Morgunblaðið - 17.06.2000, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 2000
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
KEA og VISA
semja um útgáfu
greiðslukorts
FORSVARSMENN
Kaupfélags Eyfirð-
inga og VISA ís-
land hafa skrifað
undir samning um
útgáfu á nýju
greiðslukorti sem
mun bera nafnið
Kostakort. Um er
að ræða alþjóðlegt
VISA-kreditkort
sem að auki veitir
starfsmönnum, fé-
lagsmönnum og við-
skiptamönnum KEA
og dótturfélaga þess
ýmsan ávinning.
Hið nýja kort get-
ur verið hvaða gerð
VISA-kreditkorts
sem er og getur fólk
með einföldum
hætti skipt út nú-
verandi VISA-korti
fyrir Kostakort,
notið áfram allra
sömu réttinda og
gamla kortið gaf en
að auki notið ýmissa
fríðinda með því að
eiga viðskipti við
KEA og dótturfé-
lög. Stefnt er á að fleiri fyrirtæki
geti gerst aðilar að kostakortinu
þegar fram í sækir. Aformað er að
taka kortið í notkun nú í haust.
Meginmarkmið þessa framtaks
af hálfu KEA er að koma til móts
við félagsmenn og gefa þeim kost
á að njóta ávinnings af því að eiga
viðskipti við félagið og dótturfélög,
svo sem Nettó-, Úrval- og Strax-
verslanirnar. Korthöfum mun
standa til boða betri kjör á ýmsum
vörum og þjónustu. Að auki verður
félagsmönnum sem nota kortið
umbunað sérstaklega. Stefnt er á
að reikningsviðskipti viðskipta-
Við undirritun samningsins um Kostakort. Ein-
ar S. Einarsson, framkvæmdastjóri VISA Island
og Eiríkur S. Jóhannsson, kaupfélagsstjóri
KEA, handsala samninginn.
manna KEA fari sem mest í gegn-
um Kostakortið í framtíðinni.
Kortin verða auðkennd sérstak-
lega á bakhlið en líta að öðru leyti
út eins og hefðbundin VISA-
kreditkort.
Miklar breytingar hafa orðið á
eðli og starfsemi KEA á síðustu
misserum og hafa forsvarsmenn
þess leitað leiða til að auka og
teysta tengsl félagsmanna við fé-
lagið að því er fram kemur í frétt
frá KEA. Útgáfa kortsins er liður í
því að ná þessu markmiði, en fé-
lagsmenn munu hafa fjárhagslegan
ávinning af því að nota kortið.
Afbrigði-
leg egg
FLEST í náttúrunni er mjög öruggt
og hefðbundið en þó koma af og til
ýmis afbrigði sem líkjast í engu því
hefðbundna og reglulega.
Fiskar, fuglar og egg og fleiri
koma með frábrugðin eintök eins
og hvítingjar hjá mörgum tegund-
um fugla og dýra.
Hér er um egg að ræða sem eru
mjög afbrigðileg. Mjög stórt svart-
fuglsegg úr Suðurey, 185 gr. en
venjulegt er um 110 gr. Þetta stóra
egg nálgast mjög þá stærð sem
geirfuglseggin voru. Svo er afskap-
lega lítið svartfuglsegg úr Hellisey
eins og lítil keila.
Upplýsingamiðstöð ferðamála á Akureyri
Nýr tölvubunaður
UPPLÝSINGAMIÐSTÖÐ ferða-
mála á Akureyin hefur tekið í notkun
nýjan tölvubúnað og tengingar við
gagnagrunn Ferðamálaráðs Islands
og einnig er þar að finna hugbúnað
bókunarkerfis frá Bókunarmiðstöð
íslands.
Pétur Rafnsson, formaður Ferða-
málasamtaka Islands, sagði að ætl-
unin væri að útvega átta landshluta-
upplýsingamiðstöðvum slíkan búnað
og hefur hann þegar verið settur upp
á nokkrum þeirra. Hann sagði þetta
kleift eftir að Alþingi samþykkti að
auka framlag til rekstrar og upp-
byggingar upplýsingamiðlunar en
það nam nú 10 milljónum króna. I
framtíðinni er ætlunin að halda þess-
ari uppbyggingu áfram og stefnt að
Knútur Karlsson, forstöðumað-
ur Upplýsingamiðstöðvar ferða-
mála á Akureyri og Pétur
Rafnsson.
því að samtengja upplýsingamið-
stöðvar á fleiri stöðum, en um er að
ræða þriggja ára verkefni.
