk-
ist of nálægt er voðinn vís. Hver
mundi vilja hafa svona fyrirbæri í
garðinum hjá sér?
Það er að vísu rétt að menn
telja nú að lítil svarthol kunni að
vera til, og þá merkir orðið „lítill"
www.opinnhaskolí2000.hi.is
að upphaflegur massi hafi verið
óverulegur. En engu að síður eru
sjónhvörf kringum hvert svarthol.
Þegar hlutur eins og ruslið frá
okkur fellur í átt að svartholinu
sýnist athuganda fyrir utan það
hluturinn fara hægar og hægar
þegar hann nálgast sjónhvörfin og
hluturinn virðist aldrei fara inn
Svarthol étur sijörnu.
fyrir þau. Ef við fengjum okkur
svarthol fyrir ruslatunnu mætti
því ætla að við hefðum ruslið fyrir
augunum til eilífðarnóns. Svo er
þó ekki þegar betur er að gáð því
að þyngdarsvið svartholsins veld-
ur svo miklu rauðviki í ljósinu frá
ruslinu að það mundi birtast okk-
ur sem útvarpsbylgjur.
féllum í átt að svartholinu mund-
um við slitna sundur og það gerist
jafnvel enn fyrr við lítið svarthol
en stórt.
Nú sýnist kannski einhverjum
vera mótsögn í þessu, að annars
vegar sé sagt að hlutirnir stöðvist
en hins vegar að þeir falli og slitni
sundur. En þetta er einmitt ekki
mótsögn heldur skýrist það af
grundvallarhugsun afstæðiskenn-
ingarinnar, að útlit hluta og at-
burðarása fer eftir því frá hvaða
viðmiðunarkerfi er horft á það.
Annars vegar horfum við á annan
hlut falla inn að svartholinu en er-
um sjálf kyrr fyrir utan það, og
hins vegar erum við að lýsa því
sem við yrðum fyrir ef við féllum
sjálf þarna inn. Viðmiðunarkerfið
er þá ekki lengur kyrrt miðað við
svartholið heldur í frjálsu falli
! inn að því.
Enn er því við að
bæta að „lítil“ svart-
. eru mjög óstöðug
þegar tekið
I er tillit til
skammtaf-
ræðilegra áhrifa. Hinn frægi
breski stjarneðlisfræðingur
Stephen Hawking varð fyrstur
til að athuga slík áhrif sér-
staklega. Vegna þeirra blossa lítil
svarthol upp í öflugri sprengingu.
Meðalævi svarthols með massa á
við Esjuna mun vera um ein
míkrósekúnda. Það segir okkur í
fyrsta lagi að stöðug ruslatunna af
þessu tagi verður að hafa veruleg-
an massa og óvíst er hversu vist-
legt yrði í garðinum hjá manni
með slíkan grip í einu horninu. í
öðru lagi væru veruleg óþægindi
af því þegar gamlar tunnur
spryngju í loft upp og losuðu
massaorku sem svarar til heils
fjalls á broti úr sekúndu.
Lárus Thorlacius og Þorsteinn Vil-
hjálmsson, prófessorar við eðlisfræðiskor
Iiáskóla íslands.
í fyrrnefndu svari um svarthol
almennt er meðal annars fjallað
um sjávarfallakrafta en þeir leit-
ast við að slíta í sundur hluti í
grennd við svartholið, til dæmis
nálægt sjónhvörfum. Á því svæði
eru þessir kraftar þeim mun meiri
sem svartholið er minna. Ef við
værum sjálf á þessu svæði eða
Eru einhverjar sannanir um
tilvist drauga og annarra
slíkra anda?
SVAR:
Allar sögur af draugum eru at-
vikasögur, sögur af einstökum til-
vikum. Draugasögur hafa tilhneig-
ingu til að skreppa saman þegar
menn ætla sér að beisla fyrirbær-
in með vísindalegri aðferð. Draug-
ar gera ekki vart við sig reglulega
í einhverju tilteknu orsakasam-
hengi. Engar óvéfengjanlegar vís-
* A
A sloðum Ferðafélags Islands
Gönguferð á Dag-
málafjall undir
Eyjafjöllum
Af hlaðinu í Stóru-Mörk blasir við allhátt
fjall, Dagmálafjall. Leifur Þorsteinsson
lýsir hér gönguferð um fjallið.
„Ekki er mér
kunnugt um að
lýst hafi verið né
auglýstar leiðir
um Eyjafjöll að
fráteknum svæð-
um eins og Þórs-
mörk og leið á Eyjafjallajökul og
Fimmvö.rðuháls. Þó er það stað-
reynd að óvíða er jafn stórhrika-
legt og fjölbreytt landslag í næsta
nágrenni við fjölfarinn þjóðveg og
er undir Eyjafjöllum. Þar má finna
fjölda auðveldra gönguleiða, sem
gefa náttúruskoðara nóg að huga
að.“ Þannig ritar Jón Jónsson jarð-
fræðingur í 9. ársrit ferðafélagsins
Útivistar sem út kom 1983. Það er
vþetta svæði sem við ætlum að
kanna aðeins nánar.
Þegar komið er austur fyrir
gömlu Markarfljótsbrúna blasir við
okkur dalkvos sem í eru fjórir
bæir. Þeir eru Stóra-Mörk, Mið-
Mörk, Syðsta-Mörk og Eyvindar-
holt. Þótt eðlilegast væri að telja
þessa bæi þá vestustu í Vestur-
Eyjafjallahreppi er ekki svo því ut-
an við fljótið eru einnig nokkrir
bæir sem tilheyra þeirri sveit. Það
byggist á því að áður en hlaðið var
fyrir Markarfljót var rennsli þess
allt öðruvísi heldur en það er núna.
í daglegu tali eru þessir bæir
nefndir Merkurbæir. Heilmikil
saga er tengd þeim öllum sem ekki
verður rakin hér.
Af hlaðinu í Stóru-Mörk blasir
við manni allhátt fjall, Dagmála-
fjall, sem einnig er eyktarmark. Á
þetta fjall ætlum við að ganga. Þó
svo fjallið blasi við frá Stóru-Mörk
er sennilega best að ganga á það
frá Syðstu-Mörk. Er þá gengið í
norðaustur frá bænum skáhallt upp
hlíðina. Fljótlega verður á vegi
okkar allsérkennilegt mannvirki.
Þetta er vatnsból þeirra Vest-
mannaeyinga. Eftir þvi sem ofar
dregur minnkar samfelldur gróður.
Þó er talsvert af gróðurtorfum sem
staðfestir að hér er talsverður upp-
blástur. Við komum nú að gili sem
kallað er Kambagil. Inn með þessu
gili göngum við og höfum það á
hægri hönd. Þetta er hrauntröð og
eru upptök hraunsins í stórum
skeifulaga, rauðleitum gjallgíg sem
opinn er til austurs. Þarna heitir
Rauðahraun. Austan við Rauða-
hraun er hringlaga dalverpi sem
nefnist Magridalur. Þægilegt er að
ganga eftir hryggnum norðan dals-
ins. Þar blasir við okkur rismikið
og allbratt fjall. Þetta er Dagmál-
fjall, 968 m hátt. Þarna uppi er
geysivíðsýnt og ægifagurt útsýni til
allra átta. í góðu skyggni má sjá
allt vestur á Reykjanes og Vest-
mannaeyjar og Fljótshlíðin með