Sólstöðutónleikar
KVENNAKÓRINN Lissý úr Suður-
Þingeyjarsýslu og Akureyri verður
með Sólstöðutónleika á Breiðumýri í
Reykjadal á morgun, sunnudaginn
18. júní, kl. 15. Boðið verður upp á
kaffiveitingar að tónleikunum lokn-
um. Efnisskrá kórsins verður fjöl-
breytt og vorleg. Stjómandi kórsins
er Roar Kvam, píanóleikari er Aladár
Rácz, einsöngvarai' eru þær Hildur
Tryggvadóttir, Kristín Alfreðsdóttir
og Margrét Sigurðardóttir.
117 brautskráðir á háskóla-
hátíð Háskólans á Akureyri
Fyrstu nýbyggingar háskólans og
nýr stúdentagarður í notkun í ágúst
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Háskólahátíð Háskólans á Akureyri var haldin í Glerárkirkju en þar
voru brautskráðir 117 nemendur.
ALLS voru 117 kandídatar braut-
skráðir frá Háskólanum á Akureyri
á háskólahátíð sem haldin var í
Glerárkirkju síðasta laugardag, 28
hjúkrunarfræðingar, 11 með B.Ed-
próf í kennarafræði, 38 með B.Ed-
próf í leikskólafræði, 16 með próf í
kennslufræði til kennsluréttinda, 14
voru brautskráðir með B.S.-próf í
rekstrarfræði og 9 með B.S.-próf í
sjávarútvegsfræði.
Fram kom í máli Þorsteins Gunn-
arssonar, rektors Háskólans á Ak-
ureyri, að nú voru í fyrsta sinn
brautskráðir leikskólakennarar, 23
talsins, sem lögðu stund á sérskipu-
lagt leikskólakennaranám, en um
var að ræða leikskólakennara sem
lokið höfðu prófi frá Fósturskóla Is-
lands og vildu öðlast fullgilda háskó-
lagráðu. Nám fyrir leikskólakenn-
ara hófst fyrst hér á landi á
háskólastigi við Háskólann á Akur-
eyri haustið 1996. „Mikill skortur er
á leikskólakennurum víða um land
og er því ljóst að mikil þörf er á
þessu námi. Góðir leikskólar með
vel menntuðum leikskólakennurum
eru mikilvæg undirstaða fyrir bætt
búseturskilyrði í landinu,“ sagði
Þorsteinn.
Einnig voru í fyrsta sinn braut-
skráðir rekstrarfræðingar með
ferðaþjónustu sem sérgrein og voru
þeir tveir að þessu sinni, en námið
hófst við háskólann haustið 1998.
Benti rektor á í ræðu sinni að skort-
ur væri á háskólamenntuðu fólki í
ferðaþjónustu víða um land og því
ljóst að mikil þörf væri fyrir þetta
nám. Þá voru einnig brautskráðir
tveir kandídatar, rekstrarfræðingar
sem eingöngu höfðu stundað fjar-
nám við háskólann, en það stunduðu
þeir um fjarfundabúnað og með
tölvusamskiptum frá Egilsstöðum.
Þá voru einnig brautskráðir í
fyrsta sinn þrír sjávarútvegsfræð-
ingar með matvælaframleiðslu sem
sérgrein, en það nám hófst við há-
skólann haustið 1996. „Það er víst að
sjávarútvegsfræðingar með þessa
menntun verða eftirsóttir í mat-
vælavinnslu sem er stóriðja okkar
Islendinga," sagði rektor.
Næsta haust hefst við háskólann
framhaldsnám við kennaradeild,
þ.e. 30 eininga diplóm-nám í stjórn-
un en síðar meir er áformað að hægt
verði að ljúka meistaragráðu.
„Þetta eru stór tímamót í sögu há-
skólans vegna þess að þetta er í
fyrsta skipti sem háskólinn býður
sjálfstætt upp á framhaldsnám,"
sagði Þorsteinn, en áður hefur há-
skólinn boðið upp á meistaranám í
hjúkrunarfræði í samstarfi við Há-
skólann í Manchester.
Fram kom í máli rektors að fyrstu
nýbyggingar háskólans verða tekn-
ar í notkun á háskólasvæðinu í ágúst
næstkomandi. Um er að ræða ný-
byggingar fyrir almennar kennslu-
stofur og fyrirlestrarsal sem þjóna
munu vel þörfum metnaðarfulls há-
skólastarfs. Kennsluhúsnæðið er
tvær álmur með átta almennum
kennslustofum, auk hópherbergja
þær tengjast svo gangi sem tengir
saman húsnæði háskólans. A gang-
inum eru setustofur og opin rými til
viðveru og sýningarhalds. Næsta
haust mun meira en helmingur
nemenda háskólans stunda nám á
háskólasvæðinu í byggingum sem
hafa verið sérhannaðar fyrir kröfur
nútíma háskólastarfs og sagði rekt-
or um mikla. framför að ræða hvað
varar aðstöðu háskólafólks til náms,
kennslu og rannsókna.
Átak í byggingu
stúdentagarða
Samhliða uppbyggingu kennslu-
húsnæðis er einnig verið að gera
átak í uppbyggingu stúdentaíbúða.
Við Drekagil 21 er verið að byggja
stúdentagarð, sjö hæða byggingu
um 2.200 fermetra. Þar verða 29
íbúðir, 14 3ja herbergja, jafnmargar
2ja herbergja og ein einstaklings-
íbúð. Félagsstofnun stúdenta kaup-
ir 10 íbúðir strax og leigir hinar 19
af verktaka og hefur forkaupsrétt á
þeim. Lokið verður við bygginguna í
ágúst næstkomandi þannig að íbúar
geta flutt inn við upphaf næsta
skólaárs. I byggingunni verður ör-
bylgjusamband fyrir tölvusamskipti
þannig að íbúar geta tengst tölvu-
kerfi háskólans með hraðvirkum
hætti.
Fjölbreytt
dagskrá á
þjóðhátíð-
ardaginn
DAGSKRÁ þjóðhátíðardags-
ins á Akureyri hefst á Hamar-
kotsklöppum i dag kl. 13.30
með leik Lúðrasveitar Akur-
eyrar. Kór Akureyrarkirkju
syngur og sr. Svavar A. Jóns-
son flytur helgistund. Sigurð-
ur J. Sigurðsson forseti bæjar-
stjórnar flytur hátíðarávarp.
Þá verður farið í skrúðgöngu
þaðan og að Ráðhústorgi þar
sem fjölskylduskemmtun hefst
kl. 15.
Orn Árnason stjórnar
skemmtuninni og kemur fram
í mörgum gervum. Kristján
Þór Júlíusson bæjarstjóri flyt-
ur ávarp, Eygló Svala Arnar-
dóttir nýstúdent frá Mennta-
skólanum á Akureyi'i flytur
ávarp og Guðný María Jó-
hannsdóttir nústúdent frá
Verkmenntaskólanum á Akur-
eyri flytur ávarp fjallkonunn-
ar. Þá verður boðið upp á
skemmtiatriði af ýmsu tagi,
Vernharð Þorleifsson júdók-
appi glímir við bæjarstjórann,
Gunni og Felix skemmta og
fjöllistamaðurinn Mighty Gar-
eth sýnir ótrúleg atriði. Hljóm-
sveitin Land og synir leikur
svo í lok skemmtunarinnar.
Kvöldskemmtun hefst kl. 20
á Ráðhústorgi, þar sem hljóm-
sveitin Land og synir leikur,
einnig Vampíras og fjöllista-
maðurinn kemur fram. Hljóm-
sveitin Tvöföld áhrif leikur
fyrir dansi og nýstúdentar
mæta á svæðið um kl. 23. Flug-
eldasýning verður kl. 23.30 á
planinu við Strandgötu.
Utisamvera
við Kvenna-
borgir
JAFNRÉTTISNEFND Akur-
eyrar stendur fyrir útisamveru
við Kvennaborgir ofan Akur-
eyrar 19. júní nk. kl. 17-19 í til-
efni 85 ára afmælis kosninga-
réttar kvenna á Islandi. Það
verða m.a. gróðursettar 85
plöntur, ein fyiir hvert ár sem
liðið er frá þessum tímamótum.
19. júní hefur lengi verið
stór dagur í lífi kvenna á ís-
landi, en þann dag fyrir 85 ár-
um fengu íslenskar konur
kosningarétt og kjörgengi sem
þó var háð þeim skilyrðum að
þær þurftu að vera 40 ára til að
geta kosið, segir í fréttatil-
kynningu.
Jafnréttisnefnd vonast til að
konur mæti vel og taki með sér
teppi og nesti. Ungt fólk og
fjölskyldur þeirra er sérstak-
lega boðið velkomið ásamt auð-
vitað öllum hinum.
Forstöðumaður
í Hlíðarfjalli
Níu sóttu
um starfíð
NÍ U umsóknir bárust um stöðu
forstöðumanns á skíðasvæðinu
í Hlíðarfjalli en frestur rann út
nú í vikunni.
Þeir sem sóttu um eru Ásgeir
Bragason, Akureyri, Björn
Víkingsson, Akureyri, Guð-
mundur Karl Jónsson, Denver,
Colorado í Bandaríkjunum,
Ingimar Eydal, Akureyri,
Jónas Orn Steingrímsson, Ak-
ureyri, Kári Ellertsson, Akur-
eyri, Kjartan Kolbeinsson,
Ákureyri, Olafur Gísli Hilmars-
son, Ákureyri og Valur Þór
Hilmarsson, Akureyri